Tíminn - 24.07.1987, Qupperneq 15
Föstudagur 24. júlí 1987
Tíminn 15
MINNING
- : -
Guðmundur
Óli Ólason
Fæddur 1. febrúar 1941
Dáinn 18. júií 1987
Vinur minn og fyrrum samstarfs-
félagi Guðmundur Óli Ólason er
látinn, langt um aldur fram. Hann
hafði átt við langvarandi vanheilsu
að stríða.
Ég sem þessar línur rita átti því
láni að fagna að starfa með honum
við tónlist í mörg ár og kynntist
honum því mjög vel. Langar mig nú
að minnast vinar míns með örfáum
orðum.
Kynni okkar hófust um mitt ár
1963 er við Óli, en svo var hann
ávallt nefndur af vinum og kunningj-
um, spiluðum saman í fyrsta skipti á
Sjómannadaginn 3. júní 1963.
Þess dags minntumst við oft eftir
það. Þriðji aðilinn í hópnum var
Gunnar Gunnarsson hjá Búnaðar-
deild S.I.S. Þannig varð tríóið „Kátir
félagar" til, og átti Óli heiðurinn af
nafni tríósins og einn mestan þátt í
því lífi og fjöri sem myndaðist innan
þessa fámenna hóps. Óli hafði ákaf-
lega djúpa og fallega söngrödd sem
naut sín vel í dansmúsíkinni og
síðan í Karlakór Reykjavíkur um
margra ára skeið. Hann naut mikill-
ar hylli fyrir rödd sína og líflega
framkomu. en ekki hvað síst fyrir
hinn glaðbeitta „húmor“ sem fylgdi
honum alla tíð. Óli spilaði listavel á
harmónikku og gat samstillt söng og
leik á undraverðan hátt.
Eftir að Gunnar hætti með „Kát-
um félögum“ 1969, tók Hjörtur
Guðbjartsson við og var tríóið þann-
ig skipað þar til Óli hætti að spila og
syngja með því síðla vetrar 1975,
vegna heilsubrests.
Er við Óli hittumst í síðasta sinn
rúmri viku fyrir andlát hans rifjuðum
við upp gamlar minningar eins og
svo oft áður og brugðum á glens,
áður en við kvöddumst.
Við hjónin munum sakna þess að
eiga ekki lengur von á honum í
heimsókn á heimili okkar, þeim
heimsóknum fylgdi ævinlega fjör og
hlátur.
Ég veit að ég mæli fyrir munn
félaga minna sem spiluðu með „Kát-
um félögum" sem áður er getið, að
við munum minnast góðs félaga og
vinar með söknuði.
Við Sigrún sendum eftirlifandi
eiginkonu hans Sigríði Snorradóttur
og dætrunum tveimur Brynju og
Dröfn svo og öllum ástvinum okkar,
innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.
Jóhannes B. Svcinbjörnsson.
Fáa menn hef ég hitt svo oft hin
síðari ár og Guðmund Óla Ólason.
Mér er til efs að hann hafi nokkurn
tíma átt leið um miðbæinn án þess
að líta inn á skrifstofu stéttarfélags
sfns. Þó Guðmundur Óli stoppaði
ekki lengi í hvert sinn bar hann
ævinlega með sér hlýju, sem yljaði
og yljar enn. Hann halði lag á að
gleðja okkur félaga sína en það er
orða sannast að við vissum sjaldnast
hvað honum leið. Hann var gefandi
ekki þiggjandi. Við minnumst nú og
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minning-
argreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að
berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag.
Þær þurfa að vera vélritaðar.
söknum stéttvíss og góðs félaga.
Söngur hans ómar nú innra með
okkur og mun svo verða áfram.
Með félagskveðjum.
Magnús Einar Sigurðsson.
Kveðja frá starfsfólki Tímans
Þegar Guðmundur Óli Ólason er
fallinn frá lifir minningin um glað-
væran og tónelskan mann, sem var
hrókur alls fagnaðar á góðum stund-
um og hreif aðra með sér með
forsöng og undirspili. En hann átti
sér einnig daprar stundir sem ágerð-
ust þegar á æfina leið en þá ásókn
bar hann í hljóði.
Guðmundur Óli nam prentiðn og
starfaði síðustu árin í prentsmiðju
Tímans. Hann átti sér létta lund og
var mannblendinn á sínum betri
dögum og nutu starfsfélagarnir ná-
vistar hans og hressileika.
