Tíminn - 16.01.1987, Síða 11
Föstudagur 16. janúar 1987
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR ™ll!iilll“
I
íslandsmótið í handknattleik - 1. deild karla:
Öruggur Víkingssigur
- unnu Ármenninga með níu marka mun
Víkingar unnu öruggan sigur á
i neðsta liði 1. deildar karla á íslands-
mótinu í handknattleik, Ármenning-
um í gærkvöld. Lokatölur urðu 30-21
eftir að Víkingar höfðu skoraði
helmingi fleiri mörk en mótherjarnir
í fyrri hálfleik, 16 mörk gegn 8.
Eftir þennan leik eru Víkingar
efstir í deildinni og eiga þó leik til
góða en Ármenningar eru svo gott
sem búnir að missa af lestinni.
Markahæstir Víkinga voru þeir
Guðmundur Guðmundsson, Siggeir
Magnússon og Karl Þráinsson allir
með 6 mörk, Karl þar af 4 úr vítum.
Flest mörk Ármenninga skoruðu
Einar Naabye og Egill Steinþórsson,
fjögur hvor.
ÍÞRÓTS
(blaðamaður
Guðmundur Guðmundsson línumaður KA-manna faðmar nafna sinn Pálmason í KR-liðinu að sér. Hann virðist
lítt hrifínn af uppátækinu en myndina tók Pjetur þegar leikur KR og KA stóð sem hæst í gærkvöld.
íslandsmótið í handknattleik - 1. deild karla:
Jafntefli hjá KR og KA
- KR-ingar náðu tvisvar afgerandi forystu en KA-menn
jöfnuðu jafn harðan
Leikur KR og KA í 1. deild karla
á íslandsmótinu í handknattleik í
gærkvöld var nokkuð skrítinn svo
ekki sé meira sagt, kannski verður
honum best lýst þannig að hann hafi
verið eins röndóttur og búningar
félaganna sem í honum kepptu!
KR-ingar virkuðu mun ákveðnari
í byrjun og leit helst út fyrir að þeir
ætluðu að kafsigla KA-menn. Stað-
an var orðin 7-3 þeim í hag og rúmar
ellefu mínútur eftir fram að leikhléi.
Þá var eins og allt væri stopp og
KA-menn skoruðu næstu fimm
mörk, staðan í hálfleik allt í einu 8-7
fyrir KA.
Aftur léku KR-ingar sama leikinn,
voru komnir í 12 mörk áður en
KA-menn komust á blað átta mínút-
um eftir leikhlé. Þar með urðu aftur
kaflaskipti og KA-menn jöfnuðu
12-12! Eftir þetta minnkuðu svifting-
amar þó liðin skiptust raunar enn á
um að hafa forystuna. Jafnt var 15-
15, 16-16, 17-17 og loks 18-18 þegar
flautað var til leiksloka og verða það
að teljast sanngjörn úrslit.
Leikurinn var þokkalega leikinn
en varla mikið meira, mikið um
mistök á báða bóga. Bestu menn
beggja liða voru markmennirnir,
þeir Gísli Felix Bjarnason hjá KR og
Brynjar Kvaran hjá KA sem báðir
vörðu vel, einkum og sér í lagi í fyrri
hálfleik. Af öðrum leikmönnum má
nefna þá Konráð Olavsson hjá KR
sem er stórhættulegur í horninu og
Sverri Sverrisson sem lék ágætlega
fyrir utan. KA menn létu hinsvegar
Brynjar þjálfara sinn einan um að
skera sig úr.
Mörkin gerðu þessir, KR: Konráð
Olavsson 6, Sverrir Sverrisson 4,
Guðmundur Pálmason, Jóhannes
Stefánsson og Ólafur Lárusson 2
hver, Jóhannes Stefánsson og Guð-
mundur Albertsson 1 hvor. KA:
Pétur Bjarnason 4, Axel Bjarnason,
Guðmundur Guðmundsson og Jón
Kristjánsson 3 hver, Eggert
Tryggvason 3(3), Friðjón Jónsson 1.
