Tíminn - 16.05.1987, Qupperneq 12
12 Tíminn
Laugardagur 16. maí 1987
Gunnar Beinteinsson í lágflugi yflr vítateig Reykvíkinga. Hann skilaði boltanum í netið skömmu fyrir lendingu án
þess að Gísli Felix Bjarnason kæmi við vömum. Konráð Olavsson, Júlíus Jónasson og Per Skaardp fylgjast með.
Tímamynd Pjetur.
Ólympíuleikar smáþjóöa:
w
Þrjú Islandsmet í
sundinu og öruggur
sigur í kórfunni
íslenska sundfólkið sem keppir á
Ólympíuleikum smáþjóða í Mónakó
stóð sig vel á öðrum degi sundkeppn-
innar í gær. Þrjú íslandsmet féllu til
viðbótar þeim tveimur sem lágu í
valnum í gær og sigur vannst í sjö
greinum. Allir íslensku keppendurn-
ir komust í úrslit í sínum sundum í
dag.
■ Ragnheiður Runólfsdóttir setti
íslandsmet í 200 m baksundi, synti á
2:28,91 sek. og bætti fyrra met sitt
verulega. Bryndís Ólafsdóttir bætti
eigið met í 100 m skriðsundi, synti á
59,50 sek. og bróðir hennar, Magnús
Már Ólafsson setti íslandsmet í 100
m flugsundi, 59,90 sek.
■ Körfuknattleikslandsliðið lagði
landslið Lúxembúrgar að velli og var
munurinn 19 stig er flautað var til
leiksloka, 73 stig gegn 54. íslending-
ar höfðu 10 stiga forystu í hálfleik,
40-30. Jóhannes Kristbjörnsson var
stigahæstur í íslenska liðinu með 18
stig, ívar Webster gerði 14 stig og
Magnús Matthíasson gerði 12 stig.
Hann lék sinn fyrsta landsleik í
gærkvöldi.
■ Aðalsteinn Bernharðsson náði
besta tímanum í undanrásum 400 m
hlaupsins, hljóp á 49,44 sek. Jóhann
Jóhannsson varð í 4. sæti í 100 m
hlaupi og Oddný Árnadóttir 5. í 200
m hlaupi.
■ Haraldur Ólafsson varð annar að
stigum í opnum flokki í lyftingum,
lyfti samanlagt 265 kg. Birgir Þór
Borgþórsson varð í 5. sæti.
Saga til næsta bæjar í bæjakeppni:
Reykjavík úr leik!
- töpuöu með tveggja marka mun fyrir Hafnfirðingum
Enska knattspyrnan:
Metaðsókn á fyrstu leikina
í úrslitakeppninni um sæti
Hafnfirðingar lögðu höfuðborgar-
búa að velli í leik liðanna í bæja-
keppninni í handknattleik í Selja-
skóla í gær, skoruðu 32 mörk gegn
30 mörkum Reykvíkinga. Þessi úrslit
hljóta að teljast nokkuð óvænt því
Reykjavíkurliðið hefur úr mun meiri
mannskap að velja. Það breytti ekki
því að Hafnfirðingar sigruðu í leikn-
um. Hann var jafn allan tímann og
ekki fyrr en innanvið mínúta var
eftir að Hafnfirðingar tryggðu sér
sigurinn. Reykvíkingar minnkuðu
svo muninn á síðustu sekúndunni úr
vítakasti.
Leikurinn bar nokkur merki
áhugaleysis framanaf en fór að verða
spennandi í lokin. Aðalsmerki
beggja liða var markvarslan þar sem
þeir Magnús Árnason Hafnfirðingur
og Guðmundur Arnar Jónsson
Reykvíkingur stóðu vel fyrir sínu.
Af öðrum leikmönnum var Óskar
Ármannsson Hafnfirðingur einna
bestur en fiestir leikmenn léku undir
getu. Siggeir Magnússon átti þó
góða kafla í Reykjavíkurliðinu en
lék sáralftið með.
