Tíminn - 11.09.1987, Page 11
Föstudagur 11. september 1987
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
íslandsmótið í knattspyrnu, 2. deild:
Dregur til tídinda
- Þróttur og Leiftur leika fyrri úrslitaleik deildarinnar í kvöld
Þróttur Reykjavík og Leiftur
Ólafsfiröi leika í kvöld fyrsta leik
lokaumferðar íslandsmótsins í
knattspyrnu, 2. deild. Leikurinn
ræður úrslitum um hvort þessara
liða leikur í 1. deild að ári en leikar
geta reyndar farið svo að hvorugt
þeirra komist upp. Staðan á toppi 2.
deildar er ótrúlega margslungin og
ræðst ekki cndanlega fyrr en eftir
leik Víkinga og Selfyssinga á sunnu-
daginn hver af þcssum fjórum liðum
það verða sem hreppa 2. deildarsæt-
in tvö.
Það voru Leiftursmenn sem höfðu
betur þegar liðin áttust við í fyrri
umferðinni, skoruðu þrjú mörk gegn
engu á mölinni fyrir norðan. Að-
stæður eru .allar aðrar núna, leikið
verður á heimavelli Þróttara við
Sæviðarsund þar sem er gras og að
auki mun stærri völlur en á Ólafs-
firði. Hvort það kcmur Þrótturum til
góða kemur í ljós þegar leikurinn
hefst í kvöld kl. 18.00 en hitt er víst
að bæði lið leggja allt í sölurnar til
að sigra.
Forráðamenn beggja liða voru
þokkalega bjartsýnir þegar Tíminn
hafði samband við þá í gær og eins
og Gunnlaugur Jóhannsson stjórnar-
maður í knattspyrnudeild Þróttar
orðaði það þá „þýðir ekkert annað
en að vinna þó við séum kannski'
svolítið smeykir. En við ætlum að
vinna.“ Þorsteinn Þorvaldsson for-
maður knattspyrnudeildar Leifturs
tók í sama streng en bætti því við að
Leiftursliðið væri rey ndar þegar búið
að ná takmarki sínu í sumar sem
hefði upphaflega verið að halda sæti
sínu í 2. deild.
í Þróttarliðið vantar nokkra fasta-
menn, Sigurður Hallvarðsson aðal
Fjórðungur
bæjarbúa
kemur
Af samtölum Tímans við Ólafs-
firðinga í gær má ráða að mjög
margir heimamanna ætla að
bregða sér suður yfir heiðar til
fylgjast með síðasta og mikilvæg-
asta leik Leifturs á keppnistíma-
bilinu. Búist er við að ríflega
fjórði hver bæjarbúi af um 1200
Ölafsfirðingum hyggist leggja
leið sína suður og fylgjast með
leiknum við Þrótt á grasvellinum
við Sæviðarsund í Reykjavík. Svo
rammt hefur kveðið að áhuga
knattspyrnuáhangenda á Ólafs-
firði að jafnvel vanfærar konur á
síðasta degi meðgöngunnar hala
þurft mildar fortölur til sitja
heima, á meðan „strákarnir
keppa við Þrótt“. En það eru
fleiri sem ÆTLA SUÐUR.
Nokkuð hefur verið um frí í
vinnu og einstaka menn hafa selt
veiðileyfin sín svo eitthvað sé
nefnt.
Veðurguðirnir eru Ólafsfirð-
ingum ekki hliðhollir, ef marka
má hvernig viðraði í gær fyrír
norðan. Aurskriður og grjóthrun
í Múlanum var svo mikið að
vegagerðarmenn réðu ekki við
neitt. Rigningar svo líktist synda-
flóðinu leystu jarðveg og björg úr
Ólafsfjarðarmúlanum svo buldi á
vegarstæðinu. Ekki þurfa leik-
menn Leifturs þó að örvænta um
áhangandaleysi í kvöld, þar sem
Lágheiðin yfir í Fljót er fær og
ætli menn sér, komast þeirsuður.
