Tíminn - 14.04.1987, Blaðsíða 13
Tíminn 13
Þriðjudagur 14. apríl 1987.
Bangladesh:
Betlarar ekki
láglaunastétt
Frá Bangladesh: Einhvern veginn verða fátækir að bjarga sér og betl virðist
gefa góða raun fyrir suma.
í Bangladesh þykir það eftirsókn-
arvert að komast í hóp betlara og
fleiri og fleiri bætast í þann hóp
árlega. Flestir betlarar vinna sér
nefnilega inn mun meiri tekjur en
venjulegir verkamenn.
Samkvæmt opinberum tölum eru
betlarar að minnsta kosti 10% þeirra
nærri þriggja milljóna manna sem í
höfuðborg landsins búa. Ekki til-
heyra þó nærri allir þessara 10%
íbúa Daccaborgar láglaunastéttun-
um.
í einni könnun sem gerð hefur
verið kom í ljós að um 50% betlara
höfuðborgarinnar vinna sér inn um
2500 taka (eða sem samsvarar um
3300 krónum) á mánuði. Það er
meira kaup en venjulegur iðnaðar-
maður hefur fyrir sama tímabil.
Betlarar skiptast eins og aðrar
stéttir í mismunandi hópa og eru
„baralok“ þeirra efnaðastir og njóta
mestrar virðingar. Þeir aka um í
vögnum með fjölskyldum sínum og
yfirgefa þá sjaldan, gefa þannig til
kynna að þeir eigi við fötlun að
stríða. Margir þeirra eru þó það
efnaðir að þeir geta horfið til húsa
sinna í úthverfi Dacca að afloknum
ströngum vinnudegi.
Aðrir hópar koma síðan fyrir
neðan baraloka í virðingastiganum
og neðstir eru „faltoo" sem koma oft
ljótu orði á betlarastéttina með því
að taka þátt glæpum af ýmsu tagi.
Flestir betlarar reyna þó að lifa
heiðvirðu lífi.
„Við erum atvinnumenn rétt eins
og bílstjórar og verkamenn. Við
erum nokkuð ánægðir með afkomu
okkar,“ segir Suruj Miah sem er
einn leiðtoga baraloka.
Ríkisstjórnin í landinu segist vita
að margir betlarar tengist glæpum,
svo sem sölu á konum og gleðihúsa-
starfsemi, en hefur ekki komið fram
með heildaráætlun er geti stemmt
stigu við þessu vandamáli.
„Við vitum að margir þurfa ekki
að betla vegna þess að þeir eiga
eignir og geta unnið fyrir sér á annan
hátt“, sagði einn embættismanna
stjórnarinnar í samtali við Reuters
fréttastofuna.
„En þetta er orðinn vani og auð-
veld leið til þess að lifa,“ bætti hann
við.
Tyrkir sækja um
aðild að
Evrópubandalaginu
Ankara-Reuter
Stjórn Tyrklands mun í dag form-
lega sækja um aðild að Evrópu-
bandalaginu (EB). Þetta var haft
eftir embættismönnum tyrkneska
utanríkisráðuneytisins í gær.
Sendimenn Tyrkjastjórnar munu
afhenda Leo Tindeman, utanríkis-
ráðherra Belgíu, inntökubeiðnina í
Briissel í dag en Belgíumenn eru nú
í forsæti Evrópubandalagsins sem
tólf þjóðir eiga aðild að.
Tyrkir tilkynntu í gærdag að þeir
vildu ganga í Samtök Vestur-
Evrópuríkja (WEU) en það er
bandalag sem aðallega fæst við varn-
armál og í eiga sæti sjö þjóðir. Þessi
samtök voru nánast aðeins til á
pappírum þangað til á síðasta ári að
Bretar beittu sér fyrir að þau tækju
upp þróttmikið starf að nýju.
Stjórnarerindrekar töldu að yfir-
lýsing Tyrkja vegna aðildar að WEU
hefði komið fram núna til að leggja
áherslu á áhuga þeirra og einlægni í
sambandi við inntökubeiðnina í Evr-
ópubandalagið sjálft.
Turgut Ozal forsætisráðherra
hinnar hægrisinnuðu stjórnar í
Tyrklandi hefur haft það að mark-
miði síðan hann komst til valda árið
1983 að koma Tyrkjum í Evrópu-
bandalagið. Hann hefur þó ávallt
sagt að hann búist við að alllangan
tíma taki að fjalla um inntökubeiðn-
ina.
Líkiegt þykir að Grikklandsstjórn
taki beiðni Tyrkja um inngöngu í
bandalagið með mikilli varúð. Þessi
ríki eiga í mörgum deilumálum, nú
síðast vegna olíuréttinda f Eyjahafi.
