Tíminn - 14.08.1987, Side 13

Tíminn - 14.08.1987, Side 13
Föstudagur 14. ágúst 1987 Tíminn 13 Hörður Bergmann fræðslufulltrúi Vinnueftirlits ríkisins: 42 banaslys á 15 Frá því að skráning vinnuslysa hófst hjá Vinnueftirliti ríkisins í ársbyrjun 1981 hafa verið skráð þar 10 dauðaslys í þeirri atvinnu- grein, fleiri en í nokkurri annarri. Til er sérstök úttekt á banaslysum við landbúnaðarstörf á árunum 1970-1985 og kom þar í ljós að þau voru 42 samtals. Þar af rúmur helmingur við dráttarvélar og drif- búnað þeirra. Það ætti ekki að koma þeim á óvart sem hafa heyrt eða lesið fréttir af þeim slysum sem hafa orðið við sveitastörf á þessu sumri - og síðast í þessari viku. Dráttarvélaslysin Sú dapurlega reynsla, sem fengin er af vinnuslysum í landbúnaðin- um, gefur tilefni til að minna á þrennt sem stingur í augun þegar reynt er að grafast fyrir um orsakir þeirra. í fyrsta lagi það hversu oft slysin verða vegna þess að dráttar- vél veltur og er ekki búin öryggis- húsi eða öryggisgrind. í öðru lagi það hversu stjórnandinn og sá sem slasast er oft á ungum aldri. Og í þriðja lagi má nefna það hve mörg alvarleg slys hafa orðið vegna þess að hlífar um drifsköft voru ekki á sínum stað eða úr sér gengnar. Ný reglugerð Hér er ástæða til að minna á það Varnaðarorð um vinnuslys í landbúnaði 4- v-áí> sff'í .w - _ V x. ■ árum að fyrir rúmu ári gekk í gildi „Reglugerð urn dráttarvélar og hlífabúnað við aflflutning frá þeim“. Þar eru ekki afdráttarlaus ákvæði um aldursmörk þeirra sem fela má akstur dráttarvélar utan akvega. Hins vegar er þar í 6. grein minnt á nauðsyn þess að umráða- menn og eigendur dráttarvéla taki tillit til aldurs þeirra sem starfa við dráttarvélar, geri þeim ljósa grein fyrir slysahættu og sjái um að starfsmaðurinn fái þjálfun í að vinna störf sín á þann hátt að ekki stafi hætta af. Reynslan sýnir að brýna nauðsyn ber til þess að eigendur og stjórnendur dráttar- véla geri sér ljóst hve valtar þær geta verið - og að rétt sé brugðist við þeim vanda. Þótt ckki séu öll ákvæði afdrátt- arlaus í reglugerðinni, sem ég minntist á, þá eru flest þeirra skýr og ákvcðin. Það á við þær kröfur sem gerðar eru um fastar hlífar um drifsköft, aflinntak og aflúttak. Og loks skal á það minnt að um næstu áramót falla úr gildi undanþágur frá kröfunni um öryggishús og öryggisgrindur á dráttarvélum. Frá þeim tíma verður meginreglan sú að hafa skal öryggishús eða örygg- isgrind með þaki á slíkum vélum. (Flutt ú morgunvakt Kíkisútvarpsins 12. ág.) Þórarinn Þórarinsson: Heimilishjúkrun í Kópavogi Ég las í Tímanum í gær, að bæjarstjórinn í Kópavogi álítur það sparnað að láta starfsfólk heimilishjúkrunarinnar í Kópavogi aka í leigubílum við þjónustustörf sín í stað þess að greiða því bílastyrki eins og áður var. Ég held að hér sé um að ræða mikinn misskilning, sem stafi af því, að þeir, sem nú ráða ríkjum í Kópavogi, hafi ekki kynnt sér nægilega vaxandi verkefni og starf- semi heimilishjúkrunarinnar. Starfsfólk heimilishjúkrunarinn- ar þarf að sinna þjónustustörfum á mörgum stöðum. Eigi heimilis- hjúkrunin að byggjast á leigubíla- akstri hlýtur það að reynast dýrt, því að fara þarf í margar ferðir og hafa viðdvöl á ýmsum stöðum. Það er ekki ósennileg tilgáta að reikn- ingarnir fyrir þennan leigubílaakst- ur eigi eftir að sýna stórfellda kostnaðarhækkun í samanburði við þann kostnað sem áður var. Auk þess nýtist starfstími hjúkr- unarfólksins verr því að oft er veruleg bið eftir bílum, en aðeins má panta bíl frá einni leigubíla- stöð. Ég held að það væri heppilegt fyrir stjórnendur Kópavogskaup- staðar að kynna sér störf heimilis- hjúkrunarinnar betur og íhuga hvort hér er ekki stefnt í óefni. Með þessu nýja fyrirkomulagi eru störf hjúkrunarfólksins gerð erfið- ari á ýmsan hátt