Ólafsfirðingar eru þekktir fyrir
að láta í sér heyra á vellinum og
verður svo ábyggilega i kvöld
þegar þessi tvö ágætu lið leika í
Reykjavík til úrslita um fyrstu-
deildarsæti að árí. -ES
markaskorari liðsins er í leikbanni
og þeir Nikulás Jónsson og Atli
Helgason eru meiddir. Forráða-
menn Þróttar höfðu samband við
Pál Ólafsson sem lék nokkra leiki
með Þróttarliðinu í fyrra áður en
hann snéri sér alfarið að handboltan-
um í Þýskalandi. Ekki varorðið ljóst
þegar þetta er skrifað hvort Páll
kæmist til leiks en það átti að komast
á hreint seint í gærkvöldi. Koma
Páls gæti orðið Þrótturum styrkur og
þá kannski allt eins mikill andlegur
styrkur. Leiftursmenn mæta til leiks
með sitt sterkasta lið, eitthvað er um
smávægileg meiðsl en enginn fasta-
maður frá vegna þeirra. Leikurinn
hefst sem fyrr sagði kl. 18.00 á
Þróttarvellinum og þarf varla að
efast um að áhorfendur verða fjöl-
margir, Ólafsfirðingar og Þróttarar
auk Selfyssinga og Víkinga því úrslit
þessa leiks skipta þá einnig miklu
máli. -HÁ
Staðan í 2. deild
Víkingur.................... 17 10 2 5 32-24 32
Leiftur .................... 17 8 5 4 30-21 29
Selfoss..................... 17 8 5 4 33-25 29
Þróttur..................... 17 9 1 7 34-29 28
UBK......................... 17 8 2 7 29-21 26
ÍBV......................... 17 6 5 6 30-28 23
ÍR.......................... 17 7 4 6 30-28 25
KS ......................... 17 6 4 7 27-29 22
Einherji ................... 17 5 4 8 19-30 19
ÍBÍ ........................ 17 2 0 15 20-49 6
Ólafsfirðingar voru kátir um þetta leiti í fyrra en þá sigruðu þeir í 3. deildinni. Nú er sú staða komin upp að
þeir geta sigrað í 2. deildinni en 4. sætið er jafn stutt undan og ræðst ekki fyrr en á sunnudag hvað úr verður.
Körfuknattleikur, EM í Sviss:
„Erum tilbúnir í slaginn
á móti danska landsliðinu“
- Segir Einar Bollason landsliðsþjálfari. íslendingar töpuðu fyrsta leiknum
stórt eins og var reyndar búist við
íslenska landsliðið í körfuknatt-
leik tapaði fyrir franska landsliðinu
með 63 stigum gegn 104 í fyrsta leik
liðanna á EM í körfuknattleik í Sviss
í gærkvöldi. Fyrirfram var búist við
álíka úrslitum þar sem franska liðið
er mjög sterkt, hefur t.d. keppt bæði
á heimsmeistaramóti og ólympíu-
leikum og var Einar Bollason lands-
liðsþjálfari alls ekki óhress eftir
leikinn. „Við ákváðum strax og við
sáum hvernig leikurinn myndi þróast
að hvíla okkar sterkustu menn,“
sagði Einar. „Pálmarspilaði til dæm-
is í 12 mínútur og ívar 13 svo
leikurinn hvíldi að mestu á herðum
varaliðsins."
Jón Kr. Gíslason var stigahæstur
íslensku leikmannanna í gærkvöldi
með 13 stig, Guðni Guðnason og
Birgir Mikaelsson gerðu 10 stig hvor
og Jóhannes Kristbjörnsson 8 en
aðrir minna. Það segir kannski ýmis-
legt um uppstillingu liðsins að Pálm-
ar Sigurðsson og Torfi Magnússon
skoruðu hvorugur stig.
Danir og Svisslendingar léku
einnig í gærkvöldi og fóru leikar svo
að Svisslendingar gerðu 93 stig gegn
86 stigum Dana. Þær tölur gefa þó
varla rétta mynd af leiknum, yfir-
burðir Svisslendinga voru meiri en
það og fór munurinn mest í 23 stig.
