Tíminn - 16.05.1987, Blaðsíða 9

Tíminn - 16.05.1987, Blaðsíða 9
I ai inor/Honi ir 1 £ maí 1 QÖ7 LAUGARDAGURINN 16. maí 1987 veginn öðruvísi vinstri svipur en er á Framsókn og Kvennalista. Þessi orðræða er ekki sett hér á blað til að efla einhverjar ýfingar við Sjálfstæðisflokkinn. Stjórnarsam- starfið við hann hefur tekist vel í öllum aðalatriðum, og ætlunarverk- ið að ná niður verðbólgu tókst með ágætum. Að vísu þurfti að koma til allverulegur fjárlagahalli, sem er þó betra að bera en hundrað prósent verðbólgu. Fjárlagahallinn varð til eins og allir vita vegna samninga við verkalýðshreyfinguna, sem stöðugt veifar íáglaunahópum og rétti þeirra framan í ríkisstjómir. Það er hins- vegar heldur óákveðinn hópur, sem hefur svonefnd lág laun - og síðan kemur annað til sem eru útborguð laun og laun að frádregnum sköttum. Ætli væri ekki ráð að fara að kortleggja launasviðin svo það sæist hvernig þessum málum er hag- að í raunveruleikanum. Skal þó ekki dregið úr vanda þeirra sem iægstu launin hafa. Staðreyndir __________á skjön_____________ Eins og bréfritari Morgunblaðsins hefur rekið sig á og rök hafa verið færð fyrir hér að framan, þá er annað að hafa uppi óskhyggju um myndun ríkisstjórnar - óskastjórnar - sem í munni bréfritara er nýsköp- unarstjórn, en bera staðreyndir fyrir því að hún sé óhjákvæmileg. Eigi þessar staðreyndir að sýna að Fram- sókn sé allt í einu orðin óalandi og óferjandi vegna „sérhagsmuna" og vegna vinsælda Steingríms Her- mannssonar, þá verður að segjast eins og er, að til lítilsfóru sjálfstæðis- menn í ríkisstjórn fyrst ekkert liggur eftir hana annað en efla sérhagsmuni Framsóknar og vinsældir forsætis- ráðherra. Auðvitað er hér aðeins um málatilbúnað að ræða til að geta fært rök að því að nú eigi að stjórna með A-flokkunum, sem eru ekki iengur þeir vinstri flokkar að þeir jafnist í þeim efnum á við Framsókn og Kvennalista. Bréfritari Morgun- blaðsins skrifaði fyrir nokkrum árum grein í blað sitt sem fjallaði um sögulegar sættir Sjálfstæðisflokks og kommúnista. Þá þótti slík hugmynd ganga guðlasti næst í herbúðum sjálfstæðismanna, og munaði minnstu að bréfritara væri skipað að þvo munn sinn með sápu á eftir. Nú er þessi hugmynd aftur komin á loft, eins og kommúnistar séu nokkurs- konar arfafé bréfritara. Þeir eru rúnir fylgi og því sem er meira um vert: Þeir hafa ekki lengur það fylgi innan verkalýðshreyfingarinnar, sem þeir hafa löngum gumað af, og búa raunar ekki yfir öðru en úreltri hugmyndafræði, og má vera að Sjálf- stæðisflokknum þyki fengur að því að fá slík fræði í bú sitt. Kannanir sýna að Borgaraflokkur Alberts Guðmundssonar er miklu meiri verkalýðsflokkur en Alþýðubanda- lagið. Útvörður herfræðinnar Gamla nýsköpunarstjórnin, sem Ólafur Thors myndaði með Alþýðu- flokki og kommúnistum þegar sigur bandamanna í seinni heimsstyrjöld- inni sást fyrir, hóf störf sín við bestu aðstæður. Kjötkatlar landsins stóðu með fullri hitu á hverju eldholi og ekki annað en hella súpunni á diska. Úr þessu varð skammvinn veisla eins og frægt er orðið. Síðan lenti Stefán Jóhann Stefánsson í upp- þvottinum að veislu lokinni og hann varð ekki eins