Tyrkland er aðili að NATO en
Yfirvöld menntamála í Canton-
borg í Kína hafa bannað diskódans
meðal nemenda í borginni. Bannið
fylgir í kjölfar frétta um lélegan
námsárangur skólanemenda þar í
borg.
Það var kvöldblaðið Cantonpóst-
urinn sem skýrði frá banninu í
helgarútgáfu sinni og sagði þar að
gæði skólaverkefna hefðu minnkað
mjög hin síðari ár.
Blaðið sagði að hótel og diskótek
yrðu sektuð ef upp kæmist að þau
yrði það samþykkt sem meðlimur
Evrópubandalagsins yrði það eina
ríkið sem er eiginlega ekki í Evrópu,
mestur hluti þess er í Asíu. Að auki
yrði það eina ríkið í bandalaginu
sem er að mestu múslimaríki en ekki
kristið ríki.
hleyptu skólanemendum inn á dans-
leiki sína. Þá hefur framkvæmda-
stjórum hótela og veitingahúsa verið
skipað að hætta að bjóða upp á
svokallaða „tedansa“ þar sem ne-
mendum er boðið upp á síðdegiste
jafnframt sem þeir geta iðkað fóta-
fimi á dansgólfinu.
Hálfgert dansæði hefur gripið um
sig í þessari borg í Suður-Kína síðan
stjórnvöld í Pekíng tilkynntu um
stjórnmálastefnu sína, er kennd var
við opnar dyr, árið 1979.
Kína:
Stóri bróðir bannar
diskódans skólanema
Hong Kong-Reuter
Tilkynning
um lóðahreins-
un í Reykjavík
vorið 1987
Samkvæmt ákvæðum heilbrigðisreglugerðar, er
lóðareigendum skylt að halda lóðum sínum hrein-
um og þrifalegum. UmráðamennJóða eru hér með
minntir á að flytja nú þegar af lóðum sínum allt, er
veldur óþrifnaði og óprýði og hafa lokið því eigi
síðar en 14. maí n.k. Að þessum fresti liðnum
verða lóðirnar skoðaðar og þar sem hreinsun er
ábótavant verður hún framkvæmd á kostnað og
ábyrgð húseigenda, án frekari viðvörunar. Þeir,
sem óska eftir sorptunnum, hreinsun eða brott-
flutningi á rusli á sinn kostnað, tilkynni það í sirha
18000.
Til að auðvelda fólki að losna við rusl af lóðum hafa
verið settir gámar á eftirtalda staði: Við Meistara-
velli, Sigtún, Grensásveg og Breiðholtsbraut við
Vatnsendaveg. Eigendur og umráðamenn ó-
skráðra umhirðulausra bílgarma, sem eru til
óþrifnaðar á götum, bílastæðum, lóðum og opnum
svæðum í borginni, eru minntir á að fjarlægja þá
hið fyrsta. Búast má við, að slíkir bílgarmar verði
teknir til geymslu um takmarkaðan tíma, en síðan
fluttir á sorphauga. Úrgang og rusl skal flytja á
sorphauga við Gufunes á þeim tíma sem hér segir:
mánudaga-föstudaga kl. 08-21
laugardaga kl. 08-20
sunnudaga kl. 10-18.
Rusl, sem flutt er á sorphauga, skal vera í
umbúðum eða bundið. Ekki má kveikja í rusli á
sorphaugunum og hafa ber samráð við starfs-
mennina um losun.
Sérstök athygli skal vakin á því, að óheimilt er að
flytja úrgang á aðra staði í borgarlandinu. Verða
þeir látnir sæta ábyrgð, sem gerast brotlegir í þeim
efnum.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík.
Hreinsunardeild.
Til allra landsmanna!
Nú er unnið af fullum krafti að skipulagi Borgara-
flokksins.
í anda RAUNVERULEGS LÝÐRÆÐIS óskar
Borgaraflokkurinn eftir hugmyndum og/eða tillög-
um frá almenningi um skipulag flokksins.
Tillögur og/eða hugmyndir sendist Borgaraflokkn-
um.
Pósthólf 440 Reykjavík, eigi síðar en 25. apríl
n.k.
Með kveðju,
BORGARAFLOKKURINN,
Flokkur með framtíð.
1
d±z Verkfræðingar
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða verkfræðing til að
veita forstöðu hönnunardeild embættis bæjarverk-
fræðings.
Nánari upplýsingar veita undirritaður og bæjar-
verkfræðingur.
Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf, skulu
berast bæjarskrifstofunni í Hafnarfirði eigi síðar en
þriðjudaginn 28. apríl nk.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði
DÆMALAUST BÍTL - VIÐ ÖLLUM KVILLUM?