Tíminn - 17.03.1987, Qupperneq 15
Þriðjudagur 17. mars 1987_____________________________________________________________________________
llllllllllllliillllllilllil ÚTVARP/SJÓNVARP llllllAlllllllljllinillllHllllllillllllillll
VESTRÆN VERÖLD:
Nýir straumar
Kl. 21.40
verður sýndur annar
þáttur breska
heimildamyndaflokksins
Vestræn veröld í Sjónvarpinu.
Nýir straumar nefnist þessi
þáttur og kemur þar við sögu
Ágústus, fyrsti rómverski
keisarinn, en þessi stytta af
honum er varðveitt í Vatíkaninu.
Þráttað um
ættleitt barn
Kl. 21.05
verður sýnd á Stöð 2
bandaríska
sjonvarpsmyndin Þetta er
barnið mitt með Lindsay
Wagner og Chris Sarandon í
aðalhlutverkum.
Hjón sem ekki geta eignast
barn fá barn til ættleiðingar.
Fimm mánuðum síðar hefur
móður barnsins snúist hugur,
hagur hennar hefur breyst og
hún vill barnið aftur til sín.
Lagalega er hægt að afturkalla
ættleiðinguna innan 6 mánaða
og hún ákveður að fara
dómstólaleiðina til að
endurheimta dóttur sína.
“Þetta er mitt barn“ segja
hjónin sem ættleiddu stúlkuna.
En móðirin sem bar barnið
undir belti segir líka: „Þetta er
mitt barn".
Ari Garðar Georgsson
Matreiðslumeistarinn
Ari Garðar
Kl. 20.40
er matreiðslu-
meistarinn Ari
Garðar Georgsson aftur mættur
tfl leiks á Stöð 2.
Matreiðsluþættir hans fyrr í
vetur voru afar vinsælir og
lélegustu kokkar fengu þá
hugmynd, þegar þeir fylgdust
með fagmannlegum handtökum
hans í fallegu eldhúsi, að góð
eldamennska væri kannski ekki
óviðráðanleg kúnst. Nú geta þeii
lært meira um hvernig gera má
kræsingar úr því hráefni sem er
á boðstólum hverju sinni.
Gríska tónskáldið Mikis
Theodorakis
Tíminn 15
lllllllllllllllllllllllllllllllBlilllllllllllilllllllllllllllllllllllliHHÍIIIIIIIIIIIIII
Enn söngvakeppni
Mikis
Theodorakis
0K1. 14.30
er tónlistarmaður
vikunnar á dagskrá
Rásar 1 og er sá gríska
tónskáldið Mikis Theodorakis.
Tónlist Theodorakis er
íslendingum vel kunn, svo oft
hefur hún heyrst á öldum
ljósvakans. Fyrir nú utan það að
á síðustu árum hafa íslenskir
ferðamenn í stórauknum mæli
lagt leið sína til Grikklands og
þeir kunna að meta gríska
tónlist.
Mikis Theodorakis er
yfirlýstur kommúnisti og átti
vitaskuld ekki upp á pallborðið
hjá herforingjastjórninni sem
stjórnaði Grikklandi með harðri
hendi 1967-'74. En
herforingjunum tókst ekki að
þagga niður í honum og tónlist
hans mun lifa.
Kl. 20.35
verða flutt í
Sjónvarpinu síðustu
tvö lögin af þeim 10 sem lögð eru
fram til úrslita í Söngvakeppni
sjónvarpsstöðva.
Aldrei ég gleymi eftir Axel
Einarsson og Jóhann G.
Jóhannsson, sungið af Ernu
Gunnarsdóttur, er það fyrra. Það
síðara er Mín þrá, bæði lag og
texti eftir Jóhann G.
Jóhannsson. Björgvin
Halldórsson syngur.
BARNAVÆNDI
Kl. 17.00
sýnir Stöð 2 hina
fræyu bandarísku
kvlkmynd Barnavændi (Pretty
Baby) með Keith Carradine og
Brooke Shields í
aðalhlutverkum. Leikstjóri er
Louis Malle.
Ljósmyndari er gagntekinn af
vændinu í New Orleans,
sérstaklega barnavændinu.
Brooke Shields í hlutverki
sinu í Barnavændi.
Þriðjudagur
17. mars
6.45 Veöurtregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin - J6n Baldvin Halldórsson og
Jón Guðni Kristjánsson. Fréttir eru sagðar kl.
