Tíminn - 16.05.1987, Blaðsíða 18

Tíminn - 16.05.1987, Blaðsíða 18
18 Tíminn Laugardagur 16. maí 1987 Starfslaun Ríkisútvarpsinstil listamanna Ríkisútvarpiö auglýsir starfslaun til listamanns eöa listamanna til aö vinna að verkum til frumflutnings í Ríkisútvarpinu. Starfslaunum geta fylgt ókeypis afnot af íbúö Ríkisútvarpsins í Skjaldarvík í Eyjafirði. Starfslaun eru veitt til 6 mánaða hiö lengsta og fylgja þau mánaöarlaunum skv. 2. þrepi 140. Ifl. í kjarasamningi Bandalags háskólamanna og fjármálaráöherra fyrir hönd ríkissjóðs. Umsóknum ásamt greinargerð um fyrirhuguð viöfangsefni skal skilað til skrifstofu útvarpsstjóra Efstaleiti 1, Reykjavík fyrir 15. júní nk. Þar eru ennfremur veittar nánari upplýsingar um starfslaunin. ri'ítf RÍKISÚTVARPIÐ Til sölu einbýlishús í Búðardal Tilboö óskast í húseignina Ægisbraut 7, Búöardal, stærö hússins er 593 m3 og bílskúr 50 m3. Húsið veröur til sýnis í samráði viö Pétur Þorsteinsson sýslumann, sími (93) 4404. Tilboðseyðublöð liggja frammi í húseigninni og á skrifstofu vorri. Kauptilboöum sé skilað á skrifstofu vora, Borgartúni 7, fyrir kl. 11.00 f.h. miðvikudaginn 27. maí 1987, en þá verða tilboðin opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Ingimar Karlsson Langagerði 15 Reykjavík verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 19. maí kl. 13.30. Guörún Guðnadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför Sigrídar Jówadóttur, Kleppsvegl 28. Jón Hallgrímsson Sigurgrí mur Jónsson Sigrún Scheving Erlen JinaóéMir MaMhías Gíaieson Elín Jóna Jónsdóttir Gunnar Gunnarssen og barnabörn t Sonur okkar og bróðir Friðrik Kárason símaflokksstjóri Datseli 8, Reykjavik lést 10. maí sl. á Landakotsspítala. Verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni miðvikudaginn 20. maí kl. 13.30. Sigrún Guðdis Haltdórsdóttir Kári Páll Friðriksson Áslaug Lilja Káradóttir t Hjartkær eiginkona mín, móðir langamma okkar, tengdamóðir, amma og • ■ ' Marta Gu&mwwdadátlir frá Laufási sem lést á Dropiaugaratöðum 13. mai varður jarðaungin frá Fossvogskirkju þriéjudaginn 19. maí kl. 13.30. ÞórtiaUur Guðmundsson Margrét Þórhalladóttir Þorsteinn Þorsteinsson Guðrún Þórhallsdóttlr Frímann Jóhannsson Hólmfriður Þórhallsdóttir Sigurður Þórhallsson Margrét Steingrímsdóttir Ragnar Þórhallsson Kristbjörg Þórhallsdóttir Óskar Maríusson Guðmunda Þórhallsdóttir Snær Karlsson barnabörn og barnabarnabörn Zophonías Zophoníasson bifreiðarstjóri Fæddur 6. júlí 1906 Dáinn 10. maí 1987 Haustdagur í Vatnsdal árið 1946. Lítil telpa klædd blárri kápu með hettu stendur á hlaðinu á Ásbrekku og virðir fyrir sér sjóndeildarhring- inn. Móðir hennar hafði látist um vorið frá eiginmanni og fjórum börnum. Vinafólk föður hennar bauðst til að taka litlu stúlkuna á meðan á skólagöngu hennar stæði. Þetta voru Guðrún Einarsdóttir og Zophonías á Blönduósi. Nú var rútan hans Zophoníasar komin fram á Brekku og beið þess að flytja farþegana út á Os. Zophonías snarast inn í bílinn og opnar dyr hans, svo að telpan geti sest upp í. Litla stúlkan hefur að vísu komið á heimili þeirra hjóna áður. Þá var hún í fylgd ömmu sinnar og nöfnu Sigurlaugar Guðmundsdóttur frá Ási. Dæturnar hefur hún líka hitt og tilhlökkun og dálítill kvíði bærist í brjósti hennar, er hún klifrar upp í bílinn, í framsætið við hlið bílstjór- ans. Chevrolet Pickup ’79 yfirbyggður með orginal 8 síl. Chevrolet díselvél, ekinn 15000 á vél, sjálfskiptur með powerstýri, Dana hásingum með fljótandi öxlum. Vandaðar innréttingar. Allur ný yfirfarinn. Verð kr. 690.000,- Skipti á ódýrari. Til sölu og sýnis í Borgarbílasölunni, Grensásvegi 11. Símar 91 -83150 - 91.