Tíminn - 16.05.1987, Blaðsíða 19
Laugardagur 16. maí 1987
Tíminn 19
ílimilllllll SAMVINNUMÁL . :;i!;:iillll||||||||||||||||||||||||||||||||||l!lllllllll!'!l!l!|'!:'lli|i[|li!Í!llll||lílllllil|||||||||||||!l!l|!liilii|jiiiiliiill|||||||||l||||j!;!|ll|||í'íiliiliilililllllllllHllllllilllllllililillililli
Vöruhús KÁ á Selfossi.
(Tímamynd: GE.)
Hagnaður hjá Kaup-
félagi Árnesinga
Vöruhús KÁ með góða afkomu á síðasta ári
Það kom fram á aðalfundi Kaup-
félags Árnesinga á Selfossi að hagn-
aður félagsins á liðnu ári var 27,7
miljónir króna, samanborið við 13
miljón króna tap árið á undan. Hjá
félaginu var fjármagnsmyndun frá
rekstri 22,3 miljónir á árinu. Heild-
arvelta með söluskatti nam rúmum
einum miljarði króna, og þar af var
salan mest í Vöruhúsi KÁ eða 482
miljónir. Hagnaður Vöruhússins fyr-
ir sameiginlegan kostnað og vexti
var 17,9 miljónir. Frá þessu var skýrt
á nýafstöðnum aðalfundi félagsins,
sem sóttur var af 120 fulltrúum víðs
vegar að úr Árnessýslu, en félags-
menn eru nú rúmlega tvö þúsund
talsins.
Afskriftir félagsins námu 24 milj-
ónum, og fjárfestingar á árinu voru
37 miljónir, þar af um 75% fjár-
magnað með langtímalánum. Var
stærsta fjárfestingin kaup félagsins á
verslun í Þorlákshöfn. Sú verslun
var innréttuð að nýju og opnuð í
byrjun apríl á yfirstandandi ári. Hún
hefur það fram yfir eldri verslun
félagsins í Þorlákshöín að hún er
nokkru stærri og staðsett miðsvæðis
í þorpinu.
Heildarlaunagreiðslur félagsins
námu 125,6 miljónum króna á árinu.
Eigið fé á efnahagsreikningi var
rúmar 200 miljónir í árslok, og
innistæður félagsmanna í innláns-
deild 55,8 miljónir, samanborið við
44,2 miljónir í ársbyrjun.
Rekstur einstakra starfseininga
félagsins gekk nokkuð misjafnlega á
árinu. Þannig varð hagnaður af
rekstri Vöruhússins, en halli á bens-
ínafgreiðslu og veitingastofu. Hins
vegar varð hagnaður af ferðamann-
averslun og varahlutaverslun á Sel-
fossi.
Af útibúunum varð hagnaður af
verslununum í Hveragerði, Stokks-
eyri og Þorlákshöfn, en halli á Eyrar-
bakka og Laugarvatni. Þá varð halli
á bifreiðasmiðju á Selfossi og af
rekstri vörubifreiða, en hagnaður af
trésmiðju, kjötvinnslu, brauðgerð,
lyfjabúð og þvottahúsi.
Félagsmálafulltrúi
Á aðalfundinum var samþykkt
tillaga um breytta tilhögun deilda-
funda og ráðningu félagsmálafull-
trúa fyrir kaupfélögin á Suðurlandi.
Lagði fundurinn til að tækist ekki
samstaða um slíkt við hin kaupfélög-
in þá réði Kaupfélag Árnesinga
sjálft félagsmálafulltrúa í hálft starf.
Á aðalfundinum áttu Helgi Jó-
hannsson og Björn Erlendsson að
ganga úr stjórn, en báðir báðust
undan endurkjöri. f þeirra stað voru
kosin Arndís Erlingsdóttir á Galta-
stöðum og Þorleifur Björgvinsson í
Þorlákshöfn. Áfram sátu í stjórn
þeir Þórarinn Sigurjónsson á Laug-
ardælum, formaður, Gísli Hjörleifs-
son í Unnarholtskoti, varaformaður,
og Gunnar Kristmundsson, Hvera-
gerði. Varamaður í stjórn var kosin
Ágústa Ólafsdóttir í Uthlíð.