7.30 og 8.00 og veðurtregnir kl. 8.15. Tilkynning-
ar eru lesnar kl. 7.25,7.55 og 8.25. Guðmundur
Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna: „Mamma í upp-
sveitlu" eftir Ármann Kr. Einarsson. Höfund-
ur les (12).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar.
9.35 Lesið úr torustugreinum dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 ( dagsins önn - Félagsleg þjónusta.
Umsjón: Hjördis Hjarlardóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Afram veginn" sagan
um Stefán Islandi. Indriði G. Þorsteinsson
skráði. Sigríður Schiöth les (17).
14.30 Tónlistarmenn vikunnar Mikis Theodorak-
is.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Landpósturinn Frá Suðurlandi. Umsjón:
Hilmar Þór Hafsteinsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnír.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Siðdegistónlelkar. a. Hugleiðing um gamalt
tékkneskt sálmalag eftir Josef Suk. Strengja-
sveit tékknesku Fílharmoníusveitarinnar leikur;
Alois Klima stjórnar. b. Menúett I F-dúr op. 31
eftir Louis Spohr. Félagar úr Fílharmoníusveit
Vínarborgar leika.
17.40 Torgið - Neytenda- og umhverfismál
Umsjón: Steinunn Helga Lárusdóttir.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guðmundur
Sæmundsson flytur.
19.35 Breytingar í opinberri þjónustu. Davið Á.
Gunnarsson forstjóri rikisspítalanna flytur er-
indi.
20.00 Lúðraþytur. Umsjón: Skarphéðinn H. Ein-
arsson.
20.40 Iþróttaþáttur. Umsjón: Ingólfur Hannesson
og Samúel Örn Erlingsson.
21.00 Perlur. Dean Martin.
21.30 Útvarpssagan: „Heymaeyjarfólkið" eftir
August Strindberg Sveinn Víkingur þýddi.
Baldvin Halldórsson lýkur lestrinum (16).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma. Andrés Björnsson les
25. sálm.
22.40 Listin að deyja - rýnt i Sturlungu Úlfar
Bragason bókmenntafræðingur flytur erindi.
(Áður útvarpað 10. janúar s.l.)
23.10 íslensk tónlist Kynnt tónlist af nýjum is-
lenskum hljómplötum. a. „Burtflognir pappírs-
fuglar" eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Blásara-
kvintett Reykjavíkur leikur. b. „Æfingar" fyrir
píanó eftir Snorra Sigfús Birgisson. Höfundur
leikur.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
SAl
9.00 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar Halldórs-
dóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meðal
efnis: Tónlistargetraun og óskalög yngstu hlust-
endanna.
12.00 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tónlist
í umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Skammtað úr hnefa Jónatan Garðarsson
stjómar þætti með tónlist úr ýmsum áttum.
15.00 (gegnum tiðina Þátturum íslenska dægur-
tónlist í umsjá Vignis Sveinssonar.
16.00 Allt og sumt Helgi Már Barðason kynnir
gömul og ný dægurlög.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 12.20,
15.00,16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar
17.30-18.30 Svæðlsútvarp fyrir Reykjavik og
nágrenni - FM 90,1
18.00-19.00 Svæðisútvarp tyrir Akureyri og
nágrenni - FM 96,5 Trönur. Umsjón: Finnur
Magnús Gunnlaugsson. Fjallað um menningar-
llf og mannlíf almennt á Akureyri og í nærsveit-
um.
Þriðjudagur
17. mars
18.00 Villi spæta og vinir hans. Níundi þáttur.
Bandarískur teiknimyndaflokkur. Þýöandi
Ragnar Ólafsson.
18.20 Fjölskyldan á Fiðrildaey. Sextándi þáttur.
Ástralskur framhaldsmyndaflokkur fyrir börn og
unglinga um ævintýri á Suöurhafseyju. Þýöandi
Gunnar Þorsteinsson.
18.45 íslenskt mál. 16. Um orötök sem tengjast
glímu. Umsjón: Helgi J. Halldórsson.
19.00 Sómafólk - (George and Mildred). 19. Af
beömálum. Breskur gamanmyndaflokkur. Þýö-
andi Ólöf Pétursdóttir.
19.25 Fréttaágrip ó táknmáli.
19.30 Poppkorn. Umsjón: Guömundur Bjarni
Haröarson og Ragnar Halldórsson.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Söngvakeppni sjónvarpsstöðva Fimmti
kynningarþáttur íslenskra laga.
