Tíminn - 16.05.1987, Síða 3

Tíminn - 16.05.1987, Síða 3
Laugardagur 16. maí 1987 Tíminn 3 Stjómarmyndunarviðræður: Sjálfstæðisflokkur ræðir við alþýðuflokksmenn Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og Friðrik Sophusson varaformaður, áttu í gær fund með Jóni Baldvin Hanni- balssyni formanni Alþýðuflokksins og Jóhönnu Sigurðardóttur varaformanni. Fundurinn stóð yfir í nokkrar klukkustundir og voru þar ræddir hugsanlegir snertiíletir flokkanna í ríkisstjórnarsamstarfi. Hugmyndin er sú að ná fram á sem skýrastan hátt hvað þessir flokkar geta sameinast um og hvað skilur þá að áður en þeir kalla fleiri til viðræðna. Forystumennirnir voru fámálir í gær um hvaða flokk þeir vildu fá með sér, en Þorsteinn Pálsson sagði strax eftir að hann fékk umboðið að einungis kæmi til greina að Sjálfstæðisflokkurinn tæki þátt í þriggja flokka stjórn. Alþýðubandalagið heldur miðs- tjórnarfund í Varmalandi í Borgar- firði og talið er nokkuð víst að Þorsteinn Pálsson muni ekki leita hófanna á þeim bæ fyrr en eftir helgi. JSUNDAY, MapMayBe tefor? tbe ^rr 0^ A ^randed „ . ot X£w tha' 0)e lB?ry musT^0^® --—— have cnn. . S'una bv thn „í... "" ' Partirtn .‘í6/ c7cloi Show that the I ^ery S=;!f.íS5s1árasys SSI nJ? senuine after Í J4; could 'urn w. work Í.7.7S TV" - sxiUV&rs* Í5S ííjr ,,,a "ave con- D“'“nK °y the eh .“‘uerd*P««eamon/i' re,«nited a l^as„rece»ved. Bn, !£El£'hs:**n í pr°‘° Vwí ffl •* U S&r&Fxssi mL. ? wny £Ssu*>’° !lc'«cíte. L, „.an ‘ntfrview. nr I ‘T- «ap?£» ín aÆ" ^ ",e“'"Pie." cnem*ca> élemem, Dr Ktof’SSf J®&£iÉ2sS Eaitsfi ja K-^ssaíajs '«■ l'™™.vík,,n*f «WVM S Mcr ™ra..n, C.„.J'c:VCr,cs' lioslíy0 “lí Mol.,. C^Al'tSf,rv"’"ómo! ,lrcr!“ i»«íS,vSnE.!"iwd has I fl ' M, WllB, hífS™?3f" Ooo. 0..7,; | . ' ESíiSsSSnSifís °’Y I 5ío"S,Cm*n 'o,TvStP,!r™ * SMn- I-- u“.'f,c,v'”*p««p-2£gf,“,í.l; Debate over authenticity of chartis renewed. of vearc 0 ,r tili»y n.r? earlier Under the Mlcroscone &2S3&~íssl Bandarískar vísindarannsóknir: Vínlandskortið er ekki falsað - segja kalifornískir aðilar RLR kannar dauðsfall Rannsóknarlögreglan rannsak- ar nú dauðsfall tvítugs vinnu- manns á bænum Hnjóti í Rauða- sandshreppi í V-Barðastrandar- sýslu. Menn frá RLR voru kvadd- ir á staðinn í gær, að beiðni lögreglunnar á Patreksfirði, sem fyrst var kvödd á staðinn. Vinnu- maðurinn fannst látinn í votheys- hlöðu við bæinn í fyrrakvöld. Áverkar eru á líkinu. Ekki hefur náðst í ættingja mannsins og er því ekki hægt að birta nafn hans að svo stöddu. Frjálst fiskverð?: „Tek ekki þátt í því“ - segir framkvæmda- stjóri SAFF „Ég heyrði það í útvarpinu í gærkveldi að það væru líkur á frjálsu fiskverði, en ég kannast ekkert við það,“ sagði Árni Benediktsson, framkvæmdastjóri félags Sambands- frystihúsa í samtali við Tímann. -En hvernig líst þér á frjálst fiskverð? „Ég hef ekki hugsað mér að taka þátt í því. Maður þarf forsendur fyrir breytingum, en ekki fyrir að breyta ekki,“ svaraði hann spurning- unni um hvers vegna hann myndi ekki taka þátt í þessari nýjung. Aðilar funduðu í Verðlagsráði í gær og lögðu sjómenn og útgerðar- menn fram tillögu um frjálst fiskverð, en gagnaðilar þeirra báðu um vikufrest til að skoða málið. Annar fundur