Tónlist og söngur voru helstu
áhugamál Guðmundar Óla og iðkaði
hann hvorutveggja af lífi og sál.
Hann lék og söng fyrir dansi á sínum
tíma og í mörg ár var hann virkur
félagi í Karlakór Reykjavíkur.
Guðmundur Óli var Ijúfur starfs-
félagi sem ávallt var gott að lynda
við. Gaman hans var græskulaust og
byrðarnar bar hann í hljóði.
Starfsfólk Tímans sendir ástvinum
Guðmundar Óla innilegar samúðar-
kveðjur.
TIL HJALPAR
— gegn vimuefnum —
ÁHEITASÍMINN
62 • 35•50
62 svo byrjar baga
bræöur og systur hlýðið á
35 ég held til haga
hverju sem okkur gagnast má
50 hjartans höfðinginn,
hringdu nú elsku vinur minn
GÍRÓNÚMERIÐ
62 • 10•05
KRÝSUVÍKURSAMTÖKIN
ÞVERHOLTI 20 • 105 REYKJAVÍK
S 62 10 05 OG 62 35 50
Bændur athugið
Ódýr drifsköft fyrirliggjandi:
1.5 m með snuðkúpplingu f/fjölfætlur kr. 13.400.-
1.0 m með brotkúpplingu f/dælur og dreifara kr. 11.400.-
1.0 m án brotbolta f/sláttuvélar kr. 7.550.-
Kaplahrauni 18
220 Hafnarfirði. S. 91-651800
Gjöf
Jóns Sigurðssonar
Samkvæmt reglum skal veita fé úr sjóðnum Gjöf
Jóns Sigurðssonar „til verðlauna fyrir vel samin
vísindaleg rit og annars kostar til þess að styrkja
útgáfur merkilegra heimildarita". Heimilt er og að
„veita fé til viðurkenningar á viðfangsefnum og
störfum höfunda, sem hafa vísindarit í smíðurn".
Öll skulu rit þessi „lúta að sögu íslands, bókmennt-
um þess, lögum, stjórn og framförum."
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonarauglýsir
hér með eftir umsóknum um fjárveitingar úr
sjóðnum. Skulu þær stílaðar til verðlaunanefndar-
innar, en sendar forsætisráðuneytinu, Stjórnar-
ráðshúsi, 150 Reykjavík, fyrir 15. september n.k.
Umsóknum skulu fylgja rit, ritgerðir eða greinar-
gerðir um rit í smíðum.
Reykjavík, 20. júlí 1987.
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar
Magnús Már Lárusson
Sigurður Hróarsson
Sigurður Líndal.
Auglýsing frá
Reykjahreppi
Reykjahreppur í Suður-Þingeyjarsýslu býður upp
á ýmsa möguleika:
Jarðnæði til loðdýrabús og annarra skyldra bú-
greina.
Lóðir fyrir iðnaðarhús.
Lóðir fyrir íbúðarhús.
Lóðir fyrir sumarhús.
Möguleikar fyrir fiskeldi.
Hreppurinn er vel staðsettur, með ódýra hitaveitu,
stutt í verslun og aðra þjónustu. Daglegur akstur
barna í grunnskóla.
Möguleikar á leigu eða söluíbúðum nú þegar.
Allar nánari upplýsingar veitir oddvitinn Stefán
Óskar^son í síma 96-43912.
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVIK:.... 91-31815/686915
AKUREYRI:...... 96-21715/23515
B0RGARNES: ........... 93-7618
BLÖNDU0S:........ 95-4350/4568
SAUÐARKR0KUR: ... 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR: ....... 96-71489
HUSAVIK: ...... 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ........ 97-1550
VOPNAFJORÐUR: ... 97-3145/3121
FASKRUÐSFJÖRÐUR: . 97-5366'5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303
interRent
Jámhálsi 2 Sí 266 110 Rvk
Pósthólf 101E
Atvinna í boði
Óskum eftir vélamönnum og meiraprófsbílstjórum.
Upplýsingar í síma 50877.
Loftorka
FÓLKÁFERÐ! "\
Þegar Qölskyldan ferðast
er mikilvægt
að hver sé á sínum stað
— með beltið spennt.
yU^EROAR