Tíminn - 22.09.1987, Blaðsíða 19

Tíminn - 22.09.1987, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 22. september 1987 Tíminn 19 Erfiðir nágrannar Víða um heim starfa aðdáend- aklúbbar leikara, sem útvega með- limum sínum áletraðar myndir af „goðunum" svo aðdáendur geti hengt myndirnar yfir rúmið sitt og sofnað í hrifningarvímu. - En það er ekki víst að hrifningin væri jafnmikil ef stjarnan byggi í næsta húsi við aðdáandann. Nú eru kom- in upp mörg kærumál í Hollywood og nágrenni, þar sem borgarar kvarta yfir frægum nágrönnum sínum. t nýlegu blaði eru tekin dæmi um frægðarfólk, sem blaðamaður seg- ist síst af öllu vilja hafa fyrir nágranna. Fyrst telur hann upp hið þekkta par, Farrah Fawcett og Ryan 0‘Neal. Næsti nágranni þeirra í Bel Air hverfinu sagði blaðamanni: „Allt hverfið fylgist með verstu rifrildisköstunum þeirra, og hér áður áttu þau það til að slást eins og fjölbragðaglímumenn. Nú orðið búa þau mikið á öðru heimili sem þau eiga í Malibu, og nágrannarnir hérna eru fegnir því“. Annars bætti granninn við, að honum þætti sem ástandið hefðí batnað síðan Farrah varð móðir. Þá er það hinn dáði og verðlaun- aði Bruce Willis, sem leikur hetj- una í „Moonlighting" í sjónvarp- inu. Hann slær allt út í þjösnaskap og tillitsleysi. Þegar hann býður gestum, þá eru það ckkert venjuleg partí, heldur slarksamar svallveisl- ur, sem geta staðið sólarhringum saman. Beverly Berwald býr í næsta húsi. Hann lá ekki á skoðun sinni um manninn: „Hann hagar sér eins og hann sé kóngur hér, - eða kannski ætti heldur að segja, að hann hagi sér eins og villtur táningur meðan foreldrarnir eru í fríi. Það er engu líkara en Willis sé alltaf að reyna að ganga fram af fólki. Nágrannarnir hafa oft orðið að hringja á lögregluna. Willis lét sér ekki segjast, og hefur lent í tukthúsinu fyrir að slást við lögg- una.“ Svo er fræg sagan um hann Mr. T í Chicago. Hann er þekktur úr sjónvarpsþáttum vestanhafs og hefur unnið sig upp í stjörnukaup, býr í stórhýsi með stórum, fögrum trjágarði. Eina nótt í sumar vökn- uðu nágrannarnir við það, að ein- hver ósköpin gengu á. Þá gekk Mr. T berserksgang með vélsög og sagaði niður trén eins og vitlaus maður alla nóttina. „Um morguninn leit garðurinn út eins og Beirút í Líbanon eftir ófriðarnótt," sagði einn nágrann- Hinn villti Bruce Willis æpir á nágrannana, ef þeir leyfa sér að kvarta. Jan-Michael Vincent er laus höndin og varð að greiða miklar skaðabætur. Mr. T hinn risavaxni með vélsögina sem hann er óspar áef honum líkar ekki við viðmælanda sinn. Hann var nýlega handtekinn fyrir eitt slíkt. Það var rcyndar kona sem varð fyrir högginu, Cheona Lee Ellis, heitir hún og er vinkona fyrrv. eiginkonu Vincents. Þau hittust fyrir utan heimili hans og urðu ósammála og endaði deilan með rothöggi. Cheona kærði, enda var hún nefbrotin og með sprungna vör. Skaðabæturnar voru ríflegar og sættir tókust. Fleiri dæmi voru tekin af erfiðum nágrönnum í fínu hverfum Holly- wood og víðar, en þessi látum við nægja. Líklega er betra að dást að uppáhnldsleikurunum sínum úr fjarska cn að búa í næsta húsi. inn. Það hafði enginn þorað að gera neitt til að stöðva skemmdarverk- ið, en nteð morgninum kom lög- reglan á staðinn, en gat ekkert að gert. Mr. T átti garöinn sinn sjálfur og þar með var honum leyfilegt að gera við trén það sem hann vildi, - sagði hann við yfirvöldin. Mr. T var þó kærður fyrir að hafa valdið nágrönnum sínum ónæði. Sjónvarpsáhorfendur niuna kannski eftir Jan-Michael Vincent, sem lék liðsforingja í „Winds of War“ þáttunum, sem sýndir voru hér nýlega. Þar lék hann ungan ástfanginn mann og hinn vinaleg- asta, en í einkalífinu er hann frægur fyrir dynjandi kjaftshögg - og garðurinn hans eftir öli lætin. „Ég er með ofnæmi fyrir trjám!“ sagði Mr. T þegar hann var beðinn um skýringu á athæfinu Ryan O’Neal og hin Ijóshærða kona hans Farrah Fawcett eru bæði skapmikil og rífast og slást, - þó segja nágrannar að heldur sé sambúðin að batna í seinni tíð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.