Tíminn - 02.07.1987, Page 3

Tíminn - 02.07.1987, Page 3
Fimmtudagur 2. júlí 1987 Tíminn 3 Veltuaukning í verslun og þjónustu um 19% umfram verðlagshækkanir: Reykjavík með 66% íslandsverslunar - Mánaðarverslunin 85 þús. kr. hjá meðalfjölskyldunni Aukin auraráð íslendinga hafa að stórum hluta farið til kaupa á bílum og því sem þeim tilheyrir að því er ráða má af upplýsingum Þjóðhags- stofnunar um veltuaukningu í versl- un þjónustu og iðnaði milli fyrsta ársfjórðungs 1986 og sama tímabils í ár. Velta hjá „bílakóngum" er 2.552 milljónir króna fyrstu 3 mán- uði þessa árs, sem er 90% aukning milli ára, þrátt fyrir að fremur sé um verðlækkun en hækkun að ræða ef marka má liðinn „Eigin bifreið" í framfærsluvísitölunni. En fleiri kaupmenn hafa ástæðu til að kætast. Heildar veltuaukning í verslun hefur verið um 37,6% milli þessara tímabila. Um 42% aukning i -L =1 1 T r a' n§ c K - 1 I U 11 □ a p: c ""' J ** "! a , _ LJ d* '' 1 £3 1 ss 1: m [ sgk jg m • t, mmm* BIE f t r ! I : ... , , i jÍK»-í-* eurnbsja Bæjaryfirvöld í Hafnarflrði hafa látið loka sorphaugunum, en bjóða þess í stað bæjarbúum að losna við sorp á hreinlegan hátt í gáma við Flatahraun. Lokaö endanlega í gær: Sorphaugar Haf nar- fjarðar ummyndast í gróðurreit Svo sem sagt hefur verið frá í Tímanum var sorphaugum Hafnar- fjarðarbæjar við Krísuvíkurveg lok- að frá og með gærdeginum. Frá sama tíma verður öllu sorpi og öðrum úrgangi ekið á sorphauga Reykjavíkurborgar í Gufunesi. Sorphaugar þar eru opnir frá klukkan 8:00 til 21:00 alla virka daga og sunnudaga frá 10:00 til 18:00. Til að auðvelda fólki að losna við rusl af lóðum sínum og úr híbýlum hafa bæjaryfirvöld látið setja gáma við Flatahraun. Bæjarbúar eiga þess kost að losa sig við slíkt rusl í þessa gáma allan sólarhringinn. Meiriháttar rusl frá fyrirtækjum og framkvæmdum hvers konar ber að flytja í sorphaugana í Gufunesi. Þeim sem losna þurfa við jarðveg eða annað uppfyllingarefni er bent á að snúa sér til áhaldahúss Hafnar- fjarðar og mun þar verða bent á losunarstað. I fréttatilkynningu frá bæjarstjóra Hafnarfjarðar er greint frá helstu ástæðum þess að sorphaugunum sé lokað: „Þeir hafa um langt árabil verið bæjarbúum þyrnir í augum, enda rekstri þcirra jafnan fylgt fjúk- andi rusl, óþefur og vandamál af ýmsum toga, enda þótt reynt hafi verið að urða sorpið jafnóðum ... Strax við lokun sorphauganna verð- ur hafist handa við hreinsun svæðis- ins og gróðursetningu og.fegrun. En það er mikilvægt að allir bæjarbúar leggist á eitt um að virða strax lokun sorphauganna og hendi ekki drasli í nágrenni gömlu hauganna eða ann- ars staðar í bæjarlandinu, heldur noti gámaþjónustuna á Flatahrauni ella komi því á sorphaugana í Gufu- nesi.“ þj Hassolíusmygliö: Rannsókn á lokastigi Arnar Jensson varðstjóri í á- vana og fíkniefnadeild lögregl- unnar er nýkominn heim til Is- lands frá Manchester í Bretlandi, þar sem íslendingur,- sem tengist mesta smygli á hassolíu til fslands, er í haldi. Ferðalag Arn- ars er liður í rannsókn lögregl- unnar á smyglmálinu, en rann- sókn lýkur senn. Arnar vildi ekki tjá sig náið um málið að sinni og sagði best að bíða þar til rannsókn lyki sem yrði innan tíðar. Fjórmenning- arnir, sem lögreglan í Bretlandi og hér á landi hnepptu í varðhald vegna þessa máls, sitja enn inni og gæsluvarðhaldsúrskurðurinn rennur ekki út fyrr en 8. júlí nk. Ekki er enn útséð livort hann verði framlengdur. þj er í þjónustugreinum og 32% í vöruiðnaði. Verðhækkanir eins og þær