Tíminn - 24.07.1987, Síða 3

Tíminn - 24.07.1987, Síða 3
Föstudagur 24. júlí 1987 Tíminn 3 Skúli G. Johnsen borgarlæknir: Peningum ausið út í nafni byggðastefnu millj. króna á verölagi '81 „Heilsugæslustöðvar eru óþarf- lega stórar sumsstaðar úti á landi og allt það fjármagn sem sett hefur verið í þær fram til þessa nýtist ekki nema að hluta til,“ sagði Skúli G. Johnsen borgarlæknir þegar blaðamaður hafði samband við hann vegna fréttar í Tímanum í fyrradag. Þar kom fram að kostn- aður við rekstur sjúkrahúsa hefur aukist um allan helming á árunum 1981-85. „Vegna læknaskorts víða um land nýtast heilsugæslustöðv- arnar ekki sem skyldi og það kemur fram í aukinni notkun sjúkrahúsa og sérfræðinga." Málið er flókið að sögn Skúla og erfitt að gera grein fyrir þessari dýru þróun. Innlögnum á sjúkra- hús fjölgar stöðugt og legudaga- fjöldi á sjúkrahúsum eykst. Á árunum 1970 til 1981 jókst kostnaður við rekstur sjúkrahúsa þó enn hraðar en á árunum 1981-85 en öll þessi ár hefur kostnaður við rekstur heilsugæslustöðva staðið í stað. Kostnaður við uppbyggingu heilsugæslustöðva hefur dreifst mjög um landið. f fyrsta lagi hafa heilsugæslustöðvar ekki verið mannaðar sem skyldi og byggðar hafa verið óþarflega stórar stöðvar. Þennan fyrri þátt má rekja að sögn Skúla til þess sem hann kallaði misskilda byggðastefnu í uppbygg- ingu heilsugæslunnar. Ríkiðgekkst fyrir greiðslu stofnkostnaðar að 85% leyti og sveitarfélög lögðu fram 15% hlut. Þar með er talinn allur tækjabúnaður og byggingar og er hlutur ríkisins þar talsvert hærri en þegar um sjúkrahús er að ræða, enda er þá ekki talinn með allur lausabúnaður. Einhverra hluta vegna hefur Reykjavíkurborg orðið út undan í þessari uppbyggingu. Heilsugæslu- stöðvar borgarinnar eru langt frá því nógu margar eða nógu stórar til að geta sinnt hlutverki sínu. „Heilsugæsluþjónustan er mjög skammt á veg komin vegna þess að menn ausa peningum út á land í nafni byggðastefnu, en innan við 2% af þeim kostnaðarlið renna til Reykjavíkur," sagði Skúli. Taldi hann að ekki yrði um neina endanlega bót að ræða í stýringu og uppbyggingu á heilsu- gæslu í landinu fyrr en allir þættir hennar væru komnir undir einn hatt, bæði skipulagslega og fjár- hagslega. Sem stendureru fjárveit- ingar í þennan málaflokk á hendi allt of margra aðila til að nokkur leið sé að móta og framfylgja heildarstefnu og samræmingu. Átak Svía sem lagt er til saman- burðar í óbirtum skýrslum Skúla og minnst var á í fréttinni í gær, er allt á þann veg að heilsugæslan er aukin við hlið sjúkrahúsanna. Sem dæmi um þróunina má nefna að heilsugæsluþjónustan í Stokkhólmi hefur 14 faldast frá árinu 1976. Þá er ekki verið að tala eingöngu um byggingar og tækjakaup, heldur einnig um mannaflaaukningu. Síðari skýringin á aukningu sjúkrakostnaðar verður rakin, að mati Skúla, til þess að tilvísana- kerfi lækna og tryggingafélaga var numið úr gildi árið 1982. Þá hafi ekki lengur þurft að hafa tilvísun á sérfræðing til að fá þjónustu hans endurgreidda að hluta til frá trygg- ingarstofnun. Þetta litla atriði hef- ur valdið því að sérfræðikostnaður hefur margfaldast. Samkvæmt upplýsingum í Sveitarstjórnartíð- indum hefur hann aukist um 80% frá þessum tíma. „Við höfum ekki séð fyrir nægi- legri þjónustu á heilsuverndunar- stöðvunum sem komið getur í staðinn fyrir kostnaðarsama vinnu sérfræðinganna," sagði Skúli G. Johnsen borgarlæknir að lokum. KB Útgjöld vegna reksturs sjúkrahúsa, lyfjakostnaðar og heilsuverndar fyrir 1970-81. Þróun rekstrarkostn- aðar fyrir árin 1981-85 er svipuð en brattinn er þó ögn minni á línu sjúkrahúsanna. Reglulegt eftirlit með heilbrigði sláturdýra: Sýkillinn aðeins í svínakjöti og krossmengast ekki Vegna Salmonellamengunar í svínakjöti vill Sláturfélag Suður- lands að komi fram, að allir starfs- menn Sláturfélagsins, sem með- höndluðu ofangreint svínakjöt, voru heilbrigðisskoðaðir, með tilliti til Salmonellasýkingar. Enginn starfs- mannanna hefur reynst sýktur. í samráði við yfirdýralækni er verið að rannsaka sýni frá öllum svínabúum, sem skipta við Sláturfé- lagið. Svín verða ekki tekin til slátrunar frá búunum fyrr en fyrir liggur að ekki hafi fundist Salmon- ella í umræddum sýnum. í samráði við svínabændur verður komið á reglulegu eftirliti með heil- brigði sláturdýra til að tryggja megi að sýkt dýr komi ekki til slátrunar. Slátrun hefst í dag með slátrun nautgripa eftir sótthreinsun á slátur- húsi og vinnslusölum félagsins. Slát- urfélagið telur að með fyrrgreindum ráðstöfunum sé öryggi neytenda tryggt eins og frekast er unnt. Fyrir skömmu var haft eftir Stein- þóri Skúlasyni, framleiðslustjóra SS, í dagblaði að Salmonelluna væri helst að finna í svínum og kjúkling- um þar sem dýrin væru alin á afmörkuðu svæði og væru alin á tilbúnu fóðri. „Þegar svona nokkuð gerist er meðvirkandi þáttur röng meðferð á matvælum. Ef varan er soðin , drepast Salmonella-sýklar við 70 gráðu hita, en sýkillinn getur vissulega borist í önnur matvæli, sé ýtrasta hreinlætis ekki gætt,“ sagði Steinþór. „Við höfum út á þennan framburð SS-manna að setja,“ sagði Reinhard Reynisson, hótelstjóri að Laugum í Sæíingsdal í Dalasýslu. „Þeir gefa í skyn að engin tilviljun hafi ráðið því að sýking hafi komið upp hjá okkur og að þeir selji svínakjöt um allar jarðir án þess að Salmonellu verði vart. Málið er svo einfalt, að þetta kemur úr kjöti frá Sláturfélagi Suðurlands." Hollustuvernd ríkisins tók 16 sýni úr matvælum, sem stóðu til boða á því ættarmóti að Laugum þegar gestir sýktust, og ekki fannst sýkill- inn nema í svínakjöti. „Það bendir að sjálfsögðu til þess að vörumeð- ferð hér á hótelinu sé mjög góð að Salmonella skuli ekki krossmengast í önnur matvæli," sagði hótelstjór- inn. „Það er verið að gefa í skyn allt að því sóðaskap hér, en stenst ein- faldlega ekki vegna þessarar rann- sóknar og þess að Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hafði komið hér á venjulegri eftirlitsferð sinni fáum dögum fyrir atvikið og við höfum skjalfest ummæli eftirlitsins: Mjög góð umgengni-og þrif í eldhúsi og kælirými, þar sem matvæli eru geymd.“ þj Af öllum sýnum sem Hollustuvernd tók, fannst aðeins Salmonella í svínakjöti. Utanríkisráðherra um saltsíldarsamningana: Ástæðulaust að örvænta Eins og áður hefur komið fram um samninga um fyrirframsölu saltsíldar til Sovétríkjanna, þá hafa Sovétmenn boðið mjög lágt verð fyrir saltsíldina. Sovéska viðræðu- nefndin, sem hér var á dögunum, er farin utan og skildi hún eftir sig lokatilboð sem jafngildir 20-23% lækkun í Bandaríkjadölum frá því verði, sem samið var um á síðasta ári . Nota Sovétmenn undirboð frá öðrum löndum, sérstaklega Kan- ada, til að styðja kröfu sína um verðlækkun og telja það vera það raunverulega markaðsverð, sem miða skuli við. íslendingar hafa aftur á móti farið fram á verðhækkun upp á 13% frá fyrra árs verði, þannig að í raun ber 33-36% á milli í tilboð- unum. Nú er í gildi sérstakur rammasamningur milli landanna þar sem gert er ráð fyrir að árlega kaupi Sovétmenn 200-250.000 tunnur af saltsíld. í fyrra var samið um lagmarksmagn eða 200 þúsund tunnur af heilsaltaðri síld. Tíminn leitaði álits Steingríms Hermannssonar ráðherra utanrík- is- og utanríkisviðskiptamála um stöðuna í þessu máli. Steingrímur sagði “að út af fyrir sig þá hefðu Sovétmenn brugðist mjög jákvætt við beiðni minni, sem ég bar upp við Gorbatsjov í mars sl, um að hefja samninga um sölu saltsíldar fyrr en verið hefur eða þegar að vori, en hingað til hafa þeir hafist síðla hausts. Þessar viðræður hafa nú hafist mjög tímanlega og það er jákvætt". Það sem verra væri væri að það verðtilboð, sem núna lægi fyrir væri alltof lágt. „Það er ljóst að við getum ekki selt saltsíldina á þessu verði. Við getum engan veginn keppt við niðurgreidda síld frá Kanada og Noregi. Þær afleiðingar sem styrkveitingar þessara ríkja til sjávarútvegsins hafa á markaðs- málin eru sérstaklega slæmar fyrir lítil ríki eins og ísland, sem byggir afkomu sína svo mjög á utanrík- isversluninni og hefur auk þess ekkert svigrúm til slíkra niður- greiðslna. Við verðum að taka harðari afstöðu gegn þessari styrkjapólitík, sagði Steingrímur. Þetta hefur oft verið tekið upp á fundum okkar með Norðmönnum, en þeir hafa ávallt viljað sem minnst úr því gera. Nú kemur þetta glöggt fram þegar við stöndum í samningum við Sovétmenn, sem vilja bera sig saman við verð á niðurgreiddri síld frá Noregi og Kanada. Nú þegar öll þessi ríki keppast við að dásama frjálsa utanríkisverslun, þá er ekki hægt að sætta sig við að þessir sömu aðilar bjóði niðurgreiddar sjávarafurðir. Steingrímur sagði að lokum að ekki væri ástæða til að örvænta um saltsíldarsamningana enn sem komið væri, því Sovétmenn hefðu alltaf opnað samningaviðræður á lágum tilboðum og þar fyrir utan væri betri tími til að semja um verð. ÞÆÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.