-82257. PÓST- OQ SlMAMÁLASTOFNUNIN Rafeindavifki og tæknifræðingur óskast til starfa nú þegar. Nánari upplýsingar veitir Kristinn Einarsson yfirmaður línudeildar símstöðvarinnar í Reykjavík, Suðurlandsbraut 28, sími 91-26000. PÓST- OQ SfMA MÁLASTOFNUNIN Viðskiptafræðingur óskast í tölvu- endurskoðun, kostnaðareftirlit o.fl. Nánari upplýsingar veittar í aðal- endurskoðunardeild , Landssímahúsinu við Aust- urvöll. aunuuUin sf. Tökum aö okkur vtðgeröir og breytingar á fatnaöi. Gerurn einntg vié laður- og mokkafartnað Sóndum í póstkröfu um attt land QrsWsgdtu 46 — Sími 2-65-14 Optð virka daga frá kl. 9.00-17.00 Drögum vel úr ferð við blindhæðir og brýr. GÓÐAFERÐ UUMFERÐAR RÁÐ Hann ræsir „fákinn" þeirra tíma og bifreiðin þumlungast út dalinn eftir mjóum, holóttum og krókóttum veginum. Kvíða hennar lægir, þegar suðandi vélarhljóðið syngur á leiðinni til nýju heimkynnanna við sjóinn. Zophonías var svo traustvekjandi bifreiðarstjóri á hverju sem gekk, þau tuttugu ár sem hann hélt uppi áætlunarferðum í Vatnsdalinn, tvis- var í viku hverri. Ræsi voru fá og stundum voru lækirnir ísi lagðir. Þá brast oft klakaskörin undan bílhjól- unum og ekkert gat hjálpað nema hæfni stjórnandans að komast yfir allar þær torfærur sem á leið hans gátu legið. Þarbrást honum aldrei bogalistin. Bifreiðin var honum eins og pens- ill listmálaranum eða bogi fiðlaran- um. Dvölin á heimili hjónanna varð þegar til kastanna kom alls sex vetur og síðan tvö sumur við bensín- afgreiðslustörf o.þ.h. hjá B.P., sem þau höfðu umboð fyrir á staðnum, í lítilli búð á syðri bakka Blöndu. Heimili þeirra Guðrúnar og Zop- honíasar var sannkallað menningar- setur. Bóklestur var mikið stundað- ur, enda prýddi það fjöldi góðra bóka. Húsfreyjan hafði einnig yndi af ræktun fagurra blóma, var hann- yrðakona hin mesta og stjórnaði heimilinu af miklum myndarskap. Oft var gestkvæmt á heimilinu, en þau voru sannkallaðir höfðingjar heim að sækja, enda búið sem best að gestum að fornum sið í allri matargerð. Boðið var upp á ramm- íslenskt viðurværi eins og slátur, súrmeti alls konar, reyktan og salt- aðan mat ásamt öðru góðgæti. Stundum komu góðir hagyrðingar eða skáld í heimsókn og heyrðist þá oft kveðin góð staka eða vísukorn, en Guðrún hafði ósvikna gleði af slíkum mannfundum og þeirri þjóð- legu íþrótt andans, sem skáldskapur- inn er. Stundum var farið í ferðalög fram í Blöndudai eða Svínadai og einkar minnisstæðar ferðirnar fram að Bjarnastöðum á veturna, í heimsókn til Pálma bróður hans sem þar bjó ásamt fjölskyldu sinni. Tjörn í túni botnfrosin og ísinn svo tær að löng strá stararinnar voru eins og steypt í gler, ef legið var ofan á ísnum og horft til botns. Zophonías var stundum með okk- ur Kolbrúnu á sleða á tjörninni og skemmtum við okkur þá konung- lega. Ýmsar aðrar ferðir voru farnar, sem ég kann vart að nefna lengur, en alltaf reyndist stjórnandinn farsæll, hvert sem leið lá. Þannig vil ég muna hann með styrkar hendur á stýri, horfandi fram á veginn. Atlæti hjónanna við telpuna var ekki síðra en við þeirra eigin börn. Móðir hans, Guðrún Pálmadóttir var líka heimilisföst hjá þeim og ekki sparaði hún hlýjuna í garð litlu stúlkunnar. Mörg flíkin spratt full- búin úr höndum hennar og bar hagleik hennar til sauma fagurt vitni. I októberlok haustið 1985, þegar Guðrún Einarsdóttir átti merkisaf- mæli kom ég norður og dvaldi hjá þeim fáeina daga ásamt Sigríði dóttur þeirra, sem búsett er á Eiðum í Suður-Múlasýslu. Við rifjuðum upp minningar frá æskuárunum og mikið naut ég þess að mynnast við þennan bernskuheim minn og líta augum ýmisiegt smáiegt þarna á gamla heimilinu. Elsku Guðrún mín, Kolla, Sigga og Dússi. Þetta áttu að vera fáein kveðjuorð frá fósturbarninu en urðu einungis fátækleg minningarbrot. Ég votta ykkur og fjölskyldum ykkar mína dýpstu samúð. Dreng- ur góður er genginn. Hann er lagður af stað í hinstu förina, sem bíður okkar allra. Blessuð sé minning hans. Sigurlaug Ásgrímsdóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.