Starfsmannafulltrúi
Þá höfðu starfsmenn áður kosið
sem starfsmannafulltrúa í stjórn
Hákon Halldórsson, Selfossi, og til
vara Jón Ó. Vilhjálmsson. Eru þeir
fyrstu starfsmannafulltrúarnir í
stjórn Kf. Árnesinga og kjörnir
samkvæmt nýjum samþykktum fé-
lagsins sem gildi tóku á aðalfundi
þess árið 1986.
Á fundinum kom fram að ýmis
mikilvæg verkefni bíða þess að kom-
ast á framkvæmdastig hjá félaginu.
Þar á meðal er að flytja skrifstofur
kaupfélagsins í Vöruhúsið og að
byggja nýtt verslunarhús á Stokks-
eyri. f því sambandi hefur verið talið
að selja þyrfti eldra verslunarhús
félagsins á Selfossi og verslunarhús í
Þorlákshöfn. Aðalfundurinn í ár
samþykkti þó tillögu sem gekk í þá
átt að kannað yrði hvort kaupfélagið
þyrfti ekki fljótlega á eldra verslun-
arhúsinu á Selfossi að halda undir
starfsemi sína. Fjörugar umræður
urðu um þetta og fleira á fundinum,
sem haldinn var í hinum nýju og
vistlegu salarkynnum á Ársölum á
Selfossi. -esig
VARAHLUTIR í
Perkins - Motora
Á GÓÐU VERÐI
MúwysmHF
Járnhálsi 2. Sími 673225
110 Rvk. Pósthólf 10180
Famrheillf\
AS E A Cylinda
þvottavélar*sænskar og sérstakar
Fá hæstu neytendaeinkunnir fyrir þvott, skolun,
vindingu, taumeðferð og orkusparnað. Efnis-
gæði og öryggi einkenna ASEA. Þú færð ekki
betri vélar!
3S&. iFOniX
tJ-TUN! 6A 3' M i S-
SVÆÐISSTJÓRN SUÐURL'sNDS —um málefni fatlaðra
Viltu breyta til?
Okkur vantar forstöðumann, þroskaþjálfa eða
sérfóstru, að nýju meðferðarheimili í Vestmanna-
eyjum. Um er að ræða dagvistun og skammtíma-
vistun fyrir fötluð börn og unglinga.
í Vestmannaeyjum er starfandi leikfangasafn,
sem verður á sama stað og meðferðarheimilið.
í Vestmannaeyjum starfar félagsráðgjafi og sál-
fræðingur. Sérdeild er við grunnskólana. 3 dagvist-
arheimili eru starfandi. Fötluð börn dvelja þar.
Aðstoðað verður við útvegun á húsnæði. Laun
skv. samningum B.S.R.B.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu Svæðisstjórnar
Suðurlands, Eyravegi 37, Selfossi. Sími 99-1839.
Útboð
Hafnarsjóður
Sandgerðishafnar
auglýsir:
Óskað er eftir tilboðum í að leggja vatnslagnir,
ídráttarpípur fyrir raflagnir og steypa þekju, alls
1300 m2 á stálþilsbakka í Sandgerðishöfn.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Miðnes-
hrepps frá og með 21. maí. Tilboðum óskast skilað
á sama stað fyrir kl. 14.00 29. maí og verða þau
opnuð þar að þeim bjóðendum viðstöddum sem
þess óska.
Sveitarstjóri Miðneshrepps
Happdrætti
kjördæmissambands
Framsóknarfélaganna
í Reykjaneskjördæmi
Dregið var þann 25. apríl 1987 hjá bæjarfógetan-
um í Kópavogi í happdrætti kjördæmissambands
Framsóknarfélaganna í Reykjaneskjördæmi.
Vinningur sem er Chevrolet Monza SL/E fólks-
bireið kom á miðanum á skrifstofu Framsóknar-
flokksins í Nóatúni 21, Reykjavík.
Framsóknarfélögin í Reykjaneskjördæmi
Tækniteiknari
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða tækni-
teiknara á skrifstofu bæjarverkfræðings.
Upplýsingar veitir undirritaður og
bæjarritari, Strandgötu 6, sími 53444.
Umsóknir berist eigi síðar en miðviku-
dag 27. maí n.k.
Bæjarverkfræðingur
Sumarlokun
Á tímabilinu 15. maí til 31. ágúst verður heildversl-
unin Edda hf. opin frá kl. 8.00 til 16.00, alla virka
daga.
Vinsamlegast athugið breyttan tíma.
Heildverslunm Edda hf.
Sundaberg 42