Tíminn - 16.05.1987, Page 5
Laugardagur 16. maí 1987
Tíminn 5
Konungleg heimsókn:
Svíakonungur
í heim-
sókn í júní
Karl Gústaf 16. Svíakonungur
og Sylvía drottning koma í opin-
bera heimsókn til íslands í júní-
mánuði. Pau koma 23. júní og
verða til 26. sama mánaðar.
Dagskrá konungshjónanna er
leynileg fyrir öryggis sakir, en að
sögn Gunnars Dalströms, sænska
sendiherrans, er í lagi að gefa
upp að þau muni gista á Hótei
Sögu.
Konungshjónin, sem eru geysi-
lega vinsæl í heimalandi sínu sem
og annars staðar í heiminum,
munu að öllum líkindum heim-
sækja sjúkrastöðina Vog og
kynna sér íslenskt meðferðar-
starf. Er þetta mikil viðurkenning
á starfi SÁÁ. -SÓL
Nýjung í má.lninga.rþjónustu á íslandi
Sýnikennsla á sjónvarpsskjá frá Nordsjö sem auðveldar fólkí að mála sjálft, hvort sem er inn-
an dyra eða utan. Fjörutíu og fimm mismunandi verklýsingar. Einfaldara getur það ekki verið.
Málarameisfarinn
Síðumúla 8, Reykjavík,
símar 84950 og 689045.
Hitaveituframkvæmdir á Skeiðum:
Heitur lækur rann
langt fram í sveit
- segir Jón Eiríksson Vorsabæ, en mikið og heitt vatn kemur úr nýrri borholu
Tólf bændur á Útskeiðum, í
Skeiðahreppi hafa gert með sér
hitaveitufélag í því skyni að leggja
hitaveitu í bæina frá Húsatóftum að
Vörðufelli og bæi þar í grennd. Hafa
þeir látið bora holu á Húsatóftum og
lauk boruninni í vikunni. Að sögn
Jóns Eiríkssonar í Vorsabæ er út-
koman betri en nokkur þorði að
vona. Úr holunni koma nú um 13
sek./lítrar af 75 gráðu heitu vatni
sjálfrennandi, en það er meira en
nóg til að hitaveituvæða umrædda
bæi. Það var ísbor hf. sem boraði,
og í þessu tilfelli gátu þeir borað
með lofti og vatninu er því blásið
upp um leið. Talið er að í boruninni
hafi komið upp allt að 50 sek/lítrar,
og sagði Jón í samtali við Tímann í
gær að heitur lækur hafi runnið langt
fram í sveit.
Hitaveitufélag þeirra Útskeiða-
bænda hafði gert sérstakan samning
við bændurna á Húsatóftum (en þar
eru 5 býli) um að Húsatóftamenn
fengju hluta af vatninu úr holunni.
„Nú er í undirbúningi að byggja
upp dælustöð og leggja hitaveitu í
sumar þannig að þetta verði tilbúið
fyrir næsta vetur,“ sagði Jón Eiríks-
son. Þegar þessi hitaveita verður
komin verða aðeins þrír bæir eftir á
Skeiðum sem ekki hafa hitaveitu, en
vonir standi til að þeir geti fengið
heitt vatn frá Hlemmiskeiði, en þar
er ísbor hf. að bora núna og er þegar
komið mikið vatn. -BG
Frá borholunni á Húsatóftum.
Mynd: JÓn E.
Annríki við lottókassana.
Tímamynd Pjetur.
Lottóvinningur 12 m. kr.
í gær stefndi í nýtt met í Lottóinu
en tvær vikur í röð hefur enginn
verið með 5 tölur réttar. Áætlað var
að 1. vinningur yrði í kringum 12
milljónir. Þá verður þetta stærsti
happdrættisvinningur á eitt númer
sem nokkurn tíma hefur verið dreg-
inn út á íslandi. Salan í þessari viku
hefur verið um þrisvar sinnum meiri
en í venjulegri söluviku og ætla
greinilega margir sér að ná í stóra
vinninginn um helgina.
íslenska þjóðin hefur raunar sett
enn eitt heimsmet miðað við höfða-
tölu, að þessu sinni í lottói. Þá fimm
mánuði sem lottóið hefur starfað
hefur hver einasti íslendingur eytt
50 kr. í lottóið á viku, en í Banda-
ríkjunum þar sem þessi happdrættis-
leikur hefur verið við lýði um árabil
og notið mikilla vinsælda hefur þetta
hlutfall hæst komist í 26 kr. á mann
á viku. -BG
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
Undirbýr markaðs-
setningu eldislax
Að undanförnu hefur Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna og dóttur-
fyrirtæki hennar kannað markaðs-
horfur fyrir íslenskan eldislax á
erlendum mörkuðum, en nú fer að
styttast í verulega aukningu á slátr-
un eldislax hér á landi. Þetta kom
fram í Frosti fréttabréfi SH nýlega.
Þar kemur einnig fram að SH
hefur kannað áhuga nokkurra
framleiðenda eldislax á því að
Sölumiðstöðin taki að sér söluna
fyrir þá og virðist áhugi talsverður.
Stofnaður hefur verið formlegur
vinnuhópur sem fjalla skal um
þessi mál og verði söludeildinni og
stjórn SH til aðstoðar og ráðgjafar.
Verkefni hópsins mun fjalla um
sölumál á eldislaxi í víðasta skiln-
ingi og fjalla um mál eins og t.d.
hvort rétt sé að hafa sameiginlegt
vörumerki, hvaða markaði leggja
skal mesta áherslu á, upplýsing-
aöflun á framboði hérlendis, þjálf-
un eftirlitsmanna og tæknimanna
sem síðan taka að sér þjálfun við
slátrun, vinnslu, pökkun, flutn-
ingamál, umbúðamál og fleira.