Tíminn - 22.10.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 22. október 1987
Öfugt við það scm oft hefur verið haldiö fram, að íbúðir sérhannaðar
fyrir aldraða séu geysilega dýrar („Okrað á öldruðum" er t.d. nýleg
fyrirsögn í blaði), verður niðurstaða Tímans sú að þær séu, a.m.k. í
mörgum tilfellum, ódýrari en íbúðir sem byggðar cru og seldar á
alinennum markaði og jafnvel ódýrari en einhverra ára gamlar íbúðir á
fasteignamarkaðnum. „Misskilningurinn“ viröist felast í samanburði á
ósambærilegum hlutum. Eða þætti t.d. einhverjuin það sönnun fyrir
okurverði á amerískum sportbíl að hann væri miklu dýrari cn Skoda? -
þó að háðir gætu bílarnir verið álíka rúmir/þröngir að innanveröu.
Þriggja herbergja íbúð
143ferm.
Ncttó flatarmál íbúðar segir oft
lítið um hvcrsu stórt húsrými kaup-
andi hennar cr raunverulega að
kaupa. Eignarhluti 3ja herbergja
íbúðar fyrir aldraða getur t.d. verið
143 fermetrar, eða sem svarar 6
herbergja sérhæð eða „pent-
house“. Mundu margir telja það
okurverð að kaupa glænýja slíka
íbúð, fullbúna með flísalögðu baði,
teppum, öllum rafmagnstækjum,
þar með talinni þvottavcl og þurrk-
ara og að hluta nýjum húsgögnum
ásamt lyftu og ræktaðri löð - fyrir
uni 4,9 milljónir króna, cða um
34-35 þús. kr. fermetrann?
Dæmi um nær helming
„íbúðarinnar“ í sameigninni
Lítum á annað dæmi: Um 41
ferm. cinstaklingsíbúð, búna cins
og að framan er lýst fyrir um 2.690
þús. kr., eða nær 66 þús. kr.
fermctrann. Og hins vcgar yfir
tvöfalt stærri, eða 78 ferm. 2ja
herbergja íbúð í Grafarvogi, til-
búna undir tréverk á 2.775 þús.
kr., eða tæplega 36 þús. kr. ferm.
Okur? Verður litla íbúðin þó ekki
í raun miklu ódýrari þegar tckið cr
mcð í dæmið að eignarhluti hennar
í viðkomandi byggingu cr 80 ferm.,
eða aðeins 10 ferm. minni en
hinnar. Við það breytist saman-
burðurinn í um 34 þús. kr. ferm. í
fullbúinni “lúxusíbúð" og nær 31
þús. kr. ferm. tilbúinn undir
trévcrk.
Hvort fólk á „besta aldri" vildi
hins vegar kaupa íbúðir þannig
hannaðar að allt frá þriðjungi og
upp í helmingurinn af því húsnæði
sent þeir eru að kaupa tilheyri
„alntenningi" utan íbúðar þeirra,
er svo spurning út af fyrir sig. Álit
þeirra öldruðu í þessu efni hcfur
blaðamaður Tímanns raunar held-
ur aldrei hcyrt þá öldruðu sjálfa
svara til um í allri þeirri umræðu
sem fram hefur farið unt íbúðir
aldraðra á undanförnum árum.
Fermetrinn á
35-39 þús. krónur
Ljóst er að vel búin setustofa
kostarekkert minna þótt hún teljist
til sameiginlegs húsrýmis heldur en
innan ákveðinnar íbúðar. Einna
raunhæfasti verðsamanburðurinn
milli íbúða sýnist því l'ást nteð
samanburði á fermetraverði í
brúttó eignarhluta hverrar íbúðar.
Samkvæmt upplýsingum for-
svarsmanna Sunnuhlíðarsamtak-
anna í Kópavogi, Samtaka aldr-
aðra sent byggðu Bólstaðarhlíðar-
húsin og V.R. bygginganna í nýja
miðbænum var verð á brúttó fer-
metra í byggingum þeirra frá um
35-39þús. kr. núna í september s.l.
Tilbúið undir tréverk
á um 30-31 þús. kr.
Blokkaríbúðir sem nýlega voru
auglýstar í Grafarvogi og skilað
verður tilbúnum undir tréverk, en
með frágenginni sameign. kosta að
Frá Sunnuhlíö í Kópavogi. Söluverð miðlungs íbúðar á almennum markaði nægir til kaupa á íbúð hér.
Tímamynd: Brein
meðaltali um og rúmlega 30 þús.
kr. á hvern fermetra brúttó. í því
húsi er brúttóstærð íbúðanna hins
stærðum og verði fékk Tíminn hjá
verslunarmönnum sent byggðu 60
íbúðir í 7 stærðarflokkum, sem
samtals eru tæplega 8.000 fermetr-
ar að grunnfleti (um 133 fm að
meðaltali á íbúð) og kostuðu um
280 milljónir á verðlagi í september
s.l. Það svarar til tæplega 35 þús.
kr. á hvern fermetra að meðaltali.
Stærð og verð þessara íbúða er sem
hér segir:
íttófm.: Brúttófm. : Verðsept.:
41 80 2.665 þús.
60 95 3.430 þús.
66,4 102 3.655 þús.
70 107 3.800 þús.
89 131 4.540 þús.
98,6 138 4.910 þús.
99 143 4.935 þús.
Sem sjá má er algengast að
brúttóflatarmál hverrar íbúðar sé
í kringum þriðjungi meira en nettó
flatarmálið. Minnsta íbúðin er
einstaklings en hinar 2ja, 3ja og
3-4ra herbergja. Brúttóflatarmál
þeirrra gæti hins vegar verið dæmi-
gert fyrir 3ja til 6 herbegja íbúðir.
Höfuðmarkmiðið að
venjulegt fólk gæti
keypt án skuldasöfnunar
Ásgeir Jóhannesson, stjórnar-
formaður Sunnuhlíðarsamtakanna
sagði meðalverð á brúttó fermetra
í þeim 40 íbúðum sem samtökin
eru að byggja í Kópavogi vera um
39 þús. kr. á verðlagi nú í septem-
Heiður
Helgadóttir
BLAÐAMAÐUR
vegar aðcins um 15% meiri en
nettó stærð þeirra.
Samkvæmt vísitölu byggingar-
kostnaðar er kostnaður við sambýl-
ishús tilbúið undir tréverk ásamt
teikningum, opinberum gjöldum
og lrágenginni lóð um 70% af
heildarvcrði þess þegar því er tull-
lokið. Vcrð á brúttó fermetra í
„vísitölublokkinni" fulllokinni
reiknaðist um 32.200 kr. í septem-
bcr.
Einnig má líta á fasteignaauglýs-
ingarnar nú um síðustu helgi.
Dæmigerðar 3ja hcrbergja 80-95
fcrmetra íbúðir víðs vegar um
borgina virðist nú algengt að aug-
lýsa á um 3,4 til 3,6 milljónir króna
og jafnvel allt upp í 4 milljónir.
íbúðir á bilinu 110-125 fermetra
virðast svo auglýstar á um 4,3 til
4,8 milljónir króna og mun meira
ef um sérhæðir er að ræða.
Herbergjafjöldinn segir
ekki alla söguna
Nákvæmasta sundurliðun á
ber. Helmingur íbúðanna verður
afhentur nú í desember n.k. og
seinni helmingurinn í mars n.k.
Allir verkþættir hafa verið boðnir
út þannig að framangreint verð
íbúðanna á ekki að breytast nema
samkvæmt hækkun vísitölu.
Ásgeir sagði samtökin hafa sett
sér það markmið að byggja íbúðir
sem kostuðu ekki meira en svo að
venjulegt fólk sem ætti miðlungs
íbúðir gæti t'ært þá eign sína yfir í
nýja íbúð, með öryggi þjónustu og
félagsskap, ef það vildi án þess að
stofna til nýrra skulda. Út frá þessu
markmiði hafi arkitektar og verk-
fræðingar þurft að ganga við hönn-
un húsanna.
Nettóstærðirog verð Sunnuhlíð-
aríbúðanna er eftirfarandi nú í
september:
Um 49 ferm. einstaklingsíbúð á 2.760 þús.
Um 61 ferm. 2ja herbergja íbúð á um 3.060 þús.
0g81 ferm. 3ja herbergja íbúðá um 3.545 þús.
Ef framangreint er borið saman
við fasteignaauglýsingar virðist það
markmið hafa náðst að söluverð
miðlungs íbúða á almennum mark-
aði nægi til að standa undir verði
íbúðanna í Sunnuhlíð. Brúttóeign-
arhluta hverrar íbúðar þar hefur
Tíminn ekki upplýsingar um.
Svipað hjá Samtökum
aldraðra
Minni upplýsingar var að fá um
verð íbúðanna sem Samtök aldr-
aðra hafa byggt í tveim háhýsum
við Bólstaðarhlíð. En dæmi var
nefnt af 3ja herbergja íbúð sem er
77 ferm. nettó og 103,5 ferm.
brúttó sem kostar um 4.075 þús.
kr. Verð á brúttó fermetra er
samkvæmt því rúmlega 39 þús. kr.
En auk þess þarf kaupandi hennar
að. borga um 180 þús. kr. vegna
þjónusturýmis í sérstakri þar til
gerðri byggingu.
Reykjavíkurborg hefur til þessa
ekki selt þjónustuíbúðir aidraðra
nema í parhúsum við Hjallasel.
Þau hús eru um 70 ferm. að
grunnfleti og framreiknað verð
þeirra er sagt um 3,9 til 4 millj. kr.
nú í október.
Þá hafði Tíminn samband við
fasteignasölu sem auglýsir sér-
hannaðar 75-100 fermetra íbúðir
fyriraldraða í Kópavogi. Þarerum
að ræða 7 íbúðir í sérbýli sem hver
hefur smá eigin lóð. Verð þessara
íbúða var sagt 4,6 til 4,9 millj. nú í
október, sem síðan hækkarr í takt
við vísitölu.
Gamla íbúðin dugir
nú langtum betur upp í
nýja en í fyrra
Eitt atriði er enn ónefnt sem
líklegt er að hafi haft veruleg áhrif
á mat manna á háu verði eða lágu
á söluíbúöum aldraðra. Framan af
árinu 1986 var söluverð fasteigna á
almennum markaði hið lægsta sem
það hafði verið að raungildi í
fjölda ára, og langt undir bygging-
arkostnaði. Sala notaðra íbúða til
fjármögnunar á nýjum íbúðum var
því mjög óhagstæð, og átti það við
um allar nýbyggingar. Frá 2. árs-
fjórðungi 1986 til sama tíma í ár
hækkaði íbúðaverð á fasteigna-
markaðnum í kringum 45% en
vísitölur byggingarkostnaðar og
lánskjara „aðeins" um 16-17%.
Gefur þvi auga leið að nú dugar
mun minni notuð fasteign til að
fjármagna byggingu nýrrar heldur
en t.d. á síðari hluta ársins 1985 og
fyrri helming ársins 1986 - en á því
tímabili voru einmitt margir aldr-
aðir að selja íbúðir sínar til að
kaupa í Bólstaðarhlíðinni eða í
V.R. húsinu.
- HEI