Tíminn - 16.05.1987, Síða 4
4 Tíminn
Laugardagur 16. maí 1987
KYNNIST
EIGIN LANDI!
Ferðir um ísland í sumar
Ferðaskrifstofa ríkisins hefur skipulagt
tvær fróðlegar og skemmtilegar ferðir um
landið í sumar.
Fararstjóri verður Guðmundur Guðbrandsson
sem leitt hefur þessar ferðir undanfarin sumur.
Ciist veröur á hótelum og hálft fæði
er innifalið í verði.
Tilvalið tækifæri til að kynnast eigin landi.
Hringferð um landið
10 dagar. Brottfarardagur 30. júní og 11. júlí.
í byggð og óbyggð
10 dagar. Brottfarardagur 21. júlí.
llpplýsingar og bæklingar á skrifstofunni.
Or
FRl
Ferðaskrifstofa Ríkisins
Skógarhlíö 6, sími 2585S.
c
z
Tilboð óskast í eftirtalin tæki o.fl. sem verða til sýnis
næstu daga í áhaldahúsi Hafnarmálastofnunar í Fossvogi
og á Vífilsstöðum.
1. Steypuhrærivél Lombardni. Mótordrifin. (Bensín) 450,
Itr.
2. Steypuhrærivél Lombardni. Rafdrifin (3 fasar) 450, Itr.
3. Colcrete. Hrærivél með tilheyrandi dælu.
4. Gólfslípivél. Master
5. Beltaborvagn. Atlas Copco. Árgerð 1974.
6. P.H. krani, 15 tonn. árgerð 1959.;
7. Krókvigt, 30, tonn.
8. Díselvél. International 65-8 hestafla með 30 kw. rafal,
220 wolta.
9. Kartöflu-niðursetningavél.
10. Kartöflu-upptökuvél
11. Úðadæla.
Liður 1-7, til sýnis í áhaldahúsi Hafnarmálastofnunar í
Fossvogi. Upplýsingar þar veitir Gústaf Jónsson forstöðu-
maður. Liður 8-11, til sýnis á Vífilsstöðum. Upplýsingar
þar veitir umsjónarmaður í síma 42800 og bústjóri í síma
42816.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á ofangreindum stöðum og
á skrifstofu vorri. Tilboðin verða opnuð fimmtudaginn 21.
maí nk. kl. 15.00 e.h. á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, að
viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna
þeim tilboðum sem ekki teljast viðunandi.
iNNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
. oPA:;/0
kSÍ
Söngskglinn / Reykjavík
Frá Söngskólanum
í Reykjavík
Umsóknarfrestur um skólavist í Söngskólanum í
Reykjavík veturinn 1987-1988 ertil 26. maí nk.
Umsóknareyðublöð fást í bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar og á skrifstofu skólans á Hverfis-
götu 45, sími 27366, daglega kl. 15.00-17.30 þar
sem allar nánari upplýsingar eru veittar.
Skólastjóri.
Útflutningur sjávarafuröa:
Sovétmenn liprir í
fisksölusamningunum
Veröhækkun nemur allt að 62,1 %
Sovétmenn voru liprir við gerð
fisksamninga sem undirritaðir voru
fyrir stuttu. Þeir munu greiða allt frá
21.4% til 62.1% hærra verð fyrir
sjávarafurðir þessa árs, en þeir gerðu
í fyrra.
Þá munu Sovétmenn ekki krefjast
skaðabóta vegna vanefnda íslend-
inga við fyrri fisksölusamning, en
6000 tonn af frystum flökum vantaði
upp í samninga síðasta árs.
Það vekur athygli hversu átakalít-
ið Sovétmenn virðast viðurkenna
markaðslögmálin við þessa samn-
ingsgerð. En megin ástæða þess að
ekki var hægt að standa við fisksölu-
samninga síðasta árs var aukin eftir-
spurn og hækkandi verð á vestræn-
um mörkuðum, samhliða lækkun á
gengi Bandaríkjadals, en samningar
við Sovétmenn miðast við Banda-
ríkjadali.
Með nýgerðum samningum er tal-
ið að svipað verð fáist fyrir karfa og
ufsaflök til Sovétríkjanna og svipaða
framleiðslu fyrir markaði á vestur-
löndum. Verðhækkunin á ufsaflök-
um varð 62.1% en karfaflök hækk-
uðu um 26.4% Heilfrystur fiskur
hækkar um 47% en þar er aðallega
um að ræða karfa, grálúðu og annan
flatfisk.