fagnaðarríkur og nýsköpunarveislan, enda er upp- þvottur sjaldan skemmtiefni. Þegar Ólafur Thors myndaði stjórnina voru allir að daðra við kommúnista, og þess vegna sá ekki á svörtu. Nú á dögum er minna daðrað, enda hefur Vestur-Evrópa staðið í hörðu á liðn- um áratugum við að komast hjá að lenda á sama þróunarskeiði og aust- urblokkin. Hér á fslandi hafa menn slett i góm og látið sig hafa það að stjórna með kommúnistum og geng- ið misjafnlega - allir nema einn flokkur, Sjálfstæðisflokkur. Sagt hefur verið að í raun væri hann ekki flokkur nema á kjördag, heldur mikill fjöldi borgara, sem vill vest- ræna samvinnu, hatar kommúnista nema í menningarmálum, þar sem þeir eru taldir öðrum merkilegri, og vill hafa sem mestan frið fyrir pólitík. Ekki þurfa þetta að teljast slæmir kostir. Það hefur þráfaldlega heyrst á Morgunblaðinu, á meðan það tók þátt í kosningabaráttu Sjálf- stæðisflokksins, að það taldi veru fslands í Nato og staðfastan stuðning flokksins við bandalagið eitthvert helsta kosningamálið. Áreiðanlega fékk Sjálfstæðisflokkurinn mikið af fylgi sínu út á slíkar yfirlýsingar. Einnig út á þá stöðu, að flokkurinn væri helsti andstæðingur hins rauða stjórnarfars. Nú hefur blaðinu allt í einu verið snúið við á ári, þegar flokkurinn tapar miklu fylgi. Nú þykir sjálfsagt að lýsa yfir að æskilegt sé að mynda stjórn með Alþýðu- bandalaginu, jafnvel þótt það kosti að flokkurinn verði að ganga fram fyrir alþjóð á biðilsbuxum og láta hafna sér a.m.k. fram yfir fundinn í Borgarfirði á laugardag. Ekki vottar fyrir áhyggjum út af fylgi flokksins, þessu sama fylgi sem hefur litið á Sjálfstæðisflokkinn sem helstu brjóstvörn vestrænnar samvinnu og Nato á íslandi. Kristín Einarsdóttir, fulltrúi Kvennalista, Steingrímur Hermannsson, forsœtisráðherra, og Kristín Halldórsdóttir, fulltrúi Kvennalista, meðan stóð á viðrœðum þeirra um stjórnarmyndun. Tímaniynd Pjctur Það sem gerist næst Steingrímur Hermannsson hefur haft umboð til stjórnarmyndunar og skilað því aftur. Var hann svo fljótur að fara nauðsynlega fyrstu umferð, að einn ráðherra, sem var erlendis í fimm daga upplifði í raun ekki þessa tilraun. Hún hófst og var um garð gengin að honum fjarverandi. Þetta á sínar skýringar. Steingrímur var að heyra álit flokksforingja og skoða möguleika á þriggja flokka stjórn, sem samkvæmt úrslitum kosninga cr fyrsti kostur. Hann gerði tillögu um samstjóm Framsóknar, Sjálfstæðis- flokks og Kvennalista, en sú hug- mynd strandaði á Þorsteini Pálssyni. Þorsteinn var einfaldlega ekki tilbú- inn að taka þátt f þeirri tilraun. Nú hefur Þorsteinn fengið umboð til að reyna stjórnarmyndun. Hann mun að líkindum fara sér hægt og taka sér lengri tíma en Steingrímur gerði. Þær ástæður liggja til þess, að óska- stjórn höfundar Reykjavíkurbréfs getur ekki orðið í sjónmáli fyrr en eftir fund Alþýðubandalagsins að Varmalandi i Borgarfirði nú um helgina. Þaðan gæti Svavar Gestsson komið í betra skapi en hann var, þegar hann talaði við Steingrím Hermannsson um hlutverk vara- dekksins í íslenskri pólitík. Það getur því ekki orðið fyrr en eftir helgi, sem Þorsteinn fær einhvern botn í Alþýðubandalagið því varla