Tíminn - 16.05.1987, Page 2
2 Tíminn
Laugardagur 16. maí 1987
Prófmál í Hæstarétti:
Þingmannamyndatökur
ekki atvinnurekstur
MANNÆTU-
GATNAMÓT
BG
naruur areKStur varo
mótum Bústaðavegs, og afrennslis
Kringlumýrarbrautar á tíunda
tímanum í gærmorgun. Ford Fiesta
fór yfir á rauðu ljósi og ók í veg
fyrir Bens sem var að koma af
Kringlumýrarbrautinni, á grænu
ljósi. Báðir ökumenn voru fluttir á
slysadeild en meiðslin reyndust
óveruleg.
Nokkrir mjög~ harðir árekstrar
hafa orðið á þessum gatnamótum.
Lögreglan segir: Ekki furða, slík
gatnamót þekkjast ekki nema hjá
mannætuþjóðum. Þarna hefði átt
að setja slaufu, þannig að umferð
, af Kringlumýrarbraut skeri ekki
umferð um Bústaðaveg. En það er
nú einu sinni svo að það er alltaf
verið að spara. Sparnaðurinn er
samt ekki meiri en það að við
flytjum kostnaðinn af borginni og
yfir á heilbrigðiskerfið og trygg-
ingafélögin, sem við borgum síðan
sjálf aftur. Þarna er horft í aurinn
um leið og krónunni er kastað.
-ES
Eins og myndin ber með sér er
áreksturinn harður. Hann hefði
ekki orðið ef slaufa lægi undir
brúna og umferðin af
Kringlumýrarbraut þyrfti ekki að
skera Bústaðaveginn.
Tímamynd Pjetur
- Kristján Ingi sýknaöur
Kristján Ingi Einarsson hefur ver-
ið sýknaður í Hæstarétti af ákæru
um brot á iðnlöggjöfinni með því að
hafa verið með atvinnurckstur í
ljósmyndun án tilskilinna réttinda. -
Kristján var kærður af Landssam-
bandi iðnaðarmanna og var dæmdur
í undirrétti. Málið snerist fyrst og
fremst um það hvort hann hefð gerst
brotlegur við iðnlöggjöfina með því
að taka andlitsmyndir af alþingis-
mönnum í handbók Alþingis árið
1984. Samkvæmt niðurstöðu Hæsta-
réttar eru þessar myndatökur Kristj-
áns ekki fullnægjandi til að hann
teljist hafa stundað ljósmyndun í
atvinnuskyni. Samstaða var þó ekki
hjá dómendum, Guðmundi Skaftas-
yni, Guðrúnu Erlendsdóttur og Þór
Vilhjálmssyni, því Þór skilaði sérat-
kvæði þar sem hann vildi staðfesta
dóm héraðsdóms.
Mál þetta hefur vakið nokkra
athygli þar sem litið hefur verið á
það sem prófmál um hversu langt
starfsheiti í ákveðnum iðngreinum
ná. Eftir þessa niðurstöðu hafa þær
línur skýrst nokkuð, en hvergi nærri
að fullu.
Kosningahátíð
Framsóknarmanna
í Reykjaneskjördæmi
verður haldin í Stapa í Njarðvíkum
laugardaginn 16. maí
Húsið verður opnað kl. 22.00
Sætaferðir verða frá:
Mosfellssveit.. kl. 21.15
Seltjarnarnesi .... kl. 21.15
Kópavogi .... kl. 21.30
Garðabæ ..... kl. 21.45
Hafnarfirði.. kl. 21.45
Rúturnar fara frá kosningaskrifstofum
viðkomandi staða.
Stuðningsmenn B-listans
fjölmennum
Kjördæmisstjórn
Saursýkillinn í Dölum:
Hver er skyldugur
til skaðabóta?
- spyrja Neytendasamtökin
Neytendasamtökin hafa sent frá
sér fréttatilkynningu þar sem þau
álykta að eðíilegt og sanngjarnt sé
að Heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytið beiti sér fyrir því, að settar
verði á laggirnar tryggingar til þess
að bæta fólki það tjón, sem það
hefur orðið fyrir af völdum matar-
eitrunar, eða matarsýkingar, sem
Luxemboig
NÝR
„SUPER SUMARPAKKI"
til Luxemborgar
fyrir aðeins kr. 16.100
Flogið með Flugleiðum og
gist í tvær nætur á
Holiday Inn.
íV
Holiday Inn er
glæsilegt hótel og vel
staðsett í borginni.
Það er margt að sjá og gera i
Stórhertogadæminu
Luxemborg.
Fagurt landslag, fornar
byggingar, fjölbreytt
menningarlíf, verslanir og
veitingastaðir.
Söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn og ferða-
skrifstofur veita þér allar
nánari upplýsingar um
„SUPER SUMARPAKKANN"
FLUGLEIDIR
erfitt getur verið að finna hver ber
ábyrgð á.
- En hver er þá skaðabótaskyld-
ur?
„Það er yfirvaldsins að kljást við
þann sem sekur er. Það er svo erfitt
að sanna hver ber ábyrgð. Við
höfum átt viðræður við Hollustu-
vernd og einnig erum við í samráði
við Neytendafélag Dalvíkur. En
þetta er alvarlegt mál og við höfum
dæmi um sjúkrahúslegur og ýmsar
hliðarverkanir. Einnig eru dæmi um
beint fjárhagslegt tap, eins og t.d.
þegar fólk verður frá vinnu. En við
fylgjumst vandlega með öllu. Rann-
sókninni er ekki lokið,“ sagði Jó-
hannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna.
„Hvort við munum láta heyra í
okkur á nýjan leik, fer alveg eftir því
hvernig mál þróast. Það eru ekki til
sambærileg samtök á Norðurlönd-
um. Þetta er t.d. ríkisstofnun í
Svíþjóð. En við erum ekki ríkis-
stofnun og því um að gera að vera á
verði,“ sagði Jóhannes að lokum.
- SÓL
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIÐ JAN
dddda h f.
‘SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SIML45000