Tíminn - 22.09.1987, Page 9
Þriðjudagur 22. september 1987
Tíminn 9
fremst má rekja til breytinga á
afkomu sjávarútvcgs og fisk-
vinnslu. Þctta er að mörgu leyti
séreinkenni íslcnsks efnahagslífs
sem við verðum að kunna að búa
við.
Hinar miklu tækniframfarir síð-
ustu ára hafa sannarlega ekki
megnað að eyða sveiflum í íslensk-
um þjóðarbúskap. Engu að síður
gerir tæknin okkur æ betur kleift
að vita fótum okkar forráð og
bregðast við öfug þróun í tíma ef
rétt er á haldið. Hátt tækni- og
þekkingarstig kemur því aðeins að
gagni að stjórnun og skipulagning
sé samstíga tækniframförum. Hér
vakna áleitnar spurningar, eins og
hvort tækniþekkingin sem slík sé
vaxin okkur yfir höfuð og orðin
vandamál vegna þess að geta okkar
í stjórnun fiskveiða hafi ekki verið
samstíga. Á t.d. hin mikla tækni-
væðing í fiskvciðum að einhverju
leyti sök á þeirri óánægju sem oft
kemur fram vegna takmörkunar
aflamagns? Að finna fiskgöngur
með fullkomnum leitartækjum, án
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra, lýsir yfir opnun sjávarút-
vegssýningarinnar. Tímamynd Bjarni
þess að mega veiða, hlýtur oft að
taka á taugar vaskra sjómanna.
Þctta er mergur málsins. Tækni-
framfarir leysa ákveðin vandamál,
en jafnframt eru okkur auknar
skyldur lagðar á herðar með hlið-
sjón af stjórnun og réttlæti. Tæknin
leggur ekki einungis hverju landi
auknar skyldur á herðar, heldur
kalla aðstæður nútímans einnig á
stóraukna alþjóðlega samvinnu við
verndun hafsins og auðlinda þess.
Ofveiði og mengun eru alræmdir
fylgifiskar tæknivæðingar og lífs-
gæðakapphlaups iðnríkjanna. Það
væri verðugt viðfangsefni stórveld-
anna að taka höndum saman um
mengunarvarnirogbætt lífsskilyrði
í hafinu á svipaðan hátt og unnið
hcfur verið að afvopnunarmálum.
íslendingar höfðu búið nær eitt
þúsund ár í landinu áður cn útgerð
hófst scm alvöru atvinnugrein. Á
þessari öld hcfur íslcnsk útgerð
þróast úr frumstæðri árabátaútgerð
í hátækniatvinnuveg, þar scm beitt
cr best þckktu aðferöum í líffræði,
verkfræði, tölvufræði og markaðs-
málum. í dag cr þróunin svo hröð
að cinhvcr þau tæki scm hér voru
til sýnis haustið 1984 tcljast líklega
úrelt eða því sem na»t í dag. Af og
til heyrast vangavcltur um mögu-
leika á byltingarkenndum breyt-
ingum í fiskveiðum, fiskvinnslu og
fiskeldi. Til dæmis cr rætt um þá
möguleika að fiskvinnsla verði að
mestu leyti vélvædd mcð hátækni-
búnaði, að fiskvinnsla verði næröll
til sjós, að ný gerilsneyðingartækni
geri kleyft að flytja nær allan fisk
út ferskan o.s.frv. Einnig er rætt
um þann möguleika að framfarir í
fiskeldi verði svo stórstígar að
mikilvægi fiskveiða til að sjá heim-
inum fyrir hágæða matvöru muni
minnka stórlega í framtíðinni. Öll
slík þróun myndi hafa grundvallar-
áhrif á íslcnskan þjóðarbúskap. f
því sambandi mun aldrei duga að
stinga höfðinu í sandinn og bíða,
hcldur miklu fremur að fylgjast
með, hafa frumkvæði og vera í
fararbroddi á okkar sérsviðum. Ég
er þess fullviss að íslenska sjávarút-
vegssýningin 1987 mun einmitt efla
slíkt hugarfar og mun örva fram-
þróun í sjávarútvegi og skyldum
greinum.
Áður cn ég lýk máli mínu vil ég
geta þess að í gær, 18. september,
var haldin ráðstefna um öryggismál
sjómanna. Það er Ijóst hér á sýn-
ingunni að ýmsir framleiðendur
hafa sýnt öryggismálum vaxandi
athygli og náð góðum árangri á því
sviði. Þau mál mega aldrei gleym-
ast í kapphlaupi okkar um aukinn
afla og meiri hagnað af fiskiðnaði.
