Tíminn - 11.10.1987, Page 9

Tíminn - 11.10.1987, Page 9
Tíminn 9 Hugmyndin að nýjustu bók Pat er komin frá Coliins-systrum, en mun þó ekki fjalla beinlínis um þær. áhyggjur, jafnvel þó hún aflaði ekki eyris. Eiginmaður hennar, Garth Wood er sálfræðingur, kennari og rithöfundur. Þau eiga sex ára gamlan son, Orlando og ættleiddu nýlega nýfædda stúlku, sem 14 ára kunningjakona þeirra fæddi nánast fyrirvaralaust. Með- ganga Orlandos kostaði Pat næst- um lífið, svo hún hefur ekki í hyggju að fæða sjálf fleiri börn. Heimili fjölskyldunnar eru þrjú, sitt á hvorri strönd Bandaríkjanna og eitt í London. Pat fylgir bónda sínum iðulega á fyrirlestrarferðum hans um heiminn og hefur nasað af mannlífinu í öllum heimsálfum, en talar ennþá enskuna með sterkum Cockney-hreim, þegar hún slakar á heima hjá sér. Málvöndun er bara til sparinota að hennar áliti. Persónurnar í bókum hennar eru oft vægast sagt siðlausar og má það þykja einkennilegt, þegar skapari þeirra er góður kaþólikki og biðst daglega fyrir. - Eg gæti sjálf ekki hugsað mér að tala eins og þær, hvað þá haga mér svona, segir Pat. - Ég skrifa bara svona og Fjölskylda Pat. Garth Wood er líka rithöfundur, en auk þess sálfræðingur og kennari. við getum ekki öll verið fullkomin, er það? Ég er ekki andvíg kynmök- um fyrir hjónaband, því ég tel mikilvægt að hlaupa af sér hornin í þvt' efni sem öðrum. Ég tel heldur ekki rangt að vegna vel út á svona skrif, meðan maður getur notað aðstöðu sína til að hjálpa einhverj- um og ofmetnast ekki af velgengn- inni. Pat hefur látið vel af hendi rakna . til stuðnings unglingsstúlkum, sem verða ófrískar af slysni. Hún er mótfallin fóstureyðingum, en hefur gengist undir eina sh'ka sjálf, þrátt fyrir það. - Ég vildi lifa lengur, en engin manneskja á að þurfa að gera þetta. Kynlífsatriðin í bókum Pat eru sum af grófara taginu og hún telur að eitt slíkt, mitli tveggja kvenna hafi komið í veg fyrir að Palm Beach væri kvikmynduð. Henni finnst erfitt að skrifa þessi atriði, en auðvelt að ímynda sér þau. Henni finnst kynlífsatriðin illa skrifuð hjá Jackie Collins, þau séu allt of stutt og tilfinningasnauð. Svo sannarlega vinnur Pat hörð- um höndum við ritstörfin. Hún fer á fætur fyrir fimm á morgnana og dettur út af um níuleytið á kvöldin, þegar skriður kemst á söguna. Hún setur sér það takmark að skrifa 1000 orð, meðan Orlando er í skólanum og fóstra gætir telpunn- ar. Hjónin hafa vinnustofur sitt í hvorum enda hússins og bera ekki verk sín undir hvort annað eða segja álit sitt á þeim. - Það má tala um bækurnar á heimilinu, þegar þær eru komnar út, ekki fyrr, segir Pat. Þegar hún var lítil, nauðaði hún stöðugt, ef hana langaði í eitthvað, þangað til alla viðstadda brast þolinmæði og létu hana fá hlutinn, til að losna við nauðið. Eiginmað- urinn segir, að það hafi harla lítið breyst. - Núna segir hann að ég nauði um að verða númer eitt, þangað til einhver segi sem svo: - I guðs bænum látið það eftir henni, svo hún þegi. dömufatnaður..! A Ráðgjöf og leiðbeimngar Garöyrkjufræöingarnir Hafsteinn Hafliöason ogÞ Sævarsson leiöbeinafolk um meöferðogræktunhaustlauka, laugardagog sunnudagki. 13.00-19-.00. Ath.: Fáið litprentaöan leiðbeiningarbækling. Wlagntilboð Geriö hagstæö kaup. 50 stk. túlípanar • ■ • ■ 50 stk. krókusar • • • ■ 25 stk. páskaliljur . ■ • kr. 490,- , kr. 490,- . kr. 490,- Rauður jólatúlípam (Brilliant star) 10 stk. kr. 229,- Bleik jólahýasinta (Anne Marie) 4 Stk. kr. 199,- Dökkblár jólakrókus (Rememberance) 10 stk. kr. 169,- Riddarastjarna (Amaryllis) 1 stk. kr. 295,- Hvítar jólaliljur 10 s*k_kn 295, EinföldogþægilegræktuaHenra t.d. í skólumog barnaheimilum. S,^^«681^.8^1689070.«™. SÉRTILBOÐ ÞESSA HELGI Blómstrandi Begoniur. Aðeins kr. 170,-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.