Tíminn - 22.10.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 22. október 1987
Austfirska sjónvarpsfélagiö:
Hefja útsendingar
í endaðan nóvember
Mánudaginn 19. októbervarhald-
inn á Egilsstöðum blaðamannafund-
ur þar sem sagt var frá rekstri
sjónvarpsstöðvar á Austurlandi.
Nokkrir áhugasamir einstaklingar
stofnuðu Austfirska sjónvarpsfélag-
ið hf. í febrúar s.l. og stefnt er að því
að hlutafé fyrirtækisins verði fjórar
milljónir.
Þegar hafa nokkrir einstaklingar
og fyrirtæki fest sér hlutafé, en
almennt hlutafjárútboð hefur þó
ekki farið fram. í byrjun munu
útsendingar nást á Reyðarfirði,
Eskifirði, Egilsstöðum og í Nes-
kaupstað. Stuttu síðar munu Vopna-
fjörður og Seyðisfjörður bætast í
hópinn. Aætlað er að útsendingar
náist til Hafnar í Hornafirði og
norður til Bakkafjarðar um leið og
tækniútbúnaður er fyrir hendi.
Áætlað er að hefja útsendingar í
lok nóvember ef ekki koma upp
tæknileg vandamál. Megin uppist-
aða Sjónvarps Austurlands verður
til að byrja með fengin frá Stöð 2 í
Reykjavík, en í lok ársins verður
komið upp myndveri á Egilsstöðum.
Þá mun verða hægt að vinna
austfirskt efni sem síðar verður
blandað inn í dagskrána. Verður
það lagt yfir aðra liði og þeir teknir
út á meðan. Þeir liðir sem þannig
falla út verða sýndir seinna.
Dagskráin verður að hluta send út
læst og verða myndlyklar seldir af
söluaðilum Heimilistækja á aðgengi-
legum kjörum.
Flísaverksmiðja Bárðdælinga
TÆKI OG FORM
FRÁ BELGÍU í
NÆSTA MÁNUDI
„Þetta framtak okkar cr háð því
hvort þetta fellur neytendum í geð.
Það sem er nýtt við þctta er að flís-
arnar eru steyptar í gúmmímótum og
framleiðslukeðjan er mjög stutt og
viðráðanleg," sagði Egill Gústafs-
son, oddviti á Rauðafelli í Bárðar-
dal, er Tíminn leitaði frekari upplýs-
inga um sementsflísagerð sem þar er
að fara af stað.
Sementsflísarnar eru ekki beint
hliðstæðar keramíkflísum þcim sem
á markaðinum hafa verið til þessa,
því að hér er um aðra áferð að ræða,
annað efni og aðra vinnsluaðferð.
Flísar þær sem verið er að fara að
reyna framleiðslu á í Bárðardalnum,
eru þó hliðstæðar þeim að því leyti
að um vegg- og gólfflísar er að ræða.
Stofna félag um flísarnar
„Það er meiningin að mynda um
þessa starfsemi einhvers konar félag
hér í Bárðardalnum, þó að ég hafi
verið skrifaður fyrir þessu til þessa,”
sagði Egill ennfremur. „Það er bara
af því að ég er oddvitinn. Við erum
núna að leita að notuðu húsi undir
starfsemina og ætlum að hefja til-
raunaframleiðslu í vetur.“ Sagði
hann að þeir byggjust við að tækin
frá Belgíu og hugmyndapakkinn,
færi af stað þaðan í byrjun næsta
mánaðar. Ekkert lægi í raun á með
að hefja framkvæmdir, því að miklar
annir stæðu yfir í sveitinni um þessar
mundir.
Frá hugmynd til dreifingar
Varðandi dreifinguna er það að
segja að búið er að tala við BYKÓ í
Kópavogi um aðsjá um sölu á flísun-
um, án þess að um formlegan samn-
ing væri þar að ræða.
Hugmynd þessi er til komin fyrir
milligöngu hugmyndabankans sem
talað var um í Tímanum í gær. Sá
sem veitt hefur honum forgöngu, er
Ásgeir Leifsson. Fékk Ásgeir sér-
staka viðurkenningu á Bú 87 fyrir
þcnnan vísi að hugmyndabanka.
Banki þessi er reyndar ekki ein-
göngu hugsaður fyrir bændur því að
þarna eru hugntyndir sem ýmsir ein-
staklingar geta hrint í framkvæmd.
Út úr þessum banka er hægt að finna
sér hentugt verkefni og við hæfi
hvers og eins. Á bak við hverja hug-
mynd er síðan að finna grófa áætlun
um framleiðslu, þjónustu eða annað
verkefni sem til greina kemur að
kaupa. Framleiðsla Bárðdælinga er
dæmi um verkefni sem fundið er í
gegnum þennan banka.
Skoðuðu móður-
verksmiðjuna í Belgíu
Milligöngu í þessu tiltekna verk-
efni annaðist iðnráðgjafi á Húsavík,
Sigurbjörn Þorkelsson. Það var með
fulltingi hans að Egill fór við annan
mann til Belgíu í haust og skoðuðu
þeir móðurverksmiðjuna þar. Sagði
hann að þetta væru fallegar flísar, og
byggðist framleiðslan á tiltölulega
nýrri aðferð sem ekki hefur verið
reynd hér á landi áður. Tækin eru frá
Belgíu og framleiðslukeðjan einnig.
Eftir þessa utanför var ráðist í að
panta tækin og hugmyndina og kost-
ar þetta fyrirtæki ríflega þrjár millj-
ónir í heild. Með kaupum á hug-
myndinni og framleiðslueiningunni,
verður lítið mál að stækka verkstæð-
ið eftir eftirspurn og áhuga.
Geta steypt eftir pöntunum
Það sem Egill taldi hvað athygl-
isverðast við framleiðslu þessa, er sú
hagræðing sem felst í því hversu
framleiðslulínan erstutt. Hægt verð-
ur með góðu móti og án aukakostn-
aðar að steypa flísar eftir pöntunum
ef eftir verður leitað. Neytendur og
notendur aðrir eiga því auðvelt með
að fá nákvæmlega þær flísar sem þeir
eru á höttunum eftir innan þessa
vöruflokks.
Þá eru stækkunarmöguleikar
miklir og tiltölulega ódýrir í
framkvæmd. Innan fárra ára má því
búast við að frá Bárðardalnum fari
að streyma flísar á hvers manns veggi
og gólf og verður vissulega spenn-
andi að fylgjast með framvindu þessa
nýja fyrirtækis.
Norðurlandaráö efnir til ráðstefnu:
Hafsmengun rædd í
Kaupmannahöfn ’89
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs
ákvað á fundi sínum í Stokkhólmi
15. október sl. að efna til alþjóð-
legrar ráðstefnu um hafsmengun
og verður hún haldin í Kaup-
mannahöfn haustið 1989. Til henn-
ar verður boðið þingmönnum frá
mörgum ríkjum Evrópu og full-
trúum alþjóðasamtaka.
Fyrir ári síðan hélt Norður-
landaráð ráðstefnu um loftmengun
yfir landamæri. Fulltrúar 10 al-
þjóðasamtaka og þingmenn frá 16
löndum í Austur- og Vestur-Evr-
ópu tóku þátt í henni.
Markmið ráðstefnunnar er að
skilgreina og gefa yfirlit um orsakir
mengunar hafsvæða, og skapa sam-
stöðu Evrópu um frekari aðgerðir
tilaðdragaúrhafsmengun. -SÓL
Sjúklingar upp-
lýstir um heild-
arverð lyfja
Sjúklingi sem keypti sér lyf í
Garðs apóteki nú í vikunni kom á
óvart að sjá eftirfarandi upplýsing-
ar prentaðar á sérstakan merki-
miða á lyfjaumbúðunum:
Heildarverð 4.650 kr.
Hluti samlags 4.300 kr.
Hluti sjúklings 350 kr.
- enda fæstir hingað til haft hug-
mynd um hvert hefur verið hið
raunverulega verð lyfjanna sem
þeir kaupa. En nú má búast við
breytingum á því.
„I umræðunni um lyfjamál að
undanförnu hefur mikið verið talað
um að reyna að gera fólk meðvit-
aðra um raunverulegt verð lyfj-
anna sem það er að kaupa í
apótekunum og það má segja að sú
ákvörðun að setja verð lyfjanna
utan á umbúðirnar hafi komið í
framhaldi af því,“ sagði Guðmund-
ur Reykjalín hjá Apótekarafélagi
íslands.
Hann sagði að á vegum apótek-
ara sé í þróun tölvukerfi til að
ganga frá utanáskriftinni. Nokkur
apótek séu þessa dagana að taka
þetta upp til prufu, en síðan sé
stefnt að því að slíkar merkingar
verði gerðar í flestum apótekum.
Eftir tilkomu hins nýja kerfis verði
lyf sem ávísað er á hverjum lyfseðli
- eitt eða fleiri - sett saman í poka
sem merktur verður nafni og
heimilisfangi sjúklingsins ásamt
með hvert samanlagt heildarverði
lyfjanna er, hvað sjúkrasamlag
borgar af verði þeirra og hvað
sjúklingurinn sjálfur borgar.
Sem kunnugt er borga sjúklingar
fast gjald fyrir hvert lyf, hæst 350
krónur, hvort sem lyfið hans kostar
400 kr. eða 40.000 kr., sem dæmi
munu til um. Með nýja fyrirkomu-
laginu fá þeir hins vegar að sjá
hvort sjúkrasamlagið borgar t.d.
30 kr., 3.000 kr. eða kannski
30.000 kr. fyrir meðalaglasið hans.
-HEI
Sjúkrasamlagið sleppur ekki alltaf svona billega eins og á þessu
sýnishorni af lyfjakaupum Jóns Jónssonar í gær. Þar sem um svo
ódýrt lyf var að ræða dugði fastagjald sjúklingsins fyrir öllu nema
18 krónum af heildarverði lyfsins, sem því kom í hlut sjúkrasamlags-
ins. Sá hluti getur í mörgum tilfellum skipt mörgum þúsundum
króna. Tímamynd Pjetur
Apótekarar auka upplýsingagjöf með nýrri tölvu-
tækni við afgreiðslu:
YFIRSJON!
Þingfréttaritari Tímans biður lesendur velvirðingar á þeim aulaskap að hafa
flokkað orðið „mafía“ sem lýsingarorð, en það er auðvitað nafnorð. ÞÆÓ