Tíminn - 07.04.1987, Qupperneq 15
Þriðjudagur 7. apríl 1987.
Tíminn 15
llllllllllllllillllllllllll MINNING
Valgerour Þórðardóttir
Fædd 4. desember 1904
Dáin 20. mars 1987
Föðursystir mín, Valgerður Þórð-
ardóttir, andaðist þann 20. mars
síðastliðinn. 83 ára að aldri.
Hún Valla frænka var mér afar
kær og því er mér Ijúft að minnast
hennar fáeinum orðum. Öll mín
æsku og uppvaxtarár heima í Hlíð í
Þorskafirði naut ég samvista við
þessa frænku nn'na. En að Hlíð flutti
hún með foreldrum sínum, er hófu
þar búskap ásamt foreldrum mi'num
árið 1932. Og þarátti hún heimili sitt
í næstum 30 ár.
Eftir að Þórður, afi minn, féll frá,
hélt Ingibjörg, amma, áfram að búa
í Hlíð ásamt börnum sínum, sem
flest hurfu þó að heiman, ung að
árum. ncma Valla. sem ávallt fylgdi
ömmu minni, á meðan hún lifði. En
hún iést í Reykjavík árið 1966.
Árið 1958 fluttu þær mæðgur til
Reykjavíkur. Og þangað fluttu for-
eldrar mínir ári sfðar, er þau brugðu
búi.
Þær amma og Valla bjuggu í
svonefndu Baðstofulofti í Hlíðar-
bænunt öll mín uppvaxtarár, og þar
fengum við, cg og systkini mín, að
vera eins og við vildum. Þar áttum
við góðar og glaðar stundir.
Valla giftist aldrei, en helgaði líf
sitt þjónustu og ræktarsemi við for-
eldra og systkini og fjölskyídur
þeirra.
Með tímanum hefur sá frændgarð-
ur orðið stór, sem hún lét sig varða
og bar óþrjótandi umhyggju fyrir
allt til hinstu stundar.
Valla frænka var mikill dýravinur
og náttúruunnandi. Öll útivera og
sveitastörf voru henni því mjög að
skapi. Margar á ég minningar um
göngufcrðir með frænku, minningar
um berjamó, skcljaleit, steinaöflun
og blómaskoðun. Áreiðanlega átti
hún ríkan þátt í að opna augu okkar
systkinabarna sinna fyrir undrum og
dásemdum náttúrunnar. Og enn
man ég sumar vísurnar og barnagæl-
urnar, sem hún raulaði og kenndi
mér, auk svo margs annars. Góð
áhrif hennar á okkur systkinabörnin
verða aldrei rakin eða mctin að
fullu. En þakklæti á hún skilið fyrir
alla samveruna og tryggðina við
okkur.
Eins og fyrr getur fluttust þær
amma og Valla til Reykjavíkur árið
1958 og bjuggu þar síðan hjá Ara
Þórðarsyni. bróður Völlu. Þau ár,
sem fóru í hönd, starfaði Valla hjá
kexverksmiðjunni Frón, eða frant til
ársins 1966, er hún fékk fótarmein,
sent olli því að taka varð af hcnni
fótinn, og varð hún öryrki eftir það.
Af þcint sökum þurfti hún að dvelja
á Vífilsstöðum til ársins 1970, cr hún
fluttist aftur til Ara bróður síns. að
Grettisgötu 39 og bjó þar, uns hún
vistaðist að Droplaugarstöðum við
Snorrabraut, þar sem hún dvaldi
síðustu æviárin.
Veikindi sín bar Valla frænka af
undraverðu þolgæði og dugnaði, og
þá kom skýrt í ljós sá kjarkur og
sjálfsbjargarvilji, sem henni var í
blóð borinn. í starfi mínu sem hjúkr-
unarfræðingur hef ég lengst af fylgst
með hcnnar löngu og ströngu veik-
indabaráttu og veit því öðrum lrem-
ur um hetjuskap hennar og æðruleysi
í því stríði.' Ég vil geta þess, að Valta
frænka naut hinnar bcstu hjúkrunar
á Droplaugarstöðum, og bað hún
mig ítrekað að skila þakklæti til
allra, sem hjúkruðu henni þar, og er
það hér með gert.
Að leiðarlokum þakka ég svo
frænku minni vináttu og elskulega
samfylgd. Guð blessi minningu
hennar.
Þóra Ásdís Arnlínnsdótlir
Elísa Jónsdóttir
Dráttarvélin
-F sem þig vantar
Massey-Ferguson
MÖGNUÐ Ný]
M-F3000LÍNA;
Góður - Betri - Bestur !
Fædd 29. mars 1939
Dáin 19. nóvember 1986
Lísa, eins og hún var oftast nefnd,
var fædd að Geitabergi í Svínadal
29. mars árið 1939. Hún varyngst af
níu börnum hjónanna Steinunnar
Bjarnadóttur og Jóns Péturssonar,
sem lengi bjuggu á Geitabergi, og
eru nú þrjú af börnum þeirra látin.