eru mældar í framfærsluvísitöl- unni eru 16% á sama tíma. Af því má ráða að umsvif í verslun og þjónustu hafi aukist mjög mikið að raungildi á fyrstu mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra, segir í frétt frá Þjóðhagsstofnun, sem telur þetta gefa vísbendingu um mikla þenslu í efnahagslífinu, sér- staklega á suðvesturhorni landsins. Velta í almennri heildverslun (6.436 milljónir á þrem mánuðum) jókst um 40%, er svarar til um 20% aukningar að raungildi. Minni veltu- aukning hjá smásöluversluninni, tæp 27%, skýrist af því að mun minni söluaukning hefur orðið í matvör- um, sem ekki fer um hendur heild- sala. Þá hefur byggingavöruverslun- in tekið kipp, með 44% aukningu milli ára. En þótt íslendingar séu miklir byggingamenn hafa þeir varið 77% hærri upphæð í bíla en bygg- ingavörur frantan af árinu. Ef við deilum 9.908 milljóna króna veltu smásöluverslunarinnar niður á landsmenn kemur rúmlega 40 þús. kr. verslun á hvern þessa 3 mánuði - en það samsvarar um 50 þús. krónum á hverja meðalfjöl- skyldu á mánuði, sem við höfum eytt úti í búð. Til viðbótar hefur meðal- fjölskyldan varið 13 þús. á mánuði í bílakostnað, um 7 þús. til kaupa á byggingarvörum og um 15 þúsund- um til kaupa á ýmisskonar þjónustu. Samtals gera þessir liðir því um 85 þús. króna fjölskylduútgjöld að meðaltali á mánuði, eða um 47 þús. krónur úr buddu hvers íslendings á vinnumarkaðinum. Nær 66% af allri verslun fer fram í Reykjavík þó þar búi innan við 38% þjóðarinnar. -HEI Kísilmálmverksmiðja á Reyöarfiröi: Byggingar- áform lögð til hliðar Aðalfundur Kísilmálmvinnsl- unnar hf. staðfesti á aðalfundi sínum þær niðurstöður hag- kvæmnisathugana að ekki sé grundvöllur til að hefja byggingu og rekstur kísilmálmverksmiðju að sinni á Reyðarfirði. Samingaumleitanir hafa átt sér stað á milli viðræðunefndar iðn- aðarráðuneytisins undir forystu Birgis ísleifs Gunnarssonar al- þingismanns og fulltrúa breska fyrirtækisins Rio Tinto Zink Met- als um byggingu og rekstur slíkrar verksmiðju á Reyðarfirði frá því í árslok 1985. Niðurstaða viðræðunefndanna var sú, að arðsemi kísilmálm- verksmiðju sé við núverandi að- stæður innan viðunandi arðsemis- marka. Að vísu telja aðilar rétt að endurskoða forsendur slíkrar verksmiðju í desember n.k. með tilliti til þróun markaðsverðs, gengis og rekstrarkostnaðar. En á þessu stigi sé ekki ástæða til að leggja frekari vinnu í þetta verk- efni. Þá hefur formaður íslensku nefndarinnar, Birgir ísleifur Gunnarsson, að þetta merki alls ekki að kísilmálmverksmiðja sé úr sögunni, en bíða þurfi betri skilyrða. ÞÆÓ SUMAR ’87 ACS BAGGAFÆRIBÖND Eigum fyrirliggjandi baggafæribönd og allt tilheyrandi - Mjög hagstætt verð. UMBOÐSMENN OKKAR - YKKAR MENN UM LAND AT.T.T Vélabær hf. Andakilshr. S. 93-5252 Ólafur Guðmundsson, Hrossholti Engjahr. Hnapp. S. 93-5622 Dalverk hf. Búðardal S. 93-4191 Guðbjartur Björgvinsson, Sveinsstödum, Klofningshr. Dal. S. 93-4475 Vélsm. Húnv. Blonduósi S. 95-8145 J.R.J. Varmahlið S. 95-6119 Bílav. Pardus, Hofsösi S. 95-6380 Bilav. Dalvíkur, Dalvik S. 96-61122 Dragi Akureyri S. 96-22466 Vélsm. Hornafjarðar hf. Höfn S. 97 8340 Vikurvagnar, Vik S. 99-7134 Ágúst Ólafsson, Stóra Moshvoli, Hvolsvelli S. 99-8313 Vélav. Sigurðar, Flúðum S. 99-6769 Vélav. Guðm. og Lofts Iðu S. 99-6840 Hafið samband við sölumenn okkar og kynnið ykkur verð og greiðslukjör Globusp Lágmúla 5 Reykjavtk Sími 681555 - okkar heimur snýst um gædi

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.