Tíminn - 16.01.1987, Qupperneq 7
Föstudagur 16. janúar 1987 Tíminn 7
IIIIIH... I'ITIÓND
Áætlun Norths var gerð þann 24
janúar á síðasta ári og sagði blaðið
hana hafa fundist í skjalaskrá undir-
ofurstans.
North gerði ráð fyrir að í fyrstu
yrðu bandarísk vopn seld ti! hófsam-
ari afla í íran en síðan kæmu trúar-
leiðtogar á borð við Jóhannes Pál
páfa og John O'Connor kardinála í
New York inn í myndina.
Blaðið sagði North einnig hafa
skipulagt fund háttsettra embættis-
manna og aukna vopnasölu til Irans
í því skyni að fá alla gísla í Líbanon
lausa og koma Khomeini frá
völdum.
Stórblaðið skýrði ekki frá ná-
kvæmlega hvernig North hafði hugs-
að sér að hófsamari öfl næðu völdum
í íran eða hvaða hlutverki kirkju-
leiðtogarnir áttu að gegna.
Reagan Bandaríkjaforseti rak
North úr starfi sínu hjá Þjóðarörygg-
isráðinu á síðasta ári.
Washington Post:
Páfi í áætlunum
Norths um að koma
Khomeini f rá völdum
Blaðið sagði helstu markmið ráða-
gerðar Norths hafa verið þær að fá
alla erlenda gísla lausa frá Líbanon
og binda enda á valdaferil Ayatollah
Khomeinis.
Washington-Reuter
Stórblaðið Washington Post
skýrði frá því í gær að Oliver North,
fyrrum starfsmaður bandaríska
Pjóðaröryggisráðsins, hefði gert ráð
fyrir að koma Jóhannesi Páli páfa inn
í ráðagerð sína um að koma Khom-
eini trúarleiðtoga í íran frá völdum.
Khomeini trúarleiðtogi í fran: Áætlun Norths beindist að því að koma honum
frá völdum
Kína:
Lyfjasvik kosta
lífstíðarfangelsi
Pekíng-Reuter
Kínverskur læknir hefur verið
dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að
svíkja fé út úr fólki vegna lyfja-
rannsókna sem enginn fótur var
fyrir. Það var fréttastofan Nýja
Kína sem skýrði frá þessu í gær.
Fréttastofan sagði hinn fertuga
Feng Shuyuan hafa náð peningum
af „fólki og vinnueiningum" fyrir
að þykjast ætla að koma á fót
lyfjarannsóknarstofnun.
Feng náði meira að segja að
sannfæra hið opinbera tækni- og
efnahagsráð landsins um gildi-
stofnunar sinnar og hélt mikla
veislu í Pekíng til að fagna góðum
árangri.
Yerðbólga var ekkert vandamál í iðnaðarríkjunum á síðasta ári, sérstaklega
á síðari hluta þess: Myndin sýnir franska iðnaðarmenn að störfum
Verðbólgan ekkert
vandamál í ríkjum
OCED á síðasta ári
París-Reuter
Verðbólga í þeim 24 iðnaðarríkj-
um sem mynda Samtök um efna-
hagslega þróun og samvinnu
(OECD) var að meðaltali aðeins
2,2% í nóvembermánuði á síðasta
ári og hefur verðbólga í þessum
ríkjum ekki verið lægri síðan í apríl
árið 1964.
f októbermánuði var verðbólgan
líka lág eða 2,3%.
Þetta kom fram í yfirlýsingu frá
OECD þar sem fólk var sagt hafa
borgað mjög lítið fyrir orku í nóvem-
ber, sérstaklega í Bandaríkjunum,
Japan og Vestur-Þýskalandi, en
hinsvegar matarreikningar verið
nokkuð venjulegir.
Af helstu iðnaðarríkjunum var
verðbólga mest í Kanada eða 4,5%,
í Bretlandi var hún 3,5%, 2,1%
verðbólga var í Frakklandi og 1,3%
í Bandaríkjunum. Verðbólga í Jap-
an og Vestur-Þýskalandi var hins-
vegar engin og tölur þar reyndar í
mínus, 0,3% í Japan og 1,2% í
Vestur-Þýskalandi.
Svíi einn á við áfengisvandamál að stríða:
Dæmdur í 58unda
sinn fyrir að vera
fullur undir stýri
Stokkhólmur-Rcuter
Sænskur dómstóll hefur dæmt 52
ára gamlan mann í sex mánaða
fangelsi fyrir að aka undir áhrifum
áfengis. Það er sosum ekki merkilegt
utan þess að þetta mun vera í
58unda skipti sem maðurinn er
dæmdur fyrir áðurnefnt afbrot.
Lögmenn í Alingsas í Mið-Sví-
þjóð sögðu mann þennan þegar hafa
setið inni í samtals fjögur og hálft ár
fyrir að keyra drukkinn.
Maðurinn sagði fyrir rétti í fyrra-
dag að hann vonaðist til að geta
leitað sér aðstoðar til að vinna á
drykkjusýki sinni. Hún kom honum
fyrst í vandræði árið 1957.
Viðurlög við því að aka undir
áhrifum áfengis eru mjög ströng í
Svíþjóð og þar nægir mönnum yfir-
leitt eitt glas af víni eða bjór til að
fara yfir leyfileg mörk.
Þeir sem mælast með mjög hátt
alkóhólmagn í blóðinu eru nær ávallt
dæmdir til fangelsisvistar.
Eskihlíð
Mjóuhlíð
Skerjafjörð
Armúla
Suðurlandsbraut
Afleysing Vfe mán.
Einimelur
Melhagi
Neshagi
TÍMINN
Síðumúla 15
PJOÐVIUINN
•S. 686300
S. 681866
S.681333
Blaðburður er