Mörkin, Hafnarfjörður: Héðinn,
Gilsson 9, Óskar Ármannsson 8 (3),
Gunnar Beinteinsson 6, Pétur
Pedersen 3, Guðjón Árnason 2,
Einar Hákonarson, Ingimar Har-
aldsson, Stefán Konráðsson og Sig-
urjón Sigurðsson 1 hver. Reykjavík:
Júlíus Jónasson 8 (3), Per Skaarup 6
(1), Árni Friðleifsson, Bjarki Sig-
urðsson og Siggeir Magnússon 3
hver, Geir Sveinsson, Konráð OI-
avsson og Þorsteinn Guðjónsson 2
hver, Guðmundur A. Jónsson 1 (1).
Metaðsókn var á fyrstu leikina í
fyrstu úrslitakeppni ensku knatt-
spyrnunnar. Fyrirkomulaginu hefur
verið breytt þannig að topplið lægri
deildar keppa við botnlið hærri
deildar um laust sæti í þeirri hærri.
Fyrri leikjum liða í 1.-2. deild er
lokið og urðu úrslit þessi:
Um sæti í 1. deild:
Leeds-Oldham ................ 1-0
Ipswich-Charlton .'...........0-0
Um sæti í 2. deild:
Gillingham-Sunderland.......3-2
Swindon-Wigan.................3-2
Um sæti í 3. deild:
Aldershot-Bolton ........... 1-0
Colchester-Wolves...........0-1
Síðari leikirnir í öllum viðureign-
unum verða á morgun og gilda þá
mörk á útivelli verða samanlögð
úrslit jöfn.
Áhorfendur á öllum þessum leikj-
um voru óvenju margir. Flestir
mættu á leik Leeds og Oldham, tæp
30 þúsund. Gillingham fékk mestu
aðsókn í mörg ár er tæp 14 þúsund
áhorfenda komu til að sjá þá vinna
Sunderiand. Sunderland er á leið
niður í 3. deild í fyrsta sinn í sögu
félagsins.
Spíssadísur
og glóðarkerti
í flestar teg.
Garðbæingar unnu
Garðbæingar slógu Akureyringa að loknum venjulegum leiktfma var
út úr bæjakeppninni í handknattleik jöfn 27-27. Garðbæingar og Hafn-
í gærkvöldi, sigruðu með 31 marki firðingar leika til úrslita í bæja-
gegn 30 eftir framlengingu. Staðan keppninni á morgun.
BLAÐAMAÐUR
Miðstöðvarmótorar, 12
og 24 V, rafmagnsmið-
stöð, 12 V.
Kveikjuhlutir í allar teg.
Gott verð. Vönduð vara
Bikarúrslitaleikurínn á Wembley:
Tekst Coventry að ná
í sinn fyrsta titil?
Forþjöppur og varahlutir, viðgerðarþjónusta.
=■ I. Erlingsson h/f, varahlutir,
Ármúla 36 (Selmúlamegin), sími 688843.
■■ Viðgerðarverkstæði TURBÓ s/f.
- Liöið hefur aldrei unnið neitt nema 3.
deildina einu sinni
Úrslitaleikurinn í ensku bikar-
keppninni hefst á Wembleyleikvang-
inum í Lundúnum í dag kl. 14.00.
Þar eigast við Tottenham og Coven-
try eins og flestum mun kunnugt.
Þessi tvö lið eiga að baki mjög ólíka
sögu, Tottenham hefur oft leikið á
Wembley og jafnan sigrað, síðast
1981 er liðið tryggði sér sinn 6.
bikarmeistaratitil. Coventry hefur
aldrei á Wembley komið og aðeins
þrír leikmenn liðsins hafa leikið þar,
með öðrum liðum. Tottenham verð-
ur að teljast líklegra sigurlið en
Coventry hefur komið mjög á óvart
í vetur og alls ekki hægt að afskrifa
það.
Coventry
Steve Ogrizovic
David Phillips
Brian Kilcline
Tottenham
Ray Clemence.
Chris Hughton
Richard Gough
Trevor Peake
Greg Downs
Dave Bennett
Lloyd McGrath
Micky Gynn
Nick Pickering
Keith Houchen
Cyrille Regis
Gary Mabutt
Mitchell Thomas
Paul Allen
Osvaldo Ardiles
Glenn Hoddle
Steve Hodge
Chris Waddle
Clive Allen
Gary Stevens
Nico Claesen
Steve Sedgley (?)
Graham Rodger (?)