Tíminn - 24.07.1987, Side 12

Tíminn - 24.07.1987, Side 12
12 Tíminrí FRÉTTAYFIRLIT NIKOSÍA — Útvarpið í Te- heran tilkynnti um flotaæfingar íranshers í og út við Persafló- ann aðeins degi eftir að banda- rísk herskip sigldu inn í flóann til að fylgja tveimur kúvaitskum olíuflutningaskipum til heima- hafnar. BAHREIN — Kúvaitsk olíu- flutningaskip og bandarísku herskipin í för með þeim sigldu inn Persaflóann í gærdag án þess að verða fyrir áreitni. Framundan beið þó hættu- svæði þar sem íranskir byssu- bátar hafa verið duglegir við að gera árásir að undanförnu. TOKYO — Stjórnvöld í ríkj- um Austur-Asíu fögnuðu mjög tillögum Mikhail Gorbatsjovs Sovétleiðtoga um eyðingu allra skammdrægra og meðal- drægra kjarnaflauga í heimin- um þótt tilkynningar þeirra væru að visu varlega orðaðar. KARACHI — Vopnaðar her- sveitir voru á verði í gær í Karachi, stærstu borg Paki- stan, en þar hafa tíu manns látið lífið í bardögum mótmæl- enda og lögreglu á undanförn- um dögum. LÚSAKA — Leiðtogar sex svokallaðra framvarðarríkja í Afríku hittust tii að ræða sam- eiginlegar aðgerðir í baráttunni gegn stjórn P.W. Botha forseta í Suður-Afríku. Mikil reiði ernú í ríkjunum sex, sem liggja að Suður-Afríku, vegna frétta um að hægrisinnaðir skæruliðar í Mósambik, sem Suður-Afríku- stjórn styður, hafi drepið 380 manns í árás á þorp í landinu. DACCA — Lögreglan í Bangladesh skaut sex manns til bana og nærri tvö hundruð slösuðust í miklum mótmæla- aðgerðum sem brutust út á öðrum degi allsherjarverkfalls í landinu. Það var stjórnar- andstaðan sem kallaði til verk- fallsins. NEW YORK — Veron Walters, sendiherra Bandaríkj- anna hjá Sameinuðu Þjóðun- um, sagðist vera viss um að Terry Waite, sérstakur sendi- maður ensku biskupakirkjunn- ar, væri á lífi í Líbanon. Waite hvarf í Líbanon í janúarmánuði þar sem hann reyndi að semja um lausn vestrænna gísla sem öfgahópar múslima hafa í haldi sínu. Föstudagur 24. júlí 1987 ÚTLÖND Mikhail Gorbatsjov Sovétleiötogi: Kjarnorkutilboð einnig ætlað Asíuríkjunum Moskva - Rcuter Mikhail Gorbatsjov leiðtogi Sov- étríkjanna var með tilboði sínu í fyrradag, um að samþykkja „tvö- falda núlllausn“ alls staðar í heimin- um, ekki einungis að biðla til Banda- ríkjastjórnar lieldur var þetta einnig tilraun til að vinna fylgi Asíuþjóða. Þetta var haft eftir erlendum stjórn- málasérfræðingum í Moskvu í gær. Sérfræðingarnir sögðu Gorbatsjov hafa í yfirlýsingu sinni í fyrradag minnt sérstaklega á ræðu sem hann hélt í sovésku hafnarborginni Vladi- vostok fyrir ári. Vladivostok er rétt við landamæri Kína og í ræðu Sovét- leiðtogans þar mátti merkja nýja og sáttfúsari stefnu Kremlstjórnarinnar gagnvart Asíu. Gorbatsjov lýsti yfir vilja sínum að eyða öllum meðaldrægum og skammdrægum kjarnaflaugum um allan heim í viðtali við indónesíska dagblaðið Mardeka. Það eitt sýndi að honum er mikið í mun að bæta samband Sovétríkjanna við Asíu- löndin. Hann tók einnig sérstaklega fram að hann legði frani tilboð sitt „til að reyna að taka Asíulöndin og öryggishagsmuni þcirra með í dæmið“. Stjórnvöld í Kína, Japan og öðr- um Asíuríkjum sem ekki eru sér- staklega vinveitt Sovétríkjunum hafa hingað til sett sig mjög á móti hugsanlegu samkomulagi risaveld- anna tveggja sem einungis væri bundið Evrópu. Það að Gorbatsjov hefur fallið frá fyrri áherslu um að bæði risaveldin geti geymt hundrað meðaldrægar kjarnaflaugar á landi sínu, Sovétmenn þá í Asíuhluta landsins, kom því Asíuríkjunum þægilega á óvart. Flest ríkin lýstu yfir ánægju vegna þessarar ákvörð- unar Sovétmanna í gær þótt þar væri að vísu varlega að orði komist og varað við of mikilli bjartsýni. Gorbatsjov hefur, síðan hann komst til valda í mars árið 1985, reynt að bæta samskiptin við Kína, nágrannaríkið sem hefur verið upp á kant við Sovétstjórnina vegna hugmyndafræðilegs ágreinings og samskiptadeilna síðan snemma á sjöunda áratugnum. Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi: Biðlar á báðar hendur. Afvopnunarviöræður stórveldanna: Samkomu- lag um núll lausn - en mörg deilumál eru enn óleyst Gcnf - Reutcr Sovétstjórnin lýsti í gær form- lega yfir samþykki sínu við að öllum meðaldrægum og skamm- drægum kjarnaflaugum stórveld- anna yrði eytt. Alexei Obukhov, varaformaður samninganefndar Sovétmanna í afvopnunarviðræð- um stórveldanna í Genf, sagði við þetta tækifæri að leiðin væri opin fyrir undirritun afvopnunar- samkomulags „í næstu framtíð". Flaugarnar sem um ræðir geta náð frá 500 kílómetrum upp í 5000 kílómetra og þar meðtaldar eru hinar svokölluðu „Evrópu- flaugar". Þótt stórveldin tvö virðist nú vera sammála um að hin „tvö- falda núlllausn" verði látin gilda um allan heim cru ágreiningsmál- in ekki þar með leyst og í gær var reyndar eitt þeirra þegar komið upp á yfirborðið. Obukhov sagði að 72 vestur- þýskar Pershing 1A skammdræg- ar flaugar yrðu að vera meðtaldar í hugsanlegu samkomulagi stór- veldanna um eyðingu skamm- drægra og meðaldrægra flauga. Bandaríkjamenn ráða yfir kjarnaoddum þessara flauga en stjórnin í Washington telur engu að síður að þessar flaugar tilheyri „þriðja aðila“. Frank Carlucci þjóðaröryggis- ráðgjafi Reaganstjórnarinnar sagði í gær að Pershing 1A flaug- arnar ættu ekki að vera taldar með í hugsanlegu samkomulagi risaveldanna og bætti við að for- seti sinn væri harður á þessari skoðun. Bandaríkin: Shultz vissi ekkert George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna: Vissi ekkert. Utanríkisráöherrann bandaríski kom í gær fyrir rannsóknarnefnd- ir þingsins og vitnaði í Iransmálinu Wushington - Rcuter Georgc Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í gær að hon- um hefði aldrei verið sagt frá hinni leynilegu vopnasölu til frans og hefði ekki vitað um hana fyrr en fjölmiðlar tóku að birta fréttir um málið í nóvember á síðasta ári og hneykslið fór að taka á sig mynd. Shultz mætti fyrir rannsóknar- nefndir þingsins í gær og var fyrsti ráðherra Reaganstjórnarinnar til að gera slíkt. Hann var spurður að því hvenær hann hefði fyrst verið látinn vita um málið. „Það fer eftir þvi hvað þú meinar með að vita um,“ svaraði utanríkis- ráðherrann sem sagðist hafa verið mjög á móti tillögunni um vopna- söluna þegar hún kom fyrst til umræðu. Shultz taldi að tillagan hefði verið lögð á hilluna en ekki verið útfærð af þjóðaröryggisráð- inu eins og raunin reyndist. Velayati utanríkisráöherra írans: Skjótum ekki ef þeir skjóta ekki Bonn - Rcuter Ali Akbar Velayati utanríkisráð- herra írans sagði í gær að íranar myndu ekki skjóta á skip í Persa- flóanum nema skip þeirra yrðu fyrir árásum erlendra aðila. Velayati lýsti þessu yfir á blaða- mannafundi sem hann hélt í Bonn að afloknum viðræðum sínum við vestur-þýska ráðamenn. Hann sagði að siglingar bandarískra herskipa í flóanum yrðu einungis til að auka spennuna á þessu svæði. Bandarísku herskipin vernda nú siglingar kúvait- skra olíuflutningaskipa um flóann. „Ef ekki er ráðist á skip í Persa- flóanum, ef ekkert íranskt skip verð- ur fyrir árás Iraka, þá verður ekki ráðist á neitt skip,“ sagði Velayati en bætti þó við að íranar myndu heyja stríð sitt við íraka svo lengi sem Saddam Hussein forseti íraks og harðstjórn hans yrði við völd. Ástralía: Frumbyggjar deyja í fangelsum Sydney - Reutcr Frumbyggjar Ástralíu fara margir í fangelsi einhvern tímann ævinnar en nú hefur aukinn dauði þeirra í fangaklefunum orðið til þess að þrír hæstaréttardómarar hafa verið fengnir til að rannsaka málið. Marcus Einfeld, einn dómaranna, sagði í útvarpsviðtali að minnsta kosti fimmtán frumbyggjar hefðu dáið í fangaklefum sínum á síðustu sjö mánuðum. Flestir þeirra fundust hengdir í klefunum. Einfeld sagði að frumbyggjar færu yfirleitt í fangelsi fyrir sakir sem aðrir íbúar landsins þyrftu ekki að svara fyrir með vist í fangaklefa. Samkvæmt opinberum tölum er einn af hverjum sjö föngum í Ástral- íu frumbyggi þrátt fyrir að þetta fólk telji aðeins lóOþúsund manns. íbúar Ástralíu eru sextán milljónir. Einfeld sagði að dómararnir myndu rannsaka öll samskipti dóms- kerfisins og lögreglu við frumbyggja landsins. „Þetta er hinn aldagamli sjúkdóm- ur kynþáttahaturs, úrvalsstofns og mismununar," sagði Einfeld sem auk dómarastarfsins er forseti Mannréttindasamtaka Ástralíu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.