verður því haldinn um málið seinni hluta næstu viku. - SÓL "í ljósi þessara nýju niðurstaðna, verður að endurskoða fyrri túlkun um að kortið sé fölsuð eftirlíking frá 20. öld,“ segir í fagtímaritinu Ana- litical Chemestry er sunnudagsút- gáfa New York Times vitnar til um síðustu helgi. Það sem hér er verið að tala um er Vínlandskortið víð- fræga sem sanna þótti á sínum tíma að víkingar vissu um Ameríku löngu áður en Kólumbus kom til sögunnar. Það eru vísindamenn við Kali- forníuháskóla sem nú hafa endur- vakið gamla deilu um hvort Vín- landskort sem fyrst uppgötvaðist hjá bóksala í Bandaríkjunum 1957 væri ekta eða falsað. Það var síðan árið 1974 að Walter nokkur McCrone handritasérfræðingur í Chicago gerði smásjár og röntgenrannsóknir á kortinu og komst að þeirri niður- stöðu að blekið á því væri af gerð sem hefði verið fundin upp árið 1917 og því væri kortið falsað. Síðan hefur umræða um kortið legið niðri að mestu. En nú hafa vísindamenn við Kali- forníuháskóla kontið fram með nýj- ar rannsóknir sem benda til að kortið sé, eftir allt, ekta kort frá miðöld. Það eru eðlisfræðingurinn Thomas Cahill sem stýrir kjarn- orkurannsóknarstofu við Davis Campus í Kaliforníuháskóla og fé- lagar hans sem sett hafa fram þessar nýju niðurstöður. Þeir skutu með fullkomnum tækjum sterkum geisla af prótónum í gegnum Vínlands- kortið og komust að því að blekið var af þeirri samsetningu sem dæmi- gerð var fyrir blek á skjölum mið- aldanna. Enn er ekki fullkomlega ljóst hvort aðrir vísindamenn muni draga niðurstöður Cahills í efa, en þó er ljóst að búið er að endurvekja deil- urnar um hvort Vínlandskortið er upprunalegt eða ekki. - BG ASÍ,VSÍ,VMS: Launanefndin á helgarfundum Fundur launanefndar ASÍ og VSÍ í gær dugði ekki til að taka afstöðu til 1,33% hækkunar fram- færsluvísitölunnar umfram rauða strikið nú í maíbyrjun, og munu nefndarmenn halda fundum áfram um helgina. Verði niðurstaðan sú, eins og venjan hefur verið, að laun hækki sem þessu nemur munu almenn laun í landinu hækka um 2,86% þann 1. júní n.k. að meðtal- inni þeirri 1,5% hækkun sem átti að koma samkvæmt samningum. Fólk á lágmarkslaunum má þá búast við tæplega 800 kr. hækkun, en „alvörumenn" með 150 þús. fengju um 4.300 kr. viðbót í ums- lagið. ERT ÞUI KWIK SLIM hjálpar húðinni að ganga saman, t.d. eftir meðgöngu, og tekur burt appel- sínuhúð og verður húðin sérlega falleg og mjúk. ÓTRULEGT ENSATT Dæmi um árangur eftir 3 meðferðir í Snyrtistofa Viktoriu. Eddufelli 2, simi 79525. Snyrtistofan Gott útlit. Nýbýlaveg 14. Kópavogi, sími 46007. Heilsubrunnurinn. Húsi verzlunarinnar. sími 687110. Snyrti- og nuddstofan Paradis. Laugamesvegi 52, simi 31330. Sólstúdió. Dalshrauni 13. Hafnarfirði, simi 53101. Snyrti- og nuddstofan Andrometa, Iðnbúð 4. Garðabæ. simi 43755. Snyrtihúsið Ársólum. Eyrarvegi 2. Selfossi. simi 99-2566. Sól- og nuddstofan Sóley. Hafnargötu 54, Keflavik. simi 92-1616. Hulda Gunnþórsdóttir. Eskifirði. simi 97-6461. Snyrtistofa Olafar Helgadóttur. Bogaslóð 12. Höfn. Horna firði. sími 97-81780. Nudd- og gufubaðsstofa Elínar. Háuhlið II. Sauðárkróki. simi 95-5409. Umboð: Mersí, sími 22476.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.