Tíminn - 18.01.1987, Page 9
Sunnudagur 18. janúar 1987
Tíminn 9
Pegar Rússar tala um
Gzhel geta þeir átt við
fleira en eitt: Þorpið
Gzhel skammt frá
Moskvu, sérstaka leirtegund,
sem finnst í jörðu í nágrenni
þorpsins og hefur verið unnin í
meira en sex aldir, eða gamal-
gróna alþýðulistiðn sem þar hef-
ur verið stunduð. Frá sjónarmiði
neytenda merkir gzhel fjöl-
breyttar postulínsvörur - tesett,
blómavasa, mjólkur- og bjór-
könnur. Frá sjónarmiði safnara
eru þessir hvítu og bláu vasar,
bollar og könnur einstæð lista-
verk. Glerjuð blá grös og blóm
á hvítum grunni eru alltaf
fmmgerð, enda þótt þau séu mál-
uð af sama listamanninum.
Munurinn á þeim er alltaf sýni-
legur, hve lítill sem hann er.
Það er regla hjá Rússum í dag
að frumgera innan marka hefð-
arinnar. Gzhel-postulínsverk-
smiðjan er stórt iðnfyrirtæki þar
sem starfa 300 manns, þar af er
þriðjungurinn listamenn og
myndhöggvarar. Framleiðslan
vex vegna þess að eftirspurnin
er mikil. Gzhelvörur eiga vax-
andi vinsældum að fagna í Sovét-
ríkjunum í dag, og pöntunum
erlendis frá á postulíni fer einnig
fjölgandi. Þar sem líklegt var að
fjöldaframleiðsla á postulíni
kæmi niður á gæðunum var
ákveðið að koma á fót tilrauna-
verkstæði til þess að varðveita
þjóðlegar hefðir í þessari iðn-
grein, sem mótuð hefur verið af
mörgum kynslóðum listamanna.
í hópi þerra eru þeir sem nú
tilheyra eldri kynslóðinni hjá
okkur, en feður þeirra og afar
voru fæddir og uppaldir, í Gzhel
og þeir sem nú lifa hafa erft
hæfileika þeirra og leikni og
fágað hana. Til eru heilu fjöl-
skyldur listiðnaðarmanna í
Gzhel.
Eldri kynslóðin er smám sam-
an að þoka fyrir ungu fólki,
útskrifuðu úr Stroganov-listiðn-
aðarháskólanum í Moskvu og
Abramtsevo-skreytilistar-
skólanum. Unga kynslóðin met-
ur hefðirnar mikils og vill óðfús
varðveita þær.
Það er orðið langt síðan
Gzhelleirinn var uppgötvaður.
Hans er fyrst getið í annálum
fyrir um 650 árum. Á 19. öld
vitnuðu sérfræðingar til Gzhel-
postulíns sem hins rússneska
Staffordshire-postulíns (aðal-
postulínshérað Bretlands).
Samt hélt rússneskt postulín allt-
af sérkennum sínum, óvenju-
legri lögun og frumlegri máln-
ingu. Handiðnaðarmennirnir
sem voru flestir ólæsir en mjög
hæfileikaríkir höfðu næman
skilning á málverkinu. Þeir mál-
uðu frábærlega fegurð landslags-
ins, blóm og fugla.
Þetta svæði er oft kallað
Gzhelþríhyrningurinn (það er
þríhyrnt að lögun) en ekki vegna
þess að þar leynist óþekktar
hættur heldur fyrir ráðgátur
þess. Það sem gerir það dular-
fullt er hin síunga list handiðn-
aðarmanna sem þarna eru upp-
vaxnir, hinn ósvikni andi sveita-
fólksins, einfaldur og kunnáttu-
samlegur, vingjarnlegur og
GZHEL
Gæðapostulín
Valentin Rosanov, 30 ára, er
listamaður við Gzhel-
postulínsverksmiðjuna, sem
unnið hefur til verðlauna.
Sjúkraflutninganámskeið
Borgarspítalinn og Rauði Kross íslands efna til sjúkraflutn-
inganámskeiðs dagana 30. mars-10. apríl n.k.
Kennsla fer fram að mestu í Borgarspítalanum frá kl. 8-17
daglega en eftir það gefst þátttakendum kostur á veru á
sjúkra- og slysavakt Borgarspítalans og Slökkvistöðvar
Reykjavíkur.
Innritun og nánari upplýsingar á skrifstofu RKÍ, Rauðarárstíg
21, R. s: 91-26722 (Ásgerður).
Umsóknarfrestur er til 10. mars.
Fjölskyldan nefnist þessi
stytturöð sem Júrí Jermakov
gerði. Bersýnilega hefur
listamaðurinn hér mótað
persónur sem hann þekkir
mjög vel og ann. Styttur hans
„Konan með alifuglana“,
„Listamaðurinn“,
„Saumakonan" og
„Lesarinn“ voru ásamt fleiri
styttum hans settar á sýningu
á verkum ungra rússneskra
listamanna.
traustur. Raunveruleg alþýðu-
list er alltaf ráðgáta: Þótt full-
komnustu tækni skorti hefur
hver gripur eitthvað óskilgreint
við sig. Líklega er það lista-
manninum meðfætt. Það er
raunar sama hvert listamennirn-'
ir flyttust, þeir myndu líklega
snúa aftur til Gzhel fyrr eða
síðar.
Júrí Jermakov, Katja
Ostajkova og Sergei Simonov
eru ungir listamenn f rá Gzhel.
Sameiginlegt verk þeirra
Íshokkíbikarinn, vann 1.
verðlaun í samkeppni, og
kom hann í hlut sovéska
landsliðsins í íshokkí, sem
vann hann fyrir sigur í
alþjóðlegu móti árið 1986.