Tíminn - 22.09.1987, Blaðsíða 9

Tíminn - 22.09.1987, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 22. september 1987 Tíminn 9 fremst má rekja til breytinga á afkomu sjávarútvcgs og fisk- vinnslu. Þctta er að mörgu leyti séreinkenni íslcnsks efnahagslífs sem við verðum að kunna að búa við. Hinar miklu tækniframfarir síð- ustu ára hafa sannarlega ekki megnað að eyða sveiflum í íslensk- um þjóðarbúskap. Engu að síður gerir tæknin okkur æ betur kleift að vita fótum okkar forráð og bregðast við öfug þróun í tíma ef rétt er á haldið. Hátt tækni- og þekkingarstig kemur því aðeins að gagni að stjórnun og skipulagning sé samstíga tækniframförum. Hér vakna áleitnar spurningar, eins og hvort tækniþekkingin sem slík sé vaxin okkur yfir höfuð og orðin vandamál vegna þess að geta okkar í stjórnun fiskveiða hafi ekki verið samstíga. Á t.d. hin mikla tækni- væðing í fiskvciðum að einhverju leyti sök á þeirri óánægju sem oft kemur fram vegna takmörkunar aflamagns? Að finna fiskgöngur með fullkomnum leitartækjum, án Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs- ráðherra, lýsir yfir opnun sjávarút- vegssýningarinnar. Tímamynd Bjarni þess að mega veiða, hlýtur oft að taka á taugar vaskra sjómanna. Þctta er mergur málsins. Tækni- framfarir leysa ákveðin vandamál, en jafnframt eru okkur auknar skyldur lagðar á herðar með hlið- sjón af stjórnun og réttlæti. Tæknin leggur ekki einungis hverju landi auknar skyldur á herðar, heldur kalla aðstæður nútímans einnig á stóraukna alþjóðlega samvinnu við verndun hafsins og auðlinda þess. Ofveiði og mengun eru alræmdir fylgifiskar tæknivæðingar og lífs- gæðakapphlaups iðnríkjanna. Það væri verðugt viðfangsefni stórveld- anna að taka höndum saman um mengunarvarnirogbætt lífsskilyrði í hafinu á svipaðan hátt og unnið hcfur verið að afvopnunarmálum. íslendingar höfðu búið nær eitt þúsund ár í landinu áður cn útgerð hófst scm alvöru atvinnugrein. Á þessari öld hcfur íslcnsk útgerð þróast úr frumstæðri árabátaútgerð í hátækniatvinnuveg, þar scm beitt cr best þckktu aðferöum í líffræði, verkfræði, tölvufræði og markaðs- málum. í dag cr þróunin svo hröð að cinhvcr þau tæki scm hér voru til sýnis haustið 1984 tcljast líklega úrelt eða því sem na»t í dag. Af og til heyrast vangavcltur um mögu- leika á byltingarkenndum breyt- ingum í fiskveiðum, fiskvinnslu og fiskeldi. Til dæmis cr rætt um þá möguleika að fiskvinnsla verði að mestu leyti vélvædd mcð hátækni- búnaði, að fiskvinnsla verði næröll til sjós, að ný gerilsneyðingartækni geri kleyft að flytja nær allan fisk út ferskan o.s.frv. Einnig er rætt um þann möguleika að framfarir í fiskeldi verði svo stórstígar að mikilvægi fiskveiða til að sjá heim- inum fyrir hágæða matvöru muni minnka stórlega í framtíðinni. Öll slík þróun myndi hafa grundvallar- áhrif á íslcnskan þjóðarbúskap. f því sambandi mun aldrei duga að stinga höfðinu í sandinn og bíða, hcldur miklu fremur að fylgjast með, hafa frumkvæði og vera í fararbroddi á okkar sérsviðum. Ég er þess fullviss að íslenska sjávarút- vegssýningin 1987 mun einmitt efla slíkt hugarfar og mun örva fram- þróun í sjávarútvegi og skyldum greinum. Áður cn ég lýk máli mínu vil ég geta þess að í gær, 18. september, var haldin ráðstefna um öryggismál sjómanna. Það er Ijóst hér á sýn- ingunni að ýmsir framleiðendur hafa sýnt öryggismálum vaxandi athygli og náð góðum árangri á því sviði. Þau mál mega aldrei