Tíminn - 22.09.1987, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 22. september 1987
Tíminn 3
Ellefu þúsund manns á
sjávarútvegssýninguna
íslenska sjávarútvegssýningin,
sem hófst á laugardaginn, hefur
tekist mjög vel, og hafa ellefu
þúsund manns þegar séð sýning-
una.
Sýningaraðilar eru 460, þar af
130 íslenskir, og er sýningarsvæðið
rúmir 5.400fermetrar. Laugardals-
höllin ein rúmaði ekki slíka stór-
sýningu, og því voru reist tvö
risatjöld við hlið hennar, auk úti-
sýningarsvæðis.
Við opnun sýningarinnar var
margt fyrirmenna, svo sem Halldór
Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra, kollegi hans frá Danmörku,
Lars P. Gammelgaard, Davíð
Oddsson, borgarstjóri, borgar-
stjórinn í Grimsby, borgarstjórinn
í Hull, Jón Baldvin Hannibalsson,
fjármálaráðherra og Þorsteinn
Pálsson, forsætisráðherra, auk
fjölda annarra gesta.
Fjölbreytileikinn á sýningunni
er með ólíkindum. Tíminn kom
við á sýningunni og skoðaði.
í bás C40 er Marel. Þar er kynnt
athyglisverð nýjung. Það er eitt
fjölhæfasta skipaflokkunarband
sem um getur, og er að öllum
líkindum hið eina sinnar tegundar
í heiminum. Það er tölvustýrt og
flokkar fiskinn eftir þyngd í hvaða
veðri sem er. Auðvelt er að stilla
flokkunarmörk og miða við kíló,
grömm, pund eða únsur. Þar að
auki getur það flokkað í skammta
og er skammtastærðin stillanleg
fyrir hvern flokk. Fjöldi, meðal-
þyngd stykkja og heildarþyngd í
flokki er skráð sjálfvirkt, einnig
nafn hráefnis í flokkunarhóp og
heildarþyngd. ■ Skipaflokkunar-
bandið annar allt að 60 stykkjum á
mínútu á sjó og er alíslensk
hönnun, allt frá smíði til hönnunar
hugbúnaðar.
Flokkunarbandið er mjög nýtt.
Síðustu hlutarnir runnu saman í
síðustu viku og er það til sýnis og
reynslu á sýningunni. Verðið er
lágt, aðeins 1,5 milljónir. Tækið cr
tengt við PC tölvu, eða lyklaborð.
Marel býður einnig upp á mikið
úrval voga, frystihúsakerfa, flokk-
unarvoga, fiskateljara, stýriein-
inga, netstöðva og skráningar-
stöðva.
Á sjávarútvegssýningunni í gær
voru m.a. þrír franskir herramenn
að kynna sjávarútvegssýningu i
Frakklandi á næsta ári. Þetta voru
þeir Remoleux, forseti Verslunar-
ráðs Boulogne, Lengagne, fyrrver-
andi sjávarútvegsráðherra Frakk-
lands og núverandi borgarstjóri
Boulogne, og Le Boucq. Þessir
menn eru allir í lykilstöðum í
borginni Boulogne, sem er nyrst í
Frakklandi. I máli þeirra kom m.a.
fram að sýning þeirra yrði talsvert
stærri en þessi. Færi hún fram í
stóru vöruhúsi við höfnina, sem er
10.000 fermetra stórt og verður
lögð mikil áhersla á hlið sjávar-
afurðanna. Þ.e.a.s. hvað verður
um fiskinn, hvernig hann er unninn
og í hvernig vélum. Sögðu þeir
tímasetninguna á sýningunni mjög
góða, enda hraðar og miklar tækni-
framfarir í gangi í Boulogne núna.
Boulogne er mesta sjávarút-
vegspláss Frakklands. 250.000
tonn af alls kyns fiski fara þar um
á ári hverju, þaraf 85.000 tonn sem
veidd eru af frönskum bátum.
Þeir sögðu ísland mjög mikil-
vægt land fyrir franskan fiskiiðnað,
enda keyptu þeir nokkuð magn af
íslenskum fiski. Stefnt er að árið
1988 flytji Frakkar inn 30.000 tonn
af fiski frá íslandi. Bentu Frakk-
arnir á að Boulogne gæti orðið
mikilvægur söluaðili fyrir íslenskan
fisk, enda lykilstaður fyrir sölu til
Suður Evrópu.
Á sýningunni hefur berlega
komið í ljós hversu ísland cr mikil-
vægt og stórt land í sjávarútvegi.
Mikill áhugi erlendis hefur verið á
sýningunni og hingað hafa komið
erlendir kaupendur og sjómenn,
gagngert til að skoða þróun ís-
lensks sjávarútvegs.
Næsta sjávarútvegssýningin
verður haldin eftir þrjú ár, eða árið
1990.
lslensku sjávarútvegssýningunni
lýkur á morgun. -SÓL
Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráðherra
opnaði sýninguna á
laugardaginn og er ræða
hans birt hér í blaðinu.
Þrír borgarstjórar mættu á
sjávarútvegssýninguna,
borgarstjórarnir í Reykjavík,
Hull og Grimsby. Fór vel á
með þeim féiögunum og
fylgdust þeir að mikinn hluta
sýningarinnar.
EUROPt'S FOOD TOWN
matvæia bær evropu
RIMSB
REAT
Þorsteinn Páisson spurði margs um vélarnar á sýningunni og sýndi málinu mikinn
áhuga. Ekki fylgir þó með um hvað Þorsteinn var að spyrja.
Mikil sala er á tækjum á sýningunni. Seldur, seldur, seldur, stendur á hverju tækinu
á eftir öðru. Af þremur krönum til sýnis hjá Gróttu, var aðeins einn eftir óseldur. Þú
getur kannski keypt hann í dag!