Tíminn - 02.07.1987, Síða 16
16 Tíminn
Fimmtudagur 2. júlí 1987
Sumarferð SUF
Dagskrá fyrir sumarferð Sambands ungra framsóknarmanna i
Húsafell 3.-5. júlí.
Föstudagur 3. júlí
Kl. 20.00 Lagt af stað frá Nóatúni 21 í Reykjavík.
Kl. 23.00 Tjaldað og komið sér fyrir í Húsafelli.
Gengið snemma til náða!
Laugardagur 4. júlí
Kl. 10.00 Morgunleikfimisæfingar, umsjónarmaður Jón Kr.
Kristjánsson.
Kl. 11.00 Gönguferð um nágrenni Húsafells.
Kl. 15.00 íþróttakeppni. Keppnisgreinar: Knattspyrna, stígvéla-
kast, pokaboðhlaup, reiptog og brennibolti.
Kl. 18.00 Afslöppun og sund.
Kl. 20.00 Grillveisla og kvöldvaka.
Sunnudagur 5. júlí
Kl. 13.30 Brottför frá Húsafelli.
Kl. 17.30 Heimkoma til Reykjavíkur (fyrir þá sem þaðan koma).
Áríðandi fundur
Áríðandi fundur hjá fulltrúaráði Framsóknarfélaganna á Akranesi
verður haldinn mánudaginn 6. júlí n.k. kl. 20.30 í framsóknarhúsinu.
Fundarefni: bæjarmálefni.
Fulltrúaráðið.
Lokafrágangur á fokheldu húsi að
Litla-Hrauni.
Tilboð óskast í lokafrágang á viðbyggingu við verkstæðishús
Vinnuhælisins á Litla-Hrauni.
Viðbyggingin er fokheld og er um 70 m2.
Innifalið er múrhúðun, málun og píþulagnir úti og inni. Ennfremur allt
annað er þarf til að skila byggingunni fullgerðri (veggir, dúkalögn,
raflagnir o.s.frv.)
Verkinu skal vera lokið 1. febr. 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7, Reykjavík,
gegn 3.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri þriðjudaginn 21. júlí 1987 kl.
11.30.
+
Faðir okkar
Þórhatlur Guðmundsson
frá Laufási, til heimilis að Droplaugarstöðum, áður Furugerði 1
lést í Borgarspítalanum 30. júní.
Guðmunda Sigurður
Kristbjörg Hólmfríður
Ragnar Guðrún og Margrét
+
Látin er í St. Paul, Minnesota í Bandaríkjunum
Pálína Lúlú Guðmundson
fædd Stefánsson, hjúkrunarkona frá Gimli
Minningarathöfn verður 11. júlí 1987 í St. Paul.
Marino Ingvar Guðmundson
Brian Guðmundson
Bruce Guðmundson
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
Sigurðar Más Péturssonar
Borgarholtsbraut 78
Guð blessi ykkur öll.
Steingerður Sigurðardóttir
Gréta Sigurðardóttir
Eggert Sigurðsson
Þorvarður M. Sigurðsson
Birna E. Sigurðardóttir
Pétur Sigurðsson
Linda Sif Sigurðardóttir
Sigurður Hreiðarsson
Helga Sigurjónsdóttir
Jóhanna Guðmundsdóttir
Elfar Gunnlaugsson
Elín Guðmundsdóttir
Svana H. Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Illlllllllllllllllllll DAGBOK IBI!I!II:!' ...........................................................................Illllllllllllllllllllll....... ................ lllllll|i!'ll!:'!"E' ...................
Bjarmi
Útgefendur Bjarma eru: Kristilega
skólahreyfingin, Landssamband KFUM
og KFUK og Samband ísl. kristniboðsfél-
aga. Ritstjóri er Gunnar J. Gunnarsson.