gleym- ast í kapphlaupi okkar um aukinn afla og meiri hagnað af fiskiðnaði. Ég vil að lokum ítreka þakkir mínar til aðstandenda íslensku sjávarútvegssýningarinnar 1987 og lýsi sýninguna opna. Halldór Ásgrímsson VETTVANGUR Stjórnun og skipulagning verði samstíga tækniframförum Ræða Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra, við opnun alþjóðlegu sjávarútvegssýningarinnar Það er mér mikil ánægja að bjóða ykkur öll velkomin til opn- unar þessarar alþjóðlegir sýningar, sem nú er að hefjast hér í Laugar- dalshöll undir nafninu „íslenska sjávarútvegssýningin 1987." Ég vil bjóða sérstaklega velkominn Lars Gammelgárd. sjávarútvegsráð- herra Dana, sendimenn erlendra ríkja, og alla þá scm komið hafa um langan veg til að kynnast þeim nýjungunt sem hér verða til sýnis næstu þrjá daga. Ég vil einnig þakka sérstaklega John Legatc og Patrica Foster hjá Industrial Trade •Fairs International Limited og ís- Ienskum aðstoðarmönnum þeirra, svo og öllum þeim sem með beinni þátttöku eða með öðrum hætti hafa stuðlað að því að sýningin er nú haldin hér á landi í annað sinn. Góður árangur fyrir 3 árum leiddi til þess að ákveðið var að halda sýninguna hér aftur en með mun stærra sniði. Þessi sýning hér í Laugardalshöll cr stærsta sjávarút- vegssýning í heiminum á þessu ári. Islenska sjávarútvegssýningin 1987 er tvisvar sinnuni umfangs- meiri en sama sýning árið 1984. 460 fyrirtæki sýna framleiðslu sína hér, og af þeim cru ekki færri en 130 íslensk. Auk íslenskra fyrir- tækja tóku fyrirtæki frá 10 löndum þátt í sýningunni 1984, en í dageru fyrirtækin frá 21 landi auk Islands. Áð sama skapi hafa um þrisvar sinnum fleiri erlendir gestir boðað komu sínæmiðað við-síðustú sýn- ingú, eða hátt á þriðja þúsund manns frá flestum heimsálfum, m.a. hópur frá Kína. Sú hugmynd að halda sýningu sem þessa hér á landi á 3ja ára fresti í framtíðinni, mun án efa festa ísland í sessi sem alþjóðlega miðstöð þekkingar og nýjunga í sjávarútvegi. Þegar síðasta sýning var haldin voru (dökkar) blikur á lofti í ís- lenskum sjávarútvegi og reyndar í þjóðarbúskapnum öllum. Þorsk- veiðar voru þá í alvarlegri niður- sveiflu þriðja árið í röð, auk þess sem ýmis ytri skilyrði í viðskiptum við útlönd voru óhagstæð. Þá fór að gæta álíka bölsýni hjá mörgum um framtíð íslensks sjávarútvegs eins og verið hafði 15 árum áður í öldudalnum 1967-’68. Á þcim til- tölulega stutta tíma sem liðinn er frá haustdögum 1984 hafa orðið ótrúlega snögg umskipti til hins betra í afkomu íslensks sjávarút- vegs. Kostnaður útgerðarfyrir- tækja hefur lækkað verulcga með þeirri veiðistjórnun sem komið hcfur verið á, jafnframt því sem stuðlað hefur verið að framtíðar- uppbyggingu þorskstofnsins. Til viðbótar hafa máttarvöldin einnig snúist á sveif með okkur á síðustu misserum með bættum ytri skilyrð- um, bæði er tekur til lífsskilyrða í sjónum og ástands á erlendum mörkuðum. Enn á ný er sjávarútvegur og fiskvinnsla helsti vaxtarbroddur ís- lenska þjóðarbúsins og undirstaða betri lífskjara en þjóðin hefur áður þekkt. Ýmsarstoðgreinar útgerðar og fiskvinnslu hafa einnig rutt sér til rúms sem sérstakur iðnaður sem hefur náð stöðugt betri fótfestu á innlendum og erlendum mörkuð- um, cins og þessi sýning vitnar best um. Saga íslenska þjóðarbúsins síðastliðna áratugi hefur einkennst af óvenju miklum sveiflum í gjald- eyristekjum, hagvexti sem fyrst og

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.