er mönnum orðið svo brátt að leitað verði svara með hraðskeytum við Varmaland. Við gufu, gróðurhús og sveppi Varmaland í Borgarfirði er virðu- legur og merkur staður, þar sem rekinn hefur verið kvennaskóli. Þar er sundlaug og þar cru gróðurhús, og þar eru ræktaðir sveppir. Þetta setur, í friðsælu dalverpi, hefur Al- þýðubandalagið valið undir mið- stjórnarfund sinn þar sem gert verð- ur út um málin í lok mikilsháttar kosningaósigurs flokksins og eftir hótun Guðrúnar Helgadóttur um að taka völdin í flokknum af þeim „skeggjuðu feministum", sem fram að þessu hafa ráðið mestu um stefn- una. Þessi upphrópun Guðrúnar er skiljanleg í ljósi þess, að Alþýðu- bandalagið tapaði miklu fylgi yfir til Kvennalista. Nú segir Guðrún: Við alþýðubandalagsmenn getum þetta sjálfir og þuríum ekki þverpólitíska milliliði á vinstri væng. Eflaust munu einhverjir halda langar ræður um erfiðleika flokksins í verkalýðshreyf- ingunni, en þarergrasrótinni þannig háttað að hún er ýmist skriðin undan fótum forystu flokksins, eða þá að flokkurinn hefur notað hana svo lengi eins og tiltekin port í borginni, að hún fótar sig ekki á henni lengur vegna hálku. Veslings Ásmundur má eflaust enn þola yfirlýsingar um að hann hafi verið manna óþarfastur í framboði. í þannig ástandi hcldur Alþýðubandalagið til Varmalands, þessa bjarmalands nýrra vona um endurreisn bandalagsins. Má vel vera að Þorsteinn mæti þcim á planinu við Bifreiðastöð íslands í þannig ástandi, að Svavar verði búinn að týna varadekkinu ogorðinn viðræðuhæfur. Þær „mjúku“ verða harðar Þegar Jón Baldvin Hannibalsson byrjaði að tala við fulltrúa Kvenna- lista um stjórnarmyndun varð þeim svo mikið um, að þær settust saman í hóp og byrjuðu að prjóna. Þetta þótti ekki lofa góðu um pólitískan sans. En annað kom á daginn. Auðvitað var ekkert sjálfsagðara en fitja upp á illeppum handa göngu- móðum manni á borð við Jón Baldvin. Næstu aðgerðir sýndu að Kvennalistakonur kusu að vera var- ar um sig, enda karlaveldið mikið. Þær sögðust gera kröfur. Þær ætluðu að krefjast eins og annars í viðræð- um um stjórnarmyndun, og varð þá mörgum hugsað til þess, að kröfurn- ar kynnu að koma skrftilega fyrir, yrði þeim sjálfum faldar stjórnar- myndunarviðræður. Það er erfitt að ætla að stofna til samvinnu á grund- velli kröfugerðar. En þær hafa nú sloppið frá þessu og raunar breytt um talsmáta. Á blaðamannafundi, sem Stein- grímur Hermannsson efndi til þegar hann hafði afsalað sér umboði kvaðst hann hafa átt ágæta viðræður við forystumenn flokkanna. Hann tók sérstaklega fram að honum hefði þótt fróðlegt að tala við fulltrúa Kvennalistans „um þeirra baráttu- mál og áhugamál í hugsanlegri stjórnarmyndun“. Fulltrúar Kvennalista eiga því auðsjáanlega betra með að túlka sjónarmið sín „paa to mans hand“ en í fjölmiðlum, sem vilja alltaf vera að pína út úr þeim ótímabærar yfirlýsingar um hverjar kröfur þeirra eru. Konurnar hafa auðvitað sín sjónarmið, en þeim er ekkert skyldara en öðrum stjórnmálaflokkum að puðra þeim stefnumiðum út í fjölmiðla, enda hefur fjölmiðlum ekki verið falið að mynda ríkisstjórn á íslandi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.