Þetta maf/júní blað Bjarma er helgað
BÆNINNI. Fremst er ritstjóraspjall GJG
og nefnist „Að Ijúka upp“ Þá er hugleið-
ing eftir sr. Frank M. Halldórsson. Bene-
dikt Jasonarson skrifar „Bænin má aldrei
bresta þig“
Guðmundur Guðmundsson, æskulýðs-
fulltrúi þjóðkirkjunnar tók saman grein-
ina: Samræður við Lúther um bænina. í
litla loftherberginu nefnist frásögn Ingi-
leifar Jóhannesdóttur á Akureyri. Sigurð-
ur Pálsson, forstöðumaður námsefnis-
sviðs hjá Námsgagnastofnun skrifar:
Börn og bænir. Halldóra L. Ásgeirsdóttir
segir frá sinni bænareynslu.
Skóla... hvað? heitir spjall við Hrund og
Gunnar. Þá eru bréf frá útlöndum, bæði
frá kristniboðum og öðrum, grein um
Söngglaða unglinga og félagsstarfið, sög-
ur og smáfréttir.
Vikan
í ritstjóraspjalli sínu í þessu 26. tbl.
Vikunnar þetta árið er Þórunn Gestsdótt-
ir ritstjóri með hugleiðingu um nýliðna
Jónsmessu og hve sumarbirtan er íslend-
ingum kærkomin. Nafn vikunnar er Ólaf-
ur Eiríksson, sem er Islandsmeistari fatl-
aðra í badminton. Hann er einnig mikill
sundkappi. Hafdís Árnadóttir í Kramhús-
inu er á forsíðu þess blaðs, og í því er
viðtal við Hafdísi um margvísleg mál, en
þó cinkum um heilsurækt.
Ólga á útskeri heitir smásaga eftir
Sigríði Gunnlaugsdóttur, en „Líf og lyst“
er helguð ungum og hressum sumarstrák-
um, sem hafa breytt um stíl í tilefni
sumarkomunnar og góða veðursins.
SAGNIR
Tímarit um söguleg efni
Þetta er 8. árgangur ritsins SAGNIR,
sem gefið er út af sagnfræðinemum við
Háskóla íslands, en ritstjóri er Sigrún
Ásta Jónsdóttir.
Ritið er um 100 bls. og í því eru nærri
20 greinar um sagnfræðileg efni og með
mörgum myndum. Má nefna greinarnar
Móðuharðindin, Sú bitra bólusótt, Stökk-
ið mikla framávið, Breiðfirskarsjókonur,
svo eitthvað sé nefnt. Ritinu verða gerð
gleggri skil í grein í Tímanum.
Forsíðumynd er eftir Guðvarð Hall-
dórsson, sem gerði hana sérstaklega fyrir
SAGNIR.
HLUTVERK
VKÍ ÍXlK MAUVVliN ÚFMH 1
'&xkm i kmfa ffoifaiit* <uuU
HLUTVERK
Málgagu UFMH (Ungt fólk með
hlutverk).
Ritstjóraskipti hafa orðið á blaðinu.
Friðrik Ó. Schram vara ritstjóri frá upp-
hafi, en hann lætur nú af störfum og við
tekur Eirný Ásgeirsdóttir í samvinnu við
Agnesi Eiríksdóttur. Eirný skrifar rit-
stjórapistil, sem nefnist Hvatning!
Þá er grein eftir Ólöfu 1. Davíðsdóttur:
Boðun í krafti Heilags anda, og segir hún
m.a. frá námskeiði í Englandi. Friðrik Ó.
Schram skrifar greinina Mig langar að
segja þér... Þá er grein eftir Ásthildi Bj.
Snorradóttur: Föðurkærleiki Guðs.
Hjarta mitt - heimili Krists heitir þýdd
grein eftir Robert Boyd Munger. Margar
fréttir eru í blaðinu af starfi UFMH.
Útgefandi blaðsins er Sjálfseignarsam-
tökin Ungt fólk með hlutverk.
SF «<’*
Svipmyndir úr sögunni
Flugleiðafréttir
Vegna 50 ára afmælis farþegaflugs á
Islandi var gefin út afmælisútgáfa af
Flugleiðafréttum. Þar er rakin saga flugs-
ins á íslandi og þeir sem lengst hafa
starfað við flugmál hér á landi segja frá
og bregða upp svipmyndum úr sögunni.
Þeir sem segja frá eru m.a.: Jóhannes
Markússon Jóhannes R. Snorrason,
Sveinn Sæmundsson, Margrét Guð-
mundsdóttir, Kristín Snæhólm, E. Krist-
inn Olsen, Magnús Guðmundsson, Jón
Óttarr Ólafsson, Einar Aakrann o.fl.