Svisslendingar voru yfir allan tímann
og eru með sterkara lið en reiknað
var með. í liði þeirra eru m.a. tveir
Bandaríkjamenn sem hafa fengið
svissneskan ríkisborgararétt.
fslenska liðið leikur gegn því
danska á morgun. „Leikurinn við
Danina er leikur sem stendur allt og
fellur með. Við eigum með góðum
leik að geta unnið þá, spurningin er
bara hvort liðið hittir á góðan dag,“
sagði Einar. „Liðið er í sjálfu sér
mjög tilbúið, sigurinn gegn Belgum
um daginn var mjög góður móralskt
séð og þessi leikur í dag hafði engin
áhrif á okkur, við vissum alveg að
hverju við gengum þar.
Við erum alveg tilbúnir í slaginn á
móti Dönum, þeir þurftu að spila
hörkuleik en okkar menn koma
hvíldir í slaginn," sagði Einar Bolla-
son að lokum.
Tvö efstu liðin í riðlinum fara
áfram í aðalkeppnina en í riðlinum
leika eins og að ofan má sjá íslend-
ingar, Frakkar, Danir og Svisslend-
ingar. -HÁ
Guðni Guðnason skoraði 10 stig gegn franska landsliðinu.
Molar
Gunthör fær
verðlaunin
sín aftur
Svissneski hcinismethafinn í
kúluvarpi karla, VVerner
Gúnthör, fær nýjan verðlauna-
pening fyrir sigurinn i greininni á
HM í Róm. Vcrðlaunapeningn-
uin sem hann fékk á mótinu var
stolið rétt áður en hann hélt heim
til Sviss en aðstandendur mótsins
hafa lofað að útvega Gúnthör
nýjan og jafn góðan verölauna-
pening. Sá „gainli“ hefur ekki
fundist þrátt fyrir leit lögreglu og
öryggisvarða.
Wentzyfirí
nýja grein
V-Þjóðverjinn Sigfried Wentz,
silfurverðlaunahafi í tugþraut á
HM í Róm hefur keppni í nýrri
íþróttagrein síðar í þessum inán-
uði. Wentz hyggst keppa ásamt
þremur öðrum á bobsleða og
bendir allt til þess að hann keppi
fyrir þjóð sína á vetrar- jafnt sem
sumarólympíuleikunum á næsta
ári. Fyrsta keppni Wentz á fjög-
urra manna bobslcöa verður í
Königssee 27. september. Stýri-
maður sleðans verður Hans Ang-
erer sem hlaut bronsverðlaun í
greininni á heimsmeistaramóti
unglinga í fyrra.
Styrkur og hraði tugþrautar-
manna er velþeginn í bobslcöa-
keppni því ýta þarf sleðanum af
stað af sem mestum krafti. Þess
má geta að a-þýsku ólympíu- og
heimsmeistararnir í bobsleða-
keppni, Wolfgang Hoppe og Di-
etmar Schaucrhammcr eru báðir
fyrrum tugþrautarmcnn.
Fjölþrauta-
mót hjá HSK
Héraðssambandið Skarphéð-
inn (HSK) heldur um helgina
fjölþrautamót í frjálsum íþróttum
og fer keppnin fram á Selfossi.
Mótið hefst ki. 13.30 laugardag
Qg sunnudag og verður keppt í
sjöþraut kvenna og tugþraut
karla.
Hópferð
Blika
í tilefni af fyrsta Evrópuleik
Brciðabliks í handbolta hefur
stjórn félagsins ákveðiðxað efna
til hópferðar á leikinn við HIK í
Danmörku. Farið verður föstu-
daginrt' 25. september og komið
til baka mánudaginn 28. Áætlað-
ur kostnaður við ferðina' er kr.
20.000.- Innifalið í því er flugfar,
hótelgisting, miði á leik og ferðir
til og frá hótcli á leikstað.
Skráning í ferðina fer fram á
skrifstofu Brciðabliks í síma
43699 að degi til, eða hjá Helgu
Jóhannsdóttur í síma 44161 ,um
kvöld og helgar. Væntanlegir
þátttakcndur eru bcðnir að skrá
sig fyrír miðvikudaginn 16. sept-
ember.