Tíminn - 16.05.1987, Side 14
14 Tíminn
Laugardagur 16. maí 1987
FRÉTTAYFIRLIT
BONN — Helmut Kohl kansl-
ari Vestur-Þýskalands hafnaöi •
tilboði Sovétmanna um bann
viö skammdræqum kjarnorku-
flaugum og hvátti stórveldin til
aö komast aö samkomulagi er
næöi yfir allar kjarnorkuflaug-
um sem draga upp í þúsund
kílómetra.
suv/v — Ráðherranefndin á
Fijieyjum, sem nýtur stuðnings
hersins, hélt sinn fyrsta fund í
gær oa hvatti til þess aö erlend
ríki viöurkenndu völd hennar,
36 klukkustundum eftir bylting-
una gegn ríkisstjórn Timoci
Bavadra forsætisráöherra.
MOSKVA — Jacques Chir-
ac forsætisráöherra Frakk-
lands átti fund með æðstu
mönnum Sovétstjórnarinnar
eftir að hafa fengiö beiðni frá
eðlisfræðingnum Andrei Sak-
harov sem fór fram á aö hann
bæri upp mál samviskufanga í
Sovétríkjunum.
CHANDIGARH - Um þaö
bil 500 menn í Punjabhéraöi,
sem lögreglan hefur lýst eftir
vegna gruns um aö þeir séu
meðlimir í hópum öfgasinn-
aðra síkha, hafa gefiö sig fram
og eru nú í varðhaldi.
JÓHANNESARBORG
— Ríkisstjórn P.W. Botha í
Suður-Afríku hefur vísaö
bandarískum fréttamanni úr
landi. Hann er tíundi erlendi
fréttaritarinn sem fær reisu-
passann síðan neyöará-
standslögin voru tekin í gildi
fyrir tæpu ári.
HARARE — Hægrisinnaðir
skæruliðar rændu sex hvítum
mönnum frá trúboðsstöð í
grennd við bæinn Gondola í
miðhluta Mósambik í þessari
viku. Þetta var haft eftir sam-
starfsfólki í trúboðsstöðinni.
LUNDÚNIR - Margrét
Thatcher forsætisráðherra
Bretlands og íhaldsflokkur
hennar hafa aukið forskot sitt á
stjórnarandstöðuflokkana ef
marka má niðurstöður skoð-
anakönnunar sem birtust í
gær. Þar fékk fhaldsflokkurinn
18% meira fylgi en Verka-
mannaflokkur Neil Kinnocks
en nú eru aðeins fjórar vikur
þangað til þingkosningar fara
fram I landinu.
ÚTLÖND
Austurríki:
Stíflan að bresta?
- Fortíð Kurt Waldheims ógnar nú verulega framtíð hans í forsetastóli
Vínarbor}>-Reuter
Háttsettir austurrískir og banda-
rískir embættismenn áttu í gær
nokkra fundi í Vínarborg til að ræða
um stöðu hins umdeilda forseta
Austurríkis, Kurt Waldheims. Svo
virðist sem staða Waldheims sé að
veikjast licima fyrir vegna ásakana
um nasistafortíð.
Ronald Laudersendiherra Banda-
ríkjanna átti bæði fund með Alois
Mock utanríkisráðherra Austurríkis
og kanslaranum Franz Vranitzky
scm fer í opinbera heimsókn til
Bandaríkjanna í næstu viku.
Á sama tíma afhentu fulltrúar
bandaríska dómsmálaráðuneytisins
austurrískum embættismönnum
sönnunargögn þau sem ráðuneytið
taldi nægjanleg til að meina Wald-
heim að koma til Bandaríkjanna í
opinberum erindagjörðum.
Waldheim, fyrrum aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, hefur neitað
ásökunum um að hann hafi tengst
stríðsglæpum nasista í síðari heims-
styrjöldinni. Ásakanir þessar hafa
Kurt Waldheim forseti Austurríkis: Framtíðin óljós.
aðallega komið frá Alþjóðasam-
bandi gyðinga.
Austurríska þingið samþykkti í
fyrrakvöld stuðning við Waldhcim
þar sem ásakanirnar gegn hinuni 68
ára gamla forseta voru sagðar órétt-
mætar. Orðalagið var hinsvegar
kraftlaust og margir þingmenn gagn-
rýndu Waldheim fyrir að koma ekki
fram með nægilegar skýringar á
herþjónustuferli sínum.
Dagblöð í Austurríki voru einnig
gagnrýnin í skrifum sínum í gær.
Dagblaðið Kurier sagði að svo virtist
sem stuðningurinn við Waldheim
væri að minnka en bætti þó við að
stíflan héldi enn. íhaldsblaðið Die
Presse benti á í forsíðugrein að þrátt
fyrir yfirlýstan stuðning þingsins
hefði það fjarlægst Waldheim.
Nýlegar skoðanakannanir sem
gerðar hafa verið hafa leitt í ljós að
meirihluti Austurríkismanna telur
að Waldheim eigi að segja af sér sem
forseti landsins. Hann var kjörinn
forseti í fyrra.
Fundi varnarmálaráðherra NATO ríkjanna lauk í gær:
Allar meðaldrægar
kjarnorkuflaugar
verði fjarlægðar
Stavangur - Rcutcr
Varnarmálaráðherrar NATO-
ríkjanna kröfðust þess í gær að
Sovétmenn fjarlægðu allar meðal-
drægar SS-20 kjarnorkuflaugar sínar
frá Evrópu og Asíu og yrði það hluti
af samkomulagi risaveldanna um
meðaldrægar flaugar. Þetta var
helsta niðurstaða fundar varnarmál-
aráðherra ríkjanna sem lauk í Sta-
vangri í Noregi í gær.
Caspar Weinberger varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna gat þó ekki
sagt hvort bandaríska stjórnin myndi
í framhaldi af þessu breyta uppkasti
sínu að samkomulagi um meðal-
drægar flaugar sem hún hefur lagt
fram í afvopnunarviðræðum risa-
veldanna í Genf. Þar er gert ráð fyrir
að Bandaríkjamenn geti haft hundr-
að kjarnaodda á sínu eigin landsvæði
og Sovétmenn sama fjölda á land-
svæði sínu í Asíu.
Weinberger sagði á blaðamanna-
fundi að Moskvustjórnin væri sú
eina sem vildi halda í meðaldrægu
flaugar sínar í Asíu, allir aðrir vildu
þær burt.
Yfirlýsing varnarmálaráðherr-
anna snerist aðallega um meðal-
drægu flaugarnar og NATO ríkin
fjórtán sem sæti áttu á fundinum, öll
utan Frakklands og íslands, náðu
ekki neinu samkomulagi um við-
brögð við tillögum Sovétstjórnarinn-
ar um að fjarlægja skammdrægar
kjarnorkuflaugar frá Evrópu.
Sovéska fréttastofan Tass sagði í
gær að yfirlýsing varnarmálaráðherr-
anna að fjarlægja og eyðileggja allar
meðaldrægar kjarnorkuflaugar væri
ekki í samræmi við grunnsamkomu-
lagið sem Mikhail Gorbatsjov Sovét-
leiðtogi og Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseti komust að á leiðtoga-
fundinum í Reykjavík í október á
síðasta ári.
Þótt Tass hefði ekki tekið vel í
yfirlýsinguna var Weinberger bjart-
sýnn á fréttamannafundinum í
Stavangri í gær og taldi að hin nýja
afstaða NATO ríkjanna ætti að geta
flýtt fyrir samningum í afvopnunar-
málum, ekki seinkað þeim.
í Ijónabúri
tilaðsafna
fyrir öpum
Jóhanncsarborg-Rcutcr
Maður einn í Suður-Afríku
sem setti sér það takmark að
eyða fjörutíu dögum í búri með
sjö ljónum náði takmarki sínu í
vikunni og ákvað þá að fram-
lengja dvöl sína um 24 daga.
Mike Osterlaak heitir ofurhug-
inn og er hann með vist sinni í
ljónabúrinu að reyna að safna
peningum fyrir dýragarð einn í
grennd við Pretoríu. Forráða-
menn dýragarðsins hyggjast nota
peningana til að kaupa tvær gór-
illur.
Ljónin hafa ekki tekið Oster-
laak mjög vel og hafa t.d. rifið
jakka hans í þrígang og eyðilagt
útvarpið sem hann var með. Þrátt
fyrir að ljónin séu ekki gestrisin
með afbrigðum ætlar kappinn
ekki að láta sig og hafast við í
búrinu í 24 daga í viðbót.
Bandaríkin:
Tækni og vísindi:
Japanar fyrir
fjórhjólabeygju
EYÐNIVELDUR
NAFNBREYTINGU
Des Moincs, lowa-Reuter
Aid Corp. heitir tryggingafyrir-
tæki eitt í Bandaríkjunum, eða
öllu héldur hét því forráðamenn
þess hafa nú látið undan þrýstingi
viðskiptavina og hlutahafa og
breytt nafninu í Allied Group Inc.
Óánægjan með Aid nafnið var til
komin vegna þess að haldið var að
AIDS eða eyðnisjúkdómurinn ill-
ræmdi tengdist ímynd fyrirtækisins
um of.
Talsmaður fyrirtækisins sagði
hluthafana hafa samþykkt nafn-
breytinguna á aðalfundi þess og
tæki hún gildi „þegar í stað“.
Talsmaðurinn sagði forráða-
menn fyrirtækisins'hafa fengið ráð
frá mörgum aðilum, meðal annars
frá fólki í auglýsingaiðnaðinum.
sem ekki voru sáttir við nafnið
eingöngu vegna líkingarinnar við
AIDS sjúkdóminn.
Hakone, Japan-Reutcr
Það hefur tekið starfsmenn
Hondu fyrirtækisins tíu ár og nokkur
skakkaföll að þróa fjögurra hjóla
stýrikerfi sitt. Núhafaverkfræðingar
fyrirtækisins hinsvegar ástæðu til að
brosa breitt því síðan boðið var upp
á bíla með þessu kerfi hefur eftir-
spurnin farið fram úr vonum bjart-
sýnustu manna.
Honda býður upp á þetta stýri-
kerfi sem aukakost í Prelude bílum
sínum og hafa flestir þeirra Japana
sem keypt hafa þessa gerð undanfar-
inn mánuð viljað beygja á öllum
hjólum.
„Það er siður Japana að láta ekki
tilfinningar sínar í ljós en við getum
ekki annað en brosað," sagði einn
hinna þrettán verkfræðinga sem
ábyrgir eru fyrir nýja stýrikerfi
Hondu bifreiðanna.
Mazda og Mitsubishi, tveir aðrir jap-
anskir bílaframleiðendur, munu ein-
nig hafa í hyggju að koma með
fjórhjólastýrikerfi á markaðinn inn-
an skamms.
Það þarf enga sérstaka þjálfun til
að nota stýrikerfið, sé stýrinu beygt
lítið eitt t.d. þegar skipt er urn
akgrein beygja öll hjólin í sömu átt.
Á lítilli ferð í þröngri aðstöðu þar
sem mikið þarf að beygja t.d. þegar
leggja þarf í stæði fara afturdekkin
hinsvegar í öfuga átt við framdekkin.
Honda fyrirtækið hyggst selja
Prelude gerðir sínar með þessu kerfi
í Bandaríkjunum í júlí og til Evrópu
koma þær í kringum október.