Tíminn - 14.08.1987, Qupperneq 3
Föstudagur 14. ágúst 1987
Tíminn ’ 3
Rís hér Idnaðarbanki?
Tímamynd: Pjctur
Skipulagsnefnd vill úthluta lóð á horni Miklubrautar og Háleitisbrautar:
Grænt svæði undir
Iðnaðarbankahús?
Græna svæðið á horni Miklubraut-
ar, Háaleitisbrautar og Safamýrar
verður tekið undir bankabyggingu
ef borgarráð samþykkir ákvörðun
skipulagsnefndar um að úthluta Iðn-
aðarbankanum lóð undir starfsemi
sína á því svæði. Málið var til
umfjöllunar í borgarráði í gær, en
vegna megnrar óánægju minnihlut-
ans með þessa ákvörðun skipulags-
nefndar ákvað Magnús L. Sveinsson
forseti borgarstjórnar að fresta af-
greiðslu málsins þar sem Davíð
Oddsson borgarstjóri var ekki á
fundinum.
Eins og áður segir er svæði þetta
merkt grænu í deiliskipulagi sem
þýðir að ekki skuli vera byggt á
svæðinu. Iðnaðarbankinn, sem hef-
ur nú útibú í verslunarmiðstöðinni
Miðbæ við Háleitisbraut steinsnar
frá fyrirhuguðum byggingarstað,
sótti engu að síður um lóð á þessu
svæði. Umsókn bankans fékk stuðn-
Landbúnaðar-
ráðuneytið:
ing sjálfstæðismanna í skipulags-
nefnd og bíður nú afgreiðslu í borg-
arráði.
Borgarráðsfulltrúar minnihlutans
eru alfarið á móti þvt að úthluta lóð
á þessu svæði með þessum hætti. í
fyrsta lagi er lóðin á grænu svæði
sem ekki er ætlað til byggingar. f>á
mun starfsemi bankans á þessum
Albert Guðmundsson, formaður
og þingmaður Borgaraflokksins,
hefur legið á sjúkrahúsi síðast liðna
daga og hafa sögur gengið um ástæð-
ur sjúkrahúsiegunnar.
Hann var lagður inn þegar hann
fann fyrir verkjum og gerðar rann-
stað óhjákvæmilega auka umferða-
öngþveiti á þröngum gatnamótum.
Auk þess er lóðin á eftirsóttum stað
svo réttara væri að bjóða hana út á
frjálsum markaði, ef þarna á að
byggja á annað borð, og fá þannig
auknar tekjur af henni í stað þess að
færa Iðnaðarbankanum lóðina á silf-
urfati. -HM
sóknir. Niðurstöður rannsókna
benda hins vegar til að um hafi verið
að ræða vægt tilfelli af kransæða-
stíflu og er líðan hans sögð góð eftir
atvikum. Ákvörðun um hvenær
hann fær að yfirgefa sjúkrahúsið
hefur enn ekki verið tekin. -SÓL
Albert Guömundsson á sjúkrahúsi:
Með vægt tilfelli
af kransæðastíflu
Orðrómurinn um að Geir Gunnarsson víki
fyrir Ólafi Ragnari Grímssyni úr þingsæti:
„Er algjör
uppspuni“
- segir Ólafur Ragnar
„Petta hefur aldrei komið til tals í
stofnunum flokksins og
þetta hefur aldrei verið rætt í flokks-
félögununt í Reykjaneskjördæmi og
aldrei borið á gónia milli okkar
Geirs Gunnarssonar. Þannig að
þetta er algjör uppspuni. Það er
alveg ljóst,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson unt þann orðróm að Geir
Gunnarsson ntuni víkja úr þingsæti
svo Ólafur Ragnar hefði sterkari
stöðu í slagnum um formannssætið í
Alþýðubandalaginu.
„Hins má kannske geta svona
fyrir þá sem hafa sagnfræðilegan
áhuga án þess að ég hafi tekið
nokkra ákvörðun um að gefa kost á
mér scm formaður í Alþýðubanda-
laginu, að tveir af þeim þremur
mönnum sem gegnt hafa for-
mennsku í Alþýðubandalaginu síð-
an það varð almennur stjórnmála-
flokkur voru utan þings verulegan
hluta kjörtímabils síns,“ sagði Ólaf-
ur Ragnar. Hann benti á að Ragnar
Arnalds sat ekki á þingi í þrjú ár af
þeim níu sem hann var formaður og
Lúðvík Jósepsson sat ekki á þingi í
citt ár af þeint tíma sem hann var
formaður. Þannig gilti um báða
þessa menn að unt þriðjung þess
tíma sem þeir voru formenn sátu
þcir ekki á þingi.
„Ég er nú ekki að geta þcss til að
gera því skóna að ég gefi kost á mér
sem formaður, heldur svo menn hafi
sögulegar staðreyndir á hreinu,"
sagöi Ölafur Ragnar að lokunt.
-HM
Umferðarslys:
Maður
lést
á slysa-
deild
Tuttugu og sjö ára gamall mað-
ur úr Reykjavík beið bana í
umferðarslysi á Þingvallavegi við
afleggjara að Tjaldanesi á mið-
vikudagskvöld er hann hljóp fyrir
hestaflutningabifrcið á leið aust-
ur. Maðurinn hét Pétur Pétursson
og var vistmaður að Tjaldanesi.
Lögreglunni í Hafnarfirði var
tilkynnt um atburðinn klukkan
nákvæmlega 19:42. Maðurinn var
fluttur á slysadeild Borgarspítal-
ans mikið meiddur og lést þegar
þangað kom. þj
Bjarni
áfram
aðstoðar-
maður
Bjarni Guðmundsson hefur
áfram verið ráðinn aðstoðarmað-
ur Jóns Helgasonar landbúnaðar-
ráðherra. Bjarni er ráðinn í starf-
ið að 2/3 hlutum en auk þess mun
hann taka að sér kennslu við
búvísindadeild Bændaskólans á
Hvanneyri, þarsem hannstarfaði
áður en hann réðist í landbúnað-
arráðuneytið. Bjarni er doktor í
landbúnaðarfræðum frá norska
landbúnaðarháskólanum.
Landbúnaðarráðherra hefur
ráðið Níels Árna Lund ritstjóra
Tímans til starfa á vegum land-
búnaðarráðuneytisins til næstu
áramóta. Starf hans mun m.a.
felast í kynningu á málefnum
landbúnaðarráðuneytisins en auk
þess mun hann verða landbúnað-
arráðherra til aðstoðar í ýmsum
sérverkefnum.
Níels hefur þennan tíma fengið
leyfi frá ristjórastarfi viðTímann,
en því starfi hefur hann gegnt sl.
2 ár.
NY GLÆSILEG
VERSLUN
I KRINGLUNNI
Opnum nú nýja verslun í Kringlunni.
Full búð af nýjum haustvörum, vefnaðarvörur,
smávörur og heimilisdeildarvörur.
Nú eru verslanir Vogue í Kringlunni, sími 689222, -
Skólavörðustíg 12, sími 25866, - Mjóddinni, sími
72222, - Hafnarfirði, sími 51092, - og Glæsibæ, sími
84343. - Heildsala Sundaborg 5, sími 686355.