Tíminn - 16.09.1987, Side 16
16 Tíminn
Miðvikudagur 16. september 1987
E
LANDSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar hér meö eftir tilboöum í
jarðvinnu vegna nýrrar stjórnstöðvar viö Bústaða-
veg í Reykjavík í samræmi viö útboösgögn nr.
0202.
Útboösgögn veröa afhent frá og meö þriðjudegin-
um 15. september á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, Reykjavík, gegn óafturkræfu
gjaldi að upphæö kr. 1500.
Áætlaðar magntölur eru um 4600 m3 af sprengdri
klöpp, um 3200 m3 af lausum uppgreftri, um 1200
m3 af fyllingu og um 400 m3 af riftækum jarðvegi
auk frárennslislagna, giröingar o.fl.
Miðað er við að verkið geti hafist 10. október n.k.
og að því verði lokið fyrir 4. desember nk.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, Reykjavík, föstudaginn 2. okt-
óber 1987 fyrir kl. 10.30, en tilboðin verða opnuð
þar sama dag kl. 11.00 að viðstöddum bjóðendum.
Reykjavík 15. september 1987.
Verslunarstjóri
Við óskum eftir að ráða verslunarstjóra fyrir
aðalverslun félagsins á Hvolsvelli.
Starfiðfelur í séralmennaverslunarstjórn, innkaup
og fleira.
Leitað er að manni með staðgóða reynslu og
þekkingu á starfinu.
Umsóknir er greini aldur menntun og fyrri störf,
sendist kaupfélagsstjóra eða starfsmannastjóra
Sambandsins, sem veita frekari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 25. þessa mánaðar.
Kaupfélag Rangæinga
Hvolsvelli
lllllllllllllllllllillllllll DAGBÓK
UNM-hátíðin:
Tónleikar í Tónlistarskólanum
ídag
- og á Hótel Borg í kvöld
Kl. 16:30 í dag verða tónleikar á vegum
UNM-hátíðarinnar í Tónlistarskólanum í
Reykjavík.I'ar verða leikin verk eftir
Curt Wrangö, Duetto- fyrir tvær fiðlur.
Flytjendur eru Hildigunnur Halldórsdótt-
ir og Margrét Kristjánsdóttir. Þá er leikið
Mod Lyset eftir Christina Wagner Smitt,
en það er leikið á tvö píanó. Höfundur
leikur og Jacob Lökkegard. Næst er Við
brúna, einleiksverk á fiðlu eftir Helga
Pétursson og Mandala eftir Rolf Wallin,
sem leikið er af fjórum flytjendum á
píanó og ásláttarhl jóðfæri.
Helgi Pétursson er fæddur 1962 á Húsa-
vík.Hann lauk 4. stigi í orgelleik frá
Tónlistarskóla Hásavíkur, en stundaði
siðar nám við Tónlistarskólann ■ Reykja-
vík og útskrifaðist úr Tónmenntakenn-
aradeild, síðan úr Tónfræðadeild, auk
þess sem hann lauk 8. stigi í orgeileik
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180
Jörð óskast til kaups
Ýmsar jarðir koma til greina, æskilegt að einhver
hlunnindi fylgi. Til greina kemur að láta íbúð upp í
kaupverðið.
Upplýsingar sendist afgreiðslu blaðsins merkt -
Jörð 600.
Frjótæknir
Búnaðarsamband Snæfellinga auglýsir laust starf
frjótæknis á sunnanverðu Snæfellsnesi. Um er að
ræða hlutastarf, og þarf umsækjandi að geta hafið
störf um næstkomandi áramót.
Upplýsingar gefur Guðbjartur í síma: 93-56665
■
I
Bíimm
Útibú í kringum landið
REYKJAVIK:.. 91-31815/686915
AKUREYRI:.. 96-21715/23515
BORGARNES:........ 93-7618
BLÖNDUÓS:.... 95-4350/4568
SAUÐARKROKUR: . 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR: ... 96-71489
HUSAVIK: .. 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ....... 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: . 97-3145/3121
FASKRUÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: . 97-8303
interRent
Kjartan Ólafsson er fæddur 1958. Hann
stundar nú nám í tónsmíðum við Síbelíus-
ar-tónlistarháskólann hjá Einojuhani
Rautavara.
Hótel Borg kl. 20:30
Kl. 20:30 í kvöld verður UNM-hátíð
haldið áfram á Hótel Borg. Þar verður
m.a. leikið „Funken-Funga“ eftir Svend
Hcdegaard, sem er verk fyrir 3 gítara.
Svend Hedegaard er danskur, f. 1959 í
Sönderborg. Hann hefur starfað sem
gítarleikari og tónskáld á sviði djass- og
rokktónlistar, en undanfarið lært tón-
smíðar.
Eftir íslendinga verða flutt verkin Ent-
clechy, eftir Þorgrím Pál Þorgrímsson og
Listen to the Geiger Chicken eftir Þórólf
Eiríksson og síðast á dagskránni er Til-
brigði við rafmagn eftir Kjartan Ólafsson.
Mörg önnur verk verða flutt á Borginni,
svo sem Brass sextet eftir Danann Lars
Klit.
Breyttur opnunartími
sundlauga:
Sundlaugar í Laugardal eru opnar
mánud.-föstud. kl. 07:00-20:00, laugar-
daga 07:30-17:30 og sunnudaga 08:00-
15:30.
