Tíminn - 22.09.1987, Side 14

Tíminn - 22.09.1987, Side 14
14 Tíminn Þriðjudagur 22. september 1987 FRETTAYFIRLIT VESTUR-BERLÍN Niöurrif Spandau fangelsisins, sem hýst haföi Rudólf Hess, fyrrum næstráöanda Hitlers, í 40 ár, hófst í gær. En hinn 93ja ára gamli Hess framdi sjálfs- morö 17.ágúst sl. Samþykkt haföi veriö fyrir löngu aö rífa þessa 19ándu aldar byggingu til.aö hún yröi ekki áróöurstákn fyrir nýnasista. GENF - Samtök starfs- manna hjá Sameinuðu þjóöun- um hafa gagnrýnt núverandi framkvæmdastjóra samtak- anna, Perez DeCuellar, fyrir að hafa ekki gert nóg í að frelsa eöa finna sannleikann varöandi u.þ.b. 50 starfsmenn S.Þ., sem annaö hvort eru í fangelsi eöa týndir. OSLÓ - Einn mikilhæfasti stjórnmálamaöur Noröurlanda á eftirstríðsárunum, fyrrver- andi forsætisráöherra Noregs og formaður Verkamanna- flokksins norska, Einar Ger- hardsen, lést aöfaranótt laug- ardags. Gerhardsen var 90 ára gamall þegar hann lést og var virkur þátttakandi í stjórn- málum fram á síöustu æviár sín. SEOUL - Tveir helstu leiötogar stjórnarandstööunn- ar í Suöur-Kóreu, Kim Dae- Jung og Kim Young-Sang, hafa samþykkt aö taka um þaö ákvöröun í þessum mánuöi hvor þeirra verði forsetaefn stjórnarandstöðuflokkanna kosningunum, sem fram fara desember n.k. GENF - Licio Gelli landflótta yfirmaöur leynireglu frímúrara á Ítalíu, P-2 reglunnar, gaf sia fram viö dómara í Genf aö sögn lögreglu borgarinnar. Gelli hefur verið eftirlýstur í sambandi viö hrun stærsta einkabanka ftalíu og auk þess | hina mannskæöu sprengingu, I sem varö á brautarstöð í borg- inni Bologna, þar sem 85 | manns létu lífiö. COLOMBO - Friðarsveitir ^ Indlands hafa nú hert aðgerðir sínar aegn uppreisnarlioi Ta- mila. I gær handtóku Indverj- arnir 15 vopnaöa Tamíla, en -þaö er fyrsta stærri aðgerðin gegn herskáum Tamílum, sem hingað til hafa neitaö aö skila vopnúm sínum í samræmi viö frióarsamkomulagiö. LONDON - I kaffibransan- um sannast þaö aö eins dauði er annars brauð og kaffiunn- endur geta vænst þess aö fá ódýrara kaffi, því markaösverö á kaffi féll eftir aö þeim ríkjum, sem framleiða kaffi, tókst ekki ( aö koma sér saman um útflutn- ingskvóta til aö halda verðinu uppi. TUNIS - Leiðtogar ríkja f Arababandalaginu hafa á- kveðið að kalla saman skyndi- fund leiötoga rlkjanna um Persaflóastríðið í nóvember n.k. ÚTLÖND Oscar Arias forseti Costa Rica og frumkvöðull friðaráætlunarinnar í Mið-Ameríku: Sandinistar mundu tapa kosningum nú Oscar Arias forscti Costa Rica sagði í viðtali við argcntínska blaðið La Nacion að stjórn Sandinista mundi falia í frjálsum kosningum, ef þær væru haldnar í dag undir þeim skilyrðum, sem friðaráætlun kennd við Arias leggur til. Þessi ummæli birtust þegar fulltrúar þeirra fimm ríkja sem undirrituðu friðaráætlún- ina funduðu um helgina í Managua, höfuðborg Nicaragua. Voru þar rædd mörg vandamál, sem Ieysa þarf áður en áætlunin tekur gildi cftir rúman mánuð. Friðaráætlunin