Blaðið Flugleiðafréttir er gefið út af
Kynningardeild Flugleiða. Ritstjóri er
Sæmundur Guðvinsson.
Jakob Magnússon, eigandi Hornsins og
Tino Nardini, listakokkur.
Matarkvöld íslensk/ítalska
félagsins
Italía, tslensk ítalska félagið gengst fyrir
matarkvöldi nk sunnudagskvöld, 5. júlí í
Djúpi veitingarstaðarins Hornið, Hafnar-
stræti 15 kl. 19.30. Þar verður á boðstól-
um úrval ítalskra rétta, matreidda af
listakokkunum Tino og Luciano. Verð
aðgöngumiða er kr. 1000 og miðapantanir
eru teknar niður hjá ferðaskrifstofunni
Faranda á Vesturgötu 3, sími 17445.
Matarkvöld Italía hafa lukkast mjög
vel og verið fjölsótt enda kappkostað að
velja saman nýja og skemmtilega rétti
hverju sinni, að minnsta kosti þríréttað.
Matarkvöldin eru að jafnaði haldin fyrsta
sunnudag hvers mánaðar, en dagskrá
þeirra fram til hausts verður sem hér
segir: 5. júlí, 9. ágúst, 6. september og 4.
október.
Dagsferðir Ferðafélags Islands
Laugardagur 4. júlí:
1) Kl. 09:00 - Bláfell (1160 m) Gengið
frá Bláfcllshálsi.
2) Kl. 09:00 - Gengið með Hvítá að
Ábóta.
3) Kl. 09:00 - Hvítárnes. Ekið að
sæluhúsi F.í. í Hvítárnesi.
(Verð í allar ferðirnar er kr. 1.200)
Sunnudagur 5. júlí:
1) Kl. 08:00 - Þórsmörk - dagsferð (1000
kr.) Dvalargestir ættu að huga að þessari
ferð.
2) Kl. 10:00 Bláfjöll - Heiðin há -
Hlíðarvatn. - Gengið frá Þjónustumið-
stöðinni í Bláfjöllum um Heiðina há að
Hlíðarvatni. (600 kr.)
3) Kl. 13:00 Herdfsarvík - Hlíðarvatn.-
Gengið um í fjörunni við Herdísarvík og
að Hlíðarvatni. (600 kr.)
Brottför í allar ferðirnar er frá Umferð-
armiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar
viðbíl. Fríttfyrirbörn ífylgdfullorðinna.
Helstu vextir við banka og sparisjóði (% á ári)
21. júní 1987
(Ein ‘ merkir breytingu vaxta frá síðustu skrá og þrjár *** vísa á banka
og/eða sparisjóði sem breyta vöxtum)
I. Vextir ákveðnir af bönkum og sparisjóöum
Lands- Útvegs- Bunaðar- - Iðnaðar- Verslunar- Samvinnu- Alþyðu- Spari- Vegin
banki banki banki banki banki banki banki sjoðir meftaltöl
Dagsetning siðustubreytingar 21/6 21/6 21/6 21/6 21/6 21/6 21/5 11/6
Innlánsvextir: Hlaupareikningar 6.00 6.00 4.00 6.00 4.00 4.00 5.00 4.00* 5.10
Ávisanareikningar 6.00 6.00 4.00 6.00 4.00 7.00 10.00 4.00* 5.40
Alm.sparisj.bækur 13.00’ 12.00 12.00 12.00 12.00’ 10.00 10.00 11.00” 12.00’
Annað óbundiðsparifé" 7-22.00 12-23.90 7-20.00 10-19.00 11-22.50 1 1-16.00 350
>-22.00
Uppsagnarr ,3mán. 14.00’ 15.00 12.00 13.50 15.00 14.00 12.00 13.60’
Uppsagnarr.,6mán. 17.00 13.00 20.00 19.00 17.00 17.00 13.00 15.40
Uppsagnarr.,12mán. 15.00’ 19.00 19.00 25.50'® 18.30’
Uppsagnarr., 18mán. 24.50 " 22.00 24.00"31 23.80
Verðtr.reikn3mán. 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 1.50 1.90
Verðtr.reikn6mán. 3.50 4.00 3.50 2.50 3.50 3.00 400 3.50 3.40
Ýmsirreikn." 9.00 5-6.50*
Sérstakarverðbætur 13.0 12.00 12.00 12.00 12.00 10.00 12.00 11.04246” 15.20
Innl.gjaldeyrisreikn.: Bandarikjadollar 6.00 650 6.00 6.25’ 6.50’ 6.00’ 5.75 6.00 6.10’
Steriingspund 7.50 8.00 8.00 7.50’ 9.00’ 8.00’ 9.00 8.00 7.90’
V-þýskmörk 2.50 3.00 2.75’ 2.75 3.50 3.00’ 3.50 3.00 2.80’
Danskarkrónur 8.50 9.50 8.50’ 8.50’ 10 00’ 9.00’ 9.50 9.50 9.10’
Útlánsvextir: Víxlar (forvexttr) 23.50’ 23.50 23.00" 24.50 24.50’ 24.00"' 24.00 24.00" 23.70’
Hlaupareikningar 25.00' 24.50 24.00 26.00 26.00’ 25.00’ 25.00 25.00 24.90’
þ.a. grunnvextr 12.00’ 12.00’ 10.00 11.00 12.00 12.00 12.00 12.00 11.60’
Alm.skuldabróf51 24.50’ 24/24.5 " 24.00 25.50 25.50’ 25.00’ 25.00 24/25.0" 24.60’
þ.a.grunnvextir 10.00 12.00 10.00 11.00 12.00’ 12.00 12.00 12.00 10.90’
Vefðtr.skbf.að2.5áísl 7.00’ 675/70" 7.00 8.00 8.00’ 7.00 7.50 7.07.3" 7.20’
Vefðtf.skbf>2.5ár" 7.50' 6.757.0" 7.00 8.00 8.00’ 7.00 7.50 7.073" 7.30’
Afurðalán i krónum 23.00’ 21.00’ 21.00 23.00’ 23.00’ 18.50 24.00 22.40’
AfurðalániSDR 7.75 7.75 7.75 7.75 8.00 8.25 7.90
Afurðalán i USD 8.75’ 9.00’ 8.75’ 8.75’ 9.25 8.75 8.80’
Afurðalán i GBD 10.00’ 10.50’ 10.00* 10.00’ 10.75 11.50 10.40’
Afurðalán i DEM 5.25 5.25’ 5.25 5.25 5.50 5.50 5.30’
II. Vanskilavextir, ákveðnir af Seðlabanka: Frá 1. mars 1987 2.5% (2.21%) og frá 1. júni 1987 2.8% (33.6% á ári).
III. Meðalvextir 21.5.87 (geta gilt i júni 87): Alm. skbr. 22.9% (102+12.7), vtr. lán að 2.5 árum 6.8% og minnst 2.5 ár 7%. Meðalvextir 21.6.87 (geta git i
júli 87): Alm. skbr. 24.6% (10.8+13.8), vtr. lán að 2.5 ámm 7.2% og rminst 2.5 ár 7.3%.
1) Sjá meðfytgjandi lýsingu. 2) Aðeins hjá Sp. Vélstj 3) Aðetns hjá SPRON, Sp. Kóp.. Hafnarfj., Mýras., Akureyrar, ólafsfj, Svarfd., Stglufj , Norðfj.. Arskógsstr.
& Eyrar í Keflavik. 4) Viðsk.vixlar keyptir m.v. 24.0% vexti hjá Bún.banka 24.0% hjá Samv.banka og 26.0% hjá nokkrum sparisj. 5) Vaxtaálag á skuldabréf
til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári. Verzl.b. beitir þessu ekki. 6) Aðeins hjá Sp. Bol., Reykdæla og Akureyrar. 7) Lægn vextimir giida ef um fasteignaveð
er að ræða. 8) Lægn talan er vegna innlána. 9) Undant. er Sp. i Keflavík: Tékkareikn. 3%, alm. sparibók og sérst verðbætur 10% og Sp. V-Hún: Tékkareikn. 7%.