Ég vil að lokum ítreka þakkir
mínar til aðstandenda íslensku
sjávarútvegssýningarinnar 1987 og
lýsi sýninguna opna.
Halldór Ásgrímsson
VETTVANGUR
Stjórnun og skipulagning verði
samstíga tækniframförum
Ræða Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra, við
opnun alþjóðlegu sjávarútvegssýningarinnar
Það er mér mikil ánægja að
bjóða ykkur öll velkomin til opn-
unar þessarar alþjóðlegir sýningar,
sem nú er að hefjast hér í Laugar-
dalshöll undir nafninu „íslenska
sjávarútvegssýningin 1987." Ég vil
bjóða sérstaklega velkominn Lars
Gammelgárd. sjávarútvegsráð-
herra Dana, sendimenn erlendra
ríkja, og alla þá scm komið hafa
um langan veg til að kynnast þeim
nýjungunt sem hér verða til sýnis
næstu þrjá daga. Ég vil einnig
þakka sérstaklega John Legatc og
Patrica Foster hjá Industrial Trade
•Fairs International Limited og ís-
Ienskum aðstoðarmönnum þeirra,
svo og öllum þeim sem með beinni
þátttöku eða með öðrum hætti
hafa stuðlað að því að sýningin er
nú haldin hér á landi í annað sinn.
Góður árangur fyrir 3 árum leiddi
til þess að ákveðið var að halda
sýninguna hér aftur en með mun
stærra sniði. Þessi sýning hér í
Laugardalshöll cr stærsta sjávarút-
vegssýning í heiminum á þessu ári.
Islenska sjávarútvegssýningin
1987 er tvisvar sinnuni umfangs-
meiri en sama sýning árið 1984.
460 fyrirtæki sýna framleiðslu sína
hér, og af þeim cru ekki færri en
130 íslensk. Auk íslenskra fyrir-
tækja tóku fyrirtæki frá 10 löndum
þátt í sýningunni 1984, en í dageru
fyrirtækin frá 21 landi auk Islands.
Áð sama skapi hafa um þrisvar
sinnum fleiri erlendir gestir boðað
komu sínæmiðað við-síðustú sýn-
ingú, eða hátt á þriðja þúsund
manns frá flestum heimsálfum,
m.a. hópur frá Kína. Sú hugmynd
að halda sýningu sem þessa hér á
landi á 3ja ára fresti í framtíðinni,
mun án efa festa ísland í sessi sem
alþjóðlega miðstöð þekkingar og
nýjunga í sjávarútvegi.
Þegar síðasta sýning var haldin
voru (dökkar) blikur á lofti í ís-
lenskum sjávarútvegi og reyndar í
þjóðarbúskapnum öllum. Þorsk-
veiðar voru þá í alvarlegri niður-
sveiflu þriðja árið í röð, auk þess
sem ýmis ytri skilyrði í viðskiptum
við útlönd voru óhagstæð. Þá fór
að gæta álíka bölsýni hjá mörgum
um framtíð íslensks sjávarútvegs
eins og verið hafði 15 árum áður í
öldudalnum 1967-’68. Á þcim til-
tölulega stutta tíma sem liðinn er
frá haustdögum 1984 hafa orðið
ótrúlega snögg umskipti til hins
betra í afkomu íslensks sjávarút-
vegs. Kostnaður útgerðarfyrir-
tækja hefur lækkað verulcga með
þeirri veiðistjórnun sem komið
hcfur verið á, jafnframt því sem
stuðlað hefur verið að framtíðar-
uppbyggingu þorskstofnsins. Til
viðbótar hafa máttarvöldin einnig
snúist á sveif með okkur á síðustu
misserum með bættum ytri skilyrð-
um, bæði er tekur til lífsskilyrða í
sjónum og ástands á erlendum
mörkuðum.
Enn á ný er sjávarútvegur og
fiskvinnsla helsti vaxtarbroddur ís-
lenska þjóðarbúsins og undirstaða
betri lífskjara en þjóðin hefur áður
þekkt. Ýmsarstoðgreinar útgerðar
og fiskvinnslu hafa einnig rutt sér
til rúms sem sérstakur iðnaður sem
hefur náð stöðugt betri fótfestu á
innlendum og erlendum mörkuð-
um, cins og þessi sýning vitnar best
um. Saga íslenska þjóðarbúsins
síðastliðna áratugi hefur einkennst
af óvenju miklum sveiflum í gjald-
eyristekjum, hagvexti sem fyrst og