Tíminn - 11.10.1987, Blaðsíða 2

Tíminn - 11.10.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn Sunnudagur 11. október 1987 llllllllllllllllllllllí'-' vísnaþáttur lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll 8. þátturtf Haustið markar beig á brá Guðmundur Guðmundsson er maður nefndur. Hann var frá Kálfsstöðum í Vestur-Landeyjum. Guðmundur orti Trollmannarím- ur. Hér eru þrjár stökur úr þeim. Hann var alinn upp í svcit át sem hvalur slátrin hcit. Kynntist halur hrossabcit hænsnagali og sauðaleit. Verki farinn fullvel sá fantur var að raka og slá. Torfið skar og færði frá forir bar og veitti á. Rakaði gæru risti mó rúði ær og tamdi dróg. Sótti færa fiska að sjó fléttaði snæri, gerði skó. Þegar Valgerður Sverrisdóttir náði kosningu til Alþingis síðastlið- ið vor, orti Þórmundur Erlingsson í Reykjavík þessa vísu. Sóknardjörf í stríði stóð sterkum vilja knúin. Liðtæk verður landi og þjóð Lómatjarnarfrúin. Þessi haustvísa er einnig eftir Þórmund. Haustið markar beig á brá bliknar vorsins gróður. Tfmans fákur fetar hjá forn í skapi og hljóður. Þessi hestavísa er eftir Guðrúnu Eyjólfsdóttur frá Sólheimum í Laxárdal. Kalla ég Galla gæðinginn gjögtir hann varla af feti. Pó hann allan auðinn minn uppúr dalli éti. Næsti bær við Sólheima var Pálssel. Það er nú í eyði. Þaðan er Jóhannes Ásgeirsson. Hann orti svo um reiðhest sinn. Húnvetningur, hraustur, slyngur hratt um bingi og grundir fer. Laus við glingur, lék við fingur lofið syngur gatan hér. Fyrir alllöngu voru miklar umræður og rökræður um framhaldslíf og trúmál. Þátt í þeim umræðum og framarlega í flokki var Níels Dungal, prófessor. Umræður þessar urðu Heiðreki Guðmundssyni á Akureyri tilefni þessarar vísu. Dungal er með harðan haus honum ber við steininn kalda. Segist vera sálarlaus sem að mér er nær að halda. Eitt sinn voru Þingeyingar í bændaför um landið. Þeir höfðu náttstað í Húnavatnssýslu. Ferð þeirra hafði seinkað og tóku Húnvetningar á móti gestum sínum með veislu og héldu margar ræður og langar. Þegar einum Þingeyingnum þótti biðin eftir næturværð úr hófi löng kvað hann. Kveldið löngu liðið er og lóan hætt að kvaka Nóttin faðmar nyrstu sker, nú fer Guð að halla sér, en Húnvetningar halda áfram að vaka. Egill Jónasson á Húsavík fylgdi stúlku á milli húsa en datt og hlaut skrámu á nefið. Þá kvað hann. Að ég fljóði fylgi á veg flumbran gaf til kynna. Pað hafa meiri menn en ég misst þar fóta sinna. Kristján Benediktsson málarameisíari á Akureyri var fyrir skömmu aðmálastórhýsi. Varþá töf á verki vegna votviðra. Þá kvað Kristján. Þessi tfð er mér um megn minn er dapur hugur. Getur þú ekki geymt þitt regn Guð minn almáttugur. Jakob Ó. Pétursson frá Hranastöðum sendi bankastjóra þessa vísu. Ég var að senda víxilblað til þín en veit að slíkt er misjafnlcga þegið. Útgefandi er ömmusystir mín en ábekingur tengdapabbi, greyið. Kristmundur Jóhannesson Giljalandi Haukadal 371 Qúðardalur Sími 93-41352. Lagði allt mitt í þessa plötu TT JL JLaNN kallar sig Gauja og út var að koma hans fyrsta plata í gær á vegum Skífunnar. Helgarblað Tímans ræddi stuttlega við Guðjón Guðmundsson eins og hann heitir fullu nafni og spurðum hver væru tildrög útkomu plötunnar. „Ég hef verið að semja lög og texta í fimm ár, komið fram í menntaskóla og á ýmsum opinberum skemmtunum þannig að ég átti tals- vert efni í fórum mínum. Ég leitaði til útgefanda og var svo hpppinn að fá samning við Skífuna. Það var líka mitt lán að fá með mér góða menn við vinnslu plötunn- ar m.a. Tómas Tómasson sem upp- tökumann." Er allt frumsamið bæði löe og textar? „Já, ég samdi allt sjálfur og legg jafn mikið í tónlistina og textana sem eru með pólitísku ívafi. Ég reyni að koma sem víðast við og deili á lýgina og beini spjótum mínum að ástandinu í Suður-Ámeríku.“ Ertu bjartsýnn á að fá góðar móttökur? „Ja, þýðir nokkuð annað? Að vísu tek ég henni með varúð. Ég geri mér grein fyrir því ef platan selst ekki, þá gerir það mér erfiðara fyrir sem listamanni í framtíðinni, þannig að þessi frumraun mín skiptir mig verulegu máli. Að lokum vil ég taka fram að úrvals hljómlistarmenn unnu með mér og aðstoðuðu og er það vissu- lega viðurkennig fyrir mig. En ég lagði allt mitt í þesa plötu og vona að hún fái góðar móttökur." - BD eih-Ieikhúsið sýnir: Sögu úr dýragarðinum Nýtt leikhús hefur hafið göngu sína. Leikhúsið ber nafnið eih- leikhúsið og verður til húsa í Djúp- inu þ.e. kjallara veitingahússins „Hornið" Hafnarstræti 15. Að eih-leikhúsinu standa 3 ungir leikarar, þeir Hjálmar Hjálmars- son, Stefán Sturla Sigurjónsson sem luku námi við Leiklistarskóla Islands í vor og Guðjón Sigvalda- son sem lauk námi frá Mountview Theater School í Bretlandi, einnig í vor. Fyrsta verkefni eih-leikhúss- ins verður „Saga úr dýragarðinum" eftir Edward Albee. Höfundurinn er bandarískur og eflaust þekktast- ur fyrir verk sitt „Hver er hræddur við Virginíu Woolf?“ Leikritið „Saga úr dýragarðinum" var frum- flutt á leiklistarhátíð í Berlín 1959 og hlaut þar verðlaun hátíðarinnar. eih-leikhúsið frumsýnir verkið í Djúpinu 17. nóvember næst kom- andi. Veitingasalurinn „Hornið“ mun bjóða uppá mat- og vínveit- ingar fyrir og eftir sýningar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.