Tíminn - 18.01.1987, Síða 15
Sunnudagur 18. janúar 1987
Tíminn 15
MORFIS:
Dregið í
II. umferð
Undirbúningur skólanna þegar hafinn
ENN hefur verið dregið í
MORFÍS, sem er rökræðu-
keppni allra frainhaldsskóla á
íslandi. Ffafinn er undirbúningur
undir II. unrferð, en átta skólar
heltust úr lestinni í þeirri fyrstu
Það voru Samvinnuskólinn á Bif-
röst og framhaldsdeild hans í
Reykjavík, Flensborgarskólinn í
Hafnarfirði, Menntaskólinn í
Kópavogi, Fjölbrautaskólinn við
Ármúla, Kvennaskólinn í
Reykjavík, Menntaskólinn á Ak-
ureyri og Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti.
SKÓLARNIR, sem sigruðu í
fyrstu umferð, drógust nú
hver gegn öðrum í beinni útvarps-
sendingu úr Ofanleitinu. Segir
sagan að dregið hafi verið úr
eldhúsfötu Þorgeirs Ástvaldsson-
ar. Keppnisdagur er fimmtudag-
urinn 22. janúar, en ræðulið geta
í sameiningu hnikað honum til
um einn dag.
Menntaskólinn í Hamrahlíð
keppir í vikunni gegn Verslunar-
skóla íslands sem á heimaleik. Er
þar að vænta spennandi keppni,
enda báðir skólar með efnileg
ræðulið. Menntaskólinn í Hamra-
hlíð leggur til að samtök, hliðstæð
hinunr alþjóðlegu Sea Shephard
samtökum, verði stofnuð á ís-
landi. Dómarar í þeirri keppni
verða Guðmundur Benediktsson,
MS, og Guðjón Hauksson, MK.
Oddadómari er Gylfi Magnús-
son, en hann sat í sigurliði
Menntaskólans í Reykjavík í úr-
slitum MORFÍS í fyrra.
FJÖLBRAUTASKÓLINN á
Suðurnesjum dróst gegn
Fjölbrautaskólanum á Sauðár-
króki og á heimavöll. Takast þar
á tvö lið, sem eru ókunn ræðulið-
um á höfuðborgarsvæðinu. Það
er vitað að þeim stendur uggur
af öllu óþekktu og víst er, að í
næstu umferð, sem verða undan-
úrslit, verður altént ein óþekkt
stærð. Fjölbrautaskólinn á
Suðurnesjum leggur til að út-
lendingar fái í ótakmörkuðum
mæli landvistarleyfi á íslandi.
Þessu er ræðulið Fjölbrautaskól-
ans á Sauðárkróki mótfallið og
hvort liðið stendur sig betur er
lagt undir dóm Pálu Þórisdóttur,
VI, E. Ragnars Sigurðssonar,
FB, og oddadómara, Þórs Jóns-
sonar.
Menntaskólinn í Reykjavík
fékk verðuga andstæðinga.
Hann dróst gegn Menntaskólan-
Birgir Ármannsson er umdeildur ræðumaður en hann
keppir fyrir Menntaskólann í Reykjavík gegn Mennta-
skólanum við Sund í II. umferð. (Tíminn/Pjetur)
um við Sund sem keppir nú
fyrsta sinni í II. umferð þessarar
rökræðukeppni skólanna. MS
hlaut heimaleik með hlutkesti.
Menntskælingar við lækinn
halda fram að guð hafi skapað
heiminn en þeir við Sundin mót-
mæla allir. Benedikt Stefánsson
er oddadómari í þessari viður-
eign og með honum dæma Ragn-
hildur Helgadóttir, Kvenna-
skólanum, og Sigríður Kris-
tjánsdóttir, Verkmenntaskólan-
um á Akureyri.
AÐ lokum er að telja keppni
Menntaskólans á ísafirði
sem fær Fjölbrautaskólann í
Garðabæ í heimsókn. Leggja
ísfirðingar til, að íslenska verði
töluð inn á allt erlent sjónvarps-
efni. Eiríkur Hjálmarsson, sem
eitt sinn var kosinn besti ræðum-
aðurinn í mikilli ræðukeppni
MH og MR í Háskólabíói fyrir
nokkrum árum, áður en MORF-
ÍS varð til, og sat jafnframt í
sigurliði það sinnið, dæmir
viðureign MÍ og FG. Með hon-
um dæma Elsa Valsdóttir, MR,
og Örn Hrafnkelsson, Flens-
borgarskólanum.
Það hefur brunnið við, að
ræðulið hafi laumað með sér
hjálparhellum inn í vinnustofu í
hléi, til aðstoðar við samningu
mótraka og svara. Fyrir það er
komist í þeim umferðum sem
eftir eru með því að liðum er
frjálst að kjósa eftirlitsmann úr
sínum röðum með andstæðinga-
liði. Hann fylgir þá líklegast lið-
um til vinnustofu og sér til þess að
þangað fari enginn óviðkomandi
inn með því. Þannig leitar keppni
ávallt nær fullkomnuninni með
reynslunni, þótt vitað sé að hún
náist aldrei.
Helgarblað Tímans mun skýra
frá úrslitum II. umferðar þegar
þau liggja fyrir. þj
KROSS-
GÁTAN
Nr. 524
LAUSN Á SÍÐUSTU GÁTU
Ég er á „vandræöaaldrinum“,
of gamall til að skæla
og of ungur til að bölva