Tíminn - 25.01.1987, Side 11

Tíminn - 25.01.1987, Side 11
Sunnudagur 18. janúar 1987 Tíminn 11 S \ JL ÆL* síðustu 10-15 árum hefur Síbería gegnt æ stærra hlutverki í efnahagslífi Sovét- ríkjanna. Þriðjungur alls vaxtar í þjóðarframleiðslunni kemur frá Síberíu. Þessi stórfellda þróun hefur leitt til uppbyggingar margra borga og hundraða smærri þétt- býlisstaða. Þannig að þrátt fyrir hið óblíða loftslag býr nú 12. hver Sovétborgari í Síberíu og meirihluti íbúanna er ungur að árum. Ein af þeim borgum sem risið hafa á seinni árum er Nojabrsk, byggð af fólk sem vinnur við olíuiðnaðinn austur þar. Lofts- lagið er ákaflega hart. Á sumrin fer hitinn í allt að 30° en á veturna allt niður í —50°C. Á þeim þremur árum sem Nojabrsk hefur verið á kortinu, ef svo má segja, hefur íbúatalan nærfellt þrefaldast og er nú um 80 þús. Meðalaldur íbúanna er 27 ár. E m á N hvað er það sem freistar hinna ungu íbúa? Hvers vegna yfirgefa þeir heimabyggð- ir sínar til að flytja norður á hjara veraldar? „Fyrst og fremst vegna þess að það býður upp á möguleika á skjótum starfs- frama og vinnan sem í boði er er laus við ýmsa þá annmarka sem vinna í „venjulegu“ umhverfi hefur. Fólkið hér ræður sér miklu meira og finnst það vera frjálsara. Þar að auki kemur fólk hingað til að prófa sjálft sig - sjá hvers megnugt það er,“ segir borgarstjórinn í Nojabrsk, Alexander Spirin. „Ásóknin í að koma hingað er slík að við höfum ekki við að taka á móti öllum sem koma vilja. Við veljum þá úr sem við höfum mesta þörf fyrir. Há laun eru ekki aðal ástæðan fyrir þessu heldur hinar miklu framkvæmd- ir við olíuvinnsluna og bygging- arframkvæmdir sem freista manna. Hér geta menn komist í góð störf tiltölulega fljótt, nokk- uð sem oft tekur mörg ár við aðrar aðstæður. Nojabrsk er einnig vinsæll staður vegna þess að félagsmálin eru leyst hér með heildstæðari hætti en víðast hvar.“ N JL ^ OJABRSK er byggð á freðmýrum sem gerir hefð- bundnar byggingaraðferðir næsta úreltar. Þar sem erfitt er að búa við bráðabirðgahúsnæði um lengri tíma var hafist handa við að reisa nýtískulegar bygg- ingar úr áli. Þær hafa þann kost að vera miklu léttari en hefð- bundnar byggingar og henta því betur í þessum jarðvegi. Það er talsvert af fimm hæða húsum í borginni og mörg eru í áberandi litum til mótvægis við hinn ein- hæfa lit snævarins. Þægilegar tveggja og þriggja herbergja íbúðirnar eru búnar öllum nú- tímaþægindum. Milli húsanna eru leikvellir og letlir íþróttavellir sem eru not- aðir sem íshokkivellir eða skaut- asvell á vetrum. Það er lögð mikil áhersla á íþróttir í No- jabrsk því líkamlega hraustir einstaklingar eru líklegri til að þola erfitt loftslagið. Þar að auki vinna þeir svo betur. Stór hluti útgjalda borgarinnar fer því til íþróttamála. í borginni er sundhöll, nokkur íþróttahús, íþróttaleikvangur en einnig skemmtistaðir, klúbbar og lista- gallerí. N ^ OJABRSK er iðagræn á sumrin, nokkuð sem er óvenjulegt á freðmýrarsvæðinu. Jarðvegur til gróðursetningar er sóttur til suðlægra svæða og á hverju ári eru gróðursett 10 þús. tré. Það gefur augaleið að það eru mörg börn í borg þar sem svo mikið er af ungu fólki. í viku hverri fæðast tíu börn í Nojabrsk. Mjög vel er séð fyrir þörfum barnanna og eru dag- Börnin vaxa hraust úr grasi þrátt fyrir kuldann. Íshokkí er ein vinsælasta íþróttin meðal þeirra. heimilin vel búin og ekki er annað að sjá en börnin vaxi hraust úr grasi þrátt fyrir hinn kalda og langa Síberíuvetur. Mest allt bensín sem notað er í Sovétríkjunum kemur frá Sí- beríu og meira en helmingur alls gass sem notað er kemur frá bænum Tjumen. Ýmsir vísinda- menn eru hræddir um að lindirn- ar við Tjumen séu að tæmast og óttast að bærinn verði að draugaborg. Þó að 70% vinnufærra rnanna í Síberíu vinni við olíuiðnaðinn koma 'stórir hópar aðkomu- manna til að vinna við olíuna tímabundið. Þessir hópar eru oft í einn mánuð eða tvo í einu. Helmingur vinnuaflsins í olíu- iðnaðinum eru þessir hópar en hinn helmingurinn eru heima- menn. Það tekur tíma að venjast loftslagi og náttúru norður þar en enga að síður sest fólk að þarna, sumt fyrir lífstíð. Heiður en jökulkaldur vetrarmorgunn við eina af olíulindunum utan við borgina. Ein af mörgum olíulindum utan við borgina, en 70% íbúanna vinna við olíuiðnaðinn. Þvtt RR Perkins Viðurkenndir varahlutir Hagstætt verð (Oi Á 0' > !>- ws - J €5. jfl $ 55 S§Perkins o POWERPART BUNADARDEILD MP ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900 ÞJÓNUSTA FYRIR PERKINS RH OG MASSEY FERGUSON POWERPART VARAHLUTIR FRÁ MASSEY FERGUSON OG PERKINS • STBRKARI .. • ORUGGARI ODYRARI ÍIGURÐUR SKARPHEÐINSSON Graenumýri 5, Mosfellssveit, 270 Varmá. Simi 91-667217

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.