Tíminn - 02.07.1987, Qupperneq 7
Fimmtudagur 2. júlí 1987
Tíminn 7
íþróttafélag fatlaðra með fjáröflun:
Sigla á Hvítá
í slöngubátum
Nýi Ferðaklúbburinn hefur boðið
íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík og
nágrenni til siglingar í gúmmíbjörg-
unarbátum niður Hvítá. Í.F.R. hef-
ur hafið byggingu á íþróttahúsi við
Hátún 12 og stendur því í fjáröflun
vegna þess og er þetta liður í þeirri
viðleitni félagsins að fá fólk til að
styðja við bakið á þeim.
Siglingin verður á laugardag og
sunnudag og verður farið á þremur
bátum þegar mest verður og geta
átta manns verið í hverjum báti.
Lagt verður upp til móts við
Bláfell á Kjalvegi á níunda tímanum
á laugardagsmorgun og siglt niður
eftir ánni, um 100 km leið. Á þeirri
leið er Gullfoss, en hyggjast leið-
angursmenn sneiða framhjá honum
og selflytja þátttakendur.
Leiðin fyrri hluta laugardagsins er
fremur erfið og talsverðar flúðir í
ánni á þeim áfanga. En síðari hluta
báða dagana er siglt á tiltölulega
lygnu vatni. Bátunum verður stjórn-
að af þaulvönum mönnum frá Nýja
Ferðaklúbbnum.
Fjáröflunin verður með þeim
hætti að eitthvað af auglýsingum
verður selt á bátana og tekið verður
á móti áheitum í símum 27112 og
23212, nánari upplýsingar verða ein-
nig veittar í farsímanum 985-24191.
Ólympíuleikar fatlaðra eru fra-
mundan og stefnir Í.F.R. á að senda
þátttakendur þangað. Þú gætir
hjálpað til.
-SÓL
Frá afhendingu verðlauna á síðustu hátíð á Vigdísarvöllum.
Kiwanisklúbburinn Setberg í Garðabæ:
Hátíð haldin á
Vigdísarvöllum
Kiwanisklúbburinn Setberg í
Garðabæ efnir til fjölskylduhátíðar
á Vigdísarvöllum helgina 3.-5. júlí
n.k.
Hátíðin verður með hefðbundnu
sniði, farið verður í leiki, margskon-
ar keppnir, t.d. knattspyrnu og
naglaboðhlaup. Sameiginleg grill-
veisla verður á laugardagskvöldinu
þar sem allir fá nægju sína. Mikill
varðeldur og kvöldvaka verður ein-
nig á laugardagskvöld og kvöldið
endað með því að stiginn verður
dans.
Á síðustu Vigdísarvallahátíð
mættu rúmlega 130 manns og að
sögn kiwanismanna skemmtu sér
allir hið besta þá. Kiwanismenn
hvetja því alla að mæta um helgina
og halda aðra ógleymanlega Vig-
dísavallahátíð.
ABS
Þeir eru að fara í sumarfrí.
EFTIRUTID REKUR A
EFTIR ÖKUMÖNNUM
Bifreiðaeftirlitið hefur sent frá sér
fréttatilkynningu þar sem rekið er á
eftir ökumönnum sem ekki hafa enn
látið skoða bifreiðir sínar að koma
með þær til aðalskoðunar hjá Bif-
reiðaeftirlitinu í Reykjavík, Flafnar-
firði, eða Keflavík í síðasta lagi
3.júlí en að öðrum kosti ekki fyrr en
eftir 7. ágúst þar sem Bifreiðaeftirlit
ríkisins á þessum stöðum annast
ekki aðalskoðun bifreiða frá 6. júlí
til föstudagsins 7. ágúst vegna
sumarleyfa. Nú þegar á aðalskoðun
að vera lokið á öllum bifreiðum með
skráningarnúmerin G, Y og Ö sem
og bifreiðum undir R 50000.1
Þrátt fyrir sumarleyfi mun Bif-
reiðaeftirlit ríkisins hins vegar ann-
ast með venjulegum hætti umskrán-
ingar og nýskráningar bifreiða ásamt
prófum fyrir ökumenn.
IDS
SUMAR ’87
Vélabær hf. Andakilshr. S. 93-5252
Ólafur Guðmundsson,
Hrossholti Engjahr. Hnapp. S. 93-5622
Dalverk hf. Búðardal S. 93-4191
Guðbjartur Björgvinsson,
Sveinsstöðum, Klofningshr. Dal. S. 93-4475
Vélsm. Húnv. Blönduósi S. 95-8145
J.R.J. Varmahlíð S. 95-6119
Bílav. Pardus, Hofsósi S. 95-6380
Bilav. Dalvíkur, Dalvík S. 96-61122
Dragi Akureyri S. 96-22466
Vélsm. Hornafjarðar hf. Höfn S. 97-8340
Víkurvagnar, Vík S. 99-7134
Ágúst Ólafsson,
Stóra Moshvoli, Hvolsvelli S. 99-8313
Vélav. Sigurðar, Flúðum S. 99-6769
Vélav. Guðm. og Lofts Iðu S. 99-6840
Hafið samband við sölumenn okkar
og kynnið ykkur verð og greiðslukjör
Globus? Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555
okkar heimur snýst um gæði
UMBOÐSMENN OKKAR -
YKKAR MENN UM LAND ALLT
FELLA Margra ára reynsla sýnir að Fella sláttuþyrl-
ur eru einhverjar vönduðustu sláttuþyrlur sem völ er á.
Fella sláttuþyrlur eru fáanlegar í stærðunum 166 cm og
192 cm. Báðar stærðirnar eru fáanlegar með og án
grasknosara, sem mjög auðvelt og fljótlegt er að taka af
og setja við. Fella er sláttuþyrla sem endist og endist.
Kynnið ykkur prófun Bútæknideildar sumarið 1982 á
Fella Km 165 sláttuþyrlunni með grasknosara.
FELLA stjörnumúgavélar henta stórum og litlum
búum. Hægt er að fá vélar sem raka hvort sem er til
hægri eða vinstri, einnig vélar til tengingar framaná
dráttarvélar.
FELLA heyþyrlur eru sterkai og afkastamiklar. Þær
er hægt að fá bæði lyftutengdar og dragtengdar. Allar
vélarnar eru með skástillibúnaði, þannig að þær geti
kastað frá skurðum og girðingum.
y—y LATTU
limaim
F.KKl FUÚGA FRÁ ÞÉR
ÁSKRIFTARSÍMI 686300