Tíminn - 25.01.1987, Blaðsíða 12

Tíminn - 25.01.1987, Blaðsíða 12
12 Tíminn Sunnudagur 25. janúar 1987 móður- kviði Myndin sýnir níu vikna gamalt fóstur, en ýmislegt bendir til[ þess að veran í móð-. urkviði hafi meira að, segja um líkamlegtj og andlegt atgervi okkar síðar meir, en hingað til hefur verið! haldið. IÐURSTÖÐUR ýmissa rannsókna í læknisfræði og geðlæknisfræðum virðast benda til þess að sá tími sem við eyðum í móðurkviði hafí afgerandi áhrif á líkamlegt og andiegt atgervi okkar síðar meir. Mary Radcliffe sem er hjúkr- unarkona hafði þann undarlega ávana að vera stöðugt að kroppa skinnið af fótum sér. Það endaði með því að hún hafði samband við þekktan geðlækni, dr. Frank Lake, því hún hafði reynt að venja sig af þessu, en tókst ekki. Eftir miklar rannsóknir komst Lake að því að rætur vandamáls- ins lágu ekki í reynslu æskunnar, heldur mátti rekja það til fyrstu mánaða meðgöngunnar. Lake var fyrstur í sífellt stærri hópi lækna og geðlækna sem telja að rætur margra þeirra viðvarandi vandamála sem við eigum við að etja megi rekja til þess tíma er við vorum í móðurkviði. Pað sem kemur kannski meira á óvart er það að þeir telja að þessi tími skipti öllu máli, ekki bara hvað varðar líkamlega heilsu okkar, heldur einnig hvernig persónuleikinn kemur til með að þróast. Tilfelli Mary Radcliffe var sérstaklega áhugavert vegna þess að í ljós kom að æska hennar hafði verið einstaklega gæfurík. Móður hennar þótti afar vænt um hana og það hafði aldrei borið neinn skugga á sam- band þeirra mæðgna. Flins vegar hafði lífið verið erfiðara á þeim tíma er hún var í móðurkviði. Fyrstu mánuði meðgöngunnar hafði móðir hennar annast veik- an föður sinn sem svo lést úr krabbameini þegar hún var á fjórða mánuði. Fóstrið hafði orðið fyrir áhrifum af álagi og sorg móðurinnar. Niðurstaða Lake var sú að það sem Mary hafði gert var að fá einhvers konar útrás fyrir ákveðið þung- lyndi með því að kroppa fætur sína af þvílíkum ákafa. Þetta var semsagt rót vandans og þeg- ar það lá ljóst fyrir var unnt að hjálpa Mary að losa sig við þennan skrýtna ávana. Áður en hann dó 1982 hafði Lake fengist við nokkur tiífelli þar sem áhrifa frá fósturskeiði gætti á andlega heilsu fólks. Hann áleit að mörg þeirra vandamála sem við eigum við að etja megi rekja til reynslu af afneitun og ofbeldi fyrstu mán- uðina í móðurkviði. Þó Lake hafi verið mikilsvirturfræðimað- ur þóttu þessar hugmyndir hans heldur skrýtnar hér í eina tíð. Svo er þó ekki lengur. Þeir sem fást við fæðingarrannsóknir, auk margra lækna og geðlækna, telja nú að aðstæður okkar í móður- kviði hafi afgerandi áhrif á lík- amlega og andlega heilsu okkar síðar meir. í anda Lake vinnur ný kynslóð geðlækna nú að því að leysa geðræn vandamál sem rót sína eiga að rekja til verunn- ar í móðurkviði. Sumt af því athyglisverðsta sem út úr þessu hefur komið hefur komið frá læknum sem reynt hafa að koma í veg fyrir vandamálin með því að fræða þungaðar konur Kanadískur geðlæknir, Thomas Verny að nafni, hefur skoðað málin útfrá þessu sjónar- horni. Meðvíðtækumrannsókn- um á óléttum konum og ófædd- um börnum þeirra hefur hann komist að því að ófædd börnin eru skynverur sem bregðast við umhverfinu og lifa virku tilfinn- ingalífi strax frá sjötta mánuði (ef ekki fyrr). Fóstrið hefur sjón, takmarkað bragðskyn og heyrn. Það sem kannski skiptir mestu er það að fóstrið hefur tilfinningar - kannski ekki eins þroskaðar og fullvaxta mann- eskja - sem þrátt fyrir einfald- leika sinn hafa mjög mikil áhrif á viðhorf og sjálfsmynd einstakl- ingsins seinna meir. Verny og fleiri sem fengist hafa við þessar rannsóknir telja það komið und- ir reynslunni í móðurkviði hvort fólk er glaðlynt eða ekki, hvort það er sjálfsöruggt eða ekki og