Tíminn - 18.01.1987, Side 13
Fjórar forláta byssur voru happdrættisvinningar
Skömmu fyrir
nýafstaðnar hátíðir,
þegar menn reyndu
að borða sem
hversdagslegastan
mat, vegna
veisluhalda sem í
uppsiglingu voru,
gerðu
skotveiðimenn sér
glaðan dag. Það
voru
Skotveiðifélögin
Skotvís og Skotreyn,
sem útleggst
leikmenn
Skotveiðifélags
íslands og
Skotveiðifélags
Reykjavíkur og
nágrennis.
„PLO-sveitin“ gæðir sér á
kunnuglegum réttum.
Veislustjóri af stakri snilld var
Stefán Jónsson. Hér sést hann
gæða sér á háloftasteik.
Byssurnar fjórar ásamt öðrum
vinningum.
Egill Bergmann gjaldkeri Skotvís
svíður gæs fyrir veisluna.
Myndir Sverrir
Reytingarvélin góða í notkun.
Eins og sést á myndinni er
gæsinni þrýst að tromlunni og er
þá hægt að grófreyta fuglinn.
Mjög hentugt þegar um marga
fugla er að ræða.
Hráefni lögðu meðlimir
félaganna til og var þar
boðið svo að segja upp
á sýnishorn af öllu því
sem veiðimenn glíma
við í íþrótt sinni, hvort sem er á
landi eða sjó. Ríflega tvö hundr-
uð manns sóttu skemmtunina
sem haldin var í veitingahúsinu
Ártúni. Ofan í þessi tvö hundruð
eintök af skotveiðimönnum og
mökum þeirra var eftirfarandi
matreitt: Eitt hreindýr, 110
rjúpur, 73 lundar, 71 gæs, 40
endur, 23 skarfar, 20 svartfugl-
ar, 15 lambalæri og tíu laxar.
Veislugestir tóku vægast sagt
hraustlega til matar síns, enda
vanir menn sem sáu til þess að
maturinn og meðlætið rynni ljúf-
lega og í réttum hlutföllum
niður.
Sigmar B. Hauksson stjórnaði
matreiðslunni. Það er haft fyrir
satt að sumir skotvéiðimenn fái
vatn í munninn þegar þeir heyra
nafnið nefnt og sögðu sumir að
allir ættu að eiga einn slíkan.
Veislustjóri af stakri snilld var
Stefán Jónsson.
Gífurlegur
undirbúningur
Það er meira en að segja það
að undirbúa slíka veislu, og þá
sem hér er rætt um. Þessir
heiðursmenn fara ekki í næstu
verslun og kaupa það sem til
þarf. Öll bráðin sem notuð var í
hófinu var veidd af félagsmönn-
um og þeir sáu um að gera að.
Svíða, reyta, hamfletta og allt
sem nauðsynlegt var að gera.
Sérstök reytingarvél var notuð á
gæsirnar og er hún ein fárra
slíkra á landinu. Tímanum er
kunnugt um eina sem til er í
Borgarfirði. Reytingarvél er til-
tölulega einföld og er uppistað-
an tromla sem þakin er með
gúmmí lagi. Tromlunni er snúið
og gæsinni þrýst að og sér hún
um að grófreyta.
Fjórar byssur í verðlaun
Veglegt happdrætti var haldið
á villibráðarkvöldinu. Tíu vinn-
ingar voru og var andrúmsloftið
rafmagnað þegar dregið var úr
miðunum. Fjórar byssur voru í
verðlaun. Þrjár haglabyssur og
þar af ein ekki ómerkari en af
gerðinni BRNO. Winchester
riffill cal. 22 Magnum, Lever
action var í þriðju verðlaun.
Meðal annarra vinninga má
nefna ferðabar, gervigæsir,
byssutaska og fleira. Marrocchi
tvíhleypa var í önnur verðlaun
og fiórða byssan var veitt í
aukaverðlaun.
Gátu ekki klárað
Þrátt fyrir góða mætingu, ágætis
matargerð og gott hráefni gátu gestir
ekki sporðrennt öllu því sem var á
boðstólum. Var mikið af matnum
notað sem miðnætursnarl en annað
var geymt fyrir fund stjórnar. -ES
SunnudacLir 18. janúar 1987
Tíminn 13
^_Villibráðarkvöld skotveiðimanna:
Sporðrenndu
hreindýri og
ríflega 200 fuglum