20.45 Svarti turninn (The Black Tower) Þriðji
þáttur. Breskur myndaflokkur í sex þáttum,
gerður eftir sakamálasögu P.D. James. Roy
Marsden leikur Adam Dalgliesh lögreglufor-
ingja. Þýðandi Kristmn Þórðardóttir.
21.40 Vestræn veröld (Triumph of the West) 2.
Nýir straumar. Nýr heimildamyndafiokkur í
þrettán þáttum frá breska sjónvarpinu (BBC). I
þáttunum er fjallað um sögu og einkenni
vestrænnar menningar og hvernig hún hefur
breiðst út svo að áhrifa hennar gætir á okkar
tímum um alla heimsbyggöina. Umsjónarmaður
er John Roberts sagnfræöingur. Þýðandi og
þulur Óskar Ingimarsson.
22.35 Nýju kosningalögin i þættinum verður leit-
ast við aö skýra tilgang og áhrif laganna sem
eiga aö jafna verulega mun á atkvæðisrétti milli
kjördæma. UmsjónarmaðurÓlafur Sigurðsson.
23.15 Fréttir í dagskrárlok.
Þriðjudagur
17. mars
07.00-09.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni.
Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur
yfir blöðin og spjallar við hlustendur og gesti.
Fréttir kl. 07.00, 08.00 og 09.00.
09.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum.
Palli leikur uppáhaldslögin ykkar. Afmæliskveðj-
ur, mataruppskriftir og spjall til hádegis. Síminn
er 61-11-11.
Fréttirkl. 10.00,11.00 og 12.00.
12.00-14.00 Á hádegismarkaöi með Jóhönnu
Harðardóttur. Fréttapakkinn. Jóhanna og
fréttamenn Bylgunnar fylgjast með því sem
helst er í fréttum, spjalla við fólk og segja frá.
Flóamarkaðurinn er á dagskrá eftir kl. 13.00.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd.
Pétur spilar síðdegispoppið og spjallar viö
hlustendur og tónlistarmenn.
Forstjórapopp eftir kl. 15.00
Fréttirkl. 15.00,16.00 og 17.00.
17.00-19.00 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykja-
vík síðdegis. Hallgrímur leikur tónlist, litur yfir
fréttimar og spjallar við fólk sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00-20.00 Tónlist með lóttum takti.
20.00-21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi
Rúnar Óskarsson kynnir 10 vinsælustu lög
vikunnar.
21.00-23.00 Ásgeir Tómasson á þriðjudags-
kvöldi. Ásgeir leikur rokktónlist úr ýmsum
áttum.
23.00-24.00 Vökulok. Þægileg tónlist og frétta-
tengt efni í umsjá Karis Garðarssonar frétta-
manns.
24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist
og upplýsingar um veður.
0
STÖÐ2
Þriðjudagur
17. mars
17.00 Barnavændi (Pretty Baby). Bandarísk kvik-
mynd með Keith Carradine og Brooke Shields
í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Louis Malle.
Ljósmyndari er gagntekinn af vændinu í New
Orleans, sérstaklega barnavændinu.
18.50 Fréttahornið. Fróttatími barna og unglinga.
Umsjónarmaður er Sverrir Guðjónsson.
19.00 Spæjarinn. Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 í návígi. Yfirheyrslu- og umræðuþáttur í
umsjón fréttamanna Stöðvar 2.
20.40 Matreiðslumeistarinn. Matreiðsluþættir Ara
Garðars Georgssonar vöktu verðskuldaða at-
hygli á síðasta ári. Nú er Ari mættur aftur I
eldhús Stöðvar 2 og hyggst kenna áhorfendum
matargerðarlist.
21.05 Þetta er barnið mitt (This Child Is Mine).
Bandarísk sjónvarpsmynd með Lindsay Wagn-
er og Chris Sarandon í aðalhlutverkum. Hjón
ættleiða barn en móðir bamsins sér sig um
hönd og notar öll tiltæk ráð til að fá bamið aftur.
22.35 NBA-köiluboltinn Sacramento-Los Ange-
les Lakers. Umsjónarmaður er Heimir Karlsson.
00.05 Heimsmeistarinn að tafll. Fjórða skák milli
Nigel Short og heimsmeistarans Gary Kaspar-
ov.
00.30 Dagskrárlok.