Tíminn - 14.08.1987, Side 1
HELGAR-
BLAÐID
Það er Svavar Gestsson, |
alþingismaður sem er í þing-
mannaviötalinu að þessu 1
sinni. Hann ræðir stöðu
flokks síns og málefnaá-
greining innan hans, stöðu
vinstri hreyfingarinnar, 68
kynslóðarárin og sitthvað
fleira.
Við erum líka á slóðum |
I forfeðranna sem áður, og nú
I er sagt frá Árna Gíslasyni, |
sem margt misjafnt fékk að
reyna i lífsins ólgusjó, en j
Ihann bjó að Höfn í Vallanesi |
eystra á síðari hluta 18. j
aldarinnar.
IVið heilsum upp á gesti á I
tónleikum Bítlavinafélags- |
ins við nýja útvarpshúsið á |
dögunum og segjum deili á |
þessari hljómsveit.
Fastir liðir eru á sínum |
stað, erlend málefni Þórarins |
Þórarinssonar, og poppskrif
Finnboga.
.... . .t
Sjá bls. 5 og 8
Kringlan opnuð í gær að viðstöddu fjölmenni:
Á stærð við
sjávarþorp
með togara
og bryggju
Um 35 þúsund manns heimsóttu Kringl-
una, hina nýju verslunarmiðstöð í Reykja-
vík sem var opnuð með pomp og pragt í
gær. Sjálfsagt er að fagna opnun þessa
glæsilega húss sem eykur verslunarrými í
Reykjavík um 9% í einu vetfangi. En á
tímum þenslu í efnahagslífi, spennu á
vinnumarkaði og umræðu um óeðlilegan
vöxt í verslun og þjónustu miðað við
framleiðsluatvinnuvegina, hina svo köll-
uðu undirstöðuatvinnuvegi, er fróðlegt að
staldra við og skoða hversu stór Kringlan
raunverulega er. Hún er 154 þúsund rúm-
metrar, en það er samsvarandi stærð alls
húsnæðis, að meðtöldu atvinnuhúsnæði, í
þokkalegu sjávarplássi. Byggingarkostn-
aður Kringlunnar er sagður 1.700 milljónir
fyrir utan kostnað við innréttingar í 80
fyrirtækjum sem þar eru. Þetta er t.d.
helmingi hærri tala en nemur endurmats-
verði allra mannvirkja á Flateyri að við-
bættu andvirði skuttogara.
Pálmi Jónsson klippir á silkiborðann
Tímamynd: Pjetur
Jón Baldvin og söluskattslögin:
Tók 14 manns á teppið
Bráðabirgðalögin um sérstakan söluskatt hafa mæist
misjafnlega fyrir, ekki hvaða síst hjá verslunar- og kaup-
mönnum sem margir hverjir lögðu frídag sinn undir breyt-
ingar á verðmerkingum sínum. Jafnframt hefur þessum
hópum þótt lögin ógreiniieg og ekki Ijóst hvað er undan-
þegið skattinum og hvað ekki. Fleiri hópar hafa kvatt sér
hljóðs og gagnrýnt framkvæmd skattsins og hafa þeir nær
undantekningarlaust fengið gott rúm í fjölmiðlum.
Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráöherra ber hitann
og þungann af þeirri gagnrýni sem fram hefur komið, þar
sem skatturinn heyrir undir hann. Ráðherrann mun hafa
verið óánægður með óþarfa ónákvæmi í lögunum og kall-
aði hann því fyrir sig fjórtán starfsmenn sína sem unnið
höfðu að smíði frumvarpsins. Þeir voru teknir á teppið,
sem kallað er.
Sjá þls. 5