Tíminn - 07.04.1987, Blaðsíða 13
Tíminn 13
Þriðjudagur 7. apríl 1987.
ÚTLÖND
Margrét Thatcher forsætisráðherra Bretlands: Auknar vinsældir gætu þýtt
kosningar
Bretland:
Kosningahugur
í íhaldsmönnum
Lundúnir-Rcutcr
Niðurstöður tvcggju skoðana-
kannana í Bretlandi um helgina sent
sýndu að stuðningur við íhaldsflokk
Margrétar Thatchers forsætisráð-
herra hefur aukist, juku cnn inögu-
leikann á að Thatcher muni efna til
þingkosninga einhvern tímann nú á
næstu mánuðum.
Sovétför Thatchers virðist hafa
aukið álit brcsku þjóðarinnar á
henni og spáðu sumir um hclgina,
þar á meðal David Owen leiðtogi
jafnaðarmanna, að hún myndi jafn-
vel efna til kosninga strax í næsta
mánuði, aðrir töldu þó júní líklegri
kosningamánuð.
Niðurstöður nýjustu skoðana-
könnunarinnar voru birtar í blaðinu
Daily Express í gær og þar naut
íhaldsflokkurinn stuðnings 39% að-
spurðra. Bandalag frjálslyndra og
jafnaðarmanna fékk 30% og Verka-
mannaflokkurinn, sem enn er talinn
helsta hindrunin fyrir að Thatcher
leiði ríkisstjórn íhaldsmanna í þriðja
skiptið í röð, fékk 29% atkvæða í
skoðanakönnuninni.
Önnur skoðanakönnun sent blað-
ið Sunday Times lét gcra sýndi að
íhaldsflokkurinn var mcð 41% at-
kvæða en hinir flokkarnir tveir báðir
með 29%.
Stjórnmálaskýrendur tclja að
Thatcher vilji sjá flciri skoðanakann-
anir sem bcnda til að íhaldsflokkur
hennar fái yfir 40% atkvæða í kosn-
ingum því í þingniannatölu gefur
það flokknunt öruggan meirihluta.
Vcrði slíkt upp á teningnum á næst-
unni er líklcgt að forsætisráðhcrrann
efni til kosninga innan tíðar í stað
þess að bíða fram á haust eða frani
á næsta ár.
Njósnastarfsemin
í bandaríska sendiráðinu í Moskvu:
FLEIRISENDIRÁÐ
ERU í RANNSÓKN
Washington-Rcutcr
Samkvæmt frétt bandaríska stór-
blaðsins The Washington Post er það
ekki aðeins sendiráð Bandaríkja-
manna í Moskvu sem nú er rannsak-
að vegna gruns um að þar hafi örygg-
isreglur verið brotnar til að greiða
fyrir njósnastarfsemi. Blaðið hafði
nefnilega eftir tveimur þingmönnum
að tíu önnur bandarísk sendiráð
væru nú í rannsókn vegna gruns um
að erlendir njósnarar gætu athafnað
sig í þeim.
Þingmennirnir tveir, Daniel Mica
demókrati frá Flórída og Olympia
Snowe repúblikani frá Maine, létu
Washingtonpóstnum þessar upplýs-
ingar í hendur þegar þeir komu til
Moskvu til að rannsókna vegna ásak-
ana um að landgönguliðar t' vörslu
við sendiráðið hafi hleypt inn sov-
éskum njósnurum að næturlagi.
Tveir landgönguliðar hafa þegar
verið handteknir, sakaðir um að hafa
gert njósnurum mögulegt að athafna
sig í sendiráðinu í skiptum fyrir að fá
að njóta blíðu sov^skra kvenna.
Mica og Snowe vildu þó ekki
nefna hvaða sendiráð hér væri um að
ræða í samtali sínu við stórblaðið.
Starfsmenn sendiráðs Bandaríkja-
manna í Moskvu starfa nú í anda
fornmanna, skilaboð eru handskrif-
uð og flutt á milli en enginn sími og
elektrónísk tæki eru notuð. Það mun
kosta um 20 milljónir dollara að
hanna nýtt dulmál og setja upp ný
tæki í stað þeirra sem talið er að Sov-
étmenn hafi notfært sér við njósnir
sínar.
Félag síldarsaltenda á Suður- og Vesturlandi og
Félag síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi kynna:
FRUMSYNING I REYKJAVIK
Ný heimildarkvikmynd um saltsíldariðnað
íslendinga verður sýnd í Stjörnubíói
miðvikudaginn 8. apríl kl. 17.30 og 19.00
Aðgangur ókeypis.
SILFUR HAFSINS var frumsýnd á Höfn í Hornafirði, 22. febrúar
s.l. og hefur síðan verið sýnd á öllum helstu söltunarstöðum
landsins. Það þótti við hæfi að sýningar myndarinnar byrjuðu úti á
landi, þar sem saltsíldin hefur gegnt svo mikilvægu hlutverki í
gegnum tíðina og enduðu í Reykjavík.
Heimildarkvikmyndin SILFUR HAFSINS fjallar um saltsíldariönaö íslendinga,
bæði fyrr og nú. í upphafi myndarinnar er gerö örstutt grein fyrir áhrifum
síldarinnar á sögu Evrópu en kjölfesta myndarinnar er í nútímanum, þar sem
lýst er einu starfsári í þessari atvinnugrein. Inn í þá frásögn er síðan fléttað
myndköflum úr síldarsögu okkar íslendinga.
Handrit/klipping/ stjórn: Erlendur Sveinsson, Sig. Sverrir Pálsson.
Þulir: Guöjón Einarsson, Róbert Arnfinnsson.
Kvikmyndun: Sig. Sverrir Pálsson, Þórarinn Guönason.
Öflun heimilda- og myndefnis. Erlendur Sveinsson.
Framleiðsla: Lifandi myndir h/f fyrir
Félag síldarsaltenda á Suöur- og Vesturlandi,
Félag síldarsaltenda á Norður og Austurlandi
BÆNDUR
Imjudá
ö? <33í> EZHI
Þekkt og traust merki fyrir landbúnaðinn.
Við hugsum til vorsins. - Úrval varahluta á lager. - Pantið tímanlega
BUNADARDEILD
ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900
og kaupfélögin