Tíminn - 16.09.1987, Qupperneq 7
Miðvikudagur 16. september 1987
Tíminn 7
Reykjavík:
Færri í Háskóla nn
Stúdentar sem skráðir eru í Há-
skóla Islands nú á haustönn 1987
eru alls 3906, þar af 2056 konur og
1850 karlar. Heildarfjöldi nem-
enda á haustönn síðasta ár var
4365. Reiknað er með að um 300
eldri ncmcndur eigi enn eftir að
skrá sig en þrátt fyrir það munu
færri nemendur stunda nám í H.í.
í vetur en síðasta vetur.
Nýnemar á þessu hausti eru 1484
en á haustönn síðasta ár voru 1767
nýnemar, svo greinileg fækkun er
á nýnemum í skólann.
Skýringa á þessari fækkun í H.í.
er einna helst að leita í öðrum
skólum sem komnir eru á háskóla-
stig, svo sem tölvunarfræði í Versl-
unarskólanum og Háskólanunt á
Akureyri. Pess má geta að á árinu
1967 fæddust 267 færri börn heldur
en árið 1966 en árgangurinn frá
1967 er sá aldur sem líklegastur er
til að hefja nám í H.í. f haust
miðað við að halda beint áfram
námi í háskóla eftir meiintaskóla-
nám. Þar að auki má búast við að
einhverjir sem cru á vinnumarkaði
þctta árið vegna vonar unt skatt-
leysi hyggi á háskólanánt næsta
vetur. Ef það reynist rétt gæti
fjölgað hressilega í skólanum næsta
vetur.
Áþreifanlegasta dæmið um
fækkun nýnema í Háskóla íslands
er tölvunarfræði í Raunvísinda-
dcild en í fyrrahaust sóttu 125
nýnemar nám í deildina. í haust
hafa 58 nýnemar hug á tölvunar-
námi í deildinni. Þar hlýtur
skýringanna m.a. að vera að leita í
tölvunarfræði Verslunarskólans.
97 nýnemar voru í hjúkrunarfræöi
í fyrrahaust en núna sækja 63 um
nám í hjúkrunarfræði, en í Há-
skólanum á Akureyri er einmitt
boðið upp á námsbraut í hjúkrun-
arfræðum. Töluverð fækkun er í
tannlæknadcild, í byggingar- og
rafmagnsverkfræði svo og efna-
vcrkfræði en heldur hcfur fjölgað í
byggingaverkfræði. Erlendum
stúdcntum sem hug hafa á að læra
íslensku hefur cinnig fækkað um
rúmlega hclming, frá 48 nýnemum
síðasta haust í 21 þetta haust.
AIIS
£8»
' .V.\ i
^RVkeoo
tAHVTQht
’sWboo
fÁSKAULMm
11 ára reglugerö úr gildi:
Endurbættar reglur
um merkingu matvæla
fituminna o.s.frv." sagði Jón Gísla-
son, deildarráðunautur hjá Holl-
ustuvernd ríkisins, en þar hafa menn
síðastliðna mánuði verið að vinna aö
nýrri reglugerð um merkingu um-
búða fyrir matvæli.
Fyrri reglugerð er um margt úrsér
gengin, enda orðin 11 ára gömul.
Ákvæðin hafa að niörgu leyti verið
frekar takmörkuð og ekki tekið á
öllum þáttum varðandi merkingar.
“Til dæmis hafa ekki verið til beinar
reglur um það hvernig merkja á
næringargildi. ekki til reglur um
hugtökin, eins og fituminna, lítið
salt og þ.h., sama má segja um
nterkingu aukaefna. Síðan eru að
koma inn nýjar reglur um dagsetn-
ingar t.d. eins og merkingin „best
fyrir“ sem að vísu hefur verið veitt
undanþága til að nota í vissum
tilvikum" sagði Jón ennfremur.
Drögin að nýju reglugerðinni hafa
verið til umsagnar hjá heilbrigðis-
fulltrúum sem hafa skilað inn at-
hugasemdum sínum. Drögin liggja
nú til umsagnar hjá rannsóknar-
stofnunum og hagsmunaaðilum, en
þeir skila inn athugasemdum sínum
fyrir 10. október. Því má búast við
að endanleg drög að reglugerðinni
liggi fyrir í októberlok.
- SÓL
Blómaval í Reykjavík hcfur stofnað Póstverslun og hcfur þegar hafið
drcifingu utan höfuðborgarsvæðisins á litprentuðum pöntunarlista á haust-
laukum.
