Tíminn - 02.07.1987, Side 11

Tíminn - 02.07.1987, Side 11
Fimmtudagur 2. júlí 1987 Tíminn 11 —d—i ÍÞRÓTTIR ■ tmm. Patrik Sjöberg stefnir hátt Hefur átt sér þann draum frá 15 ára aldri að stökkva yfir knattspyrnumark Patrik Sjöberg setti heimsmet í hástökki í fyrrakvöld á frjálsíþrótta- móti í Stokkhólmi eins og sagt var frá á íþróttasíðu Tímans í gær. Sjöberg stökk 2,42 m og bætti met Sovétmannsins Igor Paklin um einn cm. Sjöberg er 22 ára og kynntist hástökki fyrst 10 ára. Þegar hann var 15 ára gamall stökk hann 2,07 m og 16 ára snéri hann sér alfarið að hástökkinu. Nítján ára gamall vann hann til silfurverðlauna á Ólympíu- leikunum í Los Angeles, árið 1985 var ráin komin í 2,38 m og í febrúar í ár setti hann heimsmet innanhúss, 2,41 m. Heimsmetið utanhúss féll í fyrrakvöld og Sjöberg stefnir enn hærra. Hann hefur átt sér þann draum frá 15 ára aldri að stökkva yfir knattspyrnumark. Það er 2,44 m á hæð. „Ég er smeykur um að Patrik geti stokkið hærra en þetta" sagði Carlo Thránhardt, besti vinur hans og hástökkvari í heimsklassa eftir heimsmetið í fyrrakvöld. „Hann get- ur örugglega stokkið 2,45 m í surnar" sagði Thránhardt. Sjöberg og Thránhardt, sem er V-Þjóðverji og hefur stokkið 2,40 m, æfa saman og eru mestu mátar. Þeir eru reyndar svo líkir að mörgum dettur í hug við fyrstu sýn að þar fari bræður, báðir 1,99 m á hæð og ljóshærðir. Æska Sjöbergs var ekki beinlínis dans á rósum og gæti reyndar verið fyrirmynd að dæmigerðri bíómynd frá Hollywood, unglingurinn sem vinnur sig upp úr eymd og volæði til frægðar og frama. Foreldrar hans skildu þegar hann var þriggja ára gamall, hann byrjaði að reykja sex ára og á unglingsárunum stundaði hann búðahnupl. Þegarhann kynnt- ist hástökkinu tók það hug hans allan, hann lét af fyrri ósiðum og segir sjálfur að hástökkið hafi bjarg- að lífi sínu frá því að falla í ntjög slæman jarðveg. „Ég ætla að tryggja mér fjárhagslegt öryggi það sem eftir er æfinnar“ segir Sjöberg í dag „ég hef enga menntun og enga starfsþjálfun en ég hef tækifærið til að öðlast örugga framtíð gegnum hástökkið“. Sjöberg ætti ekki að verða skotaskuld úr því, hann er einn af hærra launuðum frjáls- íþróttamönnum og fær vel borgað fyrir að keppa á mótum víða um heim. -HÁ Tveir komma núll sjö 15 ára, silfur á Ólympíuleikunum 19 ára, 2,38 m 20 ára, heimsmet innan- og utanhúss 22 ára og enn eru líkur á að ráin færist upp. HOU-H BAIIWERK Á að steypa sér í byggingar ? Við bjóðum húsbyggjendu.m að reyna ALPALAND mótaborðin við uppsláttinn. Gulu ALPALAND mótaborðin spara bæði fé og fyrirhöfn og því meira sem stærra er byggt. Kostir ALPALAND eru meðal annars: ★ Uppslátturinn er fljótlegri. Niðurrif gengur hraðar. ★ Eftirvinnsla er nær óþörf þar eð steypan fær slétta og fallega áferð. ★ Það er fljótlegt og einfalt að hrúnsa ALPALAND mótaborðin og sömu borðin má nota aftur og aftur og aftur . . . "k ALPALAND borðin eru til í ýmsum stærðum. Líttu inn til okkar að Krókhálsi. Það gæti borgað sig. SAMBANDIÐ. BYGGINGAVORUR KRÓKHÁLSI 7 SÍMI 672888

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.