Tíminn - 18.01.1987, Side 2

Tíminn - 18.01.1987, Side 2
2 Tíminn Einfaldar grænmetissúpur Pað er hægt að hafa einfaldar grænmetissúpur á undan aðalréttinum í hverri máltíð. Það er hægt að fá keyptan grænmetiskraft en ef búið er til gott soð þá er það miklu bragðbetra. Grænmetissoð 1 stór laukur, skorinn í 4 hluta 2 selleristilkar 2 gulrætur, skornar í bita 1 stór kartafla, afhýdd, í bitum ytri blöð af hvítkáli kryddvöndur 1 tsk. svört piparkorn 1 tsk. grænmetiskraftur 3,5 lítrar vatn Látið allt í stóran pott. Látið suðuna koma upp. Látið malla án loks í 1 klukkustund. Kælið soðið og síið það síðan. Látið í ílát með loki og geymið í ísskáp. Þetta soð geymist í uppundir viku í ísskáp. Gulrótarsúpa 450 gr. gulrætur 25 gr. smjör 1 stór laukur, fínsaxaður 1 hvítlauksbátur, fínsaxaður 1/2 tsk. malað kúmen 1/2 tsk. malað kóríander 1 líter grænmetissoð kryddvöndur 1 1/2 dl jógúrt Rífið gulræturnar gróft. Bræðið smjörið í potti við lítinn hita. Látið út í gulræturnar, laukinn, hvítlaukinn og kryddið. Látið lok á pottinn og sjóðið í smjörinu við lítinn hita í um það bil 10 mínútur. Hellið soðinu yfir og látið suðuna koma upp. Bætið út í kryddvendinum og látið malla undir loki í 20 mínútur. Takið pottinn af hitanum og fjarlægið kryddvöndinn. Hrærið jógúrtinu saman við rétt áður en súpan er borin fram. Einföld blómkálssúpa með osti 1 stórt blómkálshöfuð 1 stór laukur 9 dl grænmetissoð sjávarsalt nýmalaður svartur pipar kryddvöndur 1 dl rjómi 100 gr. rifinn ostur Saxið blómkálið smátt ásamt lauknum. Látið hvort tveggja í pott ásamt grænmetissoðinu. Kryddið og bætið út í kryddvendin- um. Látið suðuna koma upp, þekið og látið malla í 20 mínútur. Fjarlægið kryddvöndinn og látið súpuna í blandara. Merjið þangað til hún er jöfn. Látið súpuna aftur í pottinn og hitið upp aftur. Blandið rjómanum út í en látið súpuna ekki sjóða eftir það. Látið skammt af osti í botninn á hverri súpuskál. Hellið súpunni yfir og hrærið í þangað til osturinn byrjar að bráðna. Púrru, gulróta og kartöflusúpa 225 gr. púrra 225 gr. gulrætur 225 gr. kartöflur 25 gr. smjör 9 dl grænmetissoð kryddvöndur nýmalaður pipar sjávarsalt salvía 1 dl rjómi 2 msk. ristaðar möndluflögur Skerið púrruna og gulræturnar í þunnar sneiðar. Skerið kartöfluna smátt. Bræðið smjörið í potti við lítinn hita. Látið grænmetið út í og sjóðið í feitinni við lítinn hita í um það bil 10 mínútur. Hellið soðinu yfir og látið suðuna koma upp. Látið út í kryddvöndinn og saltið og piparinn. Látið lok á pottinn og látið malla í 20 mínútur. Takið pottinn af hitanum. Fjarlægið kryddvöndinn. Merjið súpuna í blandara. Látið hana aftur í pottinn og bætið út í salvíunni og rjómanum. Hitið upp að suðu. Ausið í súpuskálar og stráið ristuðum möndlum yfir hverja skál. Sunnudagur 18. janúar 1987 I 1 Á þessari ióð er fyrirhugað að reisa verslunar- og þjónustu miðstöðina sem veggmyndin átti að fara á. Verður hún ekki reist? 2 Það var ekkert smáræði af grjóti sem Sigurður hafði með sér frá Borgarfirði eystri og átti að nota við gerð myndarinnar. Hér sést hann við hluta þess efnis. Sigurður tók á leigu efri hæðina í þessu húsi og hafði þar vinnu aðstöðu sína. Leigan var dýr en miklum greiðslum hafði verið lofað fyrir verkið. s ;

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.