Tíminn - 22.10.1987, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Rangæingar
Aðalfundur Framsóknarfélags Rangæinga verður haldinn í Hvoli,
Hvolsvelli þriðjudaginn 27. október kl. 21.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Önnur mál:
Jón Helgason, ráðherra, Guðni Ágústsson, alþingismaður, Ólafía
Ingólfsdóttir starfsm. KSFS koma á fundinn.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Ólavía Jón Guðni
Konur Árnessýsiu
Aðalfundur félags framsóknarkvenna í Árnes-
sýslu verður haldinn aö Eyrarvegi 15 Selfossi,
mánudagskvöldið 26. október n.k. kl. 21.00.
Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál.
Gestur fundarins verður Valgerður Sverris-
dóttir alþingismaður.
Mætum eldhressar í byrjun vetrarstarfs.
Stjórnin
Aðalfundur
Aðalfundur Framsóknarfélags Árnessýslu verður haldinn að Brautar-
holti á Skeiðum sunnudaginn 25. október nk. kl. 21.00. Dagskrá
samkvæmt félagslögum. Kynntar verða tillögur að breytingum á
lögum kjördæmissambandsins.
Stjórnin
Vesturland
Skrifstofa kjördæmissambandsins Brákarbraut 1, Borgarnesi verður
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 13.00-17.00. Sími 71633
og sími utan skrifstofutíma 51275.
Stjórnin
Framsóknarfólk Suðurlandi
28. Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna á Suðurlandi verður haldið
helgina 7.-8. nóv. n.k. á Kirkjubæjarklaustri og hefst kl. 14
laugardag.
Nánar auglýst síðar.
KSFS
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna á Suðurlandi,
Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin alla þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.
13-17 sími 2547.
Heimasími starfsmanns er 6388.
Framsóknarmenn eru hvattir til að líta inn eða hafa samband.
Framsóknarfólk Austurlandi athugið
28.kjördæmisþing framsóknarmanna á Austurlandi, sem vera átti á
Hótel Höfn, Hornafirði dagana 9. og 10. október nk. verður frestað til
30. og 31. október nk. og hefst kl. 20.00. Nánari upplýsingar i síma
97-11584. KSFA
Austfirðingar - Árshátíð
Árshátið KSFA verður haldin á Hótel Höfn
laugardaginn 31. október og hefst kl. 20.
Fjölbreytt skemmtiatriði. Meðal þeirra er fram
koma eru Jóhann Már Jóhannsson, Jóhannes
Kristjánsson og Karlakórinn Jökull, auk ýmiss •
konar heimalagaðra atriða.
Borðapantanir á Höfn í síma 81446 - Kristín
- og í síma 81787 - Sverrir - eða á skrifstofu
KSFA, Egilsstöðum í síma 11584.
KSFA
Árnesingar
Hin árlega framsóknarvist Framsóknarfélags Árnessýslu hefst föstu-
daginn 23. október kl. 21.00 í Aratungu, föstudaginn 30. okt. í
Félagslundi og lýkur 13. nóvember að Flúðum.
Aðalvinningur er ferðavinningur frá Samvinnuferðum-Landsýn. Heild-
arverðmæti vinninga 75.000 kr.
Allir velkomnir Stjórnin
Fimmtudagur 22. október 1987
Fimmtudagur 22. október 1987
Tíminn 11
EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
Neuchatel Xamax (Sviss)-Bayern Múnchen (V-Þýskalandi) 2-1
Real Madrid (Spáni)-Porto (Portúgal)................ 2-1
Lilleström (Noregi)-Bordeaux (Frakklandi) .......... 0-0
Árhus (Danmörku)-Benfica (Portúgal)................. 0-0
Glasgow Rangers (Skotland)-Gornik Zabrze (Póllandi) ... 3-1
Sparta Prag (Tékkóslóvakíu)-Anderlecht(Belgíu)...... 1-2
Rapid Vín (Austurríki)-PSV Eindhoven (Hollandi) .... 1-2
Steua Búkarest (Rúmeníu)-Omonia (Kýpur) ............ 3-1
EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA
Shkodra (Albaníu)-Rovaniemen (Finnlandi) ........... 0-1
Ofi Crete (Grikklandi)-Atalanta (Ítalíu)............ 1-0
Den Haag (Hollandi)-Young Boys (Sviss) ............. 2-1
Real San Sebastian (Spáni)-Dynamo Minsk (Sovét.) ... 1-1
Kalmar (Svíþjóð)-Sporting Lissabon (Portúgal) ...... 1-0
Hamburger SV (V-Þýskalandi)-Ajax (Hollandi) ........ 0-1
Mechelen (Belgíu)-St. Mirren (Skotlandi)............ 0-0
Marseille (Frakklandi)-Hajduk Split(Júgóslavíu)...... **
EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA
Dundee Utd. (Skotlandi)-Vitkovice (Tékkóslóvakíu)... 1-2
Spartak Moskva (Sovét.)-Werder Bremen (V-Þýskal.) .....*
Bröndby (Danmörku)-Sportul Búkarest (Rúmeníu) ...... 3-0
Inter Milano (Ítalíu)-Turun (Finnlandi) ............ 0-1
Guimaraes (Portúgal)-Beveren (Belgíu)............... 1-0
AC Milano (Italíu)-Espanol (Spáni).................. 0-2
Wismut Aue (A-Þýskalandi)-Vlora (Albaníu) .......... 1-0
Aberdeen (Skotlandi)-Feyenoord (Hollandi) .......... 2-1
Chaves (Portúgal)-Honved (Ungverjalandi)............ 1-2
Utrecht (Hollandi)-Verona (Italíu).................. 1-1
Dortmund (V-Þýskalandi)-Velez Mostar (Júgóslavíu)... 2-0
Barcelona (Spáni)-Dynamo Moskva (Sovétríkjunum) .... 2-0
Toulouse (Frakklandi)-Leverkusen (V-Þýskalandi)..... 1-1
Panathinaikos (Grikklandi)-Juventus (Ítalíu)........ 1-0
Rauða Stjarnan (Júgóslavíu)-FC Brugge (Belgíu) .....3-1
Vitoria (Rúmeníu)-Dynamo Tbilisi (Sovétríkjunum)
* Frestað vegna þoku.
** Ekki lokið þegar Tíminn fór í prentun.
Handknattleikur, unglingalandsliðið:
Sigurá norskum
Islenska unglingalandsliðið í
handknattleik skipað leikmönnum
19 ára og yngri sigraði norska ungl-
ingalandsliðið á fjögurra liða móti í
V- Þýskalandi í gærkvöldi. Lokatöl-
ur urðu 23-19 Islendingum í hag.
Héðinn Gilsson lék vel og var
markahæstur í íslenska liðinu með
11 mörk en Bergsveinn Bergsveins-
son félagi hans úr FH átti einnig
góðan leik í markinu. Því niiður
tókst ekki að afla nánari upplýsinga
um leikinn í gærkvöldi.
Unglingalandsliðið leikur í kvöld
gegn Tékkum. -HÁ
Héðinn Gilsson var atkvæðamestur íslensku strákanna í gærkvöldi og gerði 11 mörk.
Handknattleikur:
Bjarni í bann
Bjarni Guðmundsson landsliðs-
maður í handknattleik hefur verið
dæindur í þriggja mánaða leikbann
í V-Þýskalandi. Dóminn fékk
Bjarni eftir atvik sem gerðist í leik
með liði hans Wanne-Eickel ■
deildinni fyrir nokkru. Bjarni átti
að hafa slegið mótherja á lokamín-
útu leiksins sem Wanne-Eickel
hafði þegar unnið. Það gerðist
hinsvegar aldrei heldur sló mót-
herjinn Bjarna í magann en hann
steytti aðeins hnefann á móti.
Dómarinn var ekki á sama máli og
aðrir sem sáu atvikið, v-þýski
handknattleiksdómstóllinn fór eft-
ir framburði dómarans og Bjarni
verður því í leikbanni næstu þrjá
mánuði. -HÁ
Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu, 2. umferð fyrri leikir:
Real vann Porto
- Anderlecht sigraði Sparta Prag - Slakt gengi Austur-Evrópuliðanna
Sóknarleikurinn borgaði sig
Ajax, liðið sem Johan Cruyff stjórnar,
uppskar eins og sáð var til, sigraði Hamburg
SV 1-0 á útivelli. Cruyff sagði fyrir leikinn
aö lið sitt myndi leika sóknarleik og hann
stóð við það, tefldi fram þremur mönnum í
fremstu víglínu. Hennie Meijer skoraði
Reutcr
Real Madrid sigraði Porto 2-1 í leik
liðanna í Evrópukcppni meistaraliða í Val-
encia í gærkvöldi, stórleik kvöldsins í 2.
umferö Evrópukeppninnar í knattspyrnu.
Hugo Sanchez og Miguel Sanchis skoruðu
mörk Real og komu þau bæði á síðasta
korterinu en Rabah Hadjer hafði áður
skorað fyrir Porto. Hollensku meistararnir
PSV Eindhoven og belgísku meistararnir
Anderlecht eru líkleg til að tryggja sér sæti
í 8 liða úrslitum í Evrópukeppni meistara-
liða. Bæði liðin unnu erfiða leiki en Bayern
Múnchen sem komst í úrslit í fyrra fær ærið
verkefni í síðari leiknum gegn Neuchatel
Xamax því þeir töpuðu fyrri leiknum 1-2.
Lið frá mið- og austur Evrópu áttu ekki
góðu gengi að fagna í gærkvöldi, Sparta
Prag tapaði fyrir Anderlecht (1-2, mörk
Anderlecht gerðu Vervoort og Frinnann),
austurrísku og pólsku meistararnir töpuðu
og Steua Búkarest frá Rúmeníu vann
nauman sigur á Ontonia frá Kýpur.
Tvö mörk í lokin
Tvö mörk á síðustu 9 mínútunum björg-
uðu Real Madrid frá tapi í Valencia.
Leikurinn var stórgóður og það voru aðeins
örfáar sekúndur eftir þcgar Real náði
forystunni. Þetta var í fyrsta skipti á þessu
keppnistímabili sem lið Real Madrid hefur
verið nálægt því að tapa leik. Eftir þessi
úrslit á Portoliðið góða möguleika á að
komast í átta liða úrslitin því þeir þurfa
aðeins að vinna heimaleikinn 1-0.
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild kvenna:
FH-sigur í Digranesi
sigurmark Ajax á 52. mín. Þrátt fyrir aö
aðeins eitt mark væri skorað var leikurinn
opinn og skemmtilegur. Hamborgarliðið
átti fjölmörg góð færi í leiknum en Stanley
Menzo varði hvað eftir annað glæsilega og
var hetja liðs síns. Ajax fer því heim til
Amsterdam með dýrmætt útimark í tösk-
unni. -HÁ
FH vann Stjörnuna með 21 marki gegn
19 í leik liðanna í 1. deild kvenna á
íslandsmótinu í handknattleik í gærkvöldi.
Staðan í hálflcik var 11-9 FH í hag.
Leikurinn var slakur en nokkuð spennandi.
Stjarnan minnkaði muninn í 1 mark, 20-19
skömntu fyrir leikslok en Eva Baldursdóttir
innsiglaði sigur FH með rnarki á lokasek-
úndunum. Erla Rafnsdóttir lék best í liöi
Stjörnunnar en engin ein bar af í liði FH.
Mörkin, FH: Eva Baldursdóttir5, Kristín
Pétursdóttir 4, Rut Baldursdóttir 4, Heiða
Einarsdóttir 3, Inga Einarsdóttir 2, Sigur-
borg Eyjólfsdóttir 2, Hildur Harðardóttir
1. Stjarnan: Erla Rafnsdóttir 6. Guðný
Gunnsteinsdóttir 3, Ragnheiður Stephens-
en 3, Hrund Grétarsdóttir 2, Drífa Gunn-
arsdóttir 2, Jngibjörg Andrésdóttir2, Herd-
ís Sigurbergsdóttir 1.
Haukar sigruðu Þrótt í fyrrakvöld 22-15
(8-6). Þórlaug Sveinsdóttir var markahæst í
liði Þróttar með 6 ntörk en Hrafnhildur
Pálsdóttir (6) og Margrét Theodórsdóttir
(6/2) skoruðu mest í Haukaliðinu. -ps
I kvöld
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild:
ÍBK-Haukar Keflavík kl. 20.00
1. deild kvenna:
UMFG-Haukar Grindavík - 20.00
Handknattleikur
íslenska unglingalandsliðið keppir
við Tékka á handknattleiksmótinu í
V-Þýskalandi.
15 wm
- .
JF «ík ' w.
Framsóknarfólk Austurlandi athugið 28. kjördæmisþing framsóknarmanna á Austurlandi, verður haldið á Hótel Höfn, Hornafirði dagana 30. og 31. október n.k. og hefst kl. 20.00. Gestir þingsins verða: Steingrímur Hermannsson, Guðmundur Bjarnason, Sigurður Geirdal, Guðrún Jóhannsdóttir frá L.F.K. og Guðmundur Gylfi Guðmundsson frá S.U.F. Nánari upplýsingar í síma 97-11584. KSFA.
I I
«r -"5* 1 ; | i W •'! JBEEBgmsEBL wmm*
p
Í|| 11
Byrjendanámskeið - Framhaldsnámskeið
Landssamband framsóknarkvenna i samvinnu við Samband ungra
framsóknarmanna býður hér með upp á hin vinsælu námskeið í
sjálfsstyrkingu, fundarsköpum, fundarhaldi og framkomu í sjónvarpi.
Alls 5 kvöld eða 1 helgi.
Einnig framhaldsnámskeið 4 kvöld eða helgi þar sem boðið verður
upp á leikræna tjáningu, framsögn, ræðumennsku og sjónvarpsfram-
komu. Reyndir hressir leiðbeinendur taka að sér leiðsögnina.
Ef þið hafið áhuga þá hringið sem fyrst i síma 91-24480 og pantið
námskeið. Góð fjárfesting fyrir gott verð.
LFK og SUF
Keflavík -
aðalfundur
Aðalfundur Framsóknarfélags Keflavíkur verður
haldinn í Framsóknarhúsinu Austurgötu 26, Kefla-
vík, fimmtudaginn 22. október kl. 20.30.
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Önnur mál
Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra verður
gestur fundarins.
Stjórnin
Kopavogsbúar
Skrifstofa Framsóknarfélaganna, Hamraborg 5, 3. hæð er opin alla
virkadaga kl. 10-12, sími 41590.
Opið hús alla miðvikudaga kl. 17-19.
Starfsmaður: Einar Bollason
Tökum höndum saman og hefjum öflugt vetrarstarf.
Heitt á könnunni. Framsóknarfélögin.