Samið var um sölu á alls 11.500
tonnum af frystum fiski, þar af eru
1.500 tonn heilfrystur. Er þetta mun
minna magn en samið var um í fyrra
enda eftirspurn á vestrænum
mörkuðum mikil. Á síðasta ári var
samið um 26.000 tonn, en 20.000
tonn voru send til Sovétríkjanna.
Grímur Laxdal framkvæmdastjóri Radiobúðarinnar hf. afhendir dr. Sigmundi Guðbjarnasyni rektor Háskólans og
Jóhanni P. Malmquist prófessor í tölvunarfræði fyrstu Macintosh SE tölvuna af 140 sem Háskóli íslands keypti.
700 Macintoshtölvur
til Háskóla íslands
- tölvan getur talað íslensku við blinda og sjónskerta
Nýlega festi Háskóli Islands kaup
á 140 Macintosh tölvum. Með þess-
um stórinnkaupum hefur H.I. nem-
endur hans og kennarar keypt rúm-
lega 700 Macintosh tölvur á því
rúma ári sem liðið er frá því að
AUC-samningur (Apple Univercity
Contract) var gerður. Þetta er al-
þjóðlegur samningur, sem Apple
computer hfur gert við háskóla um
Stjórn Bandalags háskólamenn-
taðra ríkisstarfsmanna kom saman
til sérstaks fundar 14. maí s.l. vegna
ummæla forystumanna Vinnuveit-
endasambands fslands um samnings-
rétt opinberra starfsmanna og álykt-
aði eftirfarandi:
„Stjórn BHMR lýsir furðu sinni á
yfirlýsingum forystu Vinnuveitend-
asambands íslands um samningsrétt
opinberra starfsmanna. Stjórnin
bendir á að hinn nýfengni samnings-
allan heim, um sérstök kjör á Mac-
intosh tölvubúnaði til háskóla,
kennara þeirra og nemenda. Sam-
starf háskólanna, sem eru á annað
hundrað, við Apple computer hefur
flýtt mjög fyrir þróun hugbúnaðar á
þessari tölvutegund. Hefur Háskóli
Islands einbeitt sér að því, að þróa
hugbúnað fyrir íslenskt mál. Sér-
fræðingar Háskólans í tölvunarfræði
réttur opinberra starfsmanna er mun
takmarkaðri en annarra launþega.
Þriðjungur opinberra starfsmanna
er undanþeginn verkfallsrétti og
margir þeirra vinna þannig störf að
verkföll koma ekki til greina.
Stjórn BHMR mótmælir þessari
árás á samningsrétt opinberra
starfsmanna og lýsir því yfir að
opinberir starfsmenn munu verja
þann rétt hvað sem það kann að
kosta.“
- SÓL
eru nú farnir að hugsa fyrir hugbún-
aði sem gerir Macintosh tölvunni
kleift að tala íslensku, en slíkt væri
ómetanlegt fyrir blinda og sjón-
skerta. Þær deildir sem hafa tekið
Macintosh tölvuna í sína þjónustu
nýta hana til ritvinnslu, teikningar
og hönnunar, auk sérhæfðra verk-
efna t.d. á sviði efnafræði og stærð-
fræði. Starfskynning/R.M.R.
Kjarabót í Grundarfiröi:
Rækjuverk-
smiðja í Hrað-
frystihúsinu
I byrjun maí var hafist handa
við að setja upp rækjuverksmiðju
í húsakynnum Hraðfrystihúss
Grundarfjarðar hf. Tvær pillun-
arvélar hafa verið settar upp, auk
nauðsynlegra færibanda og mun
þessi framkvæmd ótvírætt verða
til fjölgunar starfsfólks hjá hús-
inu.
Atvinnuástand í Grundarfirði
hefur verið með lélegra móti í
vetur og vinna í frystihúsinu hefur
verið frekar óstöðug. Rækju-
vinnsluleyfið fékkst fyrir u.þ.b.
ári og er fastlega búist við að
rækjuvinnslan muni gera vinnu
við frystihúsið mun öryggari.
-SÓL
Stjórn BHMR ályktar:
Lýsir furðu á
yfirlýsingum VSÍ