Tíminn - 25.01.1987, Síða 14

Tíminn - 25.01.1987, Síða 14
14 Tíminn Sunnudagur 25. janúar 1987 ÁSKRIFTARSÍMI 686300 LA TTU I l U límami EKKl FLJÚCjA FKÁ ÞFR Bryndís Schram, húsmóöir meö meiru: ’Gerðu húðiraiigott Fáðu þérmjóllí!” Fæöa hefur bein áhrif á útlit okkar og vellíðan. Húðin þarf t.d. stööuga næringu eins og aörir hlutar likamans - og sú næring þarf að koma innan frá. Engin smyrsl geta bjargaö málinu ef réttrar fæðu er ekki neytt. Bryndís Schram, húsmóöir, móöir, fyrrverandi feguröardrottning íslands og fjölmiölamaöur meö meiru, vandar valið fyrir sig og sína þegar fæöan er annars vegar - og hún veit aö í þeim efnum skiptir mjólkin miklu máli. Tengsl mataræðis og útlits eru svo margslungin aö næstum öll næringarefni fæðunnar, yfir 40 talsins, komaþarviösögu. Mjólkerótrúlegaauöugaffjölbreyttum bætiefnum. Úrhennifáum viöm.a. kalk og magníum fyrir tennur og bein, A-vítamín fyrir húðina og einnig mikið af B-vítamínum sem gera húðinni gott og ekki síður hári og nöglum. SÍÖast en ekki síst erengum sykri blandaö í mjólk og hver og einn getur ráðiö fituinnihaldinu meö því að velja um nýmjólk, léttmjólk eöa undanrennu. MJÓLKURDAGSNEFND Kolfinna Balvinsdottir hefur asamt systkinum sínum neytt mjólkurmatar ríkum mæli. Þannig leggur hún grunn að heilbrigðu útliti, fallegri beinabyggingu, góðum tönnum og sterkum taugum. Mjólk fyrir alla eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson Börn og unglingar ættu aö nota allan mjólkurmat eftir þvi sem smekkur þeirra býöur. Fullorðnir ættu á hinn bóginn að halda sig viö fitumínni mjólkurmat, raunarvið magrafæðu yfirleitt. 2 mjólkurglös á dag eru hæfilegur lágmarksskammtur ævilangt. Mundu að hugtakið mjólk næryfir léttmjólk, undanrennu og nýmjólk. Jón úr Vör. kvöldvaka með Jóni úrYör N ORRÆNA félagiö í Kópavogi efnir til kvöldvöku meö Jóni úr Vör næstkomandi sunnudagskvöld, 25. þ.m., í til- efni af sjötugsafmæli skáldsins nú fyrir skemmstu. Á dagskrá verður erindi, upp- lestur og söngur. Hjörtur Páls- son talar um Jón úr Vör og skáldskap hans, leikarar lesa úr verkum Jóns og Margrét Bóas- dóttir syngur lög eftir Þorkel Sigurbjörnsson tónskáld við ljóð skáldsins. Undirleikari verður Margrét Gunnarsdóttir. Kvöldvakan verður í Þing- hóli, Hamraborg 11 í Kópavogi, og hefst kl. 20.30. Kaffiveitingar verða á staðnum og er öllum heimill aðgangur. Mjallhvít og dvergarnir 27! í skóla einum á Bretlandi er verið að setja upp árlegt jólaleikrit sem að þessu sinni er Mjallhvít og dvergarnirsjö. Ein stór breyting hefur þó verið gerð á venjulegri uppsetningu, nefnilega að dvergarnir eru ekki siö heldur tuttugu og sjö. Astæðan er sú að þetta var eina ráðið sem stjórnendur sýningarinnar fundu til að tryggja öllum sem áhuga hefðu á, hlutverk! Tekinn af lífi fyrir skartgripaþj ófnað! Nú á dögunum var kínverskur skartgripaþjófur tekinn af lífi. Maðurinn, Zhang Weifu 24 ára, hafði brotist inn í skartgripaverksmiðju í Peking í ágúst 1985 og stolið þaðan um 1500 gullhringjum. Áð sögn var hér um að ræða alvarlegasta glæp sem framinn hafði verið í höfuðborginni í ein þrjátíu ár. Verðmæti þýfisins var um 124 þús. dollarar. Auk Weifu voru þrír samverkamanna hans dæmdir. Einn hlaut skilorðsbundinn dauðadóm, annar lífstíðarfangelsi en sá þriðji „aðeins" sjö ára fangelsi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.