Listinn innihcldur 58 tcgundir haustlauka auk leiðbeininga um ræktun
þeirra og er gefinn út í 40 þúsund eintökum. Póstur og sími sér um dreifingu
listans.
%XSILAUKAR
mmi
O
f)
E^ZVERSLIIM
Blómaval:
Póstverslun með blóm
Vetur konungur knýr á dyr
Eftir fádæma gott sumar er vetur
konungur nú farinn að knýja á dyr,
stax um miðjan september. Árris-
ulum Sunnlendingum brá í brún í
gærmorgun þegar þeir litu út um
gluggann því þá lá nær sjö sentí-
metra jafnfallinn snjór yfir jörð-
inni. Hann tók þó upp þegar líða
fór á morguninn. Það sama var
uppi á teningnum í lágsveitum
Borgarfjarðar, þar var hvít jörð
um stund snemma í gærmorgun,
en jörð tók fljótt að grána og þessi
fyrsti vottur vetrarins hvarf skjótt
á braut. Þá hefur snjóað allnokkuð
á heiðum víða og í fjöll, til að
mynda er Esjan orðin hvít niður í
miðjar hlíðar. Vegagerðin hefur
nú dustað sumarrykið af snjóruðn-
ingstækjunum því það gerði él á
Hellisheiði í fyrrakvöld og fyrrinótt
svo vegagerðin þurfti aðeins að
taka þar til í gærmorgun.
- HM
„Þetta eru drög að nýrri reglugerð
um merkingar untbúða fyrir mat-
væli. Um er að ræða almennar reglur
um merkingar, eins og t.d. geymslu-
þolsmerkingar, geymsluskilyrði,
innihaldslýsingar, nettóþyngd og
frávik þar um, næringargildi og hug-
tök eins og sykurlaus, koffeinlaus,
Borghreppingar fá
vatn úr Borgarnesi
RF og Hafró:
Opið hús
I tilefni af hálfrar aldar afmæli
rannsókna í þágu atvinnuveg-
anna verða rannsóknastofnanir
sjávarútvegsins, Hafrannsókna-
stofnun og Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins opnar almenningi
frá klukkan 10 - 16 föstudaginn
18. september nk.
Þann dag, árið 1937, tók At-
vinnudeild háskólans til starfa í
nýju húsnæði á háskólalóðinni.
Atvinnudeildin skiptist í Fiski-
deild, Iðnaðardcild og Búnaðar-
deild. Með lögum frá 1965 var
Atvinnudeild háskólans lögð
niður, en Rannsóknastofnanirat-
vinnuveganna tóku við hlutverki
hennar.
Á föstudagin kemur munu
starfsmenn Hafrannsóknastofn-
unar og Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins taka á móti gestum
í anddyrinu að Skúlagötu 4 og
sýna þeim stofnanirnar og skýra
þá starfsemi sem þar fer fram í
máli og myndum. - SÓL
Ef vel 'gengur ætti einhvers staðar
að heyrast í vatni um mánaðamótin"
sagði Þórólfur Sveinsson á Ferj-
ubakka í Borgarhreppi í Mýrasýslu
en þar er verið að leggja vatnsveitu
frá Borgarnesi á jarðirnar milli Holts
og Eskiholts, alls þrettán bæi.
Þórólfur sagði að á þessum jörð-
um hefði vatnsskortur verið viðvar-
andi vandamál þegar þurrkar hafa
gengið og eins á frostaköflum yfir
veturinn. Ástandið haustið 1985
hefði verið slæmt, en í sumar hafi
allt keyrt um þverbak og ástandið
verið verra en nokkru sinni. Því
hefði verið nauðsyn að leysa þetta
vandamál.
Borghreppingar fá vatnið úr
vatnsgeymum Borgnesinga sem dæla
því úr jörðu á Seleyri við Borgarnes.
Vatnið er látið renna upp að Holti í
safntank sem þar er og síðan er því
dælt á bæina. Borghreppingar sjá
síðan sjálfir um að halda þrýstingi á
kerfinu innan hreppsins.
Kostnaður við verkið mun verða
liðlega fjórar milljónir króna og
sagði Þórólfur þá Borghreppinga
vonast til þess að með þessum fram-
kvæmdum verði vatnsmál í hreppn-
um leyst til frambúðar.
- HM