jafnvel hvernig því gengur að fást við verkefni sín á lífsleið- inni. Afneitun Eitt algengasta vandamálið er það að börnum hefur verið af- neitað. Þegar móðirin ætlar sér að láta eyða fóstrinu, eða faðir- inn leggur hart að henni að gera það, sem hefur áhrif á tilfinn- ingalíf hennar, þá hefur það áhrif á fóstrið - ekki síst ef þessar tilfinningar eru viðvar- andi allan meðgöngutímann. Dr. Peter Fedor-Freybergh við háskólann í Uppsölum í Svíþjóð hefur rifjað upp tilfelli sem kom upp hjá honum fyrir nokkrum árum þegar fullkomlega heil- brigt barn fékkst ekki til að taka brjóst móðurinnar. Hins vegar drakk barnið úr pela eins og ekkert væri. Dr. Peter datt fyrst í hug að um einhver veikindi hefði verið að ræða á meðgöngu- tímanum, en svo var ekki. Að lokum spurði hann móðurina hvort hún hafi einhverntímann haft í huga að eyða fóstrinu. Svarið sem hann fékk var það að móðirin hafi aldrei ætlað sér að eignast barnið og hefði ætlað að láta eyða því. Niðurstaðan er því sú að fóstrið hafi skynjað afneitun móðurinnar og barnið væri því að afneita móður sinni á þann eina veg sem það gat. í Bretlandi eru þær skoðanir uppi meðal þeirra sem fást við meðferð geðrænna vandamála að því djúpstæðari sem þau eru því líklegra sé að þau eigi rætur að rekja til verunnar í móður- kviði. Dr. Sand, einn þessara sérfræðinga, telur að þeir níu mánuðir sem við öll eyðum í móðurkviði séu mikilvægasti tíminn í öllum þroska okkar - ekki aðeins líkamlegum heldur einnig andlegum. Talið er að bestu aðstæðurnar séu þær að móðirin sé í farsælu ástarsambandi. Séu foreldrarnir í andlegu jafnvægi og ástfangin hvort af öðru er talið að barnið eigi meiri möguleika á því að verða hamingjusamur einstakl- ingur. Einn af sjúklingum Sand, sem reyndar var kennari hafði sérstaklega lítið sjálfsálit. And- LAMAR HYALURINN BRÁÐ SÍNA MEÐ HÁTÍÐNIHUÓÐUM? HVERNIG fara stórir og þungir tannhvalir að því að veiða viðbragðsfljóta bráð sína? Árhundruðum saman hefur þetta verið ráðgáta. Nú telja sumir vísindamenn að gátan hafi verið ráðin. Hvalirnir lami bráð sína með hátíðnihljóðum. Hvölum er venjulega skipt í tvo megin flokka, eftir því hvort þeir hafa tennur eða skíði, þ.e. nokkurs konar kamba sem hanga neðan úr efri gómi þeirra. Menn hafa lengi vitað að skíðis- hvalir fylla munninn af sjó og þrýsta honum síðan út á milli skíðanna. Fiskar og annað æti sem er í sjónum verður þá eftir. Hvernig hinar 67 tegundir tann- hvala sem til eru fara að því að ná bráð sinni hefur verið mönn- um ráðgáta. Búrhvalurinn lifir t.d. aðal- lega á kolkrabba. Kolkrabbi sem fundist hefur í maga hans hefur' þó ekki borið þess nein merki að hafa verið tugginn. Hvernig fer þetta dýr að því að koma þessari viðbragðsfljótu bráð sinni á óvart? Vísindamenn sem hafa fengist við hvalarannsóknir eru líka undrandi hvað varðar náhval- inn. Með einum eða öðrum hætti tekst honum að gleypa þorsk og lúðu þrátt fyrir skög- ultönn sem skagar 2,5 m niður úr efri skolti. Notar hátíðnihljóð sem vopn Tilraunir til að útskýra hvern- ig tannhvalir fara að við veiðar sínar eru ekki nýjar af nálinni. Þegar á fjórtándu öld skrifaði munkurinn Bartholomeus Ang- Iicus um það að hvalurinn fram- leiddi ljós sem ginnti fiskinn upp í gin sér. I hundruð ára trúðu hvalveiðimenn því að bráðin laðaðist að ljósum lit hvalginsins. Á seinni árum hefur komið fram ný kenning. Margir vís- indamenn telja nú að tannhval- irnir lami bráð sína með hátíðni- hljóðum. 1946 uppgötvuðu menn að marsvín, líkt og leðurblökur og kafbátar, notuðu hljóðbylgjur og endurvarp frá þeim til að gera sér grein fyrir umhverfinu. Seinni tíma rannsóknir hafa sýnt að höfrungar og aðrir tannhvalir geri það sama og að einstök

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.