Nú að leiðarlokum þegar Lísa er
kvödd, minnist ég þess, þegar ég sá
hana fyrst, er hún kom sem ungt
barn í skólann til mín hérna í
sveitinni, en ég stundaði þá kennslu
barna og unglinga í þessu byggðar-
lagi. Hjá mér, í þessum gamla skóla,
lauk hún sínu barnaskólanámi. í
þeim aldursflokki, sem Lísa var í,
voru fimm nemendur, og eru nú þrír
af þeim látnir, langt um aldur fram.
Síðar urðu kynni okkar Lfsu miklu
meiri, þar sem ég kvæntist Ernu
systuohennar. Lísa stundaði seinna
nám á Húsmæðraskólanum á
Blönduósi og vann eftir það nokkra
vetur við verslunarstörf, en dvaldist
á heimili foreldra sinna á Geitabergi
á sumrin og einnig norður í Húna-
vatnssýslu, þar sem hún vann við
heyvinnu og önnur algeng sveita-
störf.
Á Akureyri kynntist hún sínum
lífsförunauti, Magnúsi Þorsteins-
syni, sem þá var vélstjóri á skipinu
Súlunni. Þau gengu skömmu síðar í
hjónaband og stofnuðu heimili sitt á
Akureyri og bjuggu á Hrafnagils-
stræti 34 þar í bæ. Börn þeirra urðu
alls fjögur. Öll eru þau efnileg og
mannvænleg. Tvö þau yngstu eru
cnn við nám í Menntaskólanum á
Akureyri. Lísa var mikil mannkosta-
kona, góð móðir og myndarleg hús-
freyja. Á heimili þcirra hjóna var
ávallt gott og ánægjulegt að vera
gestur. Lísa bar mikla tryggð til
æskustöðvanna, Svínadalsins
gróðursæla og Hvalfjarðarstrandar-
innar. Þau hjónin komu oftast við
hér á Geitabergi á hverju sumri
þegar þau áttu leið um og voru þau
okkur heimilisfólkinu á Geitabergi
jafnan kærir gestir. Það var alltaf
glatt og kátt þar sem Lísa fór. Því
gleymast heimsóknir þeirra seint.
Lísa var mjög hög í höndum og
heilbrigð í allri hugsun. Nú fáum við
ekki lengur að sjá fallega brosið
hennar.
Ég og kona mín þökkum henni
fyrir hjálpina og öll handtökin á
okkar heimili og ekki hvað síst fyrir
þá miklu umhyggju, sem hún sýndi
börnum okkar, þegar þau voru að
vaxa úr grasi. Við biðjuni algóðan
Guð að styrkja mann hennar og
börn í þeirra miklu sorg. Blessuð sé
minning þessarar sæmdarkonu.
Jóhanncs Jónsson
Geitabergi
A Frá Tón-
V listarskóla
-Ui. Kópavogs
Þriöju vortónleikar skólans veröa haldnir í salnum,
Hamraborg 11, miðvikudaginn 8. apríl kl. 20.30.
Skólastjóri
t
Við viljum þakka þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við fráfall
litla elskulega sonar okkar, bróður og barnabarns,
Einars Birkis Guðbergssonar
Anna Grétarsdóttir BirkirSkúlason
GuðbergurG. Birkisson Sigriður Guðbergsdottir
Aníta Guðbergsdóttir Lára Kristjánsdóttir
GrétarGeirsson
og fjölskyldur aðstandenda
t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa
Hjalta Kristjánssonar Gyðufelli 4, áður bóndi Stóru-Brekku, Fljótum.
Þorbjörg Pálsdóttir
ÓskarHjaltason Anna Gréta Arngrímsdóttir
Trausti Hjaltason Lilja Sigurðardóttir
Guri Líf Stefánsdóttir Gunnar Vilmundarson
Ásta Hjaltadóttir barnabörn og barnabarnabarn. Kjartan Þorbergsson
jQ/taiéa/u^c/a/t
KAUPFÉLÖGIN OG
. BÚNADARDEILD
ÁRMÚLA3 REYKJAViK SlMI 38900
Borgaraflokkurinn
Skeifunni 7
SÍMAR:
Kosningastjórn
68 98 35
Happdrætti
68 98 28
Skrifstofustjórn - Gjaldkeri
68 98 29
Skráning sjálfboðaiiða
68 98 34
Utankjörstaðakosning - Þjóðskrá
68 98 22
68 99 81
Upplýsingar
68 98 32
68 98 33
Pósthólf 440, 121 Reykjavík
Símsvari 28060
Borgaraflokkurinn
Laxveiðiá
Óskaö er eftir tilboðum í veiðirétt í Víöidalsá í
Steingrímsfiröi. Tilboðseyðublöð og nánari upplýs-
ingar fást hjá sveitarstjóra Hólmavíkurhrepps í
síma 95-3193.
Sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps