Tíminn - 14.04.1987, Blaðsíða 6
Wtmim
'yzsz'Sz
"kllrr.
6 Tíminn,
Marlene Dietrich
fylgdist l,íKa vel með
tískunni á yngn
arum.
Axlapúð
- gömul tíska og ný
Bette
breiðu
reisn...
Davis bar
axlirnar með
YMSUM brá í brún þegar axlapúðar
voru enn einu sinni hafnir til vegs
og virðingar fyrir nokkrum árum og
hugsuðu með sér að það tæki því
ekki að venjast þessari flugu, hún
stæði áreiðanlega ekki lengi við, En
nú eru púðarnir búnir að festa sig í sessi - í
bili a.m.k., og enginn kippir sér upp við að
sjá vel klædda konu með álíka breiðar herðar
og bandarískur fótboltakappi, sem ver lík-
ama sinn hnjaski með því að bólstra búning-
inn sinn í bak og fyrir.
Axlapúðatískan á sér langa sögu. Um
aldamótin 1800 þótti engin kona af betri stétt
í ýtlöndum samkvæmishæf nema að henni
hefði verið reimað níðþröngt lífstykki, sem
gerði hana miðmjóa og brjóstaháa - og
reyndar um leið andstutta og hætt við yfirliði. Með
þessum tilfæringum nutu axlirnar sín líka til fulls. Og
síðan bættust við stórkostlegar „púff“ermar. En
jafnframt; því sem konur fóru að taka meiri þátt í
atvinnulífinu, Og juku við menntun sína, var heldur
betur hor'fið fi:á þessari „spennitreyju“tísku. Upp úr
1920 var ’allt þ^ð aðhald sem fatnaðurinn hafði veitt
líkamanum úr sögunni. Þá lá reyndar við borð að allur
fatnaður væri líka úr sögunni!
En sagan endurtekur sig. Á heimsstyrjaldarárunum
síðari var axlapúðatískan endurvakin í kvikmyndun-
um frá Hollywood. Rita Hayworth, Bette Davis, Joan
Crawford, allar báru þær mcð reisn breiðar axlir á
hvíta tjaldinu. Reyndar var efnið í kjólunum þeirra
stundum sparað á öðrum stöðum, en það er önnur
saga!
Að stríðsárunum og þrengingum eftirstríðsáranna
lokn'um liðu axlapúðar aftur undir lok. Þ.e.a.s. í bili.
Þegar framlciðendur sjónvarpsþátta fengu þá hug-
mynd einn góðan veðurdag að tími væri kominn til að
hleypa áhorfencium inn í heim glæsilega og auðuga
fólksins sem.ekki veit aura sinna tal, varð að grípa til
ýmissa ráða til að klæða glæsikvendin í samræmi við
þá ímynd sem þær bera. Þá datt einhverjum tískusnill-
ingi í hug löngu gleymdir axlapúðarnir og íburðarmikl-
ir kjólarnir sem voru þeint samferða.
Fegurðardísirnar í Dallas og Dynasty voru dubbaðar
upp samkvæmt því og í kjölfarið fylgdu auðvitað aðrar
konur, þó að pyngja þeirra sé léttari.
...og það gerði Rita Hay-
worth líka. Reyndar fannst
sumum eins og efnið hefði
verið sparað í staðinn ann-
ars staðar á kjólnum!
Lífstykkin og
breiðu axlirnar
1899.
1941 v,
æS
Parísartískan
1825
Tiskukjóli Elisabetar
drottningarmóður.
Lindu Evans finnst
axlirnar skipta meira
máli en hálsmálið í
þetta sinn.
Joan Collins ber breiðar axlir og
geysistórt halsmál og allir viðstadd
Joan Crawford fannst r
ekkert eðlilegra en að
bera breiðar axlir, enda ,
bar hún höfuð og herðar •
yfir aðrar. Hollywood-
stjörnur á sínum tíma.
ir hverfa i skuggann.
1936
gaf
París
þennan
,í.i| tón um
tískuna.
Díana prinsessa
tekur þátt í axla-
púðatískunni, en
ykirhana ekkium
of.