íslandsmótiö í handknattleik - 1. deild kvenna:
Jafnt í Höllinni
Hvort lið skoraði 18 mörk í leik KR og Víkinga
Lcikur KR og Víkinga í 1. deild
kvenna í handknattleik í Laugar-
dalshöll í gærkvöld var mjög jafn
allan tímann. Víkingar höfðu yfir-
höndina lengst af, voru yfir 8-7 í
leikhléi og leiddu síðast 17-16. Þá
komust KR-ingar yfir í fyrsta
skipti, 18-17 en Víkingar áttu síð-
asta orðið úr vítakasti hálfri ann-
arri mínútu fyrir leikslok. Ekki
munaði þó miklu að KR-ingum
tækist að ná í sigurinn á síðustu
sekúndunni er Karólína Jónsdóttir
átti lúmskt skot að marki Víkinga
en Sigrún Ólafsdóttir varði.
Mörkin skoruðu, KR: Sigur-
björg Sigþórsdóttir 8(2), Elsa
Ævarsdóttir 4, Arna Garðarsdóttir
og Karólína Jónsdóttir 2 hvor,
Annetta Scheving, Aldís Arthúrs-
dóttir og Snjóiaug Benjamínsdóttir
1 hver. Vt'kingur: Inga L. Þóris-
dóttir 7(4), Eiríka Ásgrímsdóttir
og Vilborg Baldursdóttir 4 hvor,
Sigurrós Björnsdóttir 2 oþ Jóna H.
Bjarnadóttir 1.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Kef Ivíkingar sterkari I
lokin og sigruðu KR-inga
- lokatölur 92-54 eftir að jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik
Keflvíkingar sigruðu KR-inga
með 92 stigum gegn 54 í leik liðanna
Körfuknattleikur:
Endurtekið efni!
- Þór og Tindastóll skoruðu
aftur yfir 210 stig í einum leik
Frá Gylfa Kristjánssyni á Akureyri:
í tveimur leikjum Þórs ogTinda-
stóls í körfubolta nú á fáum dögum
hafa verið skoruð alls 421 stig.
Fyrri leiknum sem var í 1. deild um
síðustu helgi lauk með sigri Þórs
110 gegn 100 og nú í vikunni er
liðin mættust í bikarkeppni KKÍ
sigraði Þór aftur, nú með 110
stigum gegn 101.
Þórsarar eru því komnir í 8 liða
úrslit í bikarkeppninni ásamt liðun-
um úr úrvalsdeildinni og annað-
hvort ÍR eða Grindavík. Þar verða
Þórsarar að gera mun betur en
gegn Tindastól því þrátt fyrir ör-
uggan sigur í þeim leik lék liðið
illa. Leikur liðanna var jafn allan
fyrri hálfleikinn en Þór leiddi að
honum loknum með 55 stigum
gegn 43. í upphafi síðari hálfleiks
jókst þessi munur enn og eftirþað
var sigur Þórs ekki í hættu þrátt '
fyrir stórleik Kára Maríssonar,
hins gamla landsliðsmanns og
þjálfara Tindastóls sem fór á
kostum. Kári var besti maður vall-
arins og skoraði 40 stig. Fyjólfur
Sverrisson skoraði 23 stig óg Björn
Sigtryggsson 22. Þessir þrír merin
bera lið Tindastóls uppi. Hjá Þór
var ívar Webster langbestur og
liðið væri ekki burðugt án hans
þessa dagana. Webster skoraði 38
stig, Eiríkur Sigurðsson 19 og
Konráð Óskarsson 17.
ívar Webster
Staðan
Staðan í 1. deild karla á íslandsmótinu
í handknattleik eftir leikina i gær-
kvöldi:
Vikingur 11 9 1 1 263-230 19
Breiðablik .... 12 8 2 2 279-263 18
FH 12 8 1 3 300-269 17
Valur 11 6 2 3 278-244 14
Stjarnan 12 5 2 5 306-285 12
KA 12 5 2 5 273-277 12
Fram 12 5 0 7 283-279 10
KR 12 4 1 7 237-263 9
Haukar 12 2 2 8 252-292 6
Ármann 12 0 1 11 235-304 1
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
Keflavík í gærkvöld. Leikurinn var
mjög jafn framanaf og um miðjan
fyrri hálfleik voru KR-ingar yfir,
18-15. Þá kom góður kafli Keflvík-
inga sem tóku forystuna. KR-ingar
slepptu þeim þó aldrei langt og
staðan í leikhléi var 36-27 íBK í hag.
Um miðjan síðari hálfleik var staðan
59-41 Keflvíkingum í hag en þá kom
aftur stórgóður kafli þar sem allt
gekk upp og á 7 mínútna kafla
breyttist staðan í 84-46. Lokatölur
urðu svo eins og fyrr sagði 92-54.
Sérstaklega voru þeir Guðjón Skúla-
son og Jón Kr. Gíslason sterkir í
leiknum en það var þó breidd Kefla-
víkurliðsins sem skóp þennan sigur.
KR-ingar notuðu aðeins sex leik-
menn og þeir hreinlega sprungu á
limminu og gáfust upp er á móti blés.
Guðjón Skúlason fékk blóm fyrir
leikinn, fyrir 100 leiki með meistara-
flokki. Hann launaði fyrir sig með
stórgóðum leik eins og fyrr sagði,
skoraði m.a. 3 þriggja stiga körfur
og 17 stig í síðari hálfleik.
Guðni Guðnason var bestur í
KR-liðinu en Guðmundur Jóhann-
esson og Ástþór Ingason áttu góðan
fyrri hálfleik.
Stigin, ÍBK: Guðjón 24, Jón Kr.
20, Sigurður 16, Ólafur og Matti 10,
Gylfi, Hreinn og Ingólfur 4 KR:
Guðni 25 Ástþór 10, Guðmundur 9,
Matthías og Garðar 4 og Þorsteinn
2.
Dómarar voru þeir Jón Bender og
Jóhann Dagur Björnsson.
Héráösmót UMSS í frjálsum íþróttum:
Bræðurnir unnu
Frá Erni Þórarinssyni í Skagafirði:
Héraðsmót Ungmennasambands
Skagafjarðar í frjálsum íþróttum
innanhúss fór fram í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki fyrir skömmu. Um tutt-
ugu keppendur tóku þátt í mótinu,
þar á meðal flest sterkasta frjáls-
íþróttafólk héraðsins. Keppni var
jöfn og spennandi í flestum greinum.
Berglind Bjarnadóttir var mjög
sigursæl í kvennaflokki, sigraði í
öllum greinum nema kúluvarpi þar
sem hún lenti í öðru sæti. í karla-
flokki var Gunnar Sigurðsson sigur-
sæll eins og oft áður á mótum hjá
UMSS. f hástökki án atrennu röð-
uðu þrír bræður sér í efstu sætin, auk
Gunnars þeir Helgi og Björn Sig-
urðssynir. Þess má geta til gamans
að þeir eru bræður Gísla Sigurðsson-
ar frjálsíþróttamanns.
Fimm félög sendu keppendur á
mótið. Þau voru Glóðafeykir,
Grettir, Fram, Hjalti og Tindastóll.
Sigurvegarar f einstökum greinum
urðu:
Langstökk án atr.:
Gunnar Sigurðsson G1........... 2,99 m
Berglind Bjarnadóttir T........ 2,47 m
Þristökk án atr.:
Helgi Sigurðsson G1............ 8,85 m
Berglind Bjarnadóttir T............ 7,00 m
Hástökk með atr.:
Sigfús Jónsson Gr................ 1.90 m
Berglind Bjarnadóttir T.......... 1,50 m
Hástökk án atr.:
Gunnar Sigurðsson G1............. 1,55 m
Berglind Bjarnadóttir T.......... 1,20 m
Kúluvarp:
Gunnar Sigurðsson G1............ 11,52 m
Herdís Sigurðardóttir G1........... 8,91 m 1
Heimsmet
Þrjú heimsmet voru sett á fyrsta
innanhússmóti vetrarins í frjálsum
íþróttum sem fram fór í Osaka í
Japan í gær. Ben Johnson Kanada
hljóp 50 m á 6,44 sek, bætti eigið
met um 6/100 sek., Sergei Bubka
Sovétríkjunum stökk 5,96 m á
stönginni og bætti sig um 1 cm og
Oleg Protsenko Sovétríkjunum
stökk 17,67 m í þrístökki. Gamla
metið þar var 17,54 m.