Tíminn - 25.01.1987, Blaðsíða 8

Tíminn - 25.01.1987, Blaðsíða 8
8 Tíminn Sunnudagur 25. janúar 1987' Oróaseggur á fræðimannsstóli Farinn að heilsu, þótt ekki sé nema 46 ára að aldri, lýtur hann yfir skrifpúltið í kamesi sínu í Stokkhólmi með beiskjurúnir í svipnum og rembist við að ríma. Ekki er nú skáldskapurinn lipur, en hatrið knýr hann áfram. Hann knosar saman hverju erindinu á eftir öðru, logandi bölbænum sem stefnt er að óvinum hans á íslandi. Hann biður Guð að liðsinna sér við að koma fram hefndinni: „Jerúsalem nauða nægð, nógleg yfir þá drífi,“ skrifar hann og áfram er párað og brakar í fjöðurstafnum við hvert orð, - „og heimsæki ÖU óhægð, eymd kvöl téð, hungri með, þorsta fáðu Guð þeim léð...“ Þótt hann megi gruna að ævistundunum fækki, finnur hann þeim ekki betur varið en til þessara myrku hugrenninga. Nokkru síðar er hann allur, og Svíar gera útför hans á ríkisins kostnað. Þegar þarna við andlát Jóns Eggertssonar - fyrir þrjú hundruð og tveimur árum - og raunar oftar á ævi hans sannaðist að Svíar voru misskildum snillingum af íslandi betri en engir. Slíks hafa gerst mörg dæmin seinna. Hann var fæddur árið 1643 og átti góða að, en faðir hans var Eggert lögréttumaður Jónsson á Ökrum í Blönduhlíð og afi og langafi sýslumenn, langafinn Magnús hinn prúði. Skugga bar þó á uppvaxtarárin þegar faðir hans drukknaði, en þá var Jón 13 ára. Tuttugu og tveggja ára er. honum fengin veiting hjá höf-^ uðsmanni danska valdsins fyrir Möðruvallaklaustri og hans get- ið meðal lögréttumanna sama ár úr Vöðluþingi og hann hefur, kvænst mektarkonu, Sigríði Pálsdóttur frá Sjávarborg, sem nefnd var hin stórráða, en hún I hafði verið síðari kona fyrir-. rennara hans í klausturhaldara- embættinu. Byrjar málastapp Þetta var ekki óblómleg byrj- un og hefði framtíðin mátt telj- ast blasa við unga manninum. En ekki hafði hann notið klaust- ursins nema í tvö ár, þegar sonur Þorláks biskups Skúlason- ar, Jón, kom til landsins með konungsveitingu fyrir klaustr- inu. Mátti Jón Eggertsson standa upp fyrir honum og mjög nauðugur sem von var. Gísli Hólabiskup, bróðir Jóns Þor- Iákssonar, gekk mjög hart fram í því að láta Jón Eggertsson gera full skil fyrir klaustrinu og lenti hann nú í miklum illindum við þá bræður og drógust fleiri inn í þau. Þá lenti hann í málaferlum við ýmsa aðra heldri menn og varð mest hatrið í viðskiptum þeirra Björns sýslumanns Páls- sonar, en þau illindi spruttu af því hve illa Björn talaði um Sigríði stórráðu og þá hún um hann, ef hún hefur borið nafn með rentu. Á konungsfund Árið 1668 sigldi Jón Eggerts- son til Kaupmannahafnar, til þess að reyna að fá leiðréttingu sinna mála hjá konungi og aftur sigldi hann 1679. í síðara skiptið fékk hann á ný veitingu fyrir klaustrinu, en var þá raunar þegar búinn að fá því framgengt að hrekja Jón Þorláksson burt frá því. Þegar hann er í Kaup- mannahöfn sumarið 1680 semur hann langa kæruskrá gegn and- stæðingum sínum og ber upp á þá ýmsar vammir og skammir. Þeir brugðust illa við og óvinur-1 inn Björn Pálsson brá á það ráð að ákæra Jón fyrir galdra, sem var ekki neitt hégómamál á þessari tíð. Hafði hann komist yfir kver með hendi Jóns, þar sem dregnir voru upp ýmsir galdrastafir, svo sem „Að vita hver stelur,“ „Ef þú vilt þjófur afsaki sig ekki,“ „Áð spilla geðs- munum ríkra manna," „Viljir þú óvildarmanni þínum nokkru launa,“ og svo framvegis. Varð af þessu feikna rekistefna, votta- leiðslur og stefnur (m.a. stefndi Jón Eggertsson lögmanninum, sem dæma átti í málinu fyrir sextán sakir) og urðu málalyktir þær að aldrei var dæmt í málinu. Þó gleymdu íslenskir valdsmenn ekki galdraáburði þessum, þeg- ar þeir síðar söfnuðu glóðum elds að höfði Jóns, til þess að koma honum í ónáð hjá kon- ungsmönnum. Á snærum Svía Jón var í Höfn til 1682 og lét kærum rigna yfir dönsku emb- ættismennina í kanselíi og í rentukammeri, á hendur ís- Jóni var það mikil sárabót að auðnuleysinginn Guðbrandur, sonur hataðasta óvinar hans, gekk í lið með honum og sigldi ólöglega með honum utan með Hollendingum. Jón Eggertsson sankaði saman íslenskum handritum handa Svíum í trássi við kónginn og íslenska valdsmenn, sem hann hataði ógurlega. Kannske var það samt hann sem vakti fornfræðaáhugann hjá Árna Magnússyni, sem dáði hann og mat fyrir þá mörgu kosti sem honum voru gefnir. lenskum höfðingjum og munu þeir dönsku hafa orðið leiðir á þessu þjarki hans, þótt eftir sem áður ætti hann marga velvildar- menn í þeirra hópi. En það gerist á þessum tíma að hann kemst í kynni við erind- reka sænsku fornfræðastofnun- arinnar. Svíar þóttust hafa orðið nokkuð afskiptir í eltingaleik við að þefa upp ýmis gömul fræði, enda áttu þeir ekki mjög margt heimilda um eigin fornu sögu. Vildu þeir nú gjarna bæta hér úr og Jón var þeim innan handar við að skrifa upp ýmis forn íslensk rit. Þar á meðal skrifaði hann upp Heimskringlu- handrit sem háskólabókasafnið danska átti og síðar brann með öðrum bókum safnsins. Fékk Jón þó nokkurt fé fyrir þetta og mun ekki hafa veitt af vegna allra siglinganna og málastapps- ins. En auk þessa gerði hann samning við Svía um að útvega þeim handrit frá íslandi. Þegar til íslands kom á ný hóf Jón þegar að safna handritunum og varð hann þó að gæta nokk- urrar varúðar, því þá var líka á landinu staddur Hannes Þor- leifsson, umboðsmaður Dana- konungs í sömu erindagjörðum. Hafði hann meðferðis bréf sem kvað á um að alls óheimilt væri að láta handrit af hendi við aðra en sig og yfirvöldum boðið að styðja hann í hvívetna. Jón Eggertsson gekk þó að söfnuninni af feikna atorku og sendi út menn um allar sýslur landsins. Hafði honum sérstak- lega verið falið að hafa uppi á Flateyjarbók og bók Snorra Sturiusonar, sem svo var nefnd. Ekki var um það að ræða að hann fengi Flateyjarbók, því eina eintakið hafði Brynjólfur biskup sent Friðrik konungi þriðja að gjöf nokkru áður. En „bók Snorra Sturlusonar“, fékk hann hinsvegar keypta á Skarði á Skarðsströnd fyrir mik- ið fé, þótt ekki færi sem best fyrir gripnum. Sendimaðurinn sem bókina sótti féll nefnilega á hesti sínum á leið yfir á eina og var nær drukknaður, tapaði bæði hesti sínum og hettu. Hvort bókin fór líka er þó ekki ljóst af frásögninni, en margt bendir til þess, því hennar er ekki getið í skrá um bækurnar sem Jóni tókst að afla, en þær voru um 52 talsins. Ekki þorði Jón að senda bækurnar utan haustið 1682, þar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.