Sundlaug Vesturbæjar er opin mánu-
dag-föstud. kl. 07:00-20:00, laugardaga
07:30-17:30 og sunnudaga 08:00-15:30.
Sundhöll Reykjavíkur cr opin mánud,-
föstud. kl. 07:00-19:30, laugardaga 07:30-
17:30 og sunnudaga 08:00-13:30.
Sundlaug Fjölbrautarskólans í Breið-
holti er opin mánud.-föstud. kl. 07:20-
09:30 og 16:30-20:30, laugardaga 07:30-
17:30 og sunnudaga 08:00-15:30.
ÍSLMNGAR
íslendingar
SAMTAKA NÚ
Út er kominn bæklingur með ofan-
greindu nafni, en fyrir neðan titilinn
stendur: Gerum öll aðeins betur.
Iðntæknistofnun íslands er fram-
kvæmdaraðili. en þetta er samstarfsverk-
efni Landssambands iðnaðarmanna, lðn-
tæknistofnunar (slands, Landssambands
iðnverkafólks, Alþýðusambands Islands.
Félags íslenskra iðnrekenda og iðnaðar-
ráðuneytisins.
Markmiðið er að fá Iandsmenn til að
stuðla að aukinni framlciðni í atvinnulíf-
inu og auka nýtingu, forðast sóun.bæði á
tíma og peningum og hvatt er til aukinnar
sjálfvirkni, tækni og þekkingar í stjórnun
og skipulagningar.
Við þökkum, börnum okkar, tengdabörnum, fóstur-
börnum, barnabörnum, frændum og vinum fyrir
vinskap þann sem þiö sýnduö okkur á 60 ára
brúðkaupsdegi okkar 10. sept. s.l., meö heimsókn-
um, heillaskeytum, blómum, símtölum, hlýjum hand-
tökum og Ijóði, sem gerði okkurdaginn ógleymanleg-
an. Viö minnumst þess með gleði ævina á enda.
Guð blessi ykkur öll.
Inga Eiríksdóttir
Davíð Sigurðsson.
Framsóknarfólk Austurlandi
28. kjördæmisþing framsóknarmanna á Austurlandi veröur haldiö á
Hótel Höfn, Hornafirði dagana 9. og 10. október nk. og hefst kl. 20.00.
Nánari upplýsingar í síma 97-11584.
KSFA
ABC
Barna- og tómstundablað
Barna- og tómstundablaðið ABC,
málgagn Bandalags íslenskra skáta, 5.
tbl. 8. árg. cr nýkomið út.
I blaðinu eru sögur og viðtöl, þrautir og
föndur og ýmislegt annað efni. Sagt er frá
stelpum í Garðabæ sem áttu 22 kanínur.
Látúnsbarkinn" er kynntur. Myndasög-
urnar eru á sínum stað, smáskrýtlur o.fl.
Ritstjóri er Margrét Thorlacius.
Þroskahjálp
Tímaritið Þroskahjálp 3. tölublað þessa
árgangs er komið út. Útgefandi er Lands-
samtökin Þroskahjálp. Að venju eru í
ritinu ýmsar greinar, viðtöl. upplýsingar
og fróðleikur um málefni fatlaðra.
Sem dæmi má nefna grein um alvarlega
vangefna, grein um ríkt líf eða óvirka
tilveru og viðtal við foreldra 15 ára
gamals þroskahefts drengs. Greint er frá
heimsókn í umræðuhóp þroskaheftra.
þar sem rætt er um lífið og tilveruna, en
nokkrir slíkir hópar starfa á vegum
Þroskahjálpar.
í heftinu er fjallað um Alzheimer
sjúkdóm og Downs syndróm og Ijósi
varpað á rannsóknir sem sýna tengsl þar
á milli.
Þá eru fastir pistlar, svo sem kynning á
nýjum bókuni og fréttir af starfi samtak-
anna, og sagt frá því hclsta sem Lands-
samtökin Þroskahjálp vinna að hverju
sinni.
Tímaritið Þroskahjálp kemur út fimm
sinnum á þessu ári. Það erscnt áskrifend-
um og er til sölu á skrifstofu Þroskahjálp-
araöNóatúni 17, 105 Reykjavík. Ritiðer
einnig hægt að fá keypt í bókabúðum og
á blaðsölustöðum.
Áskriftarsíminn er 91-29901.
Frá Indversku barnahjálpinni
Aö gefnu tilefni vill Indverska barna-
hjálpin taka fram, aö reikningsnúmer
hennar er 72700, sparisjóösreikningur í
Búnaöarbanka, Austurbæjarútibúi.
Gjaldkeri nefndarinnar er Ármann Jó-
hannsson, kaupmaöur í Jasmín.
Formaöur nefndarinnar, Þóra Einars-
dóttir, er á förum til Indlands um mánaöa-
mótin, og hyggst aö dvelja í Suður-Ind-
landi í 6 mánuöi til aö vinna aö verkefni
nefndarinnar.
Símar hjá form. nefndarinnar, Þóru
Einarsdóttur, eru: í Hverageröi 99-4683
og í Reykjavík 91-16442.
AAogAL-ANON
-á Egilsstöðum
Samtökin á Egilsstöðum hafa símsvara
allan sólarhringinn. Síminn er 97-11972
Breyting á opnunartíma
Árbæjarsafns
Árbæjarsafn er opið um helgar í sept-
embermánuði kl. 12-30-18.00.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opið alla daga nema mánudaga kl.
14-18. Sími 52502.