og hvetur það ekki til þess, að það starfi í þjónustu bæjarins. Það má vel vera, að rétt hafi verið að afnema bílastyrki hjá ýmsum starfsmönnum bæjarins, en hvað heimilishjúkrunina snertir leiðir það hvorki til sparnaðar né bættrar nýtingar á starfskröftum, helduröfugt. Þetta nýjafyrirkomu- lag þjónar ekki sjúku, öldruðu fólki. Illllllllllllllllllillllll LESENDUR SKRIFA lllilllllljlllllllllíllllillll Barnaskap- ur fjármála- ráðherra Ríkisstjórnin er nú tæplega mán- aðargömul. Sumirráðherrarnireru enn á „stuttbuxunum", viðvaning- ar í starfi og varla búnir að átta sig á viðfangsefnum sínum. Vilja þó bera sig mannalega, vera í sviðs- Ijósinu og láta Ijós sitt skína, þó með misjöfnum árangri verði. í kvöld (5/8) var í fréttatíma Sjónvarpsins rætt við nýbakaðan, sjálfskipaðan fjármálaráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, unt ríkisfjármál og skattheimtu. Greinilegt er að maðurinn vissi lítið og hafði ekki mikið að segja um þau mál. Hitt varð þó Ijóst, og þurfti engum að koma á óvart, að Jón Baldvin ráðherra stendur í harðri samkeppni við Jónas Krist- jánsson, ritstj. DV um að kasta skít í íslenska bændur og ófrægja þá með stöðugu japli um að bænd- ur séu ómagar á þjóðarbúinu og helsta orsök þeirra fjárhagsvand- ræða, sem þjóðin og fjármálaráð- herra á við að glíma. Þeir standi í vegi fyrir að hann geti sýnt fjár- málasnilli sína og rétt við hag ríkissjóðs og landsmanna. Þjóð- arnauðsyn beri til að ganga enn meira á rétt þeirra og tilvcru en gert hefur verið og fyrir liggur. Verslunarhallir upp á hundruð milljóna og fjöldi heildsala fer hins vegar ekki fyrir brjóstið á þessum forsvarsmanni alþýðunnar. í samkeppni þessara hugsjóna- manna frjálshyggjunnar er erfitt að meta hverjum veitir betur. Hér verður ekki úr því skorið, svo margt er Ifkt með þeim. Báðir ræða þeir þessi mál af kergjufullu ofstæki, án þess að þeir geri sér grein fyrir hvað þeir eru að segja, eða afleiðingum orða þeirra ef mark væri á þeim tekið. Með nokkrum rétti er hægt að segja, að þjóðardómur hafi gengið yfir málflutning þeirra í síðustu kosningum, og þá ekki síður í stjórnarmyndunarviðræðunum að kosningum loknum. Hefur Jón Hannibalsson sjálfur lýst best þeim dómi í umræðum um þau mál, þar sem hann taldi sig aðeins hafa hálfan sinn eigin flokk til stuðnings við sérskoðanir sínar, um aðför að bændum og umsömdum hagsmun- um þeirra. Greinilegt er að Jón Baldvin er gramur yfir að honum skyldi ekki takast að komast í stjórnarsæng með Sjálfstæðisflokknum einum að loknum kosningunum, eins og hann stefndi að, og ná með því aðstöðu til að ógilda þá samninga, sem Jóni Helgasyni landbúnaðar- ráðhen a tókst að gera í tíð fyrrver- andi ríkisstjórnar fyrir kosningarn- ar. Varla þurfa menn að efast um hvernig hcfði farið ef sá óska- draumur hefði ræst. Bændur hefðu þá varla átt nokkurn tilverurétt. En það fór sem fór um fylgi Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis- flokks, þar um geta formenn þeirra flokka sjálfum sér um kennt. Yfir þessu er Jón Baldvin argur. Því notar hann hvert tækifæri sem honum gefst til að kasta skít í bændur og tilverurétt þeirra með líkum hætti og hann gerði í þessum kvöldfréttatíma. Það er nokkur huggun og vörn í því, að þessi ummæli Jóns Baldvins eru álíka marktæk og mörg önnur ummæli hans fyrr og síðar um margvísleg málefni, og hafa orðið honum til lítils sóma, og hann orðið að kyngja sér til háðungar. Það er illa farið að hafa slíkan mann að ráðherra og flokksform- ann, sem notar slík vopn til að breiða yfir úrræðaleysi sitt á sínu verksviði. - Ætlist hann til að tekið verði mark á honum í embætti sínu þyrfti hann að leggja niður þennan óvanda. gæ kvöldi 5/8 Guðmundur P. Valgeirsson

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.