felur m.a. í sér að látið verði af öllum átökum innan 90 daga frá gildistöku hennar, sakar- uppgjöf verði veitt, öllum utanað- komandi stuðningi við skæruliða verði hætt og lýðræðislegum umbót- um verði komið á. Þetta er mikið verk, af mörgum talið fyrirfram dauðadæmt, því þarna er um fimm ríki að ræða, cn það var samþykkt á fundinum að setja á fót sérstaka ncfnd til að kanna samræmingu þessara aðgerða Ríkin sem að friðaráætluninni standa eru Costa Rica, Guatemala, Honduras, El Salvador og Nicarag- ua. Bardagar skæruliða og stjórnvalda hafa fyrst og fremst verið í El Salvador, Guatemala og Nicaragua og er talið að yfir 100 þúsund mannslífum hafi verið fórnað á altari stríðsguðsins í þessum löndum s.l. 7 ár. Alþjóðaprcssan hcfur eytt nær öllu púðri sínu á átökin í Nicaragua, en kunnugir segja að þegar á reynir verði mun erfiðara að ná friði í Guatemala og sérstaklega E1 Salva- dor, þar sem skæruliöarnir eru þrautþjálfaðir og mjög pólitískt meðvitaðir. Skæruliðarnir í Guate- mala, sem barist hafa gegn einræðis- stjórnum þar í hartnær tvo áratugi og hafa ekki lagt niður vopn eftir að borgaraleg stjórn tók við í landinu fyrir hálfu öðru ári, hafa tapað miklum styrk á undanförnum árum og eru nú tiltölulega veikt afl. Kontr- arnir í Nicaragua eru hins vegar nær alfarið háðir aðstoð Bandaríkjanna, þannig að örlög þeirra ráðast að miklu leyti af ákvörðunum í Wash- ington. Það er því ljóst að mjög misjafnar aðstæður ríkja í hverju landi varð- andi framkvæmd áætlunarinnar eða eins og einn diplómat orðaði það: „Nógu erfitt er að fá tvo stríðandi aðila til að setjast til samninga hvað þá heldur fleiri.“ Enn sem komið er hafa byltingar- öflin í þessum löndum ekki komið nálægt undirbúningi friðaráætlunar- innar og hefur reyndar enginn þeirra lýst yfir vilja til að semja um vopna- hlé á grundvelli áætlunarinnar. Hvort yfirlýsing Ariasar, sem fyrr greinir, styggirstjórn Daniel Ortcga, er ekki ljóst enn. En Arias sagði að lág laun og hörmulegt kreppuástand í hagkerfi Nicaragua yrði til þess að kjósendur snerust unnvörpum gegn stjórn Ortega. Nicaragua hefur heitið að koma á lýðræðislegum endurbótum í sam- ræmi við Ariasfriðaráætlunina fyrir 7. nóvember þegar hún á að taka gildi. Stjórn Nicaragua tók fyrsta skrefið í þá átt í gær þegar ákveðið var að leyfa á ný útkomu helsta stjórnarandstöðublaðsins í landinu, La Prensa. En útkoma þessa elsta blaðs landsins hafði verið bönnuð fyrir 15 mánuðum á þeim forsendum að það væri málpípa stjórnar Reag- ans í landinu. Oscar Arias mun nú ferðast til Washington og reyna að vinna Leiðtogar ríkjanna fímm í Mið- Ameríku, sem standa að Arias friðaráætluninni stuðning ráðamanna þar við friðará- ætlunina, en Reagan hefur farið fram á 270 milljón dollara aðstoð fyrir Kontra skæruliðahreyfinguna. En þó endir yrði bundinn á ytri aðstoð við ríkisstjórnir og skæruliða- hreyfingar í löndunum fimm, þá eru mörg ljón í veginum fyrir því að raunverulegur friður komist á í hinni stríðshrjáðu Mið-Ameríku. ÚTLOND Þórður „íslenskt ástand“ í Hong Kong: HAGKERFID AÐ SPRINGA Það eru fleiri ríki en ísland, sem hafa sinn djöful að draga í góðær- inu, því sama ástand virðist hafa skapast í Hong Kong á undanförn- um misserum. Allt bendir nú til að hagvöxtur þar í landi verði tvöfalt meiri en spár gerðu ráð fyrir á árinu eða um 12%. Þetta verður annað árið í röð sem hagvöxturinn mælist í tveggja stafa tölu. Yfirmaður Ijármála í Hong Kong, Piers Jacobs segir mikinn útflutning ásamt veikri stöðu gjald- miðils Hong Kongs vera megin- ástæðu góðærisins, en Hong Kong- dalurinn fylgir dollaranum. Hræð- ast stjórnvöld þar að ofurþensla verði í efnahagskerfinu með til- heyrandi verðbólgu. Jacobs lýsti því jafnframt yfir að meginógnunin við þessa vænlegu þróun væri til- hneiging til að taka upp verndar- stefnu í Bandaríkjunum, aðal markaðslandi Hong Kong. Stjórnin í Hong Kong er einnig um þessar mundir að ræða leiðir til að leysa úr vinnuaflsskortinum í nýlendunni, en hún hefur neitað iðnaðinum um að flytja inn ódýrt vinnuafl frá nágrannalöndunum. Biljón hér og biljón þar! BIUONERAR 132 AD T0LU Hvað eiga Englandsdrottning, sveitamaður í Arkansas, sem keyr- ir í vinnuna á „pick-up“ bíl og dætur fyrrverandi ríkisstjóra í Ohio sameiginlegt? Jú, þau geta öll talið dollarainni- stæðu sína í biljónum. Þá hermir sama frétt í fjármálatímaritinu Fortune að 132 jarðarbúar fylli hinn gæfusama flokk biljónera. Að sögn tímaritsins er hinn 41 árs gamli súltan í Arabaríkinu Brunei handhafi titilsins ríkasta mannvera á jörðinni. Hann á tvær eiginkonur og sex dætur, sem hýst- ar eru í 1788 herbergja höll. Þá á hann eitt lítið ríki og 25 biljónir dollara í seðlum. Sá, sem næstur kemur súltanin- um í ríkidæmi er Fahd konungur í Saudi Arabíu, sem á 20 biljónir dollara í bankabókinni. Ríkasti ameríkaninn og þriðji ríkasti maður veraldar er maðurinn á trukknum, Sam Moore Walton. Hans dollaraeign telur 8,7 biljónir og byggir hann ríkidæmi sitt á keðju 1072 verslana um gervöll Bandaríkin. Fjórða sætið skipa tvær systur í Ohio fylki í Bandaríkjunum og eiga þær samanlagt 2,5 biljónir dollara. Er það arfur eftir föður þeirra James Cox, sem var fátækur sveitadrengur og varð ríkur á ýmis konar útgáfustarfsemi. Cox vann sér það einnig til ágætis að vera þrisvar 3 kosinn ríkisstjóri í Ohio og var í forsetaframboði 1920. Það er svo Elísabet Bretadrottn- ing sem vermir fimmta sætið á biljóneralistanum. Hún cr talin eiga 7,4 biljónir dollara í handr- aðanum og sagan segir að hún gæti þess vandlega að öll óþarfa ljós séu slökkt í höllinni sinni. Aðrir sem fylla flokk biljónera eru m.a. Beatrix Hollandsdrottn- ing, H. Ross Perot iðnjöfur frá Texas, Rupert Murdoch blaða- kóngur, tískuiðnjöfurinn Estee Lauder, hertoginn af Westminster og einhver slatti af Rockefellerum og Hearstum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.