Tíminn - 16.05.1987, Qupperneq 15
Laugardagur 16. maí 1987
Tíminn 15
Meðalmánaðarkaup ASÍ félaga 40-70 þús. krónur á 4. ársfjórðungi 1986:
Tímakaup hækkaði
12,5% meira
en verðbólgan
Mánaðarlaun karla fyrir dagvinnu 4-10 þús. kr. hærri á höfuðborg-
arsvæðinu en úti á landi
Hreint tímakaup (dagvinnulaun)
ASÍ félaga hækkaði að meðaltali um
28,7% frá 4. ársfjórðungi 1985 til
sama tíma 1986, samkvæmt útreikn-
ingum Kjararannsóknarnefndar.
Vísitala framfærslukostnaðar hækk-
aði um 14,4% á sama tíma. Kaup-
máttaraukning hreins tímakaups var
því um 12,5% að meðaltali á þessu
eina ári en 13% miðað við meðal-
tímakaup.
Heildar mánaðartekjur iðnaðar-
manna og karla í skrifstofustörfum
voru að meðaltaii nær þær sömu,
eða tæplega 70 þús. kr. á mánuði á
síðasta ársfjórðungi 1986 samkvæmt
útreikningum Kjararannsóknar-
nefndar. Mánaðartekjur verkakarla
og karla í afgreiðslustörfum voru
einnig svipaðar, um 53-54 þús. Skrif-
stofukonur höfðu tæp 48 þús. Verka-
konur og afgreiðslukonur eru síðan
neðstar með tæplega 40 þús. kr.
mánaðarlaun að meðaltaii. Borið
saman við heildar laun sömu stétta 2
árum áður hafa verkakarlar, iðnað-
armenn og skrifstofukarlar borið úr
býtum 20-21% launahækkanir um-
fram hækkun framfærsluvísitölu á
sama tíma, skrifstofukonur um 18%,
afgreiðslukarlar og verkakonur um
14-15% og afgreiðslukonur minnst
eða tæp 13% umfram vísitöluhækk-
anir á þessum tveim árum.
Sé litið á launin fyrir dagvinnuna
eina breytist myndin verulega. Með-
aldagvinnulaun skrifstofukarla voru
um 58 þús. á mánuði. Iðnaðarmanna
og skrifstofukvenna í kringum 43
þús., afgreiðslukarla um 38 þús.,
verkakarla um 31 þús., afgreiðslu-
kvenna rúmlega 28 þús. og verka-
konurnar enn neðstar með rúmlega
26 þús. á mánuði fyrir dagvinnuna.
Hér að ofan hefur verið miðað við
meðaltöl fyrirallt landið. Gífurlegur
iaunamunur er hins vegar á milli
höfuðborgarsvæðisins og lands-
byggðarinnar, og hefur hann vaxið
verulega á síðasta ári hjá iðnaðar-
mönnum og skrifstofukörlum. Skrif-
stofukarlar á höfuðborgarsvæðinu
höfðu yfir 10 þús. kr. hærri mánaðar-
laun (20%) fyrir dagvinnuna eina en
kollegar þeirra á landsbyggðinni,
afgreiðsiukarlar og skrifstofukonur
rúmlega 6 þús. kr. meira (16-17%),
iðnaðarmenn um 4.700 kr. meira
(11%) og verkakarlar um 4 þús. kr.
meira (13%). Afgreiðslu- og verka-
konur á höfuðborgarsvæðinu hafa
hins vegar borið um 1.300 til 1.900 kr.
meira úr býtum fyrir dagvinnuna á
mánuði en starfssystur þeirra á
landsbyggðinni. Tekið skal fram að
bónus er hér ekki reiknaður með
dagvinnutekjum, en hinsvegar yfir-
borganir og ýmsar aukagreiðslur.
- HEI
!■—‘I
W Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. skóla-
skrifstofu Reykjavíkuróskareftirtilboðum íviðhald
og viðgerðir á eftirfarandi skólum:
1. Álftamýrarskóli.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 26. n.k. kl.
14.00.
2. Breiðholtsskóli.
Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 27. maí n.k.
kl. 14.00.
3. Réttarholtsskóli.
Tilboðin verða opnuð þriðjudagion 9. júní n.k. kl.
11.00.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn 5.000 kr. skilatrygg-
ingu fyrir hvert verk fyrir sig. Tilboðin verða opnuð
á sama stað á ofangreindum tíma.
INNKAUPASTOFNUN REYKlAVÍKURBORGAR
Fríkúkiu»*qi 3 — Simi 25800
Hvammstangi
Skrifstofustörf
Óskum eftir að ráða starfsmenn til eftirtalinna
starfa.
1. Starfsmann til að hafa umsjón með tölvuvinnslu
félagsins. Leitað er að starfsmanni sem getur
unnið sjálfstætt á þessu sviði.
2. Starfsmann til að sinna umboðsstörfum fyrir
Samvinnutryggingar auk annarra skrifstofu-
starfa.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist kaupfélagsstjóra eða starfsmanna-
stjóra Sambandsins er veita nánari upplýsingar.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
Hvammstanga
ffl Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. bygg-
ingadeildar óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við
byggingu 1. hæðar og þaks Heilsugæslustöðvar
við Hraunberg 6, Reykjavík.
Útboðsgögn verða opnuð á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 15.000 skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
10. júní n.k. kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAH
Fríkirkjuvagi 3 — Sími 25800
L
GVarahlutir
mmW Hamarshöffta 1
Hamarshöfða 1
Simar 36510 og 83744
Á
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Valdagur er miðvikudagur 20. maí.
Dagskóli: Einkunnir afhentar og prófúrlausnir sýndar kl. 9-11.
Val fyrir haustönn 1987 kl. 13-16.
öldungadeild: Afhending einkunna, prófsýning og val fyrir haustönn
1987 (gegn 1000 kr. staðfestingargjaldi) kl. 18-20.
Innritun nýnema í öldungadeild verður þriðjudaginn 26. og
miðvikudaginn 27. maí kl. 16-19.
Innritun nýnema í dagskóla verður mánudaginn 1. og þriðjudaginn
2. júní i Miðbæjarskólanum í Reykjavík. Nánar auglýst síðar.
Skólaslit og brautskráning stúdenta laugardaginn 23. maí kl. 14.
Rektor
Veiðileyfi
til sölu fyrir landi Hellis og Fossness, fyrir ofan
og neðan Ölfusárbrú.
Sími á vinnutíma 91-38013.