Tíminn - 24.07.1987, Qupperneq 7
Föstudagur 24. júlí 1987
Tíminn 7
Fréttabréf Fjárfestingafélagsins um „dulda vexti“:
129% vextir
í afborgunar-
viðskiptum
Duldir vextir kallast það þegar
vara er seld á mismunandi verði eftir
því hvernig greiðsla á vörunni fer
fram. Þetta kemur t.d. fram þegar
um er að ræða staðgreiðsluafslátt
sem oft er mjög hár hér á landi, segir
í grein Verðbréfamarkaðsins, mán-
aðarrits Fjárfestingafélagsins um
verðbréfaviðskipti og peningamál. í
greininni er tekið dæmi þar sem
ísskápur er boðinn á tveim mismun-
andi kjörum,kr.50.000 með 50%
útborgun, og eftirstöðvar á 10 mán-
uðum, eða á kr. 45.000 með 10%
staðgreiðsluafslætti. Samkvæmt
þessu er lánið sem kaupandinn tekur
því staðgreiðsluverðið kr. 45.000 að
frádreginni útborgun, kr. 25.000 þ.e.
kr. 20.000. Miðað við að jafnframt
séu teknir 25% nafnvextir af láninu
og 2,5% lántökugjald, eins og alg-
engt er í dag, er kaupandinn að
greiða 129% vexti, eða 91% raun-
vexti í 20% verðbólgu, segir í grein-
inni. Jafnframt er fólki bent á að
hafa dulda vexti í huga þegar það
velur greiðslumáta við kaup á vörum
þar sem þeir geti, eins og framan-
greint dæmi sýnir, verið mjög háir.
r- ------arfeiags|ns u_!ll
juli
1987
' Þc^‘r vara er SeM
, ;,Mdl verði e/ti
hun er greiihi ,Vcrnig
. Oulcia vexti Þettf. íu,.ad Um
I fornu ■ Lrt-d- L»ert í
j SCm 1
mJ<>g liár a , c,lum er
'c'0ur (íesr Þc«i,
ilndi ‘Ja-mi h lr ' Cl"rli,r~
1 cr hoðinn áPrv. ,ssk;iPur
r i,ndl kjomn, !m ""sniun-
5"‘" með
, ;,r á K) rnrinuð',, ^ °"rsr<)dv-
i ;l,.slærii. Lánið " ‘lðSr<-'iðslu-
"’n lckurer því“?!n fi,uP„nd-
mm úlbori ' i,ð'r;idr^-
Þ-«?- kr. 2,) ooo' kr' 75.000
/ Jufnframt Seu ^',ðað við að
nafnvexrir ,/ - ckn,r 75%
/ ki'Hökugjald ; ""’U "k’ 7'/:%
/ cr i dag,"er k'iim^ :d£cng<
Nið greið;, , ‘,,,d,nn i raun
- - _vexri, eða
/‘;,% raunvexti í %,"/
i h<),gu. ~U/<‘ verö-
(sskápur kosrar c
U,h<>rgun er so'í kr' 5(, (,00
' 25.000
Eflírstoövar
Fe.xtir og
'antökug/a ld
Hei'cíarverö á af.
orgunarkjöruni kr
oiuðgreiösluverö '?-'6x
~ 45,000
.He,,darlan,oku-
kostnaöur
kr- S.652
í 29"/„
Weilclarxexrir
Fins o„ sés, r,
andi d;erni ge^ la)moðf>',gl-
'iiorguni rilÍ'elluni .^r.'vx,,r >
h;,,r• Er hví r .Vcnð nijög
",k ;,ð hafa eluld,-;—ði‘ ('rir
(L'gar þaö vc Vt! , |1Ug.|
Wökaup^f-’te.öslun.áÍu
arno Peltonen forstjóri Listiðnaðarsafnsins í Helsinki hefur yfirumsjón með samsetningu
svninparinnar.
Tímami'nJ, Dinlti.
Sýningar:
Norræn hönnun á
Kjarvalsstöðum
Laugardaginn 25. júlí verður
opnuð að Kjarvalsstöðum sýning á
listiðnaði frá Norðurlöndum. Um
er að ræða sögulegt yfirlit yfir
skandinavíska hönnun frá árunum
1951-70 en á þessum árum varð
hugtakið Scandinavian Design til
sem einskonar vörumerki eða
gæðastimpill. Listhönnuðurnir sem
verk eiga á sýningunni hlutu allir á
sínum tíma hin eftirsóttu hönn-
unarverðlaun, sem kennd voru við
Frederik Lunning eiganda um-
boðsverslunar Georg Jensen í New
York. Lunningverðlaununum,sem
voru nokkurs konar Nóbelsverð-
laun listhönnuða, var úthlutað í
fyrsta sinn árið 1951 en þá hlutu
verðlaunin danski húsgagnaarki-
tektinn Hans J. Wegner og finnski
hönnuðurinn Tapio Wirkkala.
Verðlaununum var síðan úthlutað
með sama hætti til tveggja hönnuða
í senn þar til Frederik Lunning lést
árið 1970. Á sýningunni á Kjarvals-
stöðum verða kynnt verk 40
hönnuða úr hópi þeirra sem hæst
bar á Norðurlöndunum á því 20
ára tímabili sem Lunnning verð-
laununum var úthlutað. Flestir
þeirra eru enn í dag í röðum þeirra
sem fram úr skara og koma stöðugt
á óvart með nýjum hugmyndum í
glímunni við efni og tækni. Sýning-
in hefur farið um heiminn og
jafnan fengið góðar viðtökur. Að
henni standa
Listiðnaðarsöfn á Norðurlönd-,
um. Enginn íslenskurlisthönnuður
á verk á sýningunni. Jarno Pelton-
en forstjóri Listiðnaðarsafnsins í
Helsinki hefur haft yfirumsjón með
samsetningu sýningarinnar og mun
hann flyja ávarp við opnun hennar.
Davíð Oddsson borgarstjóri mun
opna sýninguna. IDS
Tölvuháskóli
Verslunarskólans
Engar
rann-
sóknar-
stöður
„Það eru aðeins til þrjú skólastig
á íslandi og þau eru grunnskóli,
framhaldsskóli og háskóli. Þess
vegna get ég ekki litið öðru vísi á
okkar framtak en að það sé á
háskólastigi þar sem það er nám
fyrir stúdenta úr viðskiptabrautum
framhaldsskóla." Þetta hafði skóla-
stjóri Verslunarskóla íslands, Þor-
varður Elíasson, m.a. að segja er
Tíminn bar undir hann þau ummæli
að framhaldsnám skólans í tölvu-
fræðum geti ekki staðið undir merkj-
um háskóla.
Ekki hefur farið mjög mikið fyrir
þessari umræðu en lesendum blaðs-
ins skal þó bent á viðtal við dr. Jón
Torfa Jónasson í síðasta helgarblaði,
en þar er framtakinu tekið fegins
hendi. Þá kom það fram í Tímanum
í vikunni að innritun er verulega
minni í tölvunarfræði Háskóla Is-
lands en var á sama tíma í fyrra.
Stefnt verður að því að útskrifa
nemendur með BS gráðu innan fárra
ára en fyrst um sinn verður námið
aðeins eitt og hálft ár. Það felst í
kennslu á þremur tungumálum tölv-
ufræðinnar og svipar um margt til
tölvunarfræði H.í. Ekki er ætlunin
að kenna stærðfræði, eðlisfræði eða
rafeindafræði að sama niarki og í
H.í. Stefnt verður að því að ne-
mendur sem útskrifast frá Tölvuhá-
skóla Verslunarskólans geti gegnt
ýmsum störfum á sviði viðskiptalífs-
ins þar sem nauðsynlegt er að kunna
einhver skil á tölvufræðum. Miðað
er við stjórnun og vinnu við upp-
byggingu tölvukerfa.
Varðandi þá gagnrýni að Verslun-
arskólinn geti ekki staðið undir því
rannsóknarstarfi sem eigi að fylgja
háskólum, hafði Þorvarður þetta að
segja: „Mér er ekki kunnugt um að
rannsóknir séu stundaðar af BS
nemendum í H.í. eða öðrum háskól-
um. Rannsóknir tilheyra að mínu
mati magistersnámi og doktorsnámi.
Hvorugt er ætlunin að setja upp hér.
Það verður heldur ekki innifalið í
starfsskyldum þeirra kennara sem
koma til með að verða ráðnir. Þeim
verður aðeins ætlað að kenna ákveð-
ið námsefni sem væntanlegur
kennslustjóri og þeir sjálfir ákveða. “
KB