Tíminn - 22.10.1987, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 22. október 1987
Tíminn 5
Að 300.000 pundum töpuðum segir Ikense í bréfi til stjórnvalda:
Biður menn í guðs nafni
að trúa ákæran sé
Skreiðarsamlagið hefur stefnt
Mike Ikense ræðismanni íslands í
Nígeríu fyrir rétt í London, þar sem
krafist er endurgreiðslu á 300.000
sterlingspundum eða um 19 milljón-
um íslenskra króna miðað við núver-
andi gengi, sem Ikense voru greiddar
árið 1984. Skreiðarsamlagið, ásamt
fleiri skreiðarframleiðendum, lét Ik-
ense hafa þessa peninga til að liðka
fyrir sölu á skreið til Nígeríu en
ekkert varð úr sölu og því hefur
Ikense nú verið stefnt. Ólafur
Björnsson stjórnarformaður Skreið-
arsamlagsins mun hafa gert þann
fyrirvara á þegar ræðismanninum
var afhentur tékkinn að peningunum
yrði skilað ef salan mistækist. Tékk-
inn hái var stílaður á nafn Ikense og
kvittaði hann fyrir móttöku hans á
sínum tíma og hefur Skreiðarsam-
lagið undir höndum þá kvittun. Taka
átti mál þetta fyrir í London þann
16. október en því var síðan frestað.
Ólafur ræðir ekki málið
Þegar Tíminn hafði samband við
Ólaf Björnsson til þess að spyrja um
framgang stefnunnar á hendur Ik-
ense kvaðst hann ekkert vilja við
blaðið tala og það gæti aflað sér
upplýsinga eftir öðrum leiðum.
„Eg held að það sé langbest að þið
á Tímanum haldið ykkur við vkkar
heimildir um skreið," svaraði Ólafur
Björnsson. „Tíminn hefur rætt
býsna mikið um skreiðarmál án þess
að hafa samband við mig og í það
eina sinn sem rætt var við mig var
birtur tómur útúrsnúningur sem
fékkst ekki leiðréttur. Svo ég hef
ekkert um þetta að tala við ykkur,“
sagði Ólafur ennfremur.
- Viltu ekki gera grein fyrir málum
ykkar Ikense ræðismanns?
“Nei, nei, nei.“
- Viltu ekkert segja um greiðslu
300 þúsund sterlingspunda umboðs-
launa?
„Nei!“
- Veist þú ekkert um þetta?
„Margt í þessum hlutum er nú
ágiskanir. Ég kæri mig ekkert um að
blanda mér í ykkar heimildir."
Frekari upplýsingar fengust ekki
hjá stjórnarformanni Skreiðarsam-
lagsins, um málaferli á hendur Ik-
ense í London.
„Trúið mér í guðs bænum“
Ikense ræðismaður, hefur hins
vegar sent íslenskum stjórnvöldum
bréf þar sem hann fullyrðir að stefna
Skreiðarsamlagsins á hendur sér sé
ótrúleg og byggð á þeirri fölsun að
„þetta fé hafi verið greitt mér pers-
ónulega sem umboðslaun og að mér
hafi borið að endurgreiða það ef ég
skilaði ekki viðunandi árangri," eins
og segir orðrétt í bréfi ræðismanns-
ins til íslenskra stjórnvalda. „Trúið
mér, í guðs nafni, þetta er hrein
lygi,“ segir ræðismaðurinn ennfrem-
ur. Hann fullyrðir í bréfi sínu að
ávísunin frá Skreiðarsamlaginu að
upphæð 300.000 sterlingspund hafi
verið „fyrirfram útborgun sem dreifa
átti til stuðningsmanna íslands í
Nígeríu til þess að þrýsta á um að
kaupsamningar tækjust," eins og
segir í bréfinu. Áður en þessu fé var
útdeilt meðal nígerískra kaupsýslu-
manna hafði Skreiðarsamlagið í
gegnum Ikense reynt að liðka fyrir
samningum meðal annars með því
að sýna bréf þar sem loforð um
umboðslaun væru gefin og eins með
því að sýna ljósrit af ávísun upp á 2
/?/ÍIiíæð,smaðu
'®ands „mútunt"
skreiöarf,amJei&jnHU UPP‘ m'öal
Þeirra °S Mn,,aka
umboöslaun '2 8 gcra á “PP
, London fyri, T '•')'ndus," <
Jvennum sbgum
' ,n8“ un,bodslaunan„f
5iðarframleiðor.^„ a_ . ™ ■
ramleiðenda frvsfnr; i *
’ LLTckk,nn v.r .. anc,sbankanum
katUþau hrci®ar ** ■ SV° lansl a<'
-m&'i
.< . •I
kt'ypi hiijuirA. f
sKSft&arr™
.
húsii) mcðul fvi '' n.'nu
'bippú'nd' “ w “ú ,l’"'u"‘l I
ttssr^.......nl
• 1 vsrs peiMngariur I
ikannar
I ■ Muarleaar ása
***** BH
."b**
nc tið hynjtsl ^ \ano> ■ ■ --*>
lIliÉl
munu .i,|!nl”™ltVUkki samt'ykk'-l
tali viö Tímann » g*r ^ a yið áv(S.
maður\kcnseshe^eK;,U|nánuði
þcssaðlkenyevaiek
Talsserð “r '.toriðuneyúð mun a(la|
milljónir dollara, en þcirri ávísun
átti að skipta þegar samningar tækj-
ust og borga samningaaðilunm í
Nígeríu. Þessar ráðstafanir dugðu
þó ekki og því segir Ikense að hann
hafi gripið til þcss að útdeila 300.000
sterlingspundum til „stuðnings-
manna lslands í Nígeríu". Ræðis-
maðurinn orðar það svo að „í raun
og veru, var þetta fé fengið mér til
þess að múta mönnum í þeim til-
gangi að ná sölusamningi. Pening-
arnir voru síðan skilvíslega notaðir
til þess sem þeir voru ætlaðir," scgir
í bréfi Ikense.
Ræðismaðurinn Ikcnse, segir í
bréfi sínu til stjórnvalda að sú
ákvörðun Skreiðarsamlagins um að
stefna sér fyrir rétt hafi stillt sér upp
við vegg. Segir hann að hann hafi
alltaf litið svo á að hann væri erind-
reki. íslenskra stjórnvalda og
„Skreiðarsamlagið hafi kynnt sig
sem stofnun tilnefnda af stjórnvöld-
um með umboð til þess að gera
milliríkja samninga".
Frystir afurðalánavextir
Mál Ikenses er raunar ekki nýtt af
nálinni og í descmber síðastliðnum
skýrði Tíminn frá því að hagsmuna-
aðilar í skrciðarframleiðslu hefðu
farið fram á að frysta ákveðna upp-
hæð á reikningi í Landsbankanum,
af þeim endurgreiðslum vaxta af
afurðalánum sem skreiðarfram-
leiðendur áttu rétt á að fá til baka
samkvæmt sérstakri ríkisstjórnarák-
Ólafur Björnsson
vörðun. Sú upphæð átti að duga sem
trygging fyrir borgun á 300.000 sterl-
ingspundunum sem „glatast höfðu",
á meðan ekki var Ijóst hvernig eða
hverjir ættu að bera þcnnan kostnað.
Þá eins og nú var það trú margra
skreiðarframleiðenda að Ikense
hefði sjálfur tekið þctta fé og notað
til eigin neyslu, og m.a. fullyrtu
margir þeirra að hann hcfði kcypt
sér búgarð skammt frá London sem
í daglcgu tali gekk undir nafninu
„Stockfish house“ cða Skrciðarhús-
ið. BG/ÞJ
Hvarvetna komið að lokuðum dyrum:
Þornaðar allar
upplýsingalindir
Þetta mál hefur lengi verið á döfínni samanber fyrri fyrirsagnir í Tímanum.
Það vekur athygli að enginn vill
raunverulega tjá sig um stefnu Ólafs
Björnssonar, stjórnaiformanns
Skreiðarsamlagsins, til Ikense,
ræðismanns, vegna skreiðarsölu til
Nígeríu.
ðlafur Björnsson sjálfur neitar að
ræða við Tímann, sem kom að
harðlokuðum dyrum á þeim bæ.
Hann sagði að ræða skyldi við Ragn-
ar Sigurjónsson hjá Sambandinu.
Gísli Konráðsson hjá Útgerðarfélagi
Akureyrar sagði eðlilegast að ræða
við Ólaf eða Ragnar og vildi ekki tjá
sig um málið sjálfur. Stefán Gunn-
laugsson, deildarstjóri hjá viðskipta-
ráðuneytinu, sem þekkir til þessa
máls eftir veru sína crlendis, taldi
rangt að hann ræddi málið opinber-
lega.
Ragnar Sigurjónsson er hins vegar
erlendis, þar sem ekki reyndist unnt
að ná af honum tali. Ólafur Straum-
land hjá sjávarafurðadeild Sam-
bandsins sagði að Ragnar þekkti að
sjálfsögðu til málsins og gerði sér í
hugarlund að bent væri á hann vegna
þess að ekki væri heiglum hent á ná
sambandi við .hann sem stendur.
Ólafur sjálfur taldi sig ekki þekkja
nægilega til málavaxta til að ræða
um það. þj
Viðurkenndu
veiðiþjófnað
Allir sáttir
Tveir menn hafa við yfirheyrslur
játað veiðiþjófnað á hreindýrum á
Héraði á laugardaginn. Skutu þeir
fjögur dýr á Breiðdalsheiði, í svo-
kölluðum Hreindýrahraunum, ör-
skammt frá vegi. Lögreglu á Egils-
stöðum bárust upplýsingar um málið
á sunnudag. Ummerki á vettvangi
voru ótvíræð. Innyfli úr fjórum dýr-
um fundust og tóm skothylki. Blóð-
slóð lá frá innyflunum og niður að
vegi.
Rjúpnaskyttur sem voru í ná-
grenninu gátu gefið upplýsingar um
þá bíla sem voru á ferðinni og tókst
að rekja blóðslóðina til heimila við-
komandi.
Rannsóknarlögregla á Eskifirði
kannaði málið sem nú er að fullu
upplýst. -ES
Deilum flugmanna og stjórnar
Landhelgisgæslunnar er nú loks lok-
ið og starfscmi Gæslunnar að færast
aftur í eðlilegt horf.
„Við skrifuðum undir samninga á
hádegi á mánudag og eins og í öllum
samningum, þá eru allir sáttir við
sitt. Þá er allt að fara af stað aftur
hjá okkur. Samningurinn gengur út
á mat á bakvöktum og viðveru
flugmanna. Hér var ekki um neinar
launahækkanir að ræða í þeirri
merkingu. Það var aldrei farið út í
slíkt. Heldur var hér alfarið um að
ræða hvernig mat ætti að leggja á þá
umfram vinnu sem við hugsanlega
getum staðið frammi fyrir,“ sagði
Bogi Agnarsson, samningarnefndar-
maður flugmanna í samtali við Tím-
ann um málið.
„Við erum núna að skipuleggja
vaktirnar og síðan hefst bara þetta
reglulega æfingaflug, sem legið hefur
niðri hér af ýmsum ástæðum. TF-SIF
bilaði nú hér um daginn. Það fór
slanga, en það verður væntanlega
lagað strax í dag“ sagði Bogi.
Sjómenn og aðrir þeir sem treysta
mikið á viðbragðsflýti og björgunar-
aðgerðir Landhelgisgæslunnar geta
því farið að anda léttar, þegar þessi
mikilvægi hlekkur í öryggiskeðju
